Vísir - 31.08.1972, Síða 16
vísm
Fimmtudagur 31. ágúst 1972
V-Þjóðverjar:
Eftirlitsskipin munu
aðeins mótmœia
„Það cina scm þýzku cftirlits-
skipin munu ef til vill gera, er aft
kalla mótmæli yfir til varðskip-
anna cf þau taka þýzka togara
innan 50 milna landhclginnar”
sagði Pétur Thorsteinsson ráðu-
ncytisstjóri i samtali við Visi i
morgun.
Vestur-þýzk stjórnvöld komu
skilaboðum um þetta til islenzku
rikisstjórnarinnar i gegn um
sendiráðið hér i Reykjavik og
kom þar skýrt fram að af hálfu
eftirlilsskipanna yrði ekkert gert
til að hindra töku togara. Kréttir
hafa borizt um að skipin eigi að
sigla milli varðskips og togara til
að koma i veg fyrir að varðskips-
menn komist um borð, en Pétur
kvað slikar fréttir algjörlega
stangast á við þau skilaboð sem
stjórnvöld i V-hýzkalandi hefðu
sent hingað. —SG
Schmid fœr 150
þúsund í skatta
Allt bcndir til að Lothar Schmid
cinvigisdómari þurfi að greiða
um 150 þúsund krónur i opinber
gjöld áður cn hann yfirgefur
landið. lJá vcrða tekjur aðstoðar-
manna þcirra Spasski og
Kischcrs cinnig skaltlagðar, cn
þær cru mun minni en dómarans.
Schmid fær 3000 dollara eða
um 250 þúsund krónur fyrir starf
sitt hér i tvo mánuði og auk þess
um 600 dollara i vasapeninga.
Pessar greiðslur eru skattlagðar,
en hins vegar ekki óbeinar tekjur,
það er fritt fa-ði og húsnæði svo og
friar ferðir. Þá greiðir Skáksam-
bandið einnig laun til þriggja
aðstoðarmanna skákmeistaranna
og eru þau mismunandi h&. Kær
fyrsti aðstoðarmaður mest, eða
1400 dollara, en siðan fer
upphæðin minnkandi. Allir fá þeir
auk þess fritt fæði, húsnæði og
ferðir auk vasapeninga.
Skáksambandið er ábyrgt fyrir
skattgreiðslum þessara manna
eins og aðrir launagreiðendur. —
SG
Sjónvarp fró OL:
Erfitt að gera svo
öllum líki . . .
,,l>að cr crfitt að gera svo öllum
liki og þá ckki sizt þcgar um cr að
ræða sjónvarp frá Olympiulcikj-
uiium. Kn cftir vandlcga ihugun
var komi/.t að þcirri niðurstöðu að
hcppilcgast væri að scndingar frá
lcikjunum hæfust kl. 1K" sögðu
þcir hjá sjónvarpinu i samtali viö
Visi.
Margir hafa orðiö til þess að
gagnrýna harðlega þá ákvöröun
að hefja sendingar frá Olympiu-
leikjunum kl. sex á daginn og
bent á að þá eru velflestir ennþá
við störf. „Það var um þrjár leið-
ir að velja. i fyrsta lagi að byrja
kl. 6 en það er ágætur timi fyrir
börn og unglinga svo og heima-
setufólk, og skrifstofufólk hefur
þá yfirleitt lokiö störfum. Þá gat
komið til greina aö velja ungánn
úr kvöldinu, það er að segja tim-
ann eftir að fréttum er lokið. En
þá er hætt við að þeir mörgu,
sem ekki fylgjast með iþróttum,
sem hugsanlega er um helmingur
sjónvarpsnotenda, hefðu risið upp
hinir æfustu. Loks kom til greina
að hafa Olympiuleikana siðast á
dagskránni eins og frá siðustu
leikjum. En þá linnti ekki sim-
hringingum frá foreldrum, sem
kvörtuðu undan þvi, hve erfitt
væri að koma börnunum i rúmið
fyrr en dagskráin væri búin”,
sögðu sjónvarpsmenn.
Rétt er að benda fólki á, að
næstu sunnudaga verður endur-
tekið valið efni frá Olympiuleikj-
unum og ennfremur verða fréttir
i iþróttaþætti á þriðiudögum og á
laugardögum. — SG.
:>■■■■■■■■■
::
,Ég krýni nýjan heimsmeistara'
— segir dr. Max Euwe
„Ég er fulikomnlega
ánægöur með Laugar-
dalshöllina sem
keppnisstað og tel að
Skáksambandið hafi
haldið vel á málunum
varðandi framkvæmd
einvigisins,” sagði dr.
Max Eluwe, forseti
FII)E, þegar blm.
Visis kom að máli við
hann að Hótel Esju i
gærkvöldi.
