Vísir - 20.09.1972, Side 5

Vísir - 20.09.1972, Side 5
Visir Miövikudagur 20. september 1972 5 í MORGUN ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND í MORGUN UTLÖND I UMSJON: HAUKUR HELGASON Nœrri jafnt um EBE í Noregi í síðustu könnun Enn jafnast metin í Noregi i baráttunni um aðild að Efnahagsbanda- laginu. Samkvæmt síð- ustu skoðanakönnunum voru 42 af hundraði fylgj andi aðild og 46 af hundr- aði á móti. Stuðnings- mönnum EBE hefur því vaxið töluvert fylgi. í næstu skoðanakönnun á undan voru 36% fylgjandi og 42% andvíg. Ef ekki eru teknir meö þeir, sem eru óákveðnir, yröu tölurn- ar nú þannig, að 48% eru með og 52% á móti aðildinni. Þetta er svo litill munur, að kjörsókn gæti ráðið úrslitum og reyndar þyrfti litið að koma til i áróðri lokasprettsins. svo að stuðningsmenn yrðu ofan á i þjóðaratkvæðagreiðslunni um næstu helgi. Jafnframt benda allra siðustu skoðanakannanir i Danmörku nú til þess, að stuðningsmenn Efnahagsbandalagsins séu aft- ur i sókn. Niðurstöðum skoðanakann- ana berekki saman. Samkvæmt skoöanakönnun, sem var gerð 14. september eftir umræður á danska þinginu um aðildina, voru stuðningsmenn i nokkrum meirihluta. 49% voru fylgjandi aðild en 36% andvigir. 15% voru óákveðnir. Nokkrum dögum áð- ur höfðu andstæðingar verið taldir nær jafn margir og fylgj- endur samkvæmt annarri könn- un. En spurningin i norsku könnuninni var orðuð þannig: ..Ákveðið er. að Stóra-Bretland og írland verði aðilar að EBE frá 1. janúar næstkomandi. Sennilega gengur Danmörk i bandalagið samkvæmt skoðanakönnunum þar. begar þér hafið þetta i huga. viljið þér þá eða viljið þér ekki, að Noreg ur gangi lika i EBE'!"' Þegar spurningin var orðuð þannig. sögðust 47 af hundraði vilja. að Noregur gengi i EBE. en 46 af hundraði voru andvigir þvi. Þegar þeir óákveðnu eru teknir út úr dæminu. yrðu þá sem næst 50% með og 50% á móti. prósentubroti fleiri með. Enn birtast leyniskjölin: Mao og Chou vildu semja við Roosevelt Mao Tse-Tung og Choe En-Lai buðust til að fara til Washington og hitta Roose- velt Bandaríkjaforseta i janúar 1945, og hefði sá fundur vafalaust getað breytt sögu áranna eftir striðið, þarsem skilaboðum Kinverjanna var ekki kom- ið til Roosevelts. Þessa ákæru ber sagnfræðing- urinn Barbara Tuchman fram i grein i bandarisku sagnfræðiriti. Hún fjallar um, að 27 árum seinna hafi Nixon loks hitt þessa kin- versku kommúnistaforingja, og segir, að upplýsingar um tilboð kommúnista árið 1945 hafi komið i ljós i skjölum, sem nýlega voru birt en höfðu verið leyniskjöl. Með aðstoð tveggja fyrrverandi starfsmanna bandarisku utan- rikisþjónustunnar i Kina kveðst Barbara Tuchman hafa rakið slóð orðsendingar kinversku kommúnistanna til borgarinnnar Chungking. Hún segir, að Mao og Chou hafi æskt þess að vera tekn- ir til fundarins við Roosevelt frá þeirri borg, sem var höfuðborg Chiang Kai-Sheks á striðsárunum Orðsendingunni hafi aldrei verið komið á leiðarenda. Hún hafi hvorki borizt forseta Bandarikj- anna né hermálaráðuneytinu, nema hvað á hana hafi verið minnzt óglöggt i öðrum skýrslum. Bandariski sendiherrann i Chungking, Patrick Hurley, hafi haldið orðsendingunni og ekki skýrt frá henni. Reyndar hafi Hurley minnzt á hana siðar i