Vísir


Vísir - 19.01.1973, Qupperneq 2

Vísir - 19.01.1973, Qupperneq 2
2 Visir. Föstudagur 19. janúar 1973 vbnsm: Væruð þér fús að styrkja Hafstein fjárhagslega? Halldór Halldórsson, nemandi í Stýrimannaskólanum : Það er sjálfsagt að styrkja svona menn, það eru ekki allir, sem myndu leggja sig i hættu eins og hann til þess að bjarga lifi annarra. Reynir Gunnarsson, bóndi: Já, mér fyndist rétt að styrkja hann. Annars ætti þjóðfélagið að sjá til þess, að hann fengi skaða sinn bættan og hann þyrfti ekki að liða fjárhagslega fyrir þetta. Kristján Daviðsson, listmálari: Ég myndi styrkja hann, ef ég fengi tækifæri til. Mér finnst reyndar lika, að það opinbera ætti að gera ráð fyrir þessum mögu- leika. Ásta Lúðviksdóttir, starfs- stúlka i Landsbankanum: Já, það væri ég alveg hiklaust, en það er lika slæmt, að hið opinbera skuli ekki bæta fólki svona lagað. Bergþór Jóhannsson, grasa- fræðingur: Já, ég gæti vel hugsað mér það, eftir þvi, sem maður hefur heyrt, þá eru bætur ekki nærri nógar i svona tilvikum. Oddný Grétar, húsmóðir: Já, og mér finnst sjálfsagt fyrir fólk i heimahúsum að taka sig saman og safna, þvi maðurinn getur áreiðanlega ekki unnið næsta ár- ið. — Ég sæi ekki eftir þvi! Lombardy gekkst fyrir leynipartíum við sundlaugar" Séra Lombardy, aðstoðarmaður Fischers, fær talsvert á baukinn i skákbókinni, sem Skáksamband Islands stendur að. Hann er sagður hafa gengizt fyrir „partium” við sund- laugar og háðulega fjallað um klæðnað hans. Um Fischer er fjallað i hálfkæringi viða, og telja sumir sig lesa níð út úr þvi. „Lombardy verndar Bobby,” segir i bókinni. „Kannski geðjast honum ekki of vel að skrýtnum hugmyndum Fischers um trúmál... Presturinn telur heldur ekki, að stelpurnar, sem hanga yfir skákmeistaranum, séu i samræmi við trúarbrögð skákarinnar. Kaþólska frétta- blaðið kallaði föður Bill Lom- bardy, „þöglan, hógværan og sjálfstilltan”, en þetta er ekki i samræmi við harðan sann- leikann. Gengst maður, sem er þannig gerður, til dæmis fyrir leynilegum „partium” við sundlaugar? Eða stýrir hann blaðamönnum inn i læst her- bergi, meðan hann skammast út i „blaðamannaóféli”? ,,Við hvað aðstoðar Ijombardy Fischer?” Greinin heldur áfram sinum nokkuð duldu glósum: „Lom- bardy er „aðstoðarmaður” Aðeins örfá eintök af skákbók- inni hafa borizt hingað til lands, þótt langur tfmi sé liðinn, sfðan hún kom út i Bandarikjunum. Fischers. Menn getur aðeins rennt grun i, við hvað hann aðstoðar. Kannski geta þessi huggulegu smá-gáfnaljós, sem i endalausri röð dilluðu sérframan i Fischer, leyst þá gátu?... Lombardy er bæði nokkurs kon'ar þjálfari Fischers og höggdeyfir fyrir hann. Hugmynd hans um stjórn er i samræmi við hugmyndir Fischers, en tizkuhugmyndir hanseru þaðekki. Meðan Bobby var að máta ný föt, sem tfma- ritið Life gerði ódauðlegan at- burð með ftarlegri myndatöku, voru brækur prestsins annað- hvort of siðar eða of stuttar. Ef maður sat nógu lengi í „snyrt- ingunni”, og svipaðist um eftir svörtum skálmum og svörtum skóm, og ef brækurnar eru of siðar eða of stuttar, þá er lik- legast, að þar sé komin hans hátign, Bill Lombardy”, „Bragðaði á tannkremi h'ischers” „Bandarisk stúlka i kaffistof- unni,”segirigreininni, -segist hafa komið nógu nálægt Fischer til að bragða á tannkreminu vera, að orðrómurinn um sendi- menn frá kvikmyndaverum hafi verið sannur. „Tannkrems- stúlkan” segist til dæmis sverja og sárt við leggja, að hún hafi heyrt tvær framreiðslustúlkur i veitingahúsi i Reykjavik tala á dulmáli, sem hljóðaði svona: „Fingur hans á þessari DROTTNINGU”, „Kaupum hans.....