Vísir - 24.08.1972, Síða 1
62. árg. — Fimmtudagur 24. ágúst— 191 tbl.
gegn sterkri kyn-
Pilla
hvðt
Þeir sem þjást af of sterkri og
óviöráðanlegri kynhvöt ásamt af-
bortamönnum á þvi sviði hafa
sjaldan hlotið eða fengið þann
skilning sem þeir kannski þarfn-
ast. Afbrotamönnum hefur löng-
um verið stungið undir lás ogslá,
látnir dúsa þar um nokkurn tima
og afplána sekt sina, en siðan
hafa þeir fengið ?ið fara. Þýzkur
læknir hefur haft með mörg slik
tiifelli að gera, og núeraðkoma á
markaðinn pilla sem dregur úr
þessari sterku eða afbrigðilegu
kynhvöt. Nokkrir hafa þegar
fengið hana i hendurnar en ásamt
henni þurfa þeir að vera undir
meðferð sálfræðings.
Sjá NÚ-siðu bls. :4
15 sinnum á línu
yfir Niagarafossa
Ekki bara einu sinni, heidur
15 sinnum, gekk Frakkinn
Blondin á örmjóum málm-
streng yfir Niagarafossana,
og sifellt gerði hann raunina
erfiðari á ýmsan hátt. Um
hann hefur verið gert út-
varpsieikrit, sem við munum
heyra i kvöld. Nánar um
Blondin, — SJÁ BLS. 13.
Herskipin sem
munu
gleðja Lúðvík
Enginn maður á jarðriki yrði
eins kátur og Lúðvik Jóseps-
son, ef brezk herskip birtust
á miðunum til að verja
brezka togaraflotann. Þetta
segir m.a. um landhelgis-
málið i siðasta blaði The
Economist. — Sjá bls. 6.
Greitt eftir
persónuleika
Góð klipping getur tekið allt
upp i heilan klukkutima, seg-
ir hárgreiðslumeistarinn Leo
Passage. Það þarf lika að
klippa hár eftir persónuleika
hvers og eins, jafnvel eftir
þvi i hvernig umhverfi við-
komandi lifir og hrærist i.
Við horfðum á hárgreiðslu-
meistara ýmissa þjóða sýna
listir sinar. Sjá INN-síðuna
á bls. 7.
★
Komnir
til Múnchen
Þátttakendur islands á 20.
Olympiuleikunum héldu til
Miinchen eldsnemma i
morgun og voru þvi komnir
til Olympiuborgarinnar um
hádegisbiiið og á laugardag
hefst hin mikla iþróttahátið.
Tveir islenzku keppendanna
voru þó farnir áður og þeir
kepptu við góðan orðstir á
æfingamóti þar i gær.
Sjá nánar iþróttir i opnu.
★
Eiturflutningar
stöðvaðir
Tarzan er
ó bls. 12
Fœr skáksambondið 80
milljónir ef Fox vinnur?
Fær Skáksamband is-
lands sinn hluta af fénu
sem Chester Fox kemur til
meö að ná út úr Fischer ef
hann vinnur málið á hend-
ur honum (þ.e. 80 milljón-
ir)? Þessi spurning hefur
ósjálfrátt vaknað meðal
fólks síðustu dagana.
Eins og allir vita hefur Fox-
bendlað Skáksambandið við fjár-
kröfurnar og höfðað mál sitt gegn
Fischer i umboði Skáksambands
tslands.
Samningar Fox og Skáksam-
bandsins fólu það i sér að nettó-
hagnaði af kvikmyndatökum yrði
skipt bróðurlega, þannig að Skák-
sambandið fengi helmings ágóða
á móti Fox. Þar sem kvikmynda-
tökur hafa að mestu farið út um
þúfur er ljóst að hvorugur aðilinn
getur vænzt' þess að græða á
þeim.
Fyrir dómstólum i Banda-
rikjunum heitir málið „Chester
Fox Company Corporation i um-
boði Skáksambands tslands á
hendur Robert Fischer”
Þetta fengum við upplýst hjá
Sveini Snorrasyni umboðsmanni
Marshall Fischers lögfræðingi.
