Vísir - 12.09.1972, Síða 5
Visir Þriðjudagur 12. september 1972.
5
í MORGUN ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND í MORGUN UTLÖND
Klögumál um Miinchen ganga
UMSJON:
HAUKUR HELGASON
6 víxl í þýzkri pólitík
Stjórnmálamenn í V-
Þýzkalandi reyna að
hindra, að bitur barátta
hefjist um, hver beri
ábyrgð á atburðunum í
Munchen ef einhvern sé um
að saka. En þrýstingurinn
kann að verða meiri en svo,
að stjórnmálamenn geti
látið málið kyrrt liggja,
segir i skeyti frá AP-frétta-
stofunni.
Deilur um ábyrgð gætu breytt
afstöðu i kosningabaráttunni,
sem er i þann mund að hefjast og
er talin muni verða hörð. Margir
stjórnmálamenn óttast, að
Munchen-málið verði of sóðalegt
til að vel geti farið, en strax sjást
merki stórvandræða. Embættis-
menn i Bæjern hafa þegar tekið
VILDU EKKI
DAYAN
Vestur-þýzka stjórnin
hafnaði tilboði Moshe
Dayans hermálaráð-
herra ísraels um að
koma og stjórna aðgerð
unum gegn arabisku
skæruliðunum i
Miinchen.
AP-fréttastofan kveðst hafa
þetta frá góðum heimildum.
Þjóðverjar sögðu Israelsstjórn,
að þeir hefðu ekkert við það að at-
huga þótt Dayan kæmi til Múnch-
en, en þeir vildu ekki, að hann
stjórnaði aðgerðum.
Dayan og Shimon Peres sam-
gönguráðherra tsraels stjórnuðu
aðgerðum gegn arabiskum flug-
vélarræningjum á dögunum, en
ræningjar höfðu tekið belgiska
Sabena-farþegaflugvél og 97 glsla
i mai siðastliðnum.
Sú aðgerð heppnaðist fullkom-
lega.
Ráðherrarnir ætluðu fyrst að
fara til Munchen þrátt fyrir
tregðu Þjóðverja, og sumir töldu
þá hafa verið þar. Það hefur verið
borið til baka.
Var rúm fyrir Strauss i flugvél-
„Hernóm"
Panama
Nýkjöriö þing Panama lýs-
ir þvi yfir, að svæöið viö
Panamaskuröinn, sem
Bandarikjamenn ráða, sé
„hernumið", Þingiö hafnar
greiöslum Bandaríkja-
manna fyrir afnotin.
að gagnrýna Brandt af hörku.
eftir að eftir honum var haft, að
þeir hefðu ekki skýrt rikislögregl-
unni nægilega frá þvi, hvernig •
með arabisku, hermdarverka
mennina væri farið.
Innanrikisráðherra Brandts,
Genscher. á einnig hafa brugðizt
reiður við, þegar hann neyddist til
að stilla til friðar við Bæjernmenn
með þvi að eyða orðum Brandts.
Innanrikisráðherrann er i frjáls-
lynda flokknum (frjálsir demó-
kratar), sem er litill, en ræður úr-
slitum um rikisstjórn.
Og nú er kominn til sögunnar
Kranz Josef Strauss, harðsvirað-
ur stjórnarandstæðingur, sem er
kunnur fyrir að láta aldrei ónotað
tækifæri til góðra ..pólitiskra
slagsmála”. Straus er foringi
kristilega flokksins i Bæjern. sem
fer með stjórn fylkisins. Þeirri
spurningu hefur verið varpað
fram, hvers vegna Strauss hafi
verið i þyrlu innanrikisráðherr-
ans Genschers, þegar flogið var
til flugvallarins um nóttina,
þegar átökin uröu. Stjórnmála-
maðuT i Bæjern spyr, hvort ekki
hefði verið hagkvæmara að hafa
eina skyttu til viðbótar i þyrlunni
Aðkoman i ibúð tsraelsmanna.
Þjóðfrelsishreyfingin
býður somsteypustjórn
Þjóðfrelsishreyfing Suður-
Vietnam kveðst „reiðubúin að
taka þátt i myndun samsteypu-
stjórnar, til bráðabirgða.”
„Deiluaðilar i Suður-Vietnam
eiga að starfa saman i gagn-
kvæmri virðingu og jafnrétti,”
segir i yfirlýsingu þjóðfrelsis-
hreyfingarinnar.
„Lausn vandamálanna verð-
ur nú að byggjast á þeim stað-
reyndum, að i landinu eru nú
tvær stjórnir, tveir herir og
mörg pólitisk samtök. Eigi
friður að verða til frambúðar,
verða Bandarikjamenn að virða
rétt fólksins i Suður-Vietnam til
sjálfstæðis og sjálfsákvörðunar,
hætta loftárásum og hafnbann-
inu á Norður-Vietnam og öllum
striðsrekstri i Suður-Vietnam,”
segir i yfirlýsingu þjóðfrelsis-
hreyfingarinnar, sem frétta-
stofa Norður-Vietnam birtir.
Þar segir einnig, að Banda-
rikjamenn verði að hætta að
styrðja Thieu forseta i Saigon.
