Vísir - 31.10.1972, Blaðsíða 1

Vísir - 31.10.1972, Blaðsíða 1
62. árg. — Þriðjudagur 31. október 1972. — 249. tbl. Thieu að gefa sig BÚIZT VIÐ LOKASAMNINGUM UM VÍETNAM UM HELGINA SJÁ BLS. 5 „Reykjavík leggur undir sig nágrannabœina,, segir Eggert Steinsen bœjarf ulltrúi í Kópavogi Sjá bls. 3 Kópavogur auðveldar „stóra stökkið" Sjá bls. 16 Leiknir FH-ingar sigruðu Danina! Ekki fer danska meistaraliðið Stadion ósigrað af landi brott. Fljótir, ieiknir FH-ingar sáu til þess á fjölum Laugardals- hallarinnar i gærkvöldi.Þeir sigruðu Stadion með fimm marka mun 22-17, og i lokin var ieikurinn eins og grófur farsaleikur i fjölleikahúsi. Sjá iþróttir i opnu. . Skipt um nöfn ó vegum við hver stjórnarskipti? Fara vegir og orkuver kannski að skipta um nöfn i hvertsinnsem stjórnarskipti verða? i rabbi á bls. 3 er bent á hættulega braut. Boðuðu og afboðuðu kosningafundi andstœðinganna Þeir afboðuðu fundi and- stæðinganna, sendu út fölsuð bréf með nöfnum fram- bjóðenda, gáfu fram- bjóðendum viliandi upp- lýsingar og sendu menn á fundi með óþægiiegar spurningar. Þctta eru nokkur atriði úr kosninganjósnunum i Bandarikjunum, sem koma sifellt betur i ljós. SJA BLS 6. Eru litlu búðirnar ó förum? Sjá bls. 2 Kvikmyndahúsin virðast telja „listrœnt" sama og „leiðinlegt" Sjá bls. 7 Hverjir eru „sérfrœðingar" í huglœkningum? Sjá bls. 7 fsland efst í norrœnu sundkeppninni AKUREYRI SIGRAR HÉR „Þreytandi? Nei, en það vœri annað að synda 2000 metra daglega" — Vísir rœðir við sundkappana á síðasta spretti norrœnu sundkeppninar ,,Það er vist alveg óhætt að scgja að við séum búin að sigra i Norrænu sundkeppninni,” sagði Guðmundur Harðarson i viðtali við blaðið i morgun. Guðmundur sagði ennfremur að hann áliti að búið væri að synda um það bil 1100.000 sund samtals, en þá á eftir að margfalda þá tölu með 11,34, sem er miðuð við ibúa- fjölda. Kemur þá út stigatala. ,,Um mánaðamótin ágúst- september, að þvi er mig minnir, sendum við út til formanns Nor- ræna sundsambandsins töluna 620 þúsund. Þeir sendu bréfið með tölunni til baka og trúðu þvi ekki að þetta væri talan yfir sundin, án þess að búið væri að margfalda með 11,34.” Af kaupstöðum landsins eiga Akureyri og Vestmannaeyjar heiðurinn af mesta sund- fjöldanum. Þar eru átta sund á hvern ibúa á Akureyri en 7 sund á hvern ibúa i Vestmannaeyjum. Reykvikingar eru þó allra hæstir, og sundkeppnin hefur sennilega átti sinn þátt i þvi, að um mánaðamótin siðustu voru rúm- lega 100 þúsund gestum fleiri á sundstöðum en á sama tima i fyrra. Þá má geta þess að 1000 trimmkarlar hafa nú verið af- hentir, en sumir landsmenn hafa þó synt 200 metrana 200 sinnum. Þeirri þjóð sem sigrar, en það er vist áreiðanlega tsland, verður afhentur bikar frá Finnlandi. Að öllum likdindum munu Sviar verða i öðru sæti. Visismenn brugðu sér niður i Sundlaugárnar i Laugardal i morgun og ræddu þar við nokkra sundkappa i tilefni þess, að i kvöld lýkur Norrænu sund- keppninni. „Syndum ekki aðallego vegna keppninnar" ,,Við erum búnir að synda eitthvað á annað hundrað skipti”, sögðu þeir Hjörtur Hjartarson og Indriði Pálsson. ,,Það má segja að við syndum nánast á hverjum degi, bæði vetur og sumar. Að minnsta kosti fimm sinnum i viku.” — Er það keppnin sem veldur þvi að þið syndið? „Nei, það er ekkert endilega keppnin sem veldur þvi að við syndum. Reyndar höfum við fengið trimmkarlinn. — en okkur liður bara betur eftir að hafa synt á morgnana áður en haldið er til vinnu.” Sundið er heilsusamlegt „Þetta er mjög heilsusam- legt,”, sagði Guðmundur Hjartarson, er við hittum hann að máli. Ég hef komið hingað um klukkan hálf niu á hverjum morgni, syndi þá 200 metrana, og fer siðan beint i vinnuna. Ég er vist búinn að synda eitthvað á annað hundrað skipti.” 70 ára, og búinn að synda 154 sinnum ,,Ég hef synt 154 sinnum siðan keppnin byrjaði,” sagði okkur Davið Grimsson, sem er að verða sjötiu ára gamall. „Ég syndi vegna þess að þetta er heilsusam- legt og svo er það að sjálfsögðu keppnin sem á sinn þátt i.þvi. Ég ætlaði að vera búinn að synda oftar, en ég varð að fara úr bænum og komst þá ekkert i sundlaugar.” — Er ekki þreytandi að synda 200 metrana á hverjum degi? „Þreytandi? Nei, það er ekkert að synda 200 metrana, en það væri kannski annað að synda 2000 metrana á hverjum degi. En ég verð miklu hraustari af þessu og ég segi að sundið sé allra meina bót. Þetta er miklu betra en að leita lækna.” Að lokum má svo geta þess, að i morgun höfðu um það bil 150 laugargestir i Laugardalnum < synt 200 metrana. -EA. •' ndið er allra meina bót, segir Davið Grimsson. Samningaviðrœður liggja í loftinu BRETARNIR ÆTLA AÐ TOGA I „HALARÓFU' i morgun lá i loftinu, að nýjar samninaviðræður við Breta vcgna landhelgismálsins yrðu endanlega ákveðnar innan tiðar. Unnið hefur verið að þvi undanfarið, að kanna grundvöll á f r a m haldandi viðræðna. Starfsmenn utanrikisráðu- neytisins vörðust allra frétta um þetta i morgun. Varðskipum hefur verið fyrirskipað að halda áfram að reyna aö stugga togurum út úr landhelginni. Veður er nú sæmi- legt á miöunum, en veðurspáin fyrir miðin er heldur óvænleg, þannig að búast má við þvi, að landheigisbrjótarnir þurfi að lcita vars aftur. Heyrzt hefur, að Bretar hyggi nú á ýmsar ráðstafanir til að hindra varöskipin i þvi að klippa vörpur aftan úr óhlýðnum togurum. Auk þess, að draga nctardæsur aftur úr togurunum, hefur þeim hugkvæmzt það snjaiiræði að toga i halarófu, þannig að hver togarinn elti annan og varðskip eigi erlitt með að klippa á togvirana. Ekki cr gctið um, hversu mikia veiði aftasta skipið getur búizt við að fá. -VJ.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.