Vísir - 19.01.1973, Page 5

Vísir - 19.01.1973, Page 5
5 Visir. Föstudagur 19. janúar 1973 AP/INITB ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND Umsjón Guðmundur Pétursson Fjöldamorð í Washington: 5 börnum drekkt og fullorðnir skotnir Fimm börn og þrír full- orðnirvoru myrt í einum af samkomustöðum Múhameðstrúarmanna i Washington i gærdag. Börnunum hafði verið drekkt í baðkerjum, en hin höfðu verið skotin til bana. Tvennt var flutt með alvar- leg skotsár á sjúkrahús. Morðingjarnir eru ófundnir og er reyndar ekki vitað, hverjir þarna hafa veriþ að verki. Morðin voru framin i húsi, sem er i eigu körfuboltaatvinnu- mannsins Kareem Abdul Jabber, en hann er sjálfur múhameðs- trúar. Hafði hann leyft „Black Muslims” félagsskapnum afnot af húsinu. Lögreglan getur litlar upp- lýsingar veitt um málið, en fólk i nágrenninu skýrði frá þvi, að það hefði heyrt skothvelli um kl. 5 sið- degis ( aðstaðartima) og sá siðan nokkra menn hlaupa út úr húsinu. En þeir, sem þar voru á ferð, hafa horfið sporlaust. Jabber, sem áður hé Lew Alcin- dor, áður en hann breytti um nafn um leið og hann gerðist félagi i „Black Muslims”, sagði við fréttamenn, að þarna hlytu að hafa verið brjálæðingar að verki, sem gengið hefðu alveg af göflunum. Sjálfur var hann staddur i bænum Miluakee, þar sem körfuboltalið hans hefur haldið sig siðustu daga. Bretatogari reyndi að sigla ó norskan bót r Atroðningur brezkra togara á norskum miðum Hre/.kir togarar sópuðu með sér tveimur lóðum af linum frá norskum linuveiðara á Norður- hankanum i fyrrinótt. Voru fjórir brezkir togarar aö veiðum á jiessuin slóðum og sýndu linuveiðaranum ,,Stig ívar” frá Berð- I u v o g i m i k i n n vfirgang. Einn togaranna, „Macbeth H 201”, reyndi meira að segja að sigla „Stig Ivar” i kaf, en for- maður bátsins gat með naum- indum sveigt undan stefni togarans. „Þetta var ekkert annað en illvirki,” sagði einn af áhöfninni maður að nafni Hammer, i við- tali við norska blaðið, Finn- mörk. „Við höfðum fengið strandgæzluna á staðinn, þegar átroðningurinn keyrði fram úr hófi, og meðan varðskipið var hjá okkur, héldu þeir aftur af sér. En um leið og það fór af svæðinu, byrjuðu þeir á nýjan leik”. „Við gáfum þeim merki um, að þeir væru að eyðileggja fyrir okkur veiðarfærin og færu of nærri okkur, en þeir hunzuðu allt. Við settum ljósbaujur á bólin en það varð bara til þess að vfsa þeim, hvernig þeir gátu togað yfir þau”. Svo þegar „Stig Ivar” fór að draga linuna til þess að forða henni, hafði Macbeth nær keyrt bátinn niður. Bátsverjar náðu aðeins nafni eins hinna togaranna þriggja, en það var „Lady Parks H 397”. Tjónið á veiðarfærunum og afla var metið á nær 200 þúsund krónur. —------------------------—4 Ein af sprengjum hermdarverkamanna á N-lrlandi lagði i rúst upp- boðshöll og blaðasölu i miðborg Belfast á dögunum, — en húsið hafði verið rýmt áður. IRA REYNDI BANKARÁN samtökin skortir orðið fé til vopnakaupa Irski lýðveldisherinn stóð- að misheppnuðu bankaráni i Belfast i gær, og lét einn ránsmannanna lifið í til- rauninni. „IRA skortir orðið til- finnanlega fé til þess að kaupa vopn og skotfæri, og þess vegna ákváðu samtök- in að reyna ránið," fullyrti talsmaður öryggissveit- anna á N-irlandi. Fjórir vopnaðir menn stormuöu inn i bankadeildina á Royal Victoria-sjúkrahúsinu i gær- morgun. Meðan þeir voru að sýsla við að