orðsendingu, sem hann sendi bandarisku stjórninni, þar sem hann átaldi stjórnina fyrir starfsemi fulltrúa utanrikis- ráðuneytisins og Bandarikjahers i Kina, sem hann sagði, að græfu undan tilraunum sinum til að koma á jafnvægi i Kina. Roose- velt taldi, að Bandarikjunum bæri að styðja Chiang Kai-Skek gegn kommúnistum, og taldi sig hafa fengið vilyrði Stalins fyrir stuðningi Sovétrikjanna við þá stefnu. Roosevelt áleit þvi, að kinverskir kommúnistar mundu ekki eiga annarra kosta völ en að semja við Chaing Kai-Shek og þjóöernissinna. BÝR SIG UNDIR FRAMBOÐ NÆST Kennedy hrósar happi yfir að boð fyrir demókrata i forseta- liafa ekki verið neyddur i fram- kosningunum nú. En hann stefnir að þvi að fara fram næst, og þvi berst hann nú af hörku fyrir Mc- Govern. I’indiing forsætisráðherra Kahainaeyja Hiti um sjálf stœðismálið á Bahamaeyjum Frjálslyndi framsóknar- flokkurinn vann yfirburða- sigur í þingkosningum á Bahamaeyjum i gær. Undir forystu Lynden O. Pindling forsætisráöherra fékk flokkurinn einnig umboð kjósenda til að Bahama- eyjaryrðu sjálfstætt riki 10. júli 1973. Flokkurinn hafði i morgun fengið 20 þingsæti, en aðal- stjórnarandstöðuflokkurinn, þjóðarhrey fingin, aðeins 5. Stjórnarsinnar virtust mundu fá að minnsta kosti 28 þingmenn af 38. Sjálfstæðismálið var mikið hitamál. Þjóðarhreyfingin barð- ist gegn sjálfstæði á næsta ári og óttast, að erlent fjármagn verði ,,hra‘tt burt” af eyjunum. Pind- ling forsætisráðherra segir, að fundur verði með eyjaskeggjum og Bretum i desember og sé ekki um neina andspyrnu að ræða frá Bretum gegn þvi, að skorið verði á seinustu böndin, sem tengja þessa 700 eyja keðju við brezkt vald. Bretar ráða enn utanrikis- málum og hermálum eyjanna. En foringi stjórnarand- stæðinga, Wallace-Whitfield, fyrrum ráðherra, féll i kjördæmi sinu i höfuðborginni Nassau. Játor skýrslufölsun um loftárásir á N-Víetnam Einn yfirmanna i bandariska hernuiii játaði i gær, að hann hefði skrifað falsskýrslur um loft- árásir á Norður-Vietnam. Yfir- maður i flughernum i Suður-Viet- nam, Lavelle hershöfðingi, hefði skipað sér að gera þetta. Lavelle var fyrr á árinu rekinn úr stöðu sinni fyrir að hafa fyrir- skipað loftárásir á N-Vietnam á timabilinu frá nóvember i fýrra til marzmánaðar i ár i trássi við fyrirmæli Nixons Bandarikja- forseta. Alton Slay segist hafa talið, að Lavelle færi eftir fyrirmælum frá Washington, er hann falsaði skjölin. Hann segist hafa fært i skýrsl- ur, að „óvinurinn hefði ráðizt á bandariskar flugvélar”, þótt þvi hefði ekki verið til að dreifa. Þingnefnd vinnur að rannsókn málsins. Smygla vopnum til að beita á sendiráðin Félagsskapur „herskárra” gyðinga segist hafa reynt að smygla vopnum frá tsrael til Bandarikjanna og Evrópu og hefði átt að nota vopnin i hermd- arvcrkum gegn arabiskum sendi- ráðum, scm samtökin segja, að eigi þátt að hermdarverkum gegn israelsmönnum. Lögreglan i Jerúsalem hefur handtekið einn mann vegna til- éaunar til vopnasmygls, en lög- reglan reynir að gera sem minnst úr málinu, að sögn AP-fréttastof- unnar. Þó var búizt við, að israelska lögreglan mundi gera atlögu að samtökunum. Tilraunin var gerð eftir atburð- ina i Miinchen.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.