Vísir - 21.08.1972, Blaðsíða 21

Vísir - 21.08.1972, Blaðsíða 21
Visir Mánudagur 21. ágúst 1972 21 1 1 □AG | Q KVÖLD □ DAG | Q KVÖ L n DAG Peter Barkworth einn af gestunum i „Kveöjuhófinu". llér er hann ásaint Su/.anne Neve að leika i einu af sjónvarpsleikritum Armchair Theatre. Barkworth þekkjum viö betur sem Bligh yngri i „Valdatafli”. Aukinn afsláttur af ýmsum sumarfatnaði og fl. Aðrar vörur með 20% afslætti. Gerið góð kaup. Barnafatabúðin, Hverfisgötu 64. (við Frakkastig). Útvarp kl. 21,00: „Við gefumst aldrei upp" blóð.svita og tár. Fram i rauðan dauðann munum við berjast þar til yfir lýkur. Að loknu striðinu voru svo kosningar i Bretlandi. Bretland var ekki viðbúið að þakka leið- toga sinum Winston Churchill fyrir farsæla stjórn á árunum 1940-45 þegar seinna heimsstriðið geisaði. í kosningunum voru hann og stjórn hans felld og nýir menn tóku við stjórnartaumunum. Clemence Attlee og félagar hans i Verkamannaflokknum mynduðu nýtt ráöuneyti sem auðnaðist að lifa fram yfir 1950 þar til Churchill tók aftur við völdum. 1955 dró svo hin aldna kempa sig út úr hildarleiknum og settist i helgan stein ásamt konu sinni. Winston Churchill var vinsæll for- ingi með afbrigðum. Fas hans og viðmót voru engu öðru lik. Hann var i senn skapmikill og ljúfur og vann sér fljótt almannahylli. Þegar hann lézt 1965 liðlega niræður að aldri, syrgði brezka þjóðin hann sem hetju og þakkaði honum fyrir góð störf i þágu hennar. Winston Churchill var tvimæla- laust einn af „mönnum aldar- innar” og verður gaman að heyra rödd hans af gömlum stálþráðum úr striðinu sem geymzt hafa og nú i kvöld eru „Styrjaldarleið- togarnir” i útvarpinu i umsjón Páls Heiðars og Dags Þorleifs- sonar að venju. Þá er komið að Churchill i styrjaldarleiðtogunum. Winston C'hurchill náði hárri elli og yfirgaf ekki stjórnmálin fyrr en hann var kominn á niræöisaldur. Um hálfrar aldar skeið var hann i eld- linunni i brezkum stjórnmálum og setti meiri svip sinn á öldina en flestir hans kollegar. Hann leiddi þjóð sina á striðs- árunum til sigurs meö mikilli þrautseigju barði henni i brjóst að vera hugdjörf og gefast ekki upp hvað sem það kostaði. „We will never surrender”, sagði hann i frægri útvarpsræðu 1941 þegar loftárásir Þjóðverja á London stóöu sem hæst. Hann sagði seinna i þessari ræðu að hann byði þjóð sinni ekki upp á gull og græna skóga. Nei, ég býð yður Sjónvarp kl. 21,00: For- ^☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆^☆*'i:f***'l**lCr*',*w,*w'2 stjórinn kvadd- ur Það er parti. Nokkrir millistéttarmenn og konur þeirra eru samankomin á heimili for- stjóra nokkurs. Þar er margt skrafaö. lyft glösum og fólk revnir að vera skemmtilegt. Nú, það verður auövitaö að vera til- efni til að halda parti. Verið er að kveðja fyrrverandi forstjóra i heiöursskyni fyrir vel unnin störf út á við og innan fjölskyldunnar. ilér eftir ætlar hann að helga sig öðrum störfúm. Til samkvæmisins eru mættir ýmsir aðilar sem vilja láta vor- kenna sér. Vandamál sin bera þeir á torg og láta alla taka þátt i þeim. Ber nú eitt og annað við i hófinu sem bezt