setja peningana i sekki, tókst einum bankafulltrú- anum að smjúga út um dyrnar, og geröi hann brezkum hermönnum viðvart, sem stóðu á verði i sjúkrahúsinu. Þegar hermennirnir komu að, voru ræningjarnir einmitt á leið út. Var skipzt á skotum, og einn ræningjanna féll, en þrir komust undan. Peningana misstu þeir þó flesta á leiðinni. I bænum Portadown fannst kaþólskur verkamaður myrtur i gær, skömmu eftir að honum hafði verið rænt á krá einni. Höfðu tveir vopnaðir menn komið á krána og neytt hann til þess að fara með þeim. — Maðurinn fannst skotinn til bana i húsagarði um 300 metra frá kránni. Dánartala þeirra, sem týnt hafa lifinu i óeirðunum á Irlandi siðustu þrjú og hálft árið, er nú komin upp i 688 manns. Kviðdómurinn á leið úr sjúkrahúsi I Vacaville, þar sem Juan Corona liggur vegna hjartasjúkdóms. Lögðust undir feld í viku 1 heila viku hugsuðu kviðdóm- endurnir sig um i máli ákæru- valdsins gegn Juan Corona, sem grunaöur var um morð 29 land- búnaðarverkamanna i Kali- forniu, — og þá sögðust þeir ekki geta komizt að niðurstöðu. Dómarinn rak þá aftur til þess að reyna betur, og eftir að hafa legið sólarhring til viðbótar undir feldi, komst kviðdómurinn á þá skoðun að Corona væri sekur, og voru þá allir sammála. Hinir myrtu fundust uröaðir hér og hvar á bújörðum i Kaliforniu, en Corona var milli- göngumaður um mannaráðning- ar yfir uppskerutimann. Harðnandi ótök í Víetnam — meðan hyllir undir vopnahléð Meðan stjórnmála- menn og sendifulltrúar leggja sig alla fram við að ná samkomulagi um vopnahíé i Vietnam, fara átök harðnandi þar suður frá. Komið hefur til harðra bardaga i nágrenni bæjarins Quang Tri, og i hæðardrögun- um inni i miðju Suður- Vietnam, en auk þess lika á Mekong-svæðinu og á franskri gúmmi- plantekru i fiO km fjar- lægð frá Saigon. Bandariski flugherinn hefur fariö allmargar árásarferðir og varpað sprengjum á stöðvar Norður-Vietnam á þessum vig- stöðum. — En að sögn herstjórn- arinnar i Saigon hefur ekki verið flogið inn i lofthelgi Norður-Viet- nam. Bardagar þessir spretta upp i kjölfar tiðindanna um, að vopna- hlé sé alveg á næstu grösum, en aðilar striðsins reyna, hver sem betur getur, að ná á sitt vald sem stærstum áhrifasvæðum, áður en vopnahlé gengur i gildi. Siðustu fréttir um vopnahlés- samningana benda til þess, að einungis sé eftir að ganga frá skýrara orðalagi i samningunum, áður en þeir verða undirritaðir. Blaðafulltrúi Bandarikjaforseta skýrði fréttamönnum frá þvi i gær, að Henry Kissinger færi til Parisar á þriðjudag, og álita flestir, að það sé til þess að ganga endanlega frá samningunum. — Orðalag utanrikisráðherra Suður- Vietnam, sem bar á móti þvi, að Suður-Vietnamar séu andvigir þvi samkomulagi, sem náðst hefur, gefur til kynna, að Thieu forseti Suður-Vietnam sætti sig við samninganna. En á meðan varð 1000 manna herlið Suður-Vietnama, sem tekið hefur sér stöðu við gúmmiplant- ekru franska fyrirtækisins Michelin, fyrir árás i gær, og voru þar á ferð sérstakar sveitir Norður-Vietnama. Herstjórnin i Saigon álitur, að kommúnistar hafi um 8000 manns undir vopn- um á þvi svæði. Bardagarnir nyrst i Suður-Viet- nam, i nágrenni við Quang Tri, hafa staðið i fleiri vikur, en þar hafa hersveitir Saigonstjórnar- innar reynt að hrekja Norður- Vietnama norður yfir aðskilnað- arlinuna.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.