Vísir


Vísir - 12.09.1972, Qupperneq 16

Vísir - 12.09.1972, Qupperneq 16
Brekkukotsannáll kostar — „Leikarar frábœrlega vel borgaðir", segir Jón Laxdal vism Þriðjuaagur 12. sepiemDer wiz. HITA KER í TVO MÁNUÐI Starfsmenn nýja kerskálans i álverksmiöjunni byrjuðu i gær að hita upp fyrstu kerin i þeim 120 kerja áfanga, sem bætist nú við. „Undirbúningurinn tekur það langan tima, að viö verðum ekki búnir fyrr en i lok október að hita upp öll kerin,” sagði Ingvar Páls- son, verkfræðingur, við Visi i morgun. ,,Við hitum upp 18 ker á viku.” Þessinýi áfangi álversins hefur verið háift annað ár i smiðum, en hann leiöir af sér 75% aukningu i framleiöslugetu verksmiðjunnar. 40-50 „Kostnaður við Brekku- kotsannál er áætlaður 40- 50 milljónir. Svo er ekki gott að vita hvort þetta stenzt fullkomlega, þvi sumt getur orðið dýrara en ætlað er", sagði Troels Bendtsen í viðtali við blaðið i morgun, er Brekkukotsmenn voru á hraðri ferð upp í Gufunes millj. til að halda þar áfram upptökum. „Þrátt fyrir leiöinlegt veður”, sagði Troels, en i dag verður tekin ein fjölmennasta senan, „Skreiðarlestin”, en þar veröa um þ$ð bil 50 statistar. Ekki kvaðst Troels vita hvað hverj- um og einum leikara væri borg- að fyrir hlutverk sitt i kvik- myndinni, það færi eftir þvi hversu stórt og langt hlutverk hver færi með. „En ég veit að leikararnir eru frábærlega vel borgaðir, og islenzkir leikarar hafa aldrei fengið hærri borgun fyrir leik”, sagði Jón Laxdal er við höfðum samband við hann. Sjálfur kvaðst hann vilja halda sinum launum leyndum og sagði sem von var, að þetta væri mjög við- kvæmt mál. Aðspurður að þvi hvort erfiöi væri ekki meira i sambandi viö kvikmyndaupp- tökur en að leika á sviði, sagði hann erfiðið verafólgiði biöinni og þolinmæðinni. Leikararnir biða i búningum sinum og sminkaðir i langan tima þar til á þeim þarf að halda. En hann sagði að það væri stórkostlegt að sjá hversu fljótt allir hefðu tekið við sér, og þrátt fyrir það að Háderich er kröfuharður, er hann mjög ánægður með frammistöðuna. lslenzka leikarafélagið samdi um laun fyrir hönd islenzku leikaranna, en Jón er sjálfur i þýzku leikarafélagi. -EA BORGARLEIKHÚSI YALINN STAÐUR f HINUM NÝJA MIÐBÆ A fundi Leikfélags Reykjavikur sem haldinn var i gærkvöldi sam- þykkti félagið fyrir sitt leyti aö fyrirhuguðu Borgarleikhúsi yröi valinn staður i hinum nýja miðbæ við Kringlumýrabraut. í vor var skipuð nefnd sem átti að fjalla um staösetningu Borgarieikhúss, og i þeirri nefnd sátu Jón Sigur- björnsson, Guðmundur Páisson og Steinþór Sigurðsson. Borgar- stjóri skipaði siðan tvo menn i nefndina, þá Gústaf E. Pálsson og Jón Tómasson. Komst nefndin að þeirri niður- stöðu að sá staður sem helzt kæmi til greina væri i nýja miðbænum, en áður hafði Bárulóðin við norðurenda tjarnarinnar komiö til mála. Rökin fyrir þvi að fólk telur sig ekki geta beðið eftir þeirri lóð, eru þau, að alþjóðalög segja svo fyrir um, að byggingar sem byggöar eru i eins kilómetra fjar- lægð- frá flugvelli megi ekki vera hærri en 20 metrar miðað við götuhæð, en við flugvellinum veröur ekki hróflað fyrr en árið 1984. En turn á Borgarleikhúsi yrði að vera a.m.k. svo hár'Eeik- félagið telur sig ekki geta beðið svo lengi, en það óskar eftir að fá beztu lóðina i hinum nýja miðbæ. Fjöldi manna hafa lengi verið fylgjandi þvi að Borgarleikhús skuli reist þar. —EA. HVER LEYFÐI HÆKKUN Á LEIGUNNI I IÐNÓ? „Ég vcit ekki betur en verð- stöðvunin sé i fullu gildi og þess vegna kcmur mér það spánskt fyrir sjónir aö menn geti hækkað húsaleigu eftir vild” sagði Hjálm- ar Villijálmsson ráðuneytisstjóri i samtali við Visi i morgun. Hækk- un á húsaleigu i Iðnó hefur vakið mikla athygli og umtal manna á meðal. Viðskiptaráðuneytið á að hafa eftirlit með þvi að verðstöðvunar- lögin séu haldin. Þar var blaðinu tjáð, að ef viðkomandi hækkun hefði verið leyfð, væri það félags- málaráðuneytið sem bæri ábyrgðina. Þar kannaðist enginn við að hafa gefið út slikt leyfi en hins vegar var blaðinu tjáð að deildarstjórinn hefði fjallað um málið, en