„Skáksambandið á i vök að verj-
ast i þessu máli,” sagði Sveinn.
„Nafn þess er óneitanlega bendl-
að við fjárkröfurnar á hendur
Fischer þó að þeir hafi að visu
lýst þvi yfir að þeir sæki ekki
Fischer til saka. Ég tel þess
vegna að Skáksambandið standi
ekki sérlega vel i málinu hvernig
sem þvi svo lyktar.” GF
Bernhöftstorfan:
Hvikum ekki fró vorðveizlu
— þrótt fyrir gylliboð
— Við gerum okkur Ijóst,
að það eru ýmis gylliboð i
þessu bréfi, en okkar mál
er að varðmeita torfuna á
sínum stað, og við hvikum
ekki frá þvi fyrr en útséð er
um að það sé tapað mál,
segir Guðrún Jónsdóttir
formaður Arkitektafélags
íslands.
t bréfi borgarráðs til forsætis-
ráðuneytis er m.a. stungið upp á
samkeppni um nýja stjórnarráðs-
byggingu um leið og sagt er að
sterkar raddir séu uppi um varð-
veizlu „torfunnar” i borgarráði.
Aður hafa komið fram tillögur
um annan stað fyrir væntanlega
stjórnarráðsbyggingu. Guðrún
Jónsdóttir sagði, að þurfi að
benda á annan stað fyrir stjórn-
arráðog ennfremur, að húsnæðis-
þörf ráðuneytanna sé könnuð og
forspár gerðar um það efni.
Þær upplýsingar fengust hjá
forsætisráðuneytinu i morgun, að
ekki væri búið að taka bréf
borgarráðs til meðferðar og yrði
það lagt fyrir rikisstjórn.
Forsætisráðuneytið hefur
afþakkað tilboð arkitekta um að
þeir lagfærðu húsin i Bernhöfts-
torfunni á þá lund, að leyfi til þess
myndi fela i sér frestun á flutn-
ingi húsanna á þessu stigi máls-
ins.
Visir hafði samband við
menntamálaráðherra, sem sagði
að tilboð arkitekta hefði ekki ver-
ið lagt fyrir rikisstjórnina. Málið
hafi oft verið rætt i rikisstjórn en
ekki þetta tilboð arkitekta, bréf
borgarráðs yrði vafalaust rætt i
rikisstjórn. Hann kvað sig ekki
vilja tjá sig opinberlega um málið
fyrr en rikisstjórn hefði takið af-
stöðu til þess. -SB-
Mótmæli Norðmanna og
annarra við fyrirætlunum
um að hella blásýru I Norð-
ur-Atlantshafið urðu til að
stöðva þessa eiturflutninga.
— En nú sýna rannsóknir
vaxandi geislavirkni i hafinu
við Vestur-Þýzkaland.
SJA BLS. 5
★
„Vonast
eftir
góðri
samvinnu
leik-
húsanna"
Það er ekki oft sem tækifæri
fást til að ná slikri mynd af
leikhússtjórunum i borginni.
Enda sagðist Sveinn Einars-
son, i gær þegar leikarar Leik-
félags Reykjavikur heilsuðu
nýju leikári, vona að meiri
samvinna gæti orðið á milli
leikhúsanna.
Jóhanna landlausa og Jó-
hann landlausi kölluðu þau
sig, Sveinn og Vigdis Finn-
bogadóttir, við sama tækifæri
i gær, i spjalli sinu á fundinum
með leikurunum. Það eru lika
orð með sönnu, þvi hvorugt
hefur enn tekið formlega við
leikhússtjóraembættinu. Það
gera þau ekki fyrr en 1.
september. En nýtt leikár hóf-
st eins og áður segir hjá Leik-
félagi Reykjavikur i gær, við
rikjandi lif og fjör. Æfingar
munu nú hefjast af fullum
krafti, og senn geta tslending-
ar farið að fara i leikhús.
—EA
Sjá nánarum leikár Iðnó
bls. 2.
nei!
getur
• nokkur
maður gert
gegn
þessu?