Vísir - 14.09.1972, Qupperneq 10
— Mér finnst knatt-
spyrnan á islandi vera í
stöðugri framför sagði
skozki dömarinn McKenzie
eftir leik Vikings og Legia,
Varsjá i Evrópubikar-
keppninni á Laugardals-
velli í gærkvöldi, en hann
dæmdi nú sinn þriðja leik á
islandi. Það var auðvelt að
dæma þennan leik, bætti
hann viö, leikmenn voru
prúðir. Pólska liðið var
betra, en tókst þó engan
veginn að yfirspila islenzka
liðið.
Já, Vikingar komu á óvart i
þessum leik gegn hinum kunnu
mótherjum sinum. sem eiga aó
baki nokkra stórsigra i evrópskri
knattspyrnu. Aó visu komust
tveir úr Olympiuliðinu pólska
ekki hingað vegná meiósla — og
af þeim sökum hættu Pólverjar
sér ekki svo mjög i návigi lengi
vel, þar sem þeir höfðu aðeins
einn varamann. en það dregur þó
ekki neitt úr þeim leik, sem
Vikingar sýndu. Að visu töpuðu
þeir leiknum 2-0 en það hefði þó
enginn getað sagt neitt við þvi, þó
jafnteíli hefði orðið eða Pól-
verjarnir unnið með eins marks
mun.
Vikingar náðu sér vel á strik i
leiknum og léku i heild sinni bezta
leik á sumrinu, leik. sem jafnvel
var betri en 3-3 jafnteflið við
Fram. Vörnin var sterk hjá liðinu
án þess þó að megináherzla væri
lögð á hana — sóknarleikur var i
hávegum hafðurhjá báðum liðum
— og þar sýndu Vikingar oft góð
tilþrif með léttum, liprum sam-
leik sinum. Þeir gerðu áreiðan-
lega betur, en þeir bjartsýnustu
höfðu þorað að vona — slæmt að
slikt lið skyldi ekki halda sæti
sinu i 1. deildinni. En knatt-
spyrnan er oft miskunnarlaus.
Veður var ekki sem bezt fyrir
leikinn, en þolanlegt meðan á
honum stóð, og merkilegt hvað
liðunum tókst að ná saman á
slæmum Eaugardalsvellinum.
sem var eins og mýrarílak á
slórum köl'lum leikmenn bein-
linis sukku niður i drulluna sums-
staðar.
Fyrri hálfleikurinn var ol't
ágadlega leikinn skemmtileg
knattspyrna á báða bóga. Hætta
var þóekki mikil við mörkin — en
brá þó l'yrir. Þannig varði Diðrik
Ólal'sson tvisvar sinnum snilldar-
lega, og pólska markverðinum
tóksl á snöggan hátt að verja
lúmsktskot llafliða l’éturssonar
i horn.
I.egiu-menn voru hættulegri
framan af siðari hálfleik og þá
sýndi Diðrik stórkostlega mark-
vörzlu. þegar hann varði hörku-
skol hægri bakvarðar. ()g svo
komu mörkin - bæði á rúmri
minútu. A 13. min. sótti mið-
herjinn Bialas inn á vitateiginn.
l’áll Björgvinsson rann til, þegar
hann reyndi að hindra hann og
féll i völlinn. Miðherjinn átti
greiðan aðgang að markinu og
skoraði örugglega. ltétt á eftir
lengu Fólverjar hornspyrnu og
innherjinn Balcerzak skallaði
ghesilega i mark.
Þrátt fyrir mótganginn gáfust
Vikingar ekki upp — þeir sýndu
jafnvel sinn bezta leik loka-
kaflann og ógnuðu þá hvað eftir
annað marki Pólverja. Þannig
tókst pólska markverðinum með
hörkulegu úthlaupi — þar sem
hannslasaði Eirik. svo hann varð
að yíirgeía völlinn — að bjarga
marki. Guðgeir komst i gegn en
spyrna hans lenti i varnarmanni.
þegar markið var opið og margir
voru á þvi. að Vikingur ætti að fá
vitaspyrnu. þegar einum leik-
manna liðsins var haldið, þegar
hann var kominn i gott færi. En
dómarinn. sem greinilega var
ekki neinn heimadómari, sá ekki
brotið.