Saigon hafnar
Stjórn Suður-Vietnam hafnar
tillögum þjóðfrelsishreyfingar-
innar um samsteypustjórn til
bráðabirgða.
Utanrikisráðherra S-Vietnam
segir, að kommúnistar hyggist
taka öll ráð i landinu í skálka-
skjóli slikrar stjórnar.
Fyrsta sendi-
nefndin frá
Norður-
Kóreu til Seoul
Sendinefnd frá Noröur-
Kóreu, sú fyrsta i 27 ár, sem
kemur til Suður-Kóreu,
settist að samningum í
Seoul i morgun. Mörg
hundruð manna fögnuðu
sendimönnum meö lófa-
taki, þegar þeir komu til
viöræðna um leiðir til aö
sameina að nýju fjölskyld-
ur, sem hafa sundrazt í
skiptri Kóreu.
Fulltrúar Rauðakross samtaka
beggja rikjanna byrjuðu funda-
höld fyrir mánuði, en um tiu
milljónir manna eru taldir hafa
slitizt frá fjölskyldum sinurn,
einkum i Kóreustiðinu. Rikin tvo
hafa borizt á banaspjót, þar til nú
i sumar, að forystumenn byrjuðu
„friðarstrið”, sem enn stendur.
i staðinn fyrir Strauss. Strauss
hefur sjálfur gagnrýnt, að lög-
reglusveitin hafi ekki verið nægi
lega öflug. Strauss sagði samt
jafnframt. að hann hygðist ekki
..blanda stjórnmálum saman
við'' þetta mál.
Fréttamenn segja, að allar
slikar deilur muni skaða Brandt
öðrum fremur, þvi að kjósendur
muni saka þá. sem eru við völd,
um mistök.
Brandt hefur fyrirskipað rann-
sókn á aðferðum lögreglunnar i
málinu. Hann vonast greinilega
til að dragi úr pólitiskum hita inn-
an skamms.
Þing kemur saman á mánudag
i næstu viku, en búizt er við, að
kosningar verði 3. desember.
Komu þcir öðrum fæti á verð-
launapallinn og spilltu óiympiu-
Icikunum?
Eru varnir
að bresta
í Kambódíu?
1
Þúsundir bænda, ásamt
konum og börnum her-
manna í stjórnarher
Kambódíu, flýja úr
þorpum sínum á austur-
bakka Mekongf I jóts.
Þetta eru bændur af
Khmerstofni, en óttazt er,
að þarna hefjist meiri
háttar orrusta milli
kommúnista og Khmer-
manna.
Völdin á austurbakka fljótsins
eru i húfi, en á þvi veltur, hvort
birgðar af bensini, skotfærum
og öðrum vörum verða áfram
fluttar upp fljótið og til „hjarta”
Kambódiu lengra inni i landi.
Tapist austurbakkinn, munu
hæggengir bátar verða auðveld
bráð Norður-Vietnama og þjóð-
frelsissveita S-Vietnam og
Kambódiu, sem þar berjast.
Jafnframt hefur neyðar-
ástand rikt i Phnom Penh,
höfuðborg Kambódiu. Skortur
og skelfing lamar borgarlifið.
Margt flóttamannanna rekur
á undan sér nautpening sinn.
Hermenn lögðu hald á suma
vagnana til að flytja skotfæri og
eigin föggur.
Her Suður-Vietmana, sem
hefur barizt þarna við hlið
Khmermanna, er hvergi sjáan-
legur nú, segir i AP-frétt. Hins
vegar hefur sveitum
kommúnista borizt liðsauki
siðustu daga.
Lon Non höfuðsmaður, sem er
bróðir Lon Nols forseta
Kambódiu, er á leiðinni með lið
til bardagasvæðanna. Hann
hefur verið i höfuðborginni til að
reyna að fá fleiri sveitir sendar
til aðstoðar Khmermönnum.
Bandaríkjastjórn
fœr tregan stuðning
gegn hermdarverkum
Bandariska utanrikis-
ráðuneytið segist hafa
orðið fyrir miklum von-
brigðum, af þvi að það
hafi ekki fengið fullan,
stuðning sumra banda-
manna sinna i tilraunum
til að fá samþykktar
harðar aðgerðir gegn
hermdarverkamönnum.
Þetta á einkum við fund 15
þjóða nefndar, sem fjallar um að-
gerðir gegn flugvélaræningjum.
Charles Bray, talsmaður ráðu-
neytisins, segir, að sumir fulltrú-
anna hafi „beinlinis neikvæða”
afstöðu til slikra aðgerða.
Hann sagði, að hann væri „ekki
fyllilega ánægður með afstöðu
Breta”.
William Rogers utanrikisráð-
herra sendi um siðustu helgi per-
sónuleg boð til utanrikisráðherra
allra rikja, sem Bandarikin
viðurkenna, og bað um stuðning
þeirra við harðari aðgerðir gegn
hermdarverkamönnum.
Allende
forseti
lokar
skólum
Vinstri stjórn Allendes í
Chile riöar, og forsetinn
hefur sett skólafólk í leyfi
til aö komast hjá stórvand-
ræðum. Uppþot hafa verió
tíð, bæöi hægri og vinstri
sinna.