Vísir


Vísir - 13.01.1973, Qupperneq 8

Vísir - 13.01.1973, Qupperneq 8
8 Visir. Laugardagur 13. janúar 1973 ## Hœttum að naga blýanta ## urinn orðinn svo ljótur ásýndum, að á sama tima, sem forsætisráð- herra ólafur Jóhannesson, lýsir i nýársræðu harmi sinum yfir auknum loftárásum Bandarikja- manna i Norður-Vietnam segir forsætisráðherra og leggur þunga áherzlu á að engin þjóð hafi reynzt islendingum betur en Bandarik- in. i hverju hafa Bandarikjamenn reynzt islendingum betur en aðr- ar þjóðir? Það kom ekki fram i ræðu for- sætisráðherra, en ef ég ætti að svara þvi, myndi svarið vera eitt- hvað á þessa leið: i fyrsta lagi: Bandarikin voru fyrsta stór- veldið til að viðurkenna lýð- veldið tsland árið 1944. Hafði það ómetanlega þýðingu. i öðru lagi: Bandarikin tóku að sér vernd islands i siðustu heimstyrjöld. An nokkurs vafa hefur það ráð- ið úrslitum, að íslendingar dró- ust ekki inn i hörmungar mik- illa hernaðarátaka. Fáar þjóðir 1 Evrópu sluppu jafnvel út úr hörmungum striðsins og ís- lendingar. i þriðja iagi: Við aðild íslands að Atlants- hafsbandalaginu og með sér- stökum samningi við Banda- rikin, tóku þau enn á ný að sér varnir isiands og vernduðu þjóðina fyrir ásælni harðstjórn- arafla. i fjórða lagi: Bandarikjamenn hafa veitt tslendingum ómetanlega efna- hagsaðstoð i gegnum árin og gera enn. i fimmta lagi: islendingum hefur staðið opið að selja og flytja út ótakmark- að magn af vörum tii Banda- rikjanna 1 staö hindrana hefur allt verið gert til að auð- velda þessi viðskipti, sem eru hin hagkvæmustu sem Islendingar hafa nokkurn tim- ann átt við aöra þjóð. Þessu til sönnunar má nefna að 2 fyrirtæki tslendinga, sem selja þar hraðfrystar sjávaraf- urðir, voru með samanlagða veltu að verðmæti 8500 milljón- ir króna á síðasta ári. Er það um 50% miðað við verömæti heildarútflutnings landsmanna á sama ári. Fleira mætti nefna. Það er engum til sóma og þjón- ar ekki þjóðarhagsmunum að niða niður vinveittar þjóðir, hvort sem þær eru i austri eða vestri. Það er þýðingarlaust fyrir ákveðinn hóp manna að halda, að þeim muni með illmælgi takast að koma tslendingum út úr húsi hjá þeim þjóðum, sem hafa reynzt þeim bezt. Sá hópur islendinga, sem veit hvað þjóðinni er fyrir beztu, og hvar vinir eru fyrir i reynd, er fjölmennari og siðferðilega sterk- ari. i þvi felst sú vernd sem dugar. Ég þakka þeim, sem hlýddu. Erindi Guðmundar H. Garðarssonar Um daginn og veginn byggt upp meö tilliti til þess að styrkja vinnustofn þeirra þeirra atvinnugreina, sem lifsgrundvöll- ur þjóðarinnar byggist á.A sama tima gera nemendur þessa kerfis enn haröari kröfur til þess fólks, sem með vinnu sinni og striti leggur þvi til fjármagn. Hér er um hreina öfgaþróun að ræða. Þá er þaö ekki sfður alvarlegt mál, hvernig ósvifnir undirróð- ursmenn öfgafullra stjórnmála- skoðana, sitja um óharnaða ungl- inga og hræra i viðkvæmu tilfinn- ingalifi þeirra. Þetta er gert á lymskulegan en skipulagðan hátt. Á villigötum Svo langt er gengið i þessari starfsemi, að i nafni helztu menntastofnunar landsins Há- skóla tslands var 1. desember á siðasta ári vegið að islenzku þjóð- skipulagi, sem hefur gert þessu fólki kleift að njóta Ókeypis náms og algjörs frelsis. Vitað er, að i stjórnmálum eru oft notuö óvönduö meðul, en þegar gripiö er til unglinganna með þeim hætti, sem nú er gert i Háskólanum og menntaskólun- um i þágu málstaðar, sem hvar- vetna hefur brotizt áfram með of- beldi og blóðugri byltingu, er timi til kominn að segja hingað og ekki lengra. Og við hina ungu háskólastú- denta, sem slá um sig meö kenn- ingum Maos, Marx og Lenins og ráðast gegn því þjóðskipulagi, sem hefur fóstrað þá vel við mikið frelsi, vil ég segja þetta: Góðir stúdentar, Kynnið þið ykkur af eigin raun lif og störf þess fólks, sem hefur reynt i rúma öld að öðlast lifs- hamingjuna með þvi kommúnska þjóöskipulagi, sem Marx-Lenin- sinninn býður upp á.