Vísir - 14.09.1972, Blaðsíða 3
Visir Fimmtudagur 14. september 1972
3
LOFTLEIÐIR EIGA
EINA FLUGVÉL
SAS á sextíu
Flugflotinn i heiminum vex ár
frá ári. Visi gefur borizt yfirlit yf-
ir flugvélaeign alþjóölegu flug-
félaganna i heiminum — og kem-
ur þar sitthvað spennandi fram.
T.d. það, að Loftleiðir eiga að-
eins eina flugvél, þ.e. eina Dougl-
as DC8-55. Hins vegar hefur
félagið þrjár vélar sams konar á
leigu frá Seaboard World Air-
ways.
Dótturfyrirtæki Loftleiða,
International Air Bahamas á lika
aðeins eina vél og hefur enga á
leigu. Vélin sem Air Bahamas á
(en Loftleiðir munu eiga það flug-
félag með húð og hári), er af
gerðinni Douglas DC-8 63F.
Cargolux. þriðja dótturfyrir-
tæki Loftleiða, en Loftleiðir eiga
meirihluta i þvi flugfélagi, á
fimm vélar af Rolls Royce gerð,
allar smiðaðar hjá Canadair og
voru áður i eigu Loftleiða.
Flugfélag íslands er i yfirliti
þessu skráð með sinar fjórar vél-
ar. Þ.e. tvær Boeing 727 og tvær
Fokker Fiendship. en eftir að
yfirlitið var gefið út hefur Flug-
félagið keypt 2 Fokker Friendship
vélar til viðbótar frá Japan.
Flugfélög—- eins ot t.d. KLM,
það hollenzka, Japan Airlines og
önnur risafélög. láta yfirleitt ekki
duga færri vélar en frá 50 og yfi'r
100. T.d. áSAS yfir 60 stórar far-
þegavélar.
Samtals eru i notkun núna i
heiminum 7078 farþegavélar sem
fljúga á alþjóðlegum leiðum. Og
fer ekki mikið fyrir islenzka flug-
flotanum i þeim hávaðasama
hópi. Raunar mun rétt að minna
á. að þegar Loftleiðir keyptu
International Air Bahamas átti
það félag enga flugvél. Siðan hef-
ur það keypt þessa einu Douglas
DC-8, sem verður, þvi að teljast
eign Loftleiða, þótt ekki sé vélin
skráð islenzk. —GG
LANDSMÓT VOTTA JIHÓVA
Leikrít, skírn og fyrirlestrar
„Yfirráð Guðs — eina von alls
mannkynsins” er stef móts þess,
sem vottar Jehóva gangast fyrir
að Hlégarði f Mosfelissveit i dag
og þrjá næstu daga, en mótinu
lýkur klukkan þrjú á sunnudag.
Mót þetta er liður i alþjóðlegu
fræðslustarfi, sem vottar Jehóva
reka út um allan heim, en mót
þetta hefur verið haldið viðsvegar
um heiminn i sumar. A mótum
þessum er öll dagskráin byggð á
Bibliunni. Fluttar verða ræður
með margskonar sýnikennslu,
tvö leikrit verða með skugga-
myndum og loks má nefna skirn-
ina, sem er annar mikilvægur
þáttur mótsins. Er þar um aö
ræða skirn fullorðins fólks,
,,sem”, eins og segir i fréttatil-
Suðureyrarmól
Það taugatöflumál, sem kom
upp fyrir skömmu á Suðureyri,
hcfur nú verið sent til saksóknara
rikisins tii frekari athugunar, en i
sambandi við málið voru um 30-40
manns yfirheyrðir, en eins og
kunnugt er var sendur lögregiu-
maður frá Iteykjavik til þess að
kynningu votta Jehóva, „hefur
numiö Bibliuna um hrið og tekið
afstöðu með frumreglum
hennar.”.
—ÞJM
til saksóknora
standa i yfirheyrslum á staðnum.
A Suðureyri er nú aðkomufólki
farið að fækka mikið, og þeir sem
eitthvað voru við málið riðnir
farnir af staðnum fyrir nokkru.
