Vísir - 31.10.1972, Page 8

Vísir - 31.10.1972, Page 8
8 Visir Þriðjudagur 31. október 1972. Visir Þriðjudagur 31. október 1972. 9 FH sigraði Danmerkurmeist- arana með fimm marka mun! - en leikurinn í Aldrei fór þaö svo, að danska meistaraliðið í handknattleiknum, Stadi- on, tapaði ekki leik hér á landi. i gærkvöldi lék FH gegn Dönunum i Laugar- dalshöllinni og sigraði með fimm marka mun 22-17 — verðskuldaður sigur — en aö vísu aðeins i aukaleik eftir að danska liðið hafði náð markmiði sínu með is- iandsförinni — komizt í aðra umferð Evrópukeppn- innar. FH-ingar náðu góðri forustu í fyrri hálfleiknum, 13-8, þar sem Viðar Símonarson lék aðalhlut- verkið og skoraði sjö af mörkunum. Síðan fóru Daniraðsaxa mió en i lokin sprungu þeir alveg — leikur þeirra var þá lík- astur qr *■ ;öi leikahúsi og FH skoraði fjögur siðustu mörkin í leiknum. Það sást ýmislegt skemmtilegt hjá FH i þessum leik — þó svo Geir Hallsteinsson eigi enn langt i sitt bezta form, en Viðar tók i þess stað að sér að leika aðalhlutverk- ið. Hann skoraði jafnt og þétt — og þar til honum var kippt út af langan leiktima i siðari hálfleik og þá fóru Danirnir heldur betur að saxa á forskotið. Margir ungu mannanna lofa góð. hjá FH — einkum Gunnar Einarsson, en Hörður og Sæmundur eru at- hyglisverðir leikmenn. t vörninni var Auðunn klettur — og skoraði svo al' og til falleg mörk af linu. Birgir Björnsson lék sinn 450. leik lokin var eins og grófur farsi í fjölleikahúsi i meistaraflokki FH og fékk blómvönd fyrir leikinn og Birgir stóð vel fyrir sinu i vörninni i þessum leik. FH byrjaði mjög vel i leiknum. Viðar skoraði fyrsta markið — að venju getur maður sagt, þvi það bregst varla, aö Viðar skori ekki fyrsta mark FH i leik — en hann gerði betur en oftast áður, skoraði einnig tvö næstu. Eftir átta min. var staðan orðin 4-2 fyrir FH — og eftir aðeins rúmar 10 min. var staðan orðin 7-2, eða sá fimm marka munur, sem var i lokin. Stadion var með varamarkmann sinn inn á upphafsminúturnar, en honum var snarlega kippt út af, þegar svo mjög hallaði á liðið. Stadion tókst fljótt að minnka muninn i 7-5 meö tveimur vita- köstum Gunnars Nielsen og marki Frandsen og um stund var nokkuð jafnræði með liðunum. í lok hálfleiksins tók FH góðan sprett — skoraði þrjú siðustu mörkin og staðan i leikhléi var 13-« Stadion skoraði tvö fyrstu mörkin i siðari hálfleik. FH skor- aði ekki fyrr en á 5 min. og var Viðar þar að verki. Eftir það fékk hann að hvila sig lengi, en fimm marka munur hélzt fram á 10 min. Geir skoraði tvivegis — ann- að markið úr viti — en i fyrri hálf- leiknum öllum skoraði hann eitt mark. Svo kom slæmur kafli hjá FH — liðið skoraði ekki mark i niu minútur, en Danir hins vegar fjögur á þeim tima og leikurinn var allt i einu orðinn spennandi 16-15. Þá lpks, á 19 min. tókst Gunnari að skora fyrir FH með fallegu lágskoti, en Gunnar Niel- sen svaraði enn með viti á 20 min. Staðan 17-16 fyrir FH og Danir náðu svo knettinum og tveir þeirra geystust fram völlinn gegn Birgir Björnsson — 450 leikir i meistaraflokki — og hann fékk blómvönd að launum. Ljósmynd Bjarnleifur. Vm WfiPii Hjalta. En Hjalti gerði sé litið fyrir og varði skot Svend Lund. Eftir það snérist leikurinn aftur FH i vil — enda var erfitt fyrir þá dönsku að koma knettinum fram- hjá Hjalta það, sem eftir var leiks. Geir skoraði strax á eftir úr viti og á 24 min. skoruðu Danir sitt siðasta mark i Islandsförinni — * Rene Christiensen sendi knöttinn framhjá Hjalta. Gunnar svaraði nær samstundis og mikið los var á leiknum lokaminúturnar. Úthald þeirra dönsku algjörlega búið — þeir köstuðu knettinum tvisvar- þrisvar beint út af i sendingumiog i eitt sinn komust þrir FH-ingar upp völlinn án þess nokkur Dani gerði tilraun til að elta þá. Leik- leysa — en FH hlóð inn mörkun- um og sigraði 22-17. Þetta verður ekki minnisstæður leikur, þó svo sigur FH hafi