Vísir - 12.01.1973, Blaðsíða 16

Vísir - 12.01.1973, Blaðsíða 16
NÝTT UM- SJÓNAR- FÓLK í „STUND- KOPAVOGSGJA BRATT LIKA FYRIR KÓPAVOGSÖKUMENN Föstudagur 12. janúar 1973 Útvarpsstióri vísar deilum Tómasar og Einars Karls fró sér „Þaö hefur ekkert gerzt l þv máli,” sagði Andrés Björnsson útvarpsstjóri um deilumá Tómasar Karlssonar og Einan Karls Haraldssonar. „Þctta e ekki i minum verkahring.” „Þaö hlýtur aö vera á einhverj um misskilningi "byggt,” sagð hann, þegar hann var spurður un ummæli Tómasar Karlssonar sem sagðist vænta aðgerða út varpsstjóra. „Þetta er dagskrár mál og yrði þvi verkefni útvarps ráðs, ef eitthvað yrði gert. Ég ge ekki sagt, hvort málið verður tek ið fyrir i útvarpsráði. Tómas Karlsson sem á sæti i út varpsráði, sagði i viðtali i Visi, ai hann vænti þess, að útvarpsstjór beitti einhverjum aðgerðun vegna þess að Tómas telur Eina: Karl hafa misnotað aðstöðu sim sem fréttamanns-útvarps. —Hf að utan Gísli Árni logaði — kviknaði í olíubrók við aflaskipið í morgun í morgun kl. 9.13 var slökkviliðið kallað að vélbátnum Gisla Árna, þar sem hann lá við bryggju úti á Granda, rétt við hús Slysavarn- arfélagsins. Logaði þá hvalbakur skipsins all- ur að utan. Var verið að vinna við logsuðu á hvalbaki skipsins og neisti hefur sennilega farið i oliutvist eða annað rusl sem flaut i olfu- brákinni á sjónum. Út frá þvi mun hafa kviknað i olfunni sem flaut á sjónum umhverfis skip- ið. Gaus eldurinn upp með hiið skipsins og brann það mikið að utan. Stigu iogarnir það hátt, að öll málning frá sjóifnu og upp á hvalbakinn brann. Einnig mun eidurinn hafa iæst sig f timb- urþil bryggjunnar, en ekki mun það þó hafa skemmzt mikið. Ekki er vitað hvort skipið hafi skemmzt mikið að innan, en þó talið sennilegast, að einangran- irnar innan á hliðum skipsins hafi skemmzt eitthvað vegna hitans. Slökkviiiðinu gekk greiðlega að slökkva eldinn, en um tíma var hætta á að eldurinn næði til nokkurra smábáta sem lágu fyrir framan Gfsla Arna. Ekki er enn vitað hversu alvarlegar skemmdirnar á skipinu eru. — ÞM. INNI OKKAR" „Við ætluðum að stunda nám með þessu starfi, en svo komumst við að þvi, að til að gera þetta vel dugði ekki að sinna þessu bara sein aukastarfi. Auk þess réðum við okkur þannig í þetta, að við fáum bæði greitt það kaup sem einn stjórnandi fékk áður, og þar sem við vinnum allt saman, en skiptum þvi ekki á milli okkar, verður kaupið raunverulega helmingi minna. Þar að auki get- um við ekki leyft okkur að sleppa hcilu ári úr i skóla.” Þetta sagði Ragnheiður Gests- dóttir i morgun, þegar Visir spurði hana hvað hefði valdið þvl að hún og Björn Þór Sigurbjörns- son sögðu upp umsjón þáttarins „Stundin okkar.” Hinir nýju stjórnendur eru Her- mann Ragnar Stefánsson, dans- kennari og Sigriður Guðmunds- dóttir, kennari. Þau sjá ekki um þáttinn sem verður á sunnudag- inn kemur en næsta sunnudag þar á eftir er fyrsti þátturinn, sem hinir nýju stjórnendur hafa um- sjón með. —LÓ Nú er uniiiö af kappi að fram- kvæmdum við gatnakerfið I Kópavogi og einnig eru hafnar framkvæmdir við nýja miðbæinn i Kópavogi. Byrjað