En eins og áður hefur komið fram
voru unglingar i plássinu einnig
viðriönir málið. — EA
Um 4.542 nemendur í framhaldsskólum
t menntaskólum á landinu,
Kennaraháskóla og Verzlunar-
skóla verða rúmlega 4.500 nem-
endur í vetur, ef reiknað er eftir
þeim tölum sem nú eru i bókum
skólanna. Þó getur sú tala bæði
hækkað og lækkaö á næstu dög-
um, en hún tekur þó ckki miklum
breytingum.
i Verzlunarskóla íslands verða
alls 770 nemendur i vetur. Þar af
eru 295 nemendur sem koma nú i
fyrsta sinn i skólann, 225 i 3. bekk
sem er byrjunarbekkur og 70 á
námskeiði skólans i hagnýtum
verzlunar- og skrifstofugreinum.
i Menntaskólanum i Hamrahlið
verða um 820 nemendur, en inn i
skólann koma nú 250 nýir nem-
endur. Um það bil 700 nemendur
munu stunda nám i Mennta-
skólanum við Tjörnina, þar af
verða 184 nýir nemendur i fyrsta
bekk, en 23 nýir nemendur i öðr-
um bekk. i Menntaskólanum við
Lækjargötu verða um 900 nem-
endur og nýir nemendur verða
sennilega 200. Er það 100 nem-
endum færra en á siðasta vetri.. Á
milli 520-530 nemendur verða i
Akureyri i vetur, og eru nýir
Kennaraháskóla íslands i vetur,
þar af koma 40 nýir inn i fyrsta
bekk skólans.
Á Laugarvatni eru samtals 180
nemendur, þar af koma 52 nýir
nemendur i fyrsta bekk, en 56 ný-
ir i efri bekki. Verður mennta-
skólinn þar settur 3. október n.k.
Um það bil 500 nemendur munu
stunda nám i Menntaskólanum á
„Það eru miklar tafir á kennsl-
unni og verður svo út þessa viku.
En ég vona að hægt verði að hef ja
fulla kennslu uppúr næstu helgi”
sagði Bjarni Kristjánsson skóla-,
stjóri Tækniskólans i samtali við
Visi i morgun.
1 gær var tekin ákvörðun um
bráðabirgðarlausn i kjaramálum
kennara Tækniskólans. Þar eru
nokkrir tugir sérkennara og hafa
þeir ekki allir viljað hefja kennslu
nemendur 115. Á siðasta vetri
voru nemendur 520 alls, en 130 ný-
ir nemendur bættust við þá.
74 nýir nemendur bætast við i
Menntaskólanum á Isafirði, en
þar verða nemendur samtals 140.
Hefur einum bekk verið bætt þar
við frá þvi i fyrra, en þá voru
nemendur alls 75.
—EA
fyrr en ljóst er hvernig þessi
ákvörðun til bráðabirgða er. Af
þeim sökum hafa margir ekki
komið til starfa ennþá, en skólinn
var settur um siðustu helgi. Nem-
endur hafa þó getaö byrjað nám i
sumum greinum, en það hefur
verið heldur sundurslitið.
Seinha á þessu ári eru væntan-
legar niðurstöður heildarkönnun-
ar sem stendur yfir á kjaramál-
um kennara. —SG
Tœkniskólinn:
Miklar tafir á kennslu
Eftir langan akstur um sanda og mela birtist allt i einu, þegar
komið var úr einni beygjunni á milli sandhólanna, grasi gróinn
blettur, vcl hirtur og umlukinn snyrtilegri girðingu.
„SUNDLAUGIN i ÞJÓRSARDAL — Opin frá kl. 9—7.”, stóð
letrað á skilti sem þarna hékk hjá.
Hvergi i nágrenninu var annars stingandi strá að sjá, svo að
þessi blettur var i augum ferðamannsins eins og vin i eyöimörk-
inni.
„Það liefur líka veriö mikil aðsókn i laugina i sumar”, sagði
sundlaugarvörðurinn, sem þarna var á vakt, þegar ljósmyndar-
ann bar að. „En núna með haustinu hefur dregið úr þvi aftur.”
Sundlaug þessi, sem er ný af nálinni, var gerð af starfsmönn-
um við Búrfellsvirkjun i samvinnu við hreppsfélagiö.
Úr sólinni í pollanna
Fyrir nokkrum dögum gátu þessi börn og önnur hoppað og skoppað
um i sólskini og bliðviðri, en nú er sagan önnur. Rigning og dumbungur
hvilir nú yfir mannfólkinu og börnin verða að klæðast regngalla áöur en
haldið cr út. En sennilega líkar þeim ekkert verr i rigningunni. Pollar
safnast fyrir h hverri götu, og fáir Ieikir eru eftirsóknarveröari fyrir
yngstu kynslóðina en að geta sullað I pollunum, þó að mæðurnar séu
liklega ekki jafnhrifnar.
—EA