er að láta ekki uppi en setjast þess i stað við tækið kl. niu i kvöld. Einn af aðalleikurum „Kveðju- hófsins” er Peter Barkworth. Hann er reyndar góðkunningi islenzkra sjónvarpsáhorfenda. Um þessar mundir er hann á skerminum á hverjum miðviku- degi sem Bligh yngri i „Valda- tafli”. Áður hefur hann komið fram i brezkum sjónvarpsleikritum sem sjónvarpið hefur sýnt af og til, m.a. i myndum frá Armchair Theatre. Barkworth virðist bezt túlka miðaldra millistéttamann eða makráðan auðmann sem berst nokkuð á i þjóðfélaginu en er þegar á allt er litið aðeins veik keðja eða litið hjól i stærra verki, (sbr. Valdatafl.). GF. SÝNIN6AR Þjóðminjasafn. Opið daglega 13.30- 16. I.istasafn Ríkisins. Opið daglega 13.30- 16 Asgrimssafn. Opið daglega i 13.30- 16. Safn Kinars Jónssonar. Opiö 10.30- 16. Ilandritasafniö. Opið miöviku- daga og laugardaga 14-16. Árbæjarsafn. Opið alla virka daga frá 13-18 nema mánudaga. SJONVARP MÁNUDAGUR 21. ágúst 1972. 20.00 Kréttir. 20.25 Vcður og auglýsingar 20.30 Fljótalandið Guyana. Lokaþáttur myndaflokks, sem sænskir leiðangurs- menn gerðu um fugla- og dýralif i frumskógum Guy- ana i Suður-Ameriku. (Nordvision — Sænska sjón- varpið) Þýðandi og þulur Gylfi Pálsson. 21.00 Kveðjuhófið.Brezkt sjónvarpsleikrit eftir Laur- ence Wells. Leikstjóri Voy- tek. Aðalhlutverk Ancharad Rews, Ray Brooks og Peter Parkworth. Þýðandi Ellert "-Sigurbjörnsson. Leikurinn gerist i hófi, sem haldið er til heiðurs fráfarandi fram- kvæmdastjóra, og greinir meðal annars frá áhuga- málum og vandamálum ýmissa, sem þangað koma. 21.55 Umbreyting. Leikur að formum og tónum eftir öi- stein Sommerfeldt, byggður á . hueleiðineum um ein- manaleikann og furðuheim « «- «- «- «- «- «- «- «- «• «- «- «- «- s- s- «- «- «- « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « W Nt UL n Spáin gildir fyrir þriðjudaginn 20. ágúst. Hrúturinn. 21. marz—20. april. Góður dagur yfirleitt, en beztur heima. Hætt við að ferðalög valdi einhverjum vonbrigðum, eða óvæntar tafir geti dregið úr ánægjunni. Nautið,21. april—21. mai. Það bendir allt til að þetta geti orðið góður dagur, en þó þurfi nokkurrar gætni við einkum á ferðalögum. Fyrst og fremst að ætla sér rúman tima. Tviburarnir, 22. mai—21. júni. Þetta verður góður dagur i sjálfu sér, að þvi er séð veröur. Ef til vill nýtist þér hann ekki vegna áhyggna af einhverjum nákomnum. Krabbinn, 22. júni—23. júli. Allt bendir til að þetta verði góður dagur, og þó sennilega betri heima en á ferðalagi, þótt ekki sé þar með sagt að svo hljóti að vera. Ljóniö.24. júli—23. ágúst. Farðu fyrst og fremst gætilega -i dag, hvort heldur er heima eöa heiman. Þegar á liður ætti þó allt aö verða öruggara og kvöldið skemmtilegt. Meyjan, 24. ágúst—23. sept. Það getur farið svo að eitthvað óvænt verði upp á teningnum i dag, sennilega harla skemmtilegt sumt, einkum er á liður og þá heima fyrir. Vogin,24. sept—23. okt. Það er eitthvaö þaö, sem þú þarft að koma frá i dag . Ef til vill að segja einhverjum vissa hluti, sem þú tekur nærri þér, en fagnar þegar þvi er lokið. Drekinn, 24. okt,—22. nóv. Þaö litur út fyrir að dagurinn verði hinn ánægjulegasti, einkum heima fyrir og sér i lagi þegar á liöur. Taktu kvöldið snemma og hvildu þig vel. Bogmaðurinn, 23. nóv—21. des. Sennilegt er aö dagurinn veröi góöur, og yngri kynslóðinni getur hann orðið hinn skemmtilegasti heima og heiman og einkum er á liður. Steingeitin. 