Vísir - 24.08.1972, Síða 2

Vísir - 24.08.1972, Síða 2
2 Visir Fimmtudagur 24. ágúst 1972 risusm: Haldið þér að það sé rétt hjá Geller að Fischer beiti „elektróniskum truflunum” yg e g n Spasski. Guðmundur Einarsson, verzlun- arm.: Nei, nei. Það er bara verið að magna taugastriðið milli keppenda með þessu. Ég held að þetta hafi ekki við nein rök að styðjast. Una Svane, nemandi: Nei, ábyggilega ekki. Minnsta kosti hef ég enga trú á þvi. Ottó ólafsson, nemandi: Nei. Þetta Gellers-bréf er algjör vit- leysa frá rótum, og á sér enga stoð i veruleikanum. Einar Jakobsson, nemandi: Ég held það sé nú mjög hæpið. Það er minnsta kosti afskaplega litið hæft i ásökunum Gellers á hendur Fischers. Þetta er hugsanlega mótvægi við bréf Bandarikja- mannanna að undanförnu, en ég held að kvartanir beggja hafi við mjög litil rök að styðjast. Arni Ingólfsson.plötusmiður: Ég veitekki. Nei það er varla nokkuð hæft i þvi. Ég held að þetta sé bara eitthvað ástæðulaust rövl i Rússunum. Ingólfur Isebarn, byggingam.: Nei. Það er mjög ótrúlegt. Og ég held að hvorugur keppandi beiti brögðum i einviginu. Það er óhugsandi. leikhússtjóra Leikfélags Reykjavíkur. „Þetta leggst ákaflega vel i mig, ég er svo bjartsýn að eðlisfari. Ég trúi líka á mannfólkið og ég trúi á góða leiklist, þannig að mérhlýturað þykja gaman að vinna að þessu verk- efni", sagði Vigdís Finn- bogadóttir, sem 1. septem- ber mun taka við starfi I morgun komu saman leikarar og starfsfólk i Iðnó og heilsuðu nýju leikári, með Sveini Einar- syni sem nú tekur við starfi Þjóð- leikhússtjóra og svo Vigdisi Finn- bogadóttur. Við náðum tali af Vigdisi, og sagði hún að teknar yrðu upp sýn- ingar á þeim leikritum sem ekki var lokið við að sýna i vor, þegar sumarfri hófust, og strax á morg- un verða hafnar æfingar á leikrit- inu Fótatak eftir Ninu Björk Árnadóttur. Þegar við spurðum hana um hvað hún hefði á prjón- unum i sambandi við starfið i vet- ur, sagðist hún ekki geta látið neitt uppi um það fyrr en 1. september er hún tekur formlega við starfinu. Sveinn Einarsson sagði meðal annars, að nú þegar þessi leik- hússtjóraskipti eiga sér stað, þá vonaðist hann til að nýtt og betra samstarf yrði milli leikhúsanna. t spjalli sinu þegar Vigdis heils- aði starfsliðinu, sagði hún að fer- ill hennar i leikhúsinu hefði hafizt á þvi, að keyptur var handa henni rauður stóll. Sá stóll hefur þann kost, að hægt er að hækka hann og lækka að vild, en Vigdis sagði að til þess að nota stól Sveins i skrif- stofunni i Iðnó væri hún of fjarsýn og stóllinn of lágur. — EA „Furðulegt fyrirbœri reynir að festa rœtur á íslandi" Fyrir stuttu skaut hér upp kollinum furðulegur trúarflokkur sem kallar sig bahái. Hann barst hingað til lands með útlendingum sem hingað komu og ferðuðust um landið og boðuðu bahái. Þeir urðu brátt að fréttamati og leið ekki á löngu fyrr en flestir höfðu heyrt nafnið bahái nefnt. Bahái var eitthvað sem fáir höfðu heyrt, og var fólki þvi forvitni um að vita hvað bahái væri, þessvegna fóru margir á fundi þeirra sem þeir héldu um landið. Baháiar eru þvi færri en fólk grunar. og þvi spyr ég: HVAR ÆTLA BAHAÍAR AÐ FA PENINGA TIL AÐ BYGGJA MUSTERI, SPITALA OG SKÓLA A ISLANDI???? ÆTLA ÞEIR SÉR AÐ SMYGLA PENINGUM ERLENDIS FRA INN 1 LANDIÐ?????? Hvað sem þvi liður þá er það mjög furðulegt að allt i einu skuli þeir hafa efni á að framkvæma allt þetta. Það hlýtur að vera eitt- hvað bogið við þá áætlun þar sem baháiar eru svo fámennir hér- lendis. Vegna hinna ýmsu kynna minna, sem ég hef haft á bahái trúnni tel ég mig geta sagt álit mitt á henni. Ég hef talað við for- mann bahái i einu sveitafélaginu i nágrenni Rvk. Það sem hann hafði mér að segja um bahái trúarbrögðin var ekki upp á marga fiska. Hann sagði mér að bahái væri Alla Budha Múhameð og fleiri goð sem nú eru ákallaðir. Mikið meira held ég að rétt hugsandifólk þurfi ekki að heyra, þvi þetta er svo mikil fjarstæöa að það getur ekki átt við nein rök að styðjast. Einnig hef ég talað við útlending sem hér var staddur til að boðbera bahái. Hann hafði