Vísir - 14.09.1972, Blaðsíða 7

Vísir - 14.09.1972, Blaðsíða 7
Yisir Fimmtudagur 14. september 1972 7 r IIXIINM 1 5ÍÐAN I Umsjón: Edda Andrésdóttir Um 30% af öllum dauðsföllum hér á landi erudauðsföll vegna krans æðasjúkdóma. Eftir þeim upplýsingum sem blaðið hefur aflað sér hjá Hjartavernd, hefur þróunin verið þannig hér- lendis að hjarfasjúkdóm- ar fara stöðugt vaxandi, og þá sérstaklega hjá karlmönnum. Ekki eru sérstaklega mörg tilfelli meðal kvenmanna, en hjá karlmönnum virðist sjúk- dómurinn ná taki á stöðugt fleiri og yngri kal- mönnum. Frekar er þó sjaldgæft að fólk innan við fjörutiu ára aldur veikist af h jartasj úkdómum, en þegar komið er yfir sextugs aldurinn verður sjúkdómurinn tíðari og þá einnig hjá kvenfólki. b’yrir nokkrum árum voru ekki nema 10-12 tilfelli af 1000 þar sem fólk lézt vegna krans æóasjúkdóma en nú er svo komið aft það eru orðin 300 af 1000, og meira er um að yngra fólk finni fyrir sjúkdómnum. Dánartiðni vegna kransæða- sjúkdóma er mjög svipuð hér og á hinum Norðurlöndunum, en hún er þó hæst i Finnlandi og sennilega einna hæst i öllum heiminum. 1 Danmörku deyja til dæmis 17.000 manneskjur á hverju ári úr hjartasjúkdómum. Dánartiðni er einnig nokkuð svipuð i hinum háþróuðu rikj- um. en hjá frumstæðari þjóðum, er eins og kunnugt er miklu minna um slik tilfelli. Enginn veit nákvæmlega hvað það er sem veldur hjartasjúk- dómum, og ekki er vitað um neina frumorsök fyrir sliku. Þó eru það breyttir lifnaðarhættir sem eiga stóran þátt i þessu, breytt mataræði, reykingar og hreyfingarleysi og sennilega munu hjartaskúkdómar stöðugt stiga eftir þvi sem tækninni fleygir áfram. Hvernig fólk fyrst finnur fyrir þvi að það er veilt fyrir hjarta er mjög breytilegt. Algengast er þó að fólk finnur fyrir verk fyrir hjarta. sem kemur sérstaklega við likamlega og andlega áreynslu. Þó er það ekki algild regla og sumir fá kransæða- stiflu án þess að finna nokkurn tima fyrir verk áður. En verkur fyrir brjósti getur þó oft komið án þess að fólk þurfi nokkuð að óttast að eitthvað alvarlegt sé á ferðinni. i Danmörku segja læknar dauða vegna hjartasjúkdóma fara óhugnanlega stigandi, og dauðsföll séu 25% fleiri nú en fyrir um það bil 15 árum, og i flestum tilfellum látist fólk úr kransæðastiflu. án þess að nokkur verkur hafi gert vart við sig áður. Á siðari árum hefur læknastéttin unnið að þvi þar- lendis að reyna að finna ein- kenni hjá fólki sem gæti verið einhver visbending um að illt sé i aðsigi. en það hefur litinn árangur borið. Kransœðasjúkdómar breiða sig stöðugt út 30% af dauðsföllum hérlendis Eftir rannsókn sem gerð var á 320 sjúklingum i Danmörku kom það fljótt i ljós. að það er ekki til neitt eitt einkenni sem gefur visbendingu um, hvað er að ske i likama mannsins. Nokkrir sjúklinganna höfðu i vikur, mánuði eða jafnvel ár fundið fyrir einhverjum verkjum, sem þeim fannst þeirekki geta sett i samband við hjartað. Hjá öðrum lýsti byrjunin sér sem verkir fyrir hjarta og brjósti eða á þvi svæði likamans. Hjá öðr- um hóp kom sjúkdómurinn aðeins i ljós þegar fólk varð fyrir áreynslu, likamlegri eða andlegri. og nokkrir fengu til da'mis lyrsta hjartakastið meðan horfl var á spennandi hnefaleikskeppni i sjónvarpi eða knattspyrnuleik. Nokkrir lýstu sinum einkenn- um sem verkjum um næslum allan likamann. Verkinn lagði út i hendur, axlir, háls, maga og hrygg. Þeir sem höfðu fengið kast áttu erfitt með að lýsa einkenn- unum áður. Yfirleitt var þvi lýst sem þunga. þreytu, og verk i brjóstkassa. Sársaukinn gat staðið i nokkrar minútur eða 24 tima. jafnvel lengur. Læknar i Danmörku segja að sársauki, mikil vanliðan og sterkur sviði á milli þindar og kjálka geti verið bending um það að kast sé yfir- vofa ndi. Eftir aðra rannsókn sem gerð var i Skotlandi er næstum hægt að segja. að þeir séu heppnir sem verða varir við einkenni. sem benda til að hjartað sé ekki alheilbrigt. 86% af 385 sjúkl- ingum sem fóru strax til læknis, vegna þess að þeir fundu að ekki allt var i lagi, var hjálpað án þess að nokkuð alvarlegt kæmi fyrir. Nokkur hluti al' sama hóp sjúklinga hafði verið hjá lækni i fjórar vikur. áður en þeir dóu sniigglega og höfðu aldrei fundið neina sérstaka verki sem bentu til þess að hjartað staríaði ekki rétt. Mataræði er sagt geta haft sin áhrif á hjartað, og margir hafa lagt til að fólk gerði tilraun til þess að breyta mataræði sinu til þess að forðast hjartasjúk- dóma. Ýmsir læknar og prófess- orar halda þvi þó fram, að enn hafi ekki komið fram nægar sannanir, til þess að h;rgt sé að ráðleggja fullkomlega heil- brigðu fólki að halda sig aðeins við vissar tegundir matvæla. En sennilega er eina ráðið til þess að lorðast þennan sjúk- dóm, að hreyfa sig nógu mikið, forðast reykingar og borða eftir setlum reglum. Danskur prófessor, A. Ty- bjærg Hansen hefur sagt. að ef þetta vandamál i sambandi við hjartasjúkdóma v;eri meðal ungbarná, en ekki aðallega hjá mönnum um fimmtugt. væri það tekið langtum alvarlegri tiikum. Ilann segir ennfremur, að tveir þriðju hlutar af þeim manneskjum sem fá blóðtappa, láli lifið einum klukkutima eftir að einkennin hafa sýnt sig, og 20% af þeim sem lagðir eru inn á sjúkrahús láta einnig lifið. Hann segir einnig að það n;egi ekki að taka aðeins lyrir þá sem þegar þjást af hjartasjúkdóm- um. heldur einnig þá, sem enn- þá eru hraustir á þessu sviði og hjálpa þeim einnig lil þess að komast hjá þessum a.1 algengari sjúkdómi. — EA

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.