Vísir - 12.09.1972, Síða 7

Vísir - 12.09.1972, Síða 7
Visir Þriðjudagur 12. september 1972. vatnið gerir ekkert illt þó að það færi á hárið eða jafnvel þó það fari i augun. Foreldrarnir erú þvi beztu kennararnir fyrir barnið, á meðan það er enn að læra að umgangast vatnið og venjast þvi, þó að lærðir sund- kennarar taki við verkefninu siðar meir og eigi auðveldara með það. Eftir að barninu hefur verið hjálpað i baðkerinu heima og það jafnvel látið gera auðveldar æfingar, finnur það fljótt þegar i sjálfa sundlaugina er komið, að það er tiltölulega auðVelt að láta sig fljóta og það ernæstumBrfitt að sökkva. En það verður að fara að öllu með gát. og það má ekki þvinga barnið út i sundlaugina. Til þess að barninu verði ekki kalUen kulda má það helzt ekki finna, þar sem erfitt er að læra að synda þegar það ef til vill bæði vegna hræðslu og kulda skelfur og allir vöðvar eru spenntir til hins ýtrasta, má gera einfalda æfingu. Gott er að fá barnið til þess að hoppa og hlaupa og gera litlar og léttar æfingar áður en út i vatnið er farið. Það má þá fara i kapphlaup á bakkanum, eða i boltaleik og hoppa svo út i. Það er stór stund fyrir barnið þegar það þorir að dýfa höfðinu i kaf. En það getur lika tekið sinn tima að það geri það. Sem undirbúning fyrir það er hægt að gera mjög einfalda hluti, svo sem að bleyta hárið, láta vatnið renna yfir andlitið eða þá jafn- vel að halda höndum i bakkann og skvetta með fótunum. Smátt og smátt venst barnið vatninu. En þó að það sé reyndar komið að sundkennaranum þegar að sundnámskeiðinu er komið, er oft erfitt fyrir hann að hafa umsjón með heilum hóp af hávaðasömum og spenntum börnum og hjálpa vel og vand- lega hverju fyrir sig. Foreldrarnir hjálpa mikið til strax við baðið i byrjun, og siðar i sundlaugum. —EA . SUND KENNSLAN HEFST í BAÐKERINU Margir foreldrar geta átt i miklum erfiðleikum að striða, þegar sá timi rennur upp að barnið skuli læra að synda. Sum börn eru haldin svo gifurlegri vatnshræðslu, að þau í það fyrsta geta ekki hugsað sér að þurfa að fara ásamt hinum börnunum ofan i sundlaug, en ef þau eru neydd til þess að gera þaö, halda þau sér fast við bakkann, og vilja ekki með nokkru móti sleppa takinu af honum. Sundkennarar eiga þvi i vandræðum, en það er þó þeirra hlutverk að taka við börnum sem ef til vill hafa aldrei farið i sundlaug áður og vita ekki að hverju þau ganga. Það finnast foreldrar sem geta ekki sætt sig við að barnið úthelli kannski tárum áður en farið er i sundið. Mörgum foreldrum finnst þetta aðeins bleyðuskapur og biðja barnið um að haga sér ekki eins og smábarn. ,,Þvi fyrst að barnið hans Jóns hérna i næsta húsi getur þetta, þá skal mitt barn ekki standa sig siður.” En sundkennsla barnanna hefst i baðkerinu heima. Þar kynnast þau fyrst vatninu að einhverju ráði þegar móðirin baðar þau, og þar er strax hægt að venja bornið þannig við vatnið, að það komi ekki til með að hræðast það siðar meir. Á meðan að barnið er enn litið, má byrja með þvi að setja það oft i bað og gefa sér góðan tima til þess að leika við það. Barnið verður að læra að vatnið er ekki neitt sem er hættulegt, og það getur ekki meitt sig á þvi. Það verður að finna að vatnið er eðlilegt, mjúkt og skemmtilegt. Vatnið á að vera barninu jafn fullkomlega eðli- legt og það er á meðan það er umlukið fósturvatni i móður- kviði. Þess vegna er það mikilvægt að vatnið sé haft heitt i bað- kerinu, eða um það bil 30-37 gráður. En ef barnið þrátt fyrir allt er hrætt við að fara ofan i baðkerið, má leysa úr þvi vandamáli með þvi að fara sjálfur i kerið með þvi, og þá jafnvel ofan i það tómt. Siðan má skrúfa frá krananum og láta vatnið smám saman leka ofan i baðkerið. Sá sem baðar sig með barninu, getur siðan buslað i vatninu, látið það renna yfir höfuð sér og sýnt barninu að STDRLÆKKAÐ VERÐÁ Vauxhall Viva Notið tækifærið og eignist Vívu á stórlækkuðu verði. Rúmgóðan bíl með stórum vönduðum sætum. Þýðan og lipran í akstri. Sparneytinn: 62,5 ha vél eyðir ekki nema 8 litrum á hundraðið. Hátt endursöluverð sannar góða endingu. Við bjóðum einnig stórbætt greiðslukjör. Notið tækifærið — komið eða hringið kynnist Vauxhall Vívu af eigin raun. SAMBAND ISLENZKRA SAMVINNUFELAGA ^Véladeild ADkdlll A '1 DI VK IA\/lk QIMI IRQfin

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.