er á byggingu tengi- brautar, sem liggja á ofan frá Digranesvegi, niður i gjána og tengja þannig saman bæjarkerfið við Hafnarfjarðarbrautina. Er verið að steypa upp stoðvegg, sem liggja á meðfram veggjum gjárinnar til varnar gegn vatni og hruni úr klöppinni. Við tengibrautina verður byggð strætisvagnastöð sem gegnum- gangandi vagnar til og frá Hafnarfirði munu nota, ásamt strætisvögnum þeim sem aka i Kópavoginn. Verður stöðin stað- sett við austurenda brúarinnar yfir gjánna. Munu strætis- vagnarnir einnig nota tengi- brautina til að fara aftur inn á Hafnarfjarðarbrautina. Áætlað er að tengibrautin verði tilbúin nú i vor. Enn á eftir að sprengja fyrir annarri akbraut Hafnarfjarðar- vegarins, þar sem hann liggur i gegnum gjána. Ekki er enn fullráðið hvenær hafizt verður handa við þetta verk. Það mun vera fjárskortur sem háir, en kostnaður við að sprengja fyrir brautinni og við byggingu hennar er mikill. _þiyj Þarna er unnið að lykkjunni úr austurhverfum Kópavogs niður f Gjána miklu. Einnig er unnið aö gerð Borgarholtsbrautar, sem mun liggja upp á núverandibrú yfir Gjána. Þannig tengjast bæjarhlutarnir saman á ný. Her má sjá, hvernig Gisli Arni Htur út eftir brunann, en skipið logaði allt aðutan og öll málning brann af þvi. Blaðafulltrúi ríkisstjórnarinnar staðfestir að rétt er eftir sér haft Forsætisráðherrafundur Norðurlanda, sem Norrænu félögin stóðu fyrir, hófst í Kaupmannahöfn i gær- kvöldi án ólafs Jóhannes- sonar, forsætisráðherra ís- lands. Hann segir nú i við- tali við tvö dagblöö i morg- un, að annir hafi hindrað hann i að sækja þennan fund. Ber til baka, að hann sé að mótmæla afstöðu Norðurlandanna í at- kvæðagreiðslu um tillögu okkar hjá SÞ um yfirráða- rétt strandríkja yfir land- grunninu. Forsætisráðherra segir i viðtali við Morgunblaðið, að hann dragi i efa, að rétt sé eftir blaðafulltrúa rikisstjórnarinnar, Hannesi Jóns- syni, haft i „þessum blöðum” (Visi og Alþýðublaðinu). „Ég tek það nú ekki sem heilagan sann- leika, sem Alþýðublaðið segir”, sagði forsætisráðherrann. Þegar Morgunblaðið benti honum á, að Alþýðublaðinu bæri saman við Visi i þessu máli svaraði hann: „Hann er i sama númeri hjá mér, að ég tek það ekki sem heilagan sannleika”. Hér er rétt að fram komi, að blaðafulltrúi rikistjórnarinnar hefur ekki gert neinar athuga- semdir við það, hvernig haft var eftir honum i Visi i gær. 1 viðtali við hann i morgun kom einnig fram, að hann hefur ekkert við það að athuga, hvernig haft er eftir honum. 1 viðtali við Visi i gær segir Hannes Jónsson, að ekki hafi verið gefin út opinber yfirlýsing um, að forsætisráð- herra sitji heima i mótmæla- skyni. Siðan sagði blaðafulltrú- inn: Það cr staðreynd, að for- sætisráðherra hefur verið boöið á þennan fund. Það er einnig staö- reynd, að hann sér ekki ástæðu til að mæta á þessum fundi. Það er einnig staðreynd, að afstaða Noröurlandanna til tillögu okkar hjá SÞ er óskiljanleg og að við gctum ekki gleymt henni að sinni. — VJ. „ANNIR" HÖMLUÐU FERÐ FOR- SÆTISRÁÐHERRA TIL HAFNAR

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.