Vísir - 15.12.1972, Síða 4
4
Visir. Föstudagur 15. desember 1972
Gavin Lyall
Hættulegasta
bráðin
Hættulegasta bráSin eftir Gavin Lyall er ^kemmti-
saga í sérflokki, hvað spennu og hraðá at-
HUGSYNIR CROISETS
Hugsýnir Gerards Croi-
sets er forvitnileg bók
um skyggnigáfu þessa
stórmerka Hollendings.
Croiset telst til hinna
merkustu manna, sem
dularsálfræðingar hafa
rannsakað, og greinir
hér frá afrekum hans
við að koma upp um
þjófa og morðingja,
finna börn, fullorðna
menn, dýr og hluti.
Þýðinguna gerði Ævar
R. Kvaran. Verð í vönd- ||
uðu bandí kr. 700,00
auk söluskatts. ®
n fcffl
\ Jack Harrison Pollack IUGSÝNIR CROISEl Ævar Kvaran islenzkaö VIKUOUTGAFAf 'S '
r^Smurbrauðstofan
\A
BJORNINN
Niálsgata 49 Sfmi '5105
É MORGUN ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND í MORG
William Stein frá USA þiggur hér úr liendi Karls Gústafs prins
NúbelsvercVlaunin i efnafræfti, en Stein er fastur við hjólastöl. Ljós-
mvndaranum helur teki/t að ná skemmtilegri svipmynd af Stein, sent
liorfir upp á prinsinn, eins og hann sé að segja : „Þakka þér fyrir, góði.
I'etta var fallega gert af þér.”
AUGLÝSING
um takmörkun á umferð í Reykjavík,
16.-23. desember 1972
Ákveðið hefir verið að gera eftirfarandi
ráðstafanir vegna umferðar á timabilinu
16. — 23. desember n.k.:
I. Einstefnuakstur:
Á Vatnsstig frá Laugavegi til .norðurs að Hverfisgötu
Á naustunum frá Tryggvagötu að Hafnarstræti.
II. Vinstri beygja bönnuð:
1. Af Laugavegi suður Barnónstig.
2. Af Klapparstig vestur Skúlagötu.
3. Af Vitastig vestur Skúlagötu.
III. Bifreiðastöðubann á virkum dögum
kl. 10-19 :
A Skólavörðustig norðan megin götunnar, frá Týsgötu að
Njarðargötu. Frekari takmarkanir en hér eru ákveðnar
verða settar um bifreiðastöður á Njálsgötu, Laugavegi,
Bankastræti og Austurstræti, ef þörf krefur.
IV. ökukennsla i miðborginni
milli Snorrabrautar og Garðastrætis er bönnuð á
framangreindu timabili.
V. Uml'erð bifreiða, annarra en strætisvagna
Ileykjavikur,
er bönnuð um Austurstræti, Aðalstræti og Hafnarstræti,
laugardaginn 16. desember frá kl. 20 til kl. 22 og laugar-
daginn 23. desember frá kl. 20.00 til kl. 24.00
Sams konar umferðartakmörkun verður á Laugavegi og i
Bankastræti á sama tima, ef ástæða þykir til.
Vakin skal athygli á þvi, að á þessu auglýsta timabili geta
ökumenn á ferð um Laugaveg átt von á þvi, að lögreglan
visi þeim af Laugavegi, t.d. við Höfðatún eða Rauðarár-
stig.
Ennfremur geta ökumenn búizt við þvi, að umferð úr
hliðargötum Laugavegar, Bankastrætis og Austurstrætis
verði takmörkuð inn á þessar götur á vissum timum.
Þeim tilmælum er beint til ökumanna, að
þeir forðist óþarfa akstur um Laugaveg,
Bankastræti og Austurstræti og að þeir
leggi bifreiðum sinum vel og gæti vand-
lega að trufla ekki eða tefja umferð. Þeim
tilbælum er beint til gangandi vegfarenda,
að þeir gæti varúðar i umferðinni, fylgi
settum reglum og stuðli með þvi að
öruggri og skipulegri umferð.
VI. Gjaldskylda við stöðumæla verður
sein hér segir.:
Föstudaginn 15/12
Laugardaginn 16/12
Mánudaginn 18/12
Þriðjudaginn 19/12
Miðvikudaginn 20/12
Fimmtudaginn 21/12
Föstudaginn 22/12
Laugardaginn 23/12
Kl. 09,00-22,00
Kl. 09,00-22,00
Kl. 09,00-18,00
’Kl. 09,00-22,00
Kl. 09,00-18,00
Kl. 09.00-18,00
Kl. 09,00-22,00
Kl. 09,00-24,00
Lögreglustjórinn i Reykjavik, 14 des. 1972
Frá af-
hendingu
Nóbels-
verðlauna
Að lokinni kvöldverðarveizlu i
ráðhúsinu veitti Gústaf Adolf
Sviakonungur og krónprinsinn
fjölskyldum verðlaunahafanna
inóttöku i konungshöllinni. Var
þeim svnd konungshöllin hátt og
lágt, og leiðsögumennirnir voru
engir aðrir en konungurinn
sjálfur og prinsinn, Karl Gústaf,
sein hér sést heilsa dóttur
Uareens, eðlisfræðings. Karen, 7
ára, heilsar aö hirðmeyjasið, en
börn John Schrieffers biða átekta
eftir þvi að röðin komi að þeim.
Systir Jackie
Onassis í
hjónaskilnaði
Stanislás Radziwill hefur stað-
fest lausafréttir, sem lengi hafa
verið á kreiki um það, að hann og
Lee, kona hans — sem er systir
Jacqueline Onassis — séu komin
að þvi að skilja.
Radziwill sagði við fréttamann
Newsweek á dögunum: ,,Ég held,
að skilnaðurinn sé alveg á næstu
grösum”.
Þau Stanislás og Lee gengu i
hjónaband 1959 i Virginiufylki i
Bandarikjunum og voru svo aft-
ur vigð i kaþólskri kirkju 1963 til
hjónabands, eftir að Vatikanið
hafði viðurkennt fyrri skilnað
hennar.