verið sætur — alltof mikill Lii sahragur á honum af og til. En eitt kom þó fram — lið FH verður gott i vetur, hraðinn, leiknin aðall liðsins og ungu mennirnir efnilegir. Mörk FH skoruðu Viðar 8, Geir 5 (2 viti), Gunnar 4, Auðunn 2, Þórar- inn 2 (1 viti) og Ólafur Einarsson 1. Fyrir Stadion skoruðu Gunnar Nielsen 6 (4 viti), Agger 3 (2 viti), Lund 2, Jörgensen 2, Christiensen 2, Frandsen 1 og Staffensen 1. Dómarar voru Karl Jóhannsson og Sigurður Hannesson og hefðu mátt vera strangari. —hsim. Peters enn á skotskónum! Enski lands- liðsmaðurinn hjá Tottenham Hotspur, Martiii Peters, var enn á skotskónum i deilda- bikarleiknum gegn Millvall i gærkvöldi og skoraði þá sitt fimmta mark á tveimur dögum. Það varð til þess, að Tottenham hélt jöfnu gegn Middlesbro eftir venjulegan leiktima. í framlengingu tókst Tottenham svo að tryggja sér sigur 2-1. Þetta var þriðji leikur Tottenham gegn 2. deildarliði Middlesbro i 3. umferð deilda- bikarsins og var leikið á White Hart Lane, leikvelli Tottenham i Lundúnum. Middlesbro sýndi mikla hæfni og góðan baráttuvilja þó svo fyrirliði liðsins, Nobby Stiles, áður framvörður með Peters i enska landsliðinu, gæti ekki leikið vegna meiðsla.. Liðið skoraði á undan og var John Hickton, mið- herji harði, þar að verki og Middlesbro reyndi svo að verja þetta mark. En það tókst ekki — Martin Peters skoraði jöfnunar- markið i siðari hálfleik. Eitt af þessum „skuggamörkum” hans. Það er eins og hann komi eins og skuggi inn i vitateig mótherjanna og svo liggur knötturinn allt i einu i markinu. Eftir venjulegan leiktima var staðan 1-1, og var þá framlengt i 15 minútur á mark. Þá tókst skozka landsliðsmanninum Alan Gilzean að skora sigurmark Tottenham, en hann hafði komið inn sem varamaður fyrir Pratt Alan hefur ekki leikið að undan- förnu vegna meiðsla — var meðal annars ekki með gegn Manch. Utd. s.l. laugardag og tók Peters þá stöðu hans i framlinunni. Og árangurinn var f jögur mörk. Þess vegna vildi Billy Nicholson ekki breyta liðinu i gær, þó svo Gilzean væri orðinn heill. 1 fjórðu umferðinni i deilda- bikarnum leikur Tottenham gegn Millvall - Lundúnaliðinu frá dokkunum niður við Thames-ána. Millvall hefur ekki staðið sig vel i 2. deild i haust — en er harðskeytt lið og það eru ekki mörg ár siöan það sló Tottenham út úr bikar- keppninni. Jafntefli fyrst á White Hart Lane og siðan sigur á The Dell, leikvelli Millvall. Auðunn Óskarsson skoraði tvö ágæt mörk af linu I gærkvöldi — Hér er hann alveg laus við dönsku variiarmemiiiia. Ljósmynd Bjarnleifur. FH-ingar róða yfir mun meiri tœkni en Fram! - sagði danskur blaðamaður eftir leikinn í gœrkvöldi — Það fer ekki á milli mála — FH-ingar ráða yfir mun meiri tækni í handknattleiknum en ís- landsmeistarar F'ram og leikur þeirra er skemmtilegri, sagði sessunautur minn i Laugardalshöllinni i gær — danskúr blaðamaður frá Politiken, sem verið hefur hér undanfarna daga vegna leikjanna i Evrópukeppninni. En, bætti hann við, það hefðu orðið allt aðrar lokatölur i þessum leik FII og Stadion ef um Evrópukeppni hefði verið að ræða. — Ég er ekki með þvi að halda fram, að Stadion hefði sigrað FH, en keppni hefði verið mjög tvi- sýn. Strákarnir i Stadion eru hálf- þreyttir núna. Þeir hafa verið að ferðast i allan dag — fóru austur að Gullfoss og Geysi, auk þess, sem vakað var s.l. nótt. Það var sigurhátið eftir að Stadion var komið i aðra umferð i Evrópu- keppninni. En hvað sem þvi liður var gaman að sjá leikmenn með tækni eins og Viðar Simonarson og Geir Hallsteinsson og mark- mann, sem getur sýnt slika snilldarmarvörzlu er Hjalti Einarsson átti á köflum. Já, þaö var gaman að sjá Hjalta i gærkvöldi. Þegar Danirnir voru alveg að vinna upp hið mikla forskot FH frá fyrri hálfleiknum lagði Hjalti áhorfendur beinlinis að fótum sér. Tvivegis komust dönsku leik- mennirnir þá einir friir upp, en Hjalti gerði sér litið fyrir og varði. Einkum var það frábært i siðara skiptið. Það var á 20. min og staðan 17-16 fyrir FH. Svend Lund komst þá einn frir upp að vitateignum hjá Hjalta og ætlaði að vippa knettinum yfir hann, þvi Hjalti var framarlega i markinu. En hvilik snerpa. Hjalti kastaði sér aftur og upp og varði — hreint ótrúlega snöggur. Eitthvað það bezta, sem maður hefur séð til hans gegnum árin og hefur Hjalti þó oft sýnt mikla hæfni. Mark- varzla hans eftir þetta atvik var frábær — hann fékk aðeins á sig eitt mark siðustu 10 minúturnar.