Vísir - 20.12.1972, Page 9
Illll
Visir. Miðvikudagur 20. desember 1972
9
INN
S ÍÐAN
Umsjón:
Edda
Andrésdóttir
Fljótgerð jólagjöf
á síðustu stundu
★
En þar skjátlast mörgum.
Það er eins og timinn til jóla liði
svo ógnar hratt og næstum eins
og ekkert komist i verk, þó að
sumum finnist þeir alltaf þurfa
að vera gera hreint, skúra, þvo
þvotta og svo framvegis.
Það kveður þó orðið all oft við
hjá húsmæðrum og þeim sem
þurfa að annast heimili, að nú
skuli litið verða lagt á sig fyrir
hátiðarnar. Rétt aðeins ryk-
sugað yfir gólfin, en ekkert að
vera að standa i hreingern-
ingum á lofti og veggjum.
Margir telja sig þó bregða út af
fastri venju, ef ekki er tekið
duglega til hendinni með tusk-
unni.
En burt frá öllum hreingern-
ingum. Við skulum vikja að
jólagjöfunum aftur. Og það er
alveg óhætt að búast við þvi að
einhver verði á siðustu stundu
með að kaupa eða útbúa sjálfur
jójagjöfina, og myndirnar hér á
siðunni gefa hugmyndir um
mjög fljótlegar jólagjafir.
Bindið handa karlmanninum
er mjög fljótgert, og það er til-
tölulega einfalt að sauma það.
Það þarf ekki annað en að
kaupa fallegt og gott efni, og
siðan má sniða bindið eftir ein-
hverju gömlu. Efnið má lika
hafa dálitið sérstakt, og engin
hætta er á þvi að slikt fáist i
fjöldaframleiðslu.
Pottaleppar eru sigild jóla-
gjöf, jafnt þessir ferköntuðu og
svo þeir sem eru eins og vett-
lingar i laginu. Þessir potta-
leppar eru heklaðir úr
bómullargarni, og skrautið er
einnig heklað á.
Ekki væri amalegt að hreppa
sjalið sem við sjáum á einni
myndinni. Veturinn á tslandi er
alls ekki liðinn, þó að sólin fari
senn að hækka á lofti. Og þetta
sjal er tilvalið til þess að breiða
yfir sig i frostinu og garranum.
Nú eru aðeins eftir
fjórir dagar til jóla.
Vafalaust hefur verið
vel og vandlega gengið
frá öllum jólagjöfum
og pökkum, sem fara
til útlanda og flestum
sem fara út á land, en
liklegast er ekki sömu
sögu að segja um þá
pakka sem eiga að fara
til kunningjanna.
★
Við efum það þó ekki, að ein-
hverjir framtakssamir hafa
fyrir þó nokkru, ef ekki fyrir
löngu, keypt allar jólagjafir
sem kaupa þarf og geymi þær til
sins tima. Aðrir hugsa þó með
sér: Ja, það eru nú alltaf fjórir
dagar til jóla ennþá. Ég hlýt að
hafa tima einhvern næsta dag til
þess að skjótast i bæinn og
kaupa eitthvað litið og ódýrt.
eitthvað hart efni i endana svo
taskan haldi sér, siðan er settur
rennilás efst og höldin eru úr
rúskinni eða þá einhverju
skemmtilegu efni. Hægt er að
gera slikar töskur mjög skraut-
legar, ef valið er skrautlegt efni.
★
Ekki má svo gleyma litlu
stúlkunni. Hún verður að fá sinn
skammt, og þessi litli kjóll eða
skokkur er tilvalinn. Hann er
saumaður úr tvilitu flaueli,
svörtu og rauðu og innan undir
er höfð peysa eða blússa.
★
Einhverjum verður vist ekki
skotaskuld úr þvi að koma
nokkrum af þessum fyrrnefndu
hlutum saman, enda tekur ekki
lengri tima en eina kvöldstund
að búa til suma hlutina.
Það ætti ekki að .ve -a erfitt fyrir
þær sem eru iðnar . höndunum
að hekla slikt sjal.
Sokkar og vettlingar eru einn-
ig tilvalin gjöf i islenzku veðr-
áttunni, þvi að áreiðanlegt er að
vettlingar eru ekki teknir af
höndunum, þrátt fyrir það að
komiðséframi janúarmánuð.
Sokkarnir og vettlingarnir á
myndunum eru prjónaðir með
sléttu prjóni, og eru svartir og
hvitir að lit. Tilvalið fyrir KR -
inginn!
Stóru mynstruðu töskuna á
einni myndinni væri tilvalið að
hafa með sér i ferðalagið, svo
ekki sé talað um innkaupaferð-
ina. Ágætt er að setja pappa eða