Vísir - 12.09.1972, Qupperneq 3
Vísir Þriðjudagur 12. september 1972.
3
r
MISS YOUNG ICELAND
Það var fyrir tilviljun að
fegurðarsamkeppni fór fram á
Akranesi sama daginn og reyk-
vískar rauðsokkur héldu þar
kynningarfund . Fannst rauð-
sokkum að sjálfsögðu komið
þarna kjörið tækifæri til að bæta
einum dagskrárlið við fundinn,
nefnilega mótmæli gegn „gripa-
sýningum” (fegurðarsam-
keppnum).
I fréttatilkynningu frá
fegurðarsamkeppninni segir
svo: „Um kvöldið þegar dans-
leikur á vegum Fegurðarsam-
keppninnar hófst, höfðu nokkrar
Rauðsokkur safnast saman við
anddyri hótelsins og báru þær
áróðursspjöld. Var þetta hinn
friðasti hópur, en þó náði
fegurðin og yndisþokkinn
hámarki þegar litið var á þann
aðilann i þessum friða hópi, sem
mesta athygli og vinsældir
vækti. Var það kviga nokkur,
ung að árum, en þær stöllur
hennar i Rauðsokku-
hreyfingunni höfðu krýnt hana
fyrr um kvöldið titlinum „Miss
Young Iceland”. Þótt Rauð-
sokkur hafi ekki heimild til þess
að nota þenna göfuga titil, má
þó þeim til hróss segja, að valið
á kvigunni hafi þær vandað
mjög....”
Þannig fórust þeim Hirti og
Einari . forstöðumönnum
keppninnar orð um keppinauta
fegurðarsamkeppninnar. Lýstu
þeir jafnframt yfir ánægju sinni
yfir þeim tiltektum rauðsokka,
að dreifa fjölrituðum miða
meðal viðstaddra. „Þetta varð
til þess að sérstaklega léttur
húmor skapaðist á dansleik
Fegurðarsamkeppninnar og
hentu menn mikið gaman að
tiltækjum hinna rauðu sokka,”
sögðu þeir. Og bættu þvi við að
það væri von og ósk þeirra, að
Rauðsokkur sæju sér fært að
bregða svona á leik sem oftast,
þegar Fegurðarsamkeppnin
gengist fyrir dansleikjum, þar
sem þetta væri tvimælalaust
ein bezta auglýsing fyrir keppn-
ina auk skemmtunarinnar, sem
tiltækið hefði i för með sér.
—-ÞJM
Og hér er loks Anna Sigrún
Böðvarsdóttir, sem kjörin hefur
verið ungfrú Akraness. Hún er
gagnfræðingur að mennt, starfar
á skrifstofu og aðaláhuga-
mál hennar eru tónlist og iþróttir.
Hún er Ijóshærð og er 171 cm á
hæð.
Foreldrar hennar eru þau
Böðvar Guðjónsson og Svava
Halldórsdóttir.
FJORAR
FYRSTU
Hinir nýju forstöðumenn feg-
urðarsamkeppna iands okkar
hafa látið hendur standa fram úr
ermum siðan þeir tóku við keppn-
inni. Nú hafa þeir þegar valið
okkur fjórar fegurðardisir úr
sýslum landsins,
Hér fyrir neðan eru myndir af
þrem fyrrnefndra fegurðardisa,
en mynd af fjórðu stúlkunni
ungfrú Barðastrandasýsla, hefur
blaðinu ekki tekizt að afla sér —
en tekst vonandi áður en langt um
liöur.
Og hér er inynd af ungfrú Isa-
fjarðarsýslu, llrafnhildi
Jóakimsdóttur, 17 ára ganga'-
stúlku frá Ilnifsdal. Hún er
gagnfræðingur að mennt og hefur
tóníist og föt að aðaláhugamál-
um.
Hrafnhildur er 17(i cm á hæð og
hefur brún augu og brúnt hár.
Foreldrar hennar Jóakim Páls-
son og Gabrela Jóhannesdóttir.
Þctta er Guðrún Ingvarsdóttir,
scm kjörin hefur verið ungfrú
Strandasýsla. Hún er 17 ára og
hcfur miðskólamenntun. Áhuga-
mál hennareru hannyrðir, en hún
starfar við bústörf á býli foreldra
sinna að Tindum i Kirkjubóls-
hreppi, Ingvars Guðmundssonar
og Margrétar Sigurðardóttur.
Augu Guðrúnar cru grá-blá að
lit, en hárið skolleitt.
Sæmundur ásamt konu sinni Ásgerði og börnunum Sigriði 13 ára, Ásgeiri 7 ára, Theodóru 3 ára og Ilildi 11 ára.
ef hann vildi og þyrfti á aðstoð
að halda.”