Það fer ekki á milli mála, að
þetta pólska lið er gott — með
betri liðum. sem hingað hafa
komið, og i ljósi þess ber að meta
frammistöðu Vikings. Margir
urðu þarna af góðri skemmtun.
þvi áhorfendur voru aðeins eitt-
hvað á 3ja þúsundið og þvi mikið
fjárhagslegt tap fyrir Viking
þessi þátltaka i Evrópukeppn-
inni. En hvað um það — liðið sem
slikt verðskuldaði að leika
þennan leik. hvað sem siðar
verður i Póllandi.
Eins og áður segir var vörnin
góð hjá Viking Diðrik og Páll
beztu menn liðsins. bakverðirnir
Magnús og Bjarni komust einnig
vel frá leiknum, svo og Jón Ólafs-
son. sem litið hefur leikið i
sumar. Þá áttu framverðirnir
Gunnar og Guðgeir skinandi leik
báðir — en það voru framlinu-
mennirnir, sem ekki beint náðu
sér á strik. í liði Pólverja eru
margir góðir leikmenn, en enginn
þó betri en Nowak. sem er stór-
hættulegur leikmaður vegna
hraða sins. — hsim.
Heppnissigur norskra
gegn Vestmannaeyjum!
Ásgeir Sigurvinsson bezti maður á vellinum í Stafangri
Páll Björgvinsson átti sinn bezta leik með Viking og crfitt var fyrir pólsku lcikmcnnina að komast framhjá honum. Hér stöövar hann sókn
hezta inanns Pólverja, hins eldfljóta Nowak — eins þeirra sem var í 01 ympiuliðinu — og Magnús Þorvaldsson, sem einnig átti ágætan leik, er
viðhúinn ef cilthvaö bregður útaf. Bjósmynd BG.
Sannkallaðir Víkingar
u vel í Pólverjum
— en Legia, Varsjó, sigraði þó með 2—0 í Evrópubikarleiknum í gœr
Þetta var heppnissigur og
Vestmannaeyingar hafa
göða möguleika í heima-
leik sínum siðar í mánuðin-
um. Bezti leikmaðurá vell-
inum var vinstri útherji
Vestmannaeyinga, Ásgeir
Sigurvinsson. Þetta segir í
AP-skeyti um leik norska
liðsins Viking í Stafangri og
Vestmannaeyinga i UEFA-
bikarkeppninni, sem leik-
inn var á flóðlýstum leik-
vellinum i Stafangri i gær
— fyrsti leikurinn, sem
leikinn er þar á flóðlýstum
velli. Viking sigraði 1-0.
Hins vegar er norska fréttastof-
an NTB söm við sig þegar fs-
lendingar keppa við Norðmenn i
knattspyrnu. Sem áður sér frétta-
maður hennar allt með öðrum
augum en aðrir. Hann segir með-
al annars: Ekki tókst Viking að
notfæra sér yfirburði i leik til ör-
uggs sigurs. Vestmannaeyingar
voru ekki betri en það. að Viking
átti að ná tryggu forskoti fyrir
siöari leikinn á íslandi. Það
kanna að vera að 1-0 nægi þar
ekki. Viking tók i notkun flóðlýs-
ingu sina og heppnaöist hún mjög
vel og var tilmestraránægju fyrir
8881 áhorfanda. sem mætti á leik
inn. Leikurinn var heldur lélegur.
En svo kemur allt i einu þessi
setning hjá NTB. islendingarnir
léku friskan sóknarleik og voru
fljótari en norskir eftir þvi, sem
leið á leikinn. Þetta varð tíl þess
\
að Viking varð að leika hraða.
sem leikmenn valda ekki. og það
setti leikaðferð liðsins úr skorð-
um. En þetta hefur verið eitthvað
óvart hjá fréttamanninum, þvi
strax i næstu setningu bætir hann
við. Viking var samt sem áður
betra liðið og hefði á heimavellin-
um átt að sigra með meiri mun.