Það getið þið gert með þvi að ferðast til Sovét- rikjanna eða Austur-Evrópu. Kynnið þið ykkur ástæðurnar fyrir fráhverfi valdamanna So- vétrikjanna frá upprunalegum og óraunhæfum kennisetningum kommúnismans. Látið ekki erlent menntaða undirróöursmenn menga hugar- far ykkar gagnvart ættjörðinni og vinveittum þjóðum. Og siðast en ekki sizt. Horfið til ykkar eigin lands og gerið upp við ykkur, hvort þið viljið i raun og veru meö þeim möguleikum, sem aukin menntun og þekking veitir ykkur, þjóna islenzkri fósturjörð, sem frjálst fólk. Vinveittar þjóðir Minnst var á vinveittar þjóðir. Þcss gerist sýnilega þörf að minnt sé á, hvað séu vinveittar þjóðir, þvi ákveðinn hópur manna iiefur iðkað þaö i áraraðir að niða niður sinkt og hcilagt einhverja mestu vinaþjóð islendinga, Bandarikin. Illu heillu virðist þessi iðja hafa boriö nokkurn árangur, sem bezt má sjá af ýmsum fundarhöldum i Reykjavik nýverið, ummælum manna i útvarpi og sjónvarpi og skrifum I dagblöðum. Svo langt var gengið og ávöxt- ,.Það virðist eins og nokkuö stór hluti nemenda i æðri skólum sé algjörlega kominn úr sambandi við umhverfi sitt." Vísir hefur fengið leyfi hjá Guðmundi H. Garð- arssyni til að birta erindi hans Um daginn og veginn i útvarpi 8. janúar sl. Eru helztu kaflar erindisins þvi birtir hér á eftir vegna fjölda til- mæla: Byggðasjóöir Þekktur áhugamaöur um sjávarútvegsmál, Jóhann (J.E.) Kúld, sem nýlega fyllti sjöunda tuginn, hefur i fjölda ára skrifaö afbragðsgóðar greinar i Þjóövilj- ann um fiskimál. Drepur hann oft á framfaramál i sjávarútvegi og fiskiönaði, samtimis þvi, sem hann kemur með jákvæða gagnrýni á það, sem betur mætti fara i rekstri útgerðar- og fisk- iðnaöarfyrirtækja. öll skrif Jó- hanns Kúld um þessi mál bera vott um óeigingirni og einlægan vilja til að láta gott af sér leiöa i þágu mikilvægustu atvinnugrein- anna, sjávarútvegs og fiskiðnað- ar. t grein, sem Jóhann ritaði ný- verið um jafnvægi byggðarinnar og byggðasjóði, komu fram mjög athyglisverðar upplýsingar um hlutverk byggðasjóöa i Noregi. Vert er að vekja athygli á þessu, vegna þeirrar þýðingar, sem hlið- stæð skipan hérlendis gæti haft fyrir fólkið i hinni strjálu byggð á tslandi og landsmenn i heild. t greininni segir m.a.: „tslenzka rikið á framkvæmda- sjóð, sem nefnist Byggðasjóður og að sjálfsögðu er honum stjórn- að al' mönnum, sem sitja hér i Reykjavik. Um þetta væri ekki nema allt gott að segja, ef jafn- hliða væru til úti á landi byggða- sjóðir, einn eða tveir i hverjum landsfjórðungi, algjörlega óháðir öllum.nema þeim byggðum, sem þeim væri ætlað að þjóna. Frá minum bæjardyrum séð, er uppbygging slikra sjóða algjört skilyrði, sem nú vantar hér, til þess að heilbrigð uppbygging utan þéttbýliskjarnans hér i Faxaflóa fái notið sin. Þegar ég segi þetta, þá hel'i ég, segir Jóhann, i huga þá jákvæðu reynslu, sem fengizl hefur al' norsku byggðasjóðunum, sem eru starfandi þar i hverju einasta fylki landsins. Hve vel hefur tek- izt um uppbyggingu norskra at- vinnuvega á árunum siðan heimsstyrjöldinni lauk telur Jó- hann ekki hvað sizt vera hinum sjálfstæðu byggðasjóöum að þakka, og að hans mati telur hann tslendinga tilfinnanlega vanta sjálfstæða byggðasjóði, sem séu engum háðir, nema þeim, sem sjóðnum er ætlað að þjóna.” Undir þessa skoðun er sterk- lega hægt að taka. Fólkið í strjálbýlinu Fólkið i strjálbýlinu er þýðing- armesti kjarninn, sem fæst við gjaldeyrisskapandi störf. A Faxafióasvæðinu eru hins vegar stærstu gjaldeyrisnotendur landsins. Það er þess vegna ekki til of mikils