Það var erlent. Vel má ,0*'. G*° G*° V' s< ST oVe<’ 1 o'% 0’e . , r,e»VC . <ke^*<V <A»'' Flumbruhátturinn við samningu bókarinnar kemur viða fram, til dæmis í nafnalista yfir Skáksambandsmenn og forráðamenn einvigisins. Skáksamband íslands las aldrei próförk. mmm MÖÖ) DAUFIR AROÐURSVIKINGAR Ein herská hringdi: „Manni leiðist að horfa upp á þá deyfð, sem er i Islendingum og islenzkum yfirvöldum I áróðurs- baráttunni vegna landhelgis- málsins. Það má heyra það á öll- um Bretum, sem verða á vegi manns — og greinilegt á brezku lesendabréfunum, sem þið hafið birt i Visi — að fólk erlendis bygg- ir sina þekkingu á málinu á áróðri andstæðinga okkar. Úti er gripið til alls konar ráða. Eiginkonur brezkra togarasjó- manna söfnuðu undirskriftum undir kröfur um herskipavernd, vegna þess að þær töldu lifi eigin- manna sinna hætt. — Engar slik- ar aðgerðir, sem vekja auðvitað athygli, sjást hér. (Og sjáið, Skipulagða söfnun fyrir Hafstein A.ó. i Kópavogi hringdi: „Að visu sér maður, að hafin er fjársöfnun fyrir Hafstein , sem varð fyrir haglaskotinu i Breið- holti, en mér — og reyndar öllum, sem ég hef fært þetta i tal við — finnst, að eigi að gera gangskör að þvi að hafa þessa söfnun almennilega. Við öll á Reykjavfkursvæðinu eigum nánast skuld að gjalda þessum fjögurra barna lágtekju- föður, sem hikaði ekki við að setja lif sitt i hættu til þess að bjarga lifi granna sins. Það heyri ég á öllum, að þeir mundu láta fé af hendi rakna til söfnunar, ef barið væri upp á hjá þeim. Þess vegna finnst mér að hefja ætti skipulagða söfnun, sem einhver ábyrgur aðili tæki að sér að hrinda i framkvæmd. Það verður einhvern veginn minna úr hinu, þegar fólk á að leggja lykkju á leið sina til þess að koma sinu framlagi til skila.” hvaða áróður hefur náð helzt til þessara eiginkvenna!) Þetta er of dauft. Utanrikisráð- herrann má ekki halda, að það dugi að flytja einu sinni ræðu — þótt hún hafi verið góð kannski — á þingi Sameinuðu þjóðanna. Það má ekki láta þar við sitja. Við þurfum að senda fleiri mál- hressa menn út til þess að slá á mestu firrurnar. — Já, jafnvel Jónas Árnason, sem ég held, að hafi ekkert staðið sig illa, þótt þið hjá Visi hafið gert litið úr hans ferðum. Hvar er vikingablóðið, þegar við sitjum bara og höldum að okkur höndum? Varðskipin fá ekki einu sinni að taka landhelg- isbrjótana fyrir öðrum togurum, eftirlitsskipum og Ólafi Jó- hannessyni.” Atvinnubœtur koma Saknar þóttarins Hvað er í kassanum? eftir dúk og disk K. hringdi: „Þáttinn, Hvað er i kassan- um?,.sem sýndur var á gamlárs- kvöld og allir voru á einu máli um að hefði verið svo skemmtilegur, verður endilega að endursýna. Ófáir fóru á mis við hann, og enn aðrir hefðu gaman af að sjá hann öðru sinni — að minnsta kosti kaflann um Lúlla langbrók, sem var dýrlegur — og það er margt annað endursýnt, sem minni akkur er i. Það er voðalegur vesaldómur hjá sjónvarpinu, ef það timir ekki að endursýna þetta stykki, sem er nú nánast aðalmeistarastykkið þeirra.” H.P. i Vestmannaeyjum hringdi: „Það verður einhver að beita sér fyrir þvi, að komið verði á einhverri reglu með greiðslu at- vinnuleysisbótanna. Það eru engin lög eða reglur til um það, hvenær eigi að greiða þær eða hvað langt skuli vera á milli þeirra. Þess vegna geta auðveldlega liðið tveir eða þrir mánuðir frá þvi að maður lætur skrá sig at- vinnulausan, þar til hann fær loks bætur. Hér á minu heimili höfum við t.d. ekkert fengið að gera lengi og látum skrá okkur vikulega. En við fengum fyrstu greiðslu 7 vik- um eftir að við létum skrá okkur fyrst, en það var á Þorláksmessu. Og siðan ekkert meir. Þetta kemur sér mjög illa fyrir þá, sem virkilega þurfa þessara bóta með.” Fasteigna Einar hringdi: „Þegar ég ætlaði að greiða fasteignagjaldið mitt, að venju vel fyrir gjalddaga, var mér sagt, að það væri væntanleg hækkun á fasteignagjaldinu alveg á næst- unni. Ég reyndi að forvitnast um, hve mikil hækkun og hvers vegna, en

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.