Vísir - 21.08.1972, Blaðsíða 17

Vísir - 21.08.1972, Blaðsíða 17
Visir Mánudagur 21. ágúst 1 !J72 17 HANA-NÚ HANN BAR NÚMERIÐ ÞRETTÁN Á meöanFrakkar státuðu af kynbombunni Birgitte Bardot/ gátu Ameríkanar státaö sig af Jane Fonda á móti. Hún var þeirra svar. Nú stefnir hún innra öryggi Ameríku í voða og er ákærð fyrir landráð. Það var Jane Fonda.sem.gekk um götur i Bandarikjunum og safnaði peningum fyrir þá svörtu. gulu, brúnu og rauðu, og einnig fyrir þá hvitu fátæku,á meðan þá- verandi eiginmaður hennar, Rog- er Vadim, sem ekki hafði hug- mynd um hvað skeði i kringum hann, kvikmyndaði fáklætt kven- fólk á ströndum Kaliforniu. Það hefur svo sannarlega orðið mikil breyting á þessari konu, sem eitt sinn var ekkert nema kyntákn, og lék i kvikmyndum eftir þvi. 1967 birtist til dæmis mynd af henni á forsiðu News- week, þar sem hún er nakin, en myndin er þó tekin þannig að ekk- ert sést nema bert bakið. Þar er hún með ljóst sitt hár, stór augu, og hálfopnar rauðlitaðar varir. Nú þrammar hún um með renni- slétt hár og að mestu óförðuð. Og hlutverk hennar i kvikmyndum hafa einnig tekið stakkaskiptum. Ber þar fyrst að nefna pólitisku kvikmyndina: They Shoot Hors- es, Don’t Tey, og kvikmyndina „Klute”, sem hún -hlaut Oscars- verðlaun fyrir. Það var árið 1969 sem Jane Fonda fór að standa fyrir mót- mælafundum, óeirðum og fleiru sliku. Hún hefur oft verið færð fyrir rétt, og það vegna ýmissa hluta. Eitt sinn var hún til dæmis ákærö fyrir eiturlyfjasmygl, en einhverra hluta vegna datt það mál alveg uppfyrir. Nú hefur Fonda ásamt nokkr- um fleirum stofnað litinn leik- flokk Free Theatre Associates, sem ferðast um og syngur áróð- urssöngva um striðið i Vietnam, og söngva þar sem öllum her og hernaðarskyldu er mótmælt. Flokkurinn setur einnig á svið stutta leikþætti, og þau hafa ferö- ast um Bandarikin, Hawaii. Filipseyjar og Japan. Jane F'onda, sem áður lifði lifi stórrar stjörnu, og hafði allt sem hugur hennar girntist, er nú um- deild i Ameriku, og sérstaka at- hygli vakti hún eftir heimsóknina til Norður-Vietnam. En nú helur hún sótt um leyfi til þess að heim- sækja Suður-Vietnam. Margir segja hana ekki heilbrigða, og sumir halda þvi jafnvel fram að hún sé kynvillt. iþróttir standa nú scm lia'st yf- ir. og stöðugt fara fram kcppnir i hinuni vmsu grcinum. ólvmpiu- lcikarnir hefjast nú scnn i Muncli- cn, cða 27. ágúst, þar scm hct jur iþróttanna munu leiða saman hesta sína. En þó að þær keppnir sem fram munu fara þar verði ekkert grin. og alvaran ofan við allt, koma þó oft fyrir skemmtilegir og stund- um hlálegir atburðir á slikum stundum. Við ætlum þó ekki að fara að segja að þetta sem við sjáum hérna á mundinni sé fram úr hófi skemmtilegt, en það vekur samt athygli, að pilturinn sið- hærði sem við sjáum, ber númer- ið: 13. Sú tala hefur jú löngum verið talin óhappatala, og það hefur sannazt bezt á honum þess- um. Hann tók þátt i hjólreiðakeppni 15. þessa mánaðar á Tromsö i Noregi, og hann mátti gjöra svo vel að ganga endaspölinn með reiðhjólið sitt á öxlinni, þvi annað dekkið næstum fór af. Hvort það var talan 13 eða eitt- hvert óhapp sem olli þessu vitum við ekki, en sennilega mun trú hans á tölunni ekki verða sterk eftir þetta. Kvenskörungurínn Jane Fonda Þakventlar .v.v Kjöljárn !••••••• !•!•!•!• :•:•:* •!•!•!• •!•!•% ?:•:* m |V.V m m BH / •!•!•!« »!•!•!• Kantjám '.V. ÞAKRENNUR •!•!. J. B. PÉTURSSON SF. ÆGISGOTU A - 7 ge 13125,13126

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.