Mark Norðmanna var mikið
klaufamark. Svein Kvia sendi
langa sendingu — af 30 metrum —
að marki Vestmannaeyinga og
virtist engin hætta. Páli Pálma-
Heimsmet-
hofi vann
01-meistara
Ileimsmethafinn i 400 m
hlaupi, Lee Evans, Banda-
rikjunum, sem aðeins var
varamaður f bandarfska
Olympiuliöinu, gerði sér litið
fyrir á aiþjóðlegu frjáls-
iþróttamóti i Rómaborg i
gærkvöldi og sigraði
Olympiumeistarann i 400 m
hlaupi, landa sinn Vince
Matthews auðveldlega.
Evans hljóp á 45.0 sek., en
Matthews fékk 45.2 sek.
■
Fyrir Evrópuleikinn i gær á Laugardalsvelli afhentu leikmenn Vfk-
ings hinum pólsku mótherjum sinum „lukkutröll” f Vfkingsbúningum.
Hér er Bjarni Gunnarsson að afhenda einum Pólverjanum gjöfina og er
sá pólski greinilega mjög ánægður með hana eftir svipnum að dæma.
Ljósm. BG.
Ásgeir Sigurvinsson
son greip knöttinn, en missti hann
svo frá sér og hann rann i markið.
Ekki var mikið um marktækifæri
i leiknum og^iðari hálfleikur var
svo slakur hjá norska liðinu. að
áhorfendur piptu á það, og það lék
varnarleik undir lokin.
Framverðir Vestmannaeyinga
Kristján Sigurgeirsson og Óskar
Valtýsson náðu góðum tökum á
miðjunni. en framlinumennirnir
fylgdu þvi ekki nógu vel eftir.
Stórskyttunnar Tómasar Páls-
sonar var vel gætt og var undir
sérstakri gæzlu Valen allan leik-
inn. Ásgeir Sigurvinsson var
mjög fljótur, en var ekki eins
hættulegur eftir þvi sem leið á
leikinn.
Varnarleikur Keflvík-
inga ógœtur í Madrid
— en Real sigraði þó með 3-0 í flóðljósaleik í gœrkvðldi
Diðrik ólafsson varði nokkrum sinnum af hreinni snilld I marki Vfkings
— hér kemur hann fingurgómunum á hörkuskot og bægir hættunni frá.
Frá Bjarnleifi Bjarnleifs-
syni, Madrid:
Með ágætum varnarleik
tókst Keflvíkingum að
koma i veg fyrir mikið tap
gegn frægasta knatt-
spyrnuliði Evrópu — Real
Madrid — hér á Bernabeu-
leikvanginum i Madrid. Að
vísu sigraði spánska liðið
með 3—0 og síðasta markið
var skorað á siðustu sek-
úndum leiksins — en ég gat
ekki betur séð en að þar
væri um hreint rangstöðu-
markaðræða. En línuvörð-
ur gerði enga athugasemd
og heldur ekki dómari og
sigurinn 3—0 kom þvi á
Ijósatöfluna.
Real Madrid tókst tvivegis að
skora i fyrri hálfleik. en samt sem
áður voru Keflvikingar aldrei yf-
irspilaðir i þessum leik i Evrópu-
keppni meistaraliða. Vörnin hafði
þó reyndar nóg að gera — Grétar
Magnússon var mjög sterkur og
það er sama sagan, þegar Þor-
steinn Óiafsson leikur gegn stór-
liðum á erlendri grund — hann
átti einn snilldarleikinn i marki
Keflvikinga i Evrópukeppni.
Markvarzla hans vakti mikla að-
dáun hinna 15 þúsund áhorfenda,
sem voru eins og dropi i hafinu á
griðarstórum leikvanginum, sem
rúmar talsvert á annað hundrað
þúsund áhorfendur.
Nýliði i Iiði Real Madrid, San-
tillana. skoraði fyrsta markið i
leiknum á 34. min. með skoti sem
Þorsteinn réð ekki við, enda leik-
maðurinn frir inn undir markteig.
Það var i eitt af fáum skiptum
sem Spánverjar voru óvaldaðir
svo nærri marki, enda var hrað-
inn þarna mikill og fyrirgjöfin
snögg og óvænt. Annar nýliði i liði
Real-Madrid. Andres, skoraði
annað mark liðsins með skálla
nokkru fyrir hlé og það var einnig
hann. sem skoraði rangstöðu-
markið undir lok leiksins.