mælzt, þótt óskað sé eftir þvi vegna landsbyggðarinn- ar, að settir séu á laggirnar sjálf- stæðir byggðasjóöir og þeim stjórnað af heimamönnum. — Landsbyggðasjóðina á siðan að fjármagna úr sameiginlegum f járfestingarsjóðum lands- manna, eins og t.d. Byggðasjóði og Atvinnuleysistrygingasjóði og með eigin fjárframlögum frá við- komandi landssvæðum. Atvinnuvegirnir í öndvegið Að minu mati er fátt ofgert af liálfu þjóðarheildarinnar vegna þeirra landsmanna, sem búa utan Reykjavikur — og Reykjanes- svæðisins. Það er þctta fólk, sem viöheldur hinni dreifðu byggð landsins. Það yrkir jörðina, dregur fisk úr sjó og skapar hlutfallslega mestu útflutningsverðmætin með striti sinu. Við, sem búum við hin miklu lifsþægindi þéttbýlisins eigum aö viðurkenna þessa staðreynd i verki. Það er ekki hollt, ef helmingur þjóðarinnar skyldi gleyma uppruna sinum eða þvi, á hverju lif þjóðarinnar og tilvera byggist. Það, sem mcstu máli skiptir i lifsbaráttu hverrar þjóðar, cru atvinnuvegir hennar, fólkið, fyrirtækin og nátlúruauðævin. Fólkið i atvinnulifinu, stjórnend- ur og eigcndur, cr sá hluti vinnu- aflsins, sem verðmætur cr. Stöðvist hjól atvinnulifsins eða hverfi hæfasti og dugmesti kjarni vinnuaflsins frá þjóðnýtum störf- um og fari yfir i þægindastörf rik- iskerfisins, er vá fyrir dyrum. Afleiðingarnar yrðu fijótlega minnkandi þjóðarframleiösla, lægri þjóðartekjur og fyrirsjáan- leg almenn fátækt meginþorra landsmanna. íslendingar eiga að hcfja nýja sókn. Snúa haki við kerfishug- sjóninni og blýantanaginu. Mark miöiö á að vera að hefja atvinnu- vegina á ný til iindvcgis i mcðvit- uikÍ þjóðarinnar.Tekju- og eigna- skipting á fyrst að fara fram meðal þeirra, sem starfa i at- vinnulifinu. Þar á að skipta rif- lega milli aðila, fólksins, fyrirlækjanna, eigenda og stjórn- enda. Svo vel á að búa að íyrirtækjunum, að þar sé tekju- vonin mest. Grundvöllur allra lifsgæða hvilir á vinnu þessara aðila. Sú öfugþróun, sem rikt hefur i þessum málum á tslandi er þjóð- hættuleg og mun leiða af sér mikla óhamingju, ef fólkið hristir ekki af sér hlekki kerfisins og segir á einfaldan og skýran hátt við valdhafana: Atvinnuvegirnir, fyrirtækin og fólkið, eiga að hafa forgang i tekju-og eignaskiptingunni, siðan koma þarfir annarra þjóðfélags- hópa, rikis- og sveitarfélaga. Nemendur og umhverfið Viðurkeunt er, að íslenzk börn og unglingar þykja góður efnivið- ur. islenzki stofninn hefur vcrið sterkur. islenzkt þjóðlif og at- vinnuhættir bera þess órækan vott. Siðustu árin hafa þó ýmsir at- burðir gerzt i sambandi við skóla landsins og nemendur þeirra, sem vekja ugg hjá þeim, sem bera hitann og þungan af þvi, aö á tslandi er skipulagt samfélag manna, þjóö, sem leitast við að fullnægja eðlilegum þörfum sem flestra. Það virðist eins og nokkuð stór hluti nemenda i æðri skólum landsins, sé algjörlega kominn úr sambandi við umhverfi sitt. Þeir ráöast gegn og forsmá það, sem vel hefur veriö gert og krefjast þess, sem þjóðfélaginu, vegna smæðar sinnar og takmarkana, er um megn að láta i té. Erfitt er að gera sér fullkomna grein fyrir þvi, hvað veldur þess- ari neikvæðu afstöðu hjá þvi miðuralltof mörgum nemendum, sérstaklega stúdentum. Mikið er i húfi, að þessi mál séu tekin föst- um tökum og þessum ágætu ungl- ingum verði hjálpað til að finna sjálfa sig og skilja umhverfi sitt. Ef leitað er orsaka, staldrar hugurinn fyrst við skólakerfið. An nokkurs vafa á það, uppbygging þess, markmið og framkvæmd, mikla, ef ekki mesta sök á þvi, hvernig komið er. Skólakerfið er i algjöru ósamræmi við þann eðlilega þjóð- félagsramma, sem 200.000 manna þjóð getur búið við nyrzt á hjara veraldar. Þetta kerfi . er ekki

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.