sömu söguna að segja. Ég benti honum á að hinir ýmsu trúarboð- berar boðuðu ekki sömu trúarað- ferðina, og átti ég þá við að i einni trúnni má borða kjöt i annarri ekki og enn annarri eitt- hvað annað osv. framv. Eins er það með dagana, hin ýmsu trúar- brögð boða ekki öll sama dag heilagan. Þvi væri það ómögu- legt að vera bahái, þvi öll trúar- brögð I heiminum getum við ekki trúað á I einu, það mundi allt stangast á. En þessi útlendingur sem ég talaði við var sko ekki sáttur á þá skoðun mina þvi þetta væri allt það sama hvernig sem á það er litið. Eftir að hafa heyrt hina miskunnarlausu sannfæringu útlendingsins og formannsins gat ég svo sannarlega fullvissað sjálfan mig að bahái er hlægilegt fyrirbæri og fjarstæða. Baháiar þykjast vera með lausn á trúarbragðastyrjöldum. En það er augljóst mál að trúar- bragðastyrjaldir verða ekki leystar með þvi að sameina öll trúarbrögð i eitt. Innbyrðis deilur mundu verða hræðilegar um hvað má gera og hvað má ekki gera, þvi i einni trúnni er sagt að þetta megi en i hinni er það bannað. Rétthugsandi maður ætti þvi að geta séð að hér er um algjört öfugmæli að ræða og hlut sem við engin rök á að styðjast. Það eru ekki nema nokkrar aldir siðan bahái á að hafa komið fram á sjónarsvið, og þess vegna getur hann ekki verið neinn guð. Þvi ekki fæddumst við á undan skapara okkar. Bahái boðberar eru þvi ekki sjálfum sér sam- kvæmir og vita ekki út i hvað þeir hafa leiðzt eða út I hvað þeir eru að tæla fólk. Að minnsta kosti er ekki hægt að segja annað á meðan þeir sjálfir geta ekki einu sinni skilgreint hvað bahái er. Baháiar sem hér eru, eru æstir i að festa rætur sinar hér. Þess vegna reyna þeir að blekkja okkur Islendinga með þvi að láta okkur halda að þeir vilji gera okkur góðverk með þvi að reisa musteri, skóla og spitala á Islandi. En hversvegna endilega á Islandi? Ætli það sé ekki vegna þess að þeir telji okkur tslendinga svo tækifærissinnaða að við gripum hvert tækifæri sem við teljum okkur ekki þurfa að borga krónu i. En það kæmi sko örugg- lega einhvern tima að þvi að þeir þyrftu að betla annað hvort af almenningi eða rikiskassanum (sem i raun og veru er jú almenningur en önnur leið bara farin). Ég get bent á dæmi um óheiðar- legar vinnuaðferðir baháia Fyrst er þeir byrjuðu að boða bahái hér fyrir 1-2 árum siðan voru þeir svo ákafir að fá sem flesta félags- menn að vinnuaðferðir þeirra gerðust all óheiðarlegar. Þeir brugðu sér með lista á staði þar sem ungt fólk skemmtir sér, för þeirra á þá staði var leit að nýjum félögum. Mörg dæmi eru til um þá, þar sem þeir hafa elzt við drukkna unglinga, til að fá þá til að skrifa sig i baháiflokkinn. Hvers vegna drukkna? Jú, þvi þá er fólk yfirleitt til i hvaða vitleysu sem er....Ég vil taka það skýrt fram að þetta er ekki áróður.þetta LESENDUR HAFA 4«. ORÐIÐ er sannleikur. Svona vinnubrögð verða geymd en ekki gleymd. Það væri hræðilegt áfall fyrir islenzkt þjóðlif ef baháiar fengju að festa sinar afskræmdu rætur hér, því bahái er ekkert annað en hrærigrautur af trúarbrögðum sem boðberar geta ekki einu sinni skilgreint. Hver getur það þá? ENGINN. Hugsið ykkur hvað það yrði hræðilegt fyrir Kópavogsbúa eða aðra sem I gegnum Kópavog mundu fara á leið til Hafnar- fjarðar eða eitthvað annað, að þurfa ef til vill að hlusta á eitt- hvert væl úr turni musterisins. Þvi i einni trúnni er það þannig háttað að eitthvert væl heyrist liðlangan daginn úr turni trúar hússins. Ég nefni hræðilegt ástand fyrir Kópavogsbúa og nábúa þvi baháiar ætla sér einmitt að klessa sér niður þar. Maður veit aldrei hvað úr þessu rugli gæti orðið og er þvi eins gott að forðast allan ágang baháía. Ég skora þvi á rlkisstjórnina og bæjarstjórn Kópavogs, Garða- hrepps og Hafnarf jarðar og allan almenning á Islandi að risa upp og mótmæla að bahái trúar- flokkurinn fái að niðast á islenzku þjóðlifi með þvi að byggja musteri skóla og spítala á Islandi. ÍSLENDINGAR STÖNDUM DYGGAN VÖRÐ UM HAGSMUNI LANDS VORS!! GUÐFINNA HELGADÖTTIR.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.