22. des—20. jan. Gagnstæða kyniö mun setja ánægjulegan svip á helgina, ásamt öðrum góöum kunningjum. Faröu gætilega á ferðalagi og ætlaðu þér rúman tima. Valnsberinn,21. jan—19. febr. Farðu gætilega á ferðalagi, einkum þegar liöur á daginn. Taktu ekki um of mark á þeim, sem vilja tefla á tæpasta vaðið hvað timann snertir. Fiskarnir, 20. febr. —20. marz. Þetta verður aö ýmsu leyti góöur dagur, en þó mun betri heima heldur en á ferðalagi, og er þó ekki þar meö sagt að þú þurfir aö óttast slys eða þess háttar. <t <t <t <t ■h -» <t <t <t <t * <t <t <t <t <t <t <t <t <t <t <t <t <t <t <t ,<t <t <t <t <t <t <t <t <t <t <t $ <t <t <t <t <t <t <t <t <t <t <t <t <t <t <t <t <t <t <t <t <t <t <t <t <t <t <t <t <t <t <t <t <t <t <t <t <t <t <t <t <t <t <t <t <t <t <t <t <t <t <t <t <t <t <t <t <t <t <t <t <t <t <t frumeindanna. (Nordvision — Norska sjónvarpið) 22.05 Sovétrikin i dag-Fram- hald sænsku myndarinnar um valdatimabil Stalins i Sovétrikjunum, sem sýnd var i byrjun siðustu viku. (Nordvision — Sænska sjón- varpið) Þýðandi Jóhanna Jóhannsdóttir. 22.35 Dagskrárlok. IITVARP MÁNUDAGUR 21. ágúst 13.00 Við vinnuna: Tónleikar. 14.30 Siðdegissagan: „Þrútið loft” eftir P.G. Wodehouse Jón Aðils leikari les (6). 15.00 Fréttir. Tilkynningar. 15.15 Miðdegistónleikar Joseph Szigeti og höfundur leika Sónötu no. 2 fyrir fiðlú og pianó eftir Béla Bartók. Peter Rears syngur sex „Hölderlin-söngva” eftir Benjamin Britten: höfundurinn leikur á pianó. Mstislav Rostropovitsj leik- ur Sónötu fyrir selló og pianó op. 40 eftir Sjosta- kovitsj: höfundurinn leikur á pianó. 16.15 Veöurfregnir. Létt lög. 17.00 Fréttir. Tónleikar. 17.30 „Sagan af Sólrúnu” eftir Dagbjörtu Dagsdóttur.Þór- unn Magnúsdóttir leikkona les (1). 18.00 Fréttir á ensku 18.10 Létt lög. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Tilkynningar. 19.30 Daglegt inál . Páll Bjarnason menntaskóla- kennari flytur þáttinn. 19.35 Uni daginn og veginn Einar Kristjánsson rit- höfundur talar. 19.55 islandsmótið i knatt- spyrnuEram og tBK leika á Laugardalsvellinum. Jón Ásgeirsson lýsir. 20.45 islenzk einsöngslög-Guð- rún Á. Simonar syngur lög eftir Sigvalda Kaldalnns; Guðrún Kristinsdóttir leikur undir 21.00 Styrjaldarleiðtogarnir: VIII.: Winston Churchill 1. þáttur.Umsjónarmenn: Páll Heiðar Jónsson og Dagur Þorleifsson. Flytjendur með þeim: Jónas Jónasson, Hjörtur Pálsson, Jón Múli Árnason, og Sigrún Sig- urðardóttir. Auk þeirra kemur fram dr. Helgi P. Briem, ambassador. 22.00 Fréttir. 22.15 Veðurfregnir. Búnaöar- þáttur: Úr heimahögum. Gisli Kristjánsson talar við d Eiriksson á Skjöldólfs- stöðum. 22.40 Hljómplötusafnið i um- sjá Gunnars Guðmundsson- ar. 23.35 Fréttir i stuttu máli. Dagskrárlok.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.