hann væri i sumarleyfi erlendis. Steinunn Finnbogadóttir aðstoðarráðherra sagðist ekki hafa fengið neinar upplýsingar um málið. Það er þvi ekki upplýst ennþá hvort hússtjórn i Iðnó hafi haft leyfi til að hækka leiguna eða ekki. -SG ROKVEIÐI í SOGINU gefa skýrslu Lögreglan i Færeyjum hcfur haft upp á einu helzta vitninu i Hamranessmálinu fyrir bæjar- fógetaembættið i Hafnarfirði, og cr sá maður væntanlcgur hingað til lands næstu daga. „Við náðum sjálfir tali af honum eftir ábendingu lög- reglunnar i Færeyjum og báðum hann að koma hingað til lands aftur og bera vitni i málinu. Og hann varð vel við þvi,” sagði Sigurður Hallur Stefánsson, full- trúi bæjarfógeta, sem stýrt hefur rannsókn málsins fyrir dómi, siðan sjóprófum lauk. Með þvl að maðurinn, sem var einn af áhöfninni á Hamranesinu, og var fús til samvinnu við ýfir völdin i Hafnarfirði, var engin þörf á að fá hann framseldan. Hann kemur af fúsum vilja, Nokkrar vonir eru bundnar við það, að maðurinn geti veitt upp- lýsingar, sem varpað geti ljósi á, hvers vegna Hamranesið sökk. Athygli manna hér beindist að þessu vitni, eftir að það var farið til Færeyja, en þá tóku að berast manna á milli kvittir og sögur, Mannlaus bifreið sem stóð á bilastæöinu norðan við gamla samkomuhús Akureyringa við Hafnarstræti, fór á eigin spýtur i ferðalag i nótt, sem endaði úti i sjó. Bifreiðin rann niður hallann á bflastæðinu og norður af planinu. sem þessi maður var borinn fyrir. „Aður en rannsókn getur talizt komin á lokastig, verðum við aö ná tali af honum. Og ef rétt reymst, það sem eítir honum hefur verið haft, þá mun það óneitanlega varpa nýju ljósi á málið”, sagði Sigurður Hallur fulltrúi. - GP Þar steyptist hún fram af 3-4 m háum kambi og húrraöi niður á Skipagötu, en hélt siðan áfram komin á fleygiferö, og yfirgötuna. Þar stakkst billinn fram af bakk- anum og rann niður i fjöru og út i sjó, þar sem hún loks nam staðar i flæðarmálinu. — GP Gifurleg vciði hefur verið i Sog- inu isumar, nánar tiltekið við Al- viðru hjá Alftavatni. Veiðzt hafa 350 laxar á stöng það sem af er veiöitimans, en i fyrra veiddust 250 laxar og i hitteðfyrra aðeins 100. „Það lætur nærri að 10-15 fiskar hafi komið daglega á land,” sagði Þorgeir veiðivörður i Þrasta- lundi. „1 gær veiddi örvar Sigurðsson 24 punda lax. Það er stærsti fiskur sumarsins hjá okk- ur, en töluvert hefur veiðzt af stórum laxi. Ætli meðalþyngdin séekki 11-12 pund og hátt á annan tug laxa er yfir 20 pund,” sagði Þorgeir. Veiðitimanum við Alviðru er nú að ljúka og fer hver að verða siðastur að innbyrða vænan lax, en dagsverðið i ánni er núna 2500 krónur og þykir það ódýrt miðað við sumar ár norðan- lands. gf Einar Sigurjónssou, verkstjóri i nýja kerskálanum, var að koma einum gaslampanum fyrir, þegar Ijósm. bar að i gærmorgun. Hann bjóst við, að fyrsta kerið næði um 600 gráðu hita núna i morgunsárinu, eftir sólahringsupphitun, og þá fyrst er hægt aö setja bráðið álmelmið i kerið. Eitt Hamraness- vitnið í Fœreyjum Kemur hingað fyrir beíðni yfirvalda til þess að Rann mannlaus fram í sjó Tœkniskólinn settur ón samninga við kennara „Mér er kunnugt um það að ekki hcfur endanlega ver- ið gengið frá launakjörum kennara Tækniskólans, en þar sem ég er nýkominn úr sumarleyfi hef ég ekki fengiö tæmandi upplýsingar um málið” sagöi Magnús Torfi Ólafsson menntamálaráð- herra i samtali við Visi i morgun. Ráðherrann kvað fjár- málaráðuneytið myndu svara þessari fyrirspurn nánar. Þegar Visir hafði samband við Höskuld Jóns- son deildarstjóra launa- máladeildar sagðist hann nýkominn úr sumarfrii og ekki hafa heyrt um þetta mál. Aðrir aðilar sem blaðið reyndi að hafa samband við voru ýmist nýkomnir úr sumarfrii eða farnir i fri. Tækniskólinn var settur i gær. en eftir er að ganga frá launamálum kennaranna. Hafa kennarar haft við orð að byrja ekki kennslu fyrr en lausn hefur fengizt, en deilan er týnd einhvers staðar i embættismannakerfinu og ekki útséð hvenær eða hvernig hún leysist. — SG

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.