„Auðvitað má finna að öllu
og enginn staður er til i heim-
inum sem ekki er hægt að gagn-
rýna sem keppnisstað fyrir
heimsmeistaraeinvigi. En ég
held að Höllin sé mjög ákjósan-
leg fyrir slikt kapptefli, og erfitt
að finna hentugri stað fyrir
það” Varðandi kvartanir
Fischers kvaðst kr. Euwe ekki
vera undrandi og sagði að i
sjálfu sér mætti hann setja út á
keppnisaðstæður, það væri hans
mál. Þegar blm. innti Euwe
eftir ummælum hans fyrr i
sumar, þegar hann sagði að
Fischer væri i öðrum heimi.
svaraði hann: „Fischer er
ennþá i öðrum heimi, en það er
lika hans mál. Hann er snjall
skákmaður, en Spasski hefur
sýnt það i undanförnum skákun
aö hann á ifullu tré við Fischer.
Sjálfur hef ég teflt tvö heims-
meistaraeinvigi, svo ég þekki
þetta alltsaman. Þegar ég tefldi
seinna einvigið við Alhekine
1937 taldi ég mig vera sterkari,
en mér skjátlaðist.
Ef til vill hefur Spasski staðið
i þeirri trú nú, að hann væri
sterkari en andstæðingurinn, en
það er rangt. Fischer er án efa
öflugasti skákmaður heimsins i
dag og einn af fremstu tafl ;-
snillingum sögunnar. „Ég krýni
nýjan heimsmeistara eftir
nokkra daga”, sagði Euwe að
lokum og brosti breitt.
GF
ÞURFUM LÍKA AÐ HUGSA UM
/I
W
::
ISLENDINGA OG VITAMALIN
— segir forstj. Landhelgisgœzlunar — þrjú varðskip út í dag
/#
Þrjú íslenzk varðskip
leggja á miðin í dag, þau
óðinn, Albert og Árvakur,
en Ægir er úti. Þór er sem
kunnugt er i endurnýjun
erlendis og væntanlegur i
september til landsins.
Skipherrar skipanna þriggja,
sem fara út i dag, hafa undan-
farið verið á fundum með for-
stjóra Landhelgisgæzlunnar,
Fétri Sigurðssyni. Blaðið hafði
samband við Fétur i morgun og
sagði hann að ýmis málefni
hefðu verið rædd.
„Það eru ekki bara Bretar.
sem við þurfum að hugsa um.
Það eru lika islendingar og svo
vitamálin” sagði Fétur.
Blaðið spurði hann aö þvi
hvort áhafnir islenzku Land-
helgisskipanna myndu ganga
um borð i togarana til þess aö
skoða möskvastærðina, en það
er heimilt samkv. alþjóðalög-
um.
„Það er ekki bara möskva-
stærðin, sem hér um ræðir, og
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■i
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■»■■■■■■■■
við munum ekki sigla undir ekkert sagt um það hvort varð- brezka togara til þess að skoða
fölsku flaggi. Annars get ég skÍDsmenn fara1 um borð i veiðarfæri þeirra”, sagði Pétur. fj
KC ■■
Pétur Sigurðsson, forstjóri Landhelgisgæzlunnar og Bjarni Ó. Helgason skipstjóri á Albert virða
fyrir sér kortið, en Albert heldur á miðin í dag. (Ljósm. A.M.)
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
Afturhjólið undan hemla
lausum bíl ó Kambabrún
Bjargaði sér með þvi að aka út af veginum
Snarræði ungs ökúmanns, sem
varð fyrir hcmlabilun efst uppi á
Kambabrún i gærdag, bjargaði ef
til vill lifi hans og þriggja farþega
(ciginkonu, tengdamóður og
ömmu eiginkonunnar).
Efst uppi á Kambabrún var
hann þess allt i einu var. að
hemlarnir voru óvirkir, enda
hafði bilað lager i öðru afturhjól-
inu. En það var akkúrat einum of
seint vitað, þvi að i sömu mund
var hann kominn niður fyrir blá-
brúnina á leið niður veginn eftir
snarbröttum Kömbunum.
f stað þess að láta hræðsluna
taka sig tökum, hugsaði ökumað-
urinn sitt ráð, og við efstu
beygjuna i Kömbunum sá hann
möguleika á þvi að aka út af veg-
inum upp i brekkuna.
„Það var sennilega eini stað-
urinn, sem möguleiki var fyrir
hann að lenda bilnum, án þess að
stórslys hlytist af,” sagði Sigurð-
ur Jónsson. lögregluþjónn á Sel-
fossi, sem var kvaddur á staðinn.
Bronco-jeppi mannsins hafnaði
þrjátiu metra utan vegar, og var
þá afturhjólið dottið undan og
öxullinn brotinn. Og sakaði aðeins
gömlu konuna (68 ára), sem
meiddist i baki og var flutt á
sjúkrahús. Hin sluppu öll, án þess
að hljóta skrámu.
„Það er ekki gott að segja,
hvernig farið hefði, ef hann hefði
teflt á þá hættu að renna niður
Kambana hemlalaus. En i fyrra
rann einmitt annar Bronco-jeppi,
mannlaus að visu, fram af
Kambabrún og niður hliðina, og
það var hvorki tangur né tetur
eftiraf honum, þegar að var kom-
ið,” sagði Sigurður lögreglu-
þjónn. —GP.