Vísir - 07.02.1973, Blaðsíða 6

Vísir - 07.02.1973, Blaðsíða 6
6 Vísir. Miðvikudagur 7. febrúar 1973 vísrn Útgefandi: Reykjaprent hf. Framkvæmdastjóri: Sveinn R. Eyjólfsson Ritstjóri: Jónas Kristjánsson Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson Ritstjórnarfulltrúi: Valdimar H. Jóhannesson Auglýsingástjóri: Skúli G. Jóhannesson Auglýsingar: Hverfisgötu 32. Simar 11660 86611 Afgreiðsla: Hverfisgötu 32. Simi 86611 Ritstjórn: Siðumúla 14. Simi íj6611 (7 linur) Askriftargjald kr. 225 á mánuöi innanlands i lausasölu kr. 15.00 eintakið. Blaðaprent hf. Hœttan er mikil Nú er mikil hætta á ferðum i Vestmannaeyjum. ( Töluvert hraun hefur runnið til norðurs út i inn- /, siglinguna siðasta sólarhring. Raflina og vatns-) leiðsla á sjávarbotni hafa rofnað. Og i morgun, þeg-) ar þetta er ritað, virtist hraunrennslið mundu loka ( höfninni i Eyjum á nokkrum sólarhringum. Og þar / að auki virtist nokkur hætta á, að áframhaldandi ) rennsli i þessa átt mundi leita inn i höfnina sjálfa og ) eyðileggja draumana um að rjúfa Eiðið og gera ( nýja innsiglingu i höfnina. / Við getum ekki gert annað en að biða og vona hið ) bezta. Hugmyndir um að sprengja hrauninu nýjan( farveg til hafs hafa verið ræddar. íslenzkir jarð-/ visindamenn og bandariskir sprengingasérfræðing-) ar hafa athugað þessar hugmyndir og hafnað þeim. \ Það er þvi greinilega náttúran sjálf, sem á leikinn. (í Hraunið gæti skyndilega brotið sér leið til suð-aust-) urs. Að þvi beinast vonir okkar núna. ) Ekki er ástæða til að örvænta, þótt hraunið loki / innsiglingunni. Sérfróðir menn eru sammála um, ) að gera megi nýja innsiglingu um Eiðið svo vel úr ) garði, að höfnin verði betri en nokkru sinni fyrr. Slik ( framkvæmd mundi vissulega vera dýr. Og atvinnu- / tækin i Eyjum mundu ekki nýtast fyrr en hún væri) vel á veg komin. Lokun innsiglingarinnar veldur \ miklum kostnaði og tekjutapi, en hún þarf ekki að ( rýra nein verðmæti i Eyjum. ) Tjónið yrði þá fyrst hrikalegt, ef hraunið rynni inn (( i höfnina og fyllti hana upp að meira eða minna (í leyti. Það