- Klögumálin á víxl og bikarmeistari án leiks Eins og skýrt var frá hér i opnunni nýlega varð Ungmennafélagið Vikingur, Ólafsvik, bikarmeistari HSH i kanttspyrnu án þess að leika leik. Hér á eftir fer grein eftir fréttaritara Visis i Ólafsvik, Rún- ar Marvinsson, þar er hann skýrir frá þessu undarlega máli. — Sennilega er það einsdæmi, að lið verði bikarmeistari án þess að leika eiijn einasta leik. Þetta skeði nú samt i bikarkeppni Héraðssambands Snæfells- og Hnappadalssýslu i knattspyrnu. Þar varð lið Vikings, Ólafsvik, bikarmeistari án leiks. Fyrst áttu að leika lið Snæfells, Stykkishólmi, og Grundarfjörður, og léku reyndar. Grundfirðingar sigruðu. Snæfell kærði leikinn og var ákveðið að leika hann upp aftur. En þá — öllum á óvart — gaf Snæfell leikinn. Sama var ákveðið, að úrslita- leikurinn skyldi háður i Ólafsvik milli Vfkings og Grundarfjarðar áttunda október. Vikingar gerðu ráðstafanir til að ná saman liði sinu, sem þá var orðið nokkuð tvistrað — nokkrir leikmenn komnir til Reykjavikur i skóla og svo framvegis. En þó tókst að ná saman mest öllu liðinu, sem svo mætti við völlinn hálftima fyrir leik. Envitimenn. Boð kom um að Grundfirðingar gæfu leikinn!! Hálftima fyrir leik!! Þótti mörgum þetta súrt i broti — sérlega þeim, sem höfðu lagt af stað frá Reykjavik klukkan átta um morguninn og sumir sleppt skóla til að komast til leiks i tæka tið. Þetta er sennilega einsdæmi og ekki til þess fallið að auka áhuga á knattspyrnu innan HSH. Vikingar urðu einnig héraðs- meistarar (voru reyndar búnir að vinna, en vegna kæru þurfti úr- slitaleik) unnu lið Snæfells i Ólafsvik i hörkuleik með 4-2. Þar með lauk keppnistfmabili, sem menn mega vera allánægðir með, þó ekki tækist að vinna 2. deild i þetta skiptið. -RM IIjalti Eiiarsson lokar markinu eins og hann gerði svo oft i gærkvöldi. Knötturinn fer af hæl hans — framhjá. Ljósmynd Bjarnleifur Þetta er ekki boðlegt - eða er það . . . ? Bikarkeppni KnaUspyriiusambands Islands er annað merkasta kuaUspyrnumótið hér á landi og sigurvegarimi i þvi hlýtur rctt til þátttöku í Kvrópukeppni bikarhafa hinna ýmsu Evrópulanda. Það er þvi fuil ástæða tii að krcfjasl þess, að hoðlegar aðstæður séu á völlunuin þegar keppt er i undanúrslitum. Það var þó ekki s.l. laugardag i Vestmanna- eyjum og llafnarfirði. Einar Hjartarson, dóinari, tók af skarðið i llafnarfirði og frestaði leiknum til sunnudags —i Vestmannaeyjum var leikið við liinar aumustu aðstæður eins og með fylgjandi myndir, sem fréttaritari Visis i Vest maiinaeyjum, Guðmundur Sigfússon, tók á lciknum, sýna vel. Varla hefur Erni Óskarssyni liðið vel, liggjandi þarna i drullupollinum, sem var aðeins cinn af mörgum. Og litið var það skárra fyrir áhorfendur — litli drengurinn á cfri myiidinni veður elginn á áhorfendasvæðinu, al- varlegur á svip, en kippir sér ekki upp við hleytuna. En nianna hefur kannski ekki verið eins lirilin, þegar hann kom lieim. Framkvæmdaaðili leiksins i Vestmanna- eyjum gat ekki verið þekktur fyrir að bjóða leik- mönnum IBV og Vals að leika eins og völlurinn var útlitandi. Þar var allt of seint gripið til hendinni. Það hefði hiklaust verið hægt að laga völlinn meir en gert var , og dómari leiksins, Guðmundur Haraldsson, hefði átt að taka af skarið og jafnvel að fresta leiknum.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.