— Nafnið Sæmundur Pálsson
er orðið vel þekkt. Fáið þið ekki
mikið af upphringingum og
beiðnir um eiginhandarárit-
anir?
— Jú, það er mjög mikið um
það. Við fáum sendar greinar og
forsiðufréttir að utan um lifvörð
Fischers, og sifellt er verið að
biðja um eiginhandaráritanir. Á
Hótel Holt um daginn.þegar við
borðuðum með Lombardy og
fleiru góðu fólki kom kona og
bað okkur öll um að skrifa nöfn
okkar á matseðilinn. Einnig eru
kort, sem áður voru seld á
þrjár krónur nú seld af strákum
á krónur 100. Aðeins af þvi að
þar stendur nafnið Sæmundur
Pálsson: Svo er mikið hringt að
utan og þá er það fólk, sem veit
að það nær ekki i Fischer nema
eftirþessum leiðum. Um daginn
hringdi til dæmis umboðsmaður
Barböru Streisand og vildi fá að
tala við Fischer. Hann vildi ger-
ast umboðsmaður hans. En
Fischer er á móti þvi að fólk
skuli nota sér aðstöðu mina.
Hann segir „Sæmundur er vinur
minn. og ég vil ekki að fólk sé að
ónáða hann með þessu.”
— Virðist ykkur Fischer hafa
áhuga á músik?
„Já, hann virðist kunna heil-
mikið af textum bæði við poplög
og önnur, og oft á meðan hann
er að dunda við skákina hérna,
þá raular hann. En hann er þó
frekar laglaus en hitt. Þó söng
hann af fullum hálsi eitt af þeim
lögum sem hvað vinsælust eru
hjá unga fólkinu i dag: Sylvia’s
mother. Útvarp hlustar hann
lika mikið á. og horfir á sjón-
varp. Eitt sinn sat hann hér og
horfði á sjónvarpið en fannst
það þó of ljóst. Hann bað mig að
stilla það, en alltaf var það of
ljóst eða of dökkt.”
„Hafiö þið liaft einhver sam-
skipti við Spasski?
„Nei, við höfum aðeins hitt
hann á Bessastöðum og hann er
mjög indæll maður. Á Bessa-
stöðum reykti hann, og F'ischer
sem aldrei hafði séð hann
reykja, spurði hvers vegna hann
hefði þá ekki reykt á meðan á
einviginu stóð. Spasski svaraði
þvi til að hann hefði ekki viljað
það hans vegna. Þá var I',ischer
hálf hissa.
Þegar Spasski kvaddi okkur á
Bessastöðum sagði hann:
Goddbye Mrs. Sæmi”, og þegar
hann eitt sinn gekk hér framhjá
og sá öll börnin okkar og spurði
hvort við ættum þau öll, hrópaði
hann „Bravo, bravo.”
„A Bessastöðum sáum við
rússneskt blað og við tókum sér-
staklega eftir litilli klausu sem
var svo litil að hún hefði ekki
getaðorðið minni. Þar var verið
að segja hver hefði sigrað i ein-
viginu.”
— Hcfur þetta timabil ekki
brcytt miklu i lífi ykkar?
„Jú, þetta hefur verið mjög
mikil breyting, en við vonum að
allt falli i sama horfið aftur
eins og það var. Þetta hefur
einnig verið erfitt timabil, en
seinna þegar maður sezt niður
og hugsar um þetta, þá hefur
þetta verið gott og lærdómsrikt.
Við höfum kynnzt mjög góbu
Sæmundur. „Fischer virðist hafa yfirnáttúrulega heyrn.”
fólki og kátu, þetta er sérstak-
lega vel hugsandi fólk og aldrei
nein óregla i kringum það.
Sennilega hefur þessi timi
einnig haft góð áhrif á Fischer.
Að minnsta kosti sagði Barrach
blaðamaður hjá Life, að eftir
þennan tima virðist sér hann
hafa breyzt mikið til hins betra,
og að ég hafi haft góð áhrif á
hann.”
Fischer er ákaflega einlægur,
hann er reglulegur vinur vina
sinna og trölltraustur. En það er
næstum eins og hann vanti eitt-
hvað, og hann þarf stundum
smá visbendingu um það hvern-
ig hann á að haga sér i vissum
tilfellum. Ef hann er aðeins leið-
réttur, þá er eins og hann átti
sig.”
— EA
VELJIÐ ÞER ÞAÐ BEZTA
SJÁ BL. 4
r>e*
U!i
1 I
Slrní -22900 Laugaveg 26
Þannig lítur hún út, kvigan Búkolla, eftir að hún hefur verið kjörin
„Miss Young”, kórónu tyllt á krúnu hennar og hún sveipuð tilheyrandi
borðum og slám yfir hrygginn.