Vísir - 31.08.1972, Side 7

Vísir - 31.08.1972, Side 7
Visir Fimmtudagur 31. ágúst 1972 7 fllMIMl = SÍÐAN M u w i Gömul byggingolist nauðum stödd" Umsjón: Svanlaug Baldurs- dóttir — Finnur P. Fróðason innanhúsarkitekt segir m.a. í grein sinni /#rífið sœnsk- íslenzka frystihúsið og byggið stjórnarrúðshúsið þar" Gamalt hús er rifið við Amtmannsstiginn, gömul kirkja norður í Mývatnssveit, og enginn veit af, nema þeir sem verkið framkvæma, fyrr en allt er orðið um seinan. Viða i sveitum landsins, I bæjum og i höfuðborg grotna gömul hús, og eyðileggingin biður þeirra, nema eitt hvað sé aðhafzt. Stundum er um að ræða táknræn dæmi islenzkrar byggingarlistar frá fyrri timum, sem litið er af fyrir, og óðum glat- ast, cf svo heldur sem horfir. Um leið og þessi hús hverfa — hverfa hýbýli mannfólks, er byggði landið og vitna um liðna tið. Minjar, sem „fræðingar” framtiðarinnar og jafnvel nútiðar hefðu áhuga á að kynna sér i leit sinni að tengslum nútiðar og fortiðar og hinn venjulegi þjóðfélagsþegn i ieit sinni að uppruna sinum. Hús eru stór þáttur umhverfisins og hljóta þvi að verða stór þáttur i umhverfisumræðum öllum. Það hefur komið greinilega I ljós hér á landi Jar sem einmitt húsaröð hefur verið hvað mest umrædd, þegar umhverfisverndarmál hafa borið á góma. Það er Bernhöftstorfan. Finnur P. Fróðason innanhúsarkitekt hefur sitt að segja um Bern- höftstorfuna, en nú mun vera i bigerð að mynda hóp áhugafólks um verndun hinna gömlu húsa á sinum stað. , -SB SO SPURNING hvaö gera skal við gömul hús er margþætt. í okkar frjálsa þjóðfélagi hlýtur það að vera aðalmark- miðið að eigandinn geti nýtt eign sína og bætt hana hvernig sem hann vill jafn lengi og hann stendur við þær skuld- bindingar, sem hann einu sinni hefur tekið á sig og veldurekki öðrum skaða. En einmitt i þessu felast ýmsar takmarkanir. Ýmsar kvaðir hvila oft á eignum, fyr- ir utan það sem byggingar- samþykkt og skipulag gera ráð fyrir. Eigandinn má ekki nota eign sina eða byggja við hana, þannig að það trufli um- ferð, eða sé blettur á umhverf inu. Húseigendur eru meira að segja skyldaðir til að við- halda húsum sinum að vissu leyti. Að minnsta kosti mega hús ekki vera i svo mikilli nið- urniðslu, að þau séu blettur á umhverfi sinu. En er það ekki einmitt það sem hið opinbera hefur látið viðgangast með Bernhöftstorfuna. Ár eftir ár hafa þessi hús staðið ónotuð að meira eða minna leyti og nið- urniðslan hefur vaxið ár frá ári. Eins og við vitum öll fá auð hús ekki að standa lengi áður en rúður i þeim eru brotnar og Bernhöftstorfan er þar engin undantekning. Húsaröð stendur þarna með tóm uppglennt augu og starir ásakandi á vegfarendur. Það er eins og við höfum enga virðingu fyrir byggingunum okkar (með vissum undan- tekningum þó). Ef til vill þurfa húsin að vera teiknuð af þekktum erlendum arkitekt til þess að þykja þess virði að varðveita þau en ekki bara ó- sköp venjuleg almúgahús eins og þau voru flest. Þróunin krefst sem sagt, að þessi verði sett á söfn, verði stirðnaðar múmiur, sem við getum kikt á , á sunnudögum, þegar við höfum ekki annað að gera. 1 raun og veru er ekkert athyglisvert við hús sem eru ónotuð en þróiunin krefst.. Þróunin, hvaða töfraorð er það? Enginn getur útskýrt það, en allir segja: — „Þróun- in krefst þess, þróunina er ekki hægt að stöðva”, o.s.frv. Þróunin er hér ávallt sama og fjárhagur og eiginhags- múnir (með eiginhagsmunum á ég hér jafnt við einstaklinga, fyrirtæki og rikisstofnanir). En þróunin er ekki ósigrandi vofa, heldur sköpuð af mönn- unum, og menn geta þar af leiðandi beint henni inn á þær brautir sem þeir óska. Okkar gamla byggingarlist er nú i nauðum stödd ekki að- eins i Reykjavik heldur einnig úti á landi. (Fyrir þá sem á- huga kunna að hafa visa ég til gamalla árganga af „Birt- ingi” þar sem Hörður Ágústs- son hefur skrifað um gömul hús úti á landsbyggðinni). Hér er um að ræða mörg hús bæði i einkaeign og i eigu hins opin- bera. 011 þessi hús, ibúðarhús, verzlunarhús og vöruskemm- ur eru mannleg og þjóðleg heimild. Fyrsta skrefið til að varð- veita þessi verðmæti hlýtur að vera að gera skrá yfir þau. Þetta skref er þegar stigið. Reykjavikurborg hefur að þvi að ég bezt veit, falið Þorsteini Gunnars. arkitekt að gera skrá yfir þau hús, sem vert er að varðveita. En næsta spurn- ing hlýtur að vera: „til hvers eigum við að nota þessi hús?” Svarið felst sumpart i niður- stöðu samkeppninnar, sem Arkitektafélag fslands efndi til um Bernhöftstorfuna. Þvi miður hefur rikisstjórnin ekki áttað sig. Sú staöreynd að Arkitektafélag Islands hefur boðizt til að lagfæra húsin að utan að kostnaðarlausu, hefur ekki einu sinni megnað að fá rikisstjórnina, á þessum sið- ustu og verstu sparnaðartim- um, til að skipta um skoðun. Ef til vill mætti ég að lokum koma með eina tillögu: „Rifið sænsk-islenzka frystihúsið og byggið stjórnar- ráðshúsið þar.” Þar er fagurt útsýni yfir sundin bláu og hin nýja bygg- ing yrði hæfilega nálægt Arn- arhóli, en samt nægilega langt frá gamla stjórnarráðshúsinu til þess að það eyðileggi ekki götumyndina. Þvi næst gæti stjórnin leigt Arkitektafélagi Islands Bernhöftstorfuna t.d. i 10 ár, en með þeim skilmálum, að félagið geri við húsin að ut- an og innan og sjái um að leigja húsin með þeirri stjórn- sýslu sem þvi fylgir. Finnur P. Fróðason, innanhúsark. Hluti af hinni umdeildu húsaröð: Bernhöftstorfunni. Siónvarpstilboó ársins! Kuba Imperial FT-472 Sjónvarpstækiö meö5000 kr útborgun eöa 10% staögreiöslu afslætti. 3ja ára ábyrgö aövanda. VERZLUN OQ SKRIFSTOFA: LAUQAVEGI 10, REYKJAVlK, SfMAfl: 10150 A 10102 LEIDANDI FYRIRTÆKI A SVIÐI SJÓNVARPS- ÚTVARPS- OG HUÓMFLUTNINQSTÆKJA NESCO HF

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.