Keflvikingar áttu sin tækifæri i
fyrri hálfleik og var Ólafur Júli-
usson. hávaxni bitillinn, hættu-
legastur. Hann átti tvivegis góð
skot á markið, sem spánski
markvöröurinn varði vel og litlu
munaði aö Keflvikingum tækist
að skora eftir aukaspyrnu, þar
sem skemmtileg leikflétta var út-
færð, en knötturinn straukst
framhjá stöng eftir spyrnu Harð-
ar Ragnarssonar.
Spánverjar sóttu mun meira i
siðari hálfleik, en tókst alls ekki
að rjúfa sterkan varnarmúr Kefl-
vikinga, sem greinilega léku upp
á að fá á sig sem fæst mörk. Skyn-
samlegt á útivelli við eitt bezta lið
Evrópu og þetta tókst þeim prýði-
lega — það var hrein gjöf þetta
siðasta mark hins spánska
Andresar i lokin.
Keflvikingar geta verið ánægð-
ir með þessi úrslit — mörg fræg
lið hafa fengið verri útreið en
þetta á hinum fræga velli Real
Madrid. Eins og áöur segir voru
varnarmennirnir mjög góðir, þó
mér þætti mest til Þorsteins og
Grétars koma, áttu þeir Guðni
Kjartansson og Ástráður Gunn-
arsson einnig prýðilegan leik.
Sóknarlinan fékk ekki mörg tæki-
færi til að sýna snilli sina — en Ó-
lafur Júliusson var þó oft hættu-
legur.
Á annað hundrað íslendingar
horfðu á leikinn og heyrðist tals:
vert til þeirra á vellinum — þeir
voru ósparir að hvetja sina menn,
en hins vegar varð maður einnig
var við það, að spánsku áhorfend-
urnir voru ekki beint ánægðir
með leik sinna manna. Þeir eru
kröfuharðir og vildu fá fleiri
mörk — en þau tvö sem skoruð
voru — þar til lokasekúndurnar
og það voru ekki allir, sem sáu
það mark. Margir voru farnir að
hugsa sér til hreyfings þá.
Siðari leikur liðanna verður á
Laugardalsvelli miðvikudaginn
27. september og verður fróðlegt
að sjá hvernig Keflvikingum
tekst þá upp — hvattir af islenzk-
um áhorfendum.
Mikið fjðr í Osló!
Hörkuskemmtilegum leik Osló-liðsins Lyn og Tottenham í
UEFA-bikarkeppninni i Osló i gærkvöldi lauk með sigri
Lundúnaliðsins. Niu mörk voru skoruð — Tottenham vann 6-3.
Tæplega 11 þús. áhorfend-ur sáu leikinn og spennan var i hámarki, þegar stóð 4-3 og
norska liðið hafði unnið upp að mestu 4-1 forustu Tottenham. En þá juku ensku atvinnu-
mennirnir hraðann á ný og Martin Chivers skoraði tvö mörk. Lyn skoraði fyrsta markið
i leiknum við mikil fagnaðarlæti (Austnes) á 7. min, en aðeins 40 sek. siðar hafði Martin
Peters jafnað fyrir Tottenham. Svo skoraöi Pratt og Alan Gilzean næstu tvö. En
Christofersen og Birkeland löguðu stöðuna áður en „Herkúles” skoraði tvö mörk
Tottenham undir lokin.
Pólskir sigruðu 0-5
Pólverjar eru harðir i knattspyrnunni — það sýndi Gornik Zabre á Möltu I gær, þegar
liðið vann Slima Wanderers 5-0 og það eru fá lið, sem ná slikum árangri i „sandgryfj-
unni á Möltu”. Einn úr ólympiuliðinu, Lubanski, skoraði þrennu. t UEFA-bikarnum
vann pólska liðiö Ruch Chorzov hið kunna lið Eenerbache, Tyrklandi, með 3-0, svo Pól-
verjar unnu á öllum vigstöðvum i Evrópukeppninni I gær. Vikingur slapp sem sagt bezt
frá þeim.
Gott hjó Rosenborg!
Glasgow Celtic, eitt albezta knattspyrnuliö Evrópu átti í miklum erfiðl. meö norsku
meistarana, Rosenborg frá Þrándheimi, i meistarakeppninni i Glasgow i gærkvöldi.
Að visu var pressan mikil á mark Norðmanna, en þeir vörðust vel, það svo, að Celtic
vann aðeins með 2-1.30 þúsund áhorfendur sáu leikinn og Celtic skoraöi bæði sin mörk i
fvrri hálfleik — Macari á 15,min. og John Deans á siðustu sekúndum hálfleiksins. Fyrra
inarkið var skoraö beint úr hornspyrnu, og var það i eina skiptið sem landsliðsmark-
vörðurinn norski gerði sig sekan um mistök, en Geir Karlsen átti að öðru leyti hreint
stórkostiegan leik. Skiðakappinn frægi, Björn Wirkola, sem eitt sinn var heims-
meistari i skiðastökki, skoraði eina markið i siðari hálfleiknum og voru Skotarnir
sannarlega hissa á úrslitunum. Þeir verða þó varla i erfiðleikum 27. september i
Þrándheimi.
Þriðja norska liðið i Evrópukeppninni. Fredrikstad, stóð sig allvel i UEFA-
bikarnum — tapaði aðeins 1-0 fyrir Hajduk Split og það i Júgóslaviu.
Mikið var um stórar tölur i Evrópuleikjunum i gær. Magdeburg, Austur-Þýzkalandi,
vann Palloseura, Finnlandi, 6-0. Feijenoord, Hollandi, sigraði Ruemelingen, Luxem-
borg, 0-0 og Rauða stjarnan, Júgóslaviu, vann Lausanne, Sviss, 5-1. A óvænt kom, að
Zúrick náði aðeins jafntefli gcgn 3. deildarliðinu Wrexham frá Wales 1-1 og það i Sviss,
en leikurinn var i keppni bikarhafa, og Malmö vann Benfica 1-0 i meistarakeppninni.
ísl. dómarar dœmdu
Cork Hibernian sigraði Larnaca frá Kýpur 4—1 á irlandi í gær, en Einar Hjartarson
dæmdi þann leik, sem var i keppni bikarhafa. Fyrri leikurinn var fyrr i vikunni einnig i
Cork, sem þá vann 2—1. Guömundur Haraldsson dæmdi þann leik og eftir þvi, sem
blaðið hcfur frétt, fengu þeir báöir góða dóma fyrir dómstörf sfn i leikjunum. trska liðið
hcldur þvi áfram i keppninni — samanlagt 6—2.
Nokkur dönsk lið voru i Evrópukeppninni í gær. Anderlecht vann Vejle með 4—2 I
meistarakeppninni i Ilollandi, en i kcppni bikarhafa gerði Fremad Amager jafntcfli á
hcimavelli I—1 við Besa frá Albaniu.
Af öðrum úrslitum má nefna, að Zagora, Búlgariu, vann Austria, Austurriki, með
7—0 i UEFA-keppninni, Slovan, Bratislava vann Novi Sad, Júgóslaviu, 6—0 i meistara-
keppninni, Spartak Moskvu, vann Haag, Ilollandi, 1—Oi keppni bikarhafa, og Galatas-
raý, Tyrklandi, og Bayern Miinchen gerðu jafntefli 1—1 i meistarakeppninni. Liðin,
sem talin eru á undan léku á heimavelli.
Jafntefli hjó Leeds
Ensku bikarmeistararnir, Leeds Utd„ léku í Tyrklandi i gær við Ankara og gerðu
jafntefli 1—1: Jordan skoraði markið og voru Leedsararnir ánægðir með þessi úrslit, en
það hefur reynzt mörgum liðum „ljónagryf ja” að leika i Tyrklandi. Derby County sigr-
aði Sarajevo 2—0 i Derby i gærkvöldi i meistarakeppninni með mörkum Roy McFar-
land og Archic Gemmill. Stoke sigraöi Kaiserlauten, Þýzkalandi 3—1 i UEFA-bikarn-
um i Stoke og skoruðu Conrey, Hurst og Ritchie fyrir Stoke, en Hosic fyrir þýzka liöiö. 1
sömu kcppni gerðu Manc. City og Valencia, Spáni, jafntefli 2—2 á Maine Road.
West Ham vann Chelsea óvænt i ensku knattspyrnunni á laugardag. Hér sendir Robson
knöttinn i mark, en markið var dæmt af vegna þess, að Clyde Best — sá svarti á vellin-
um — hafði stjakað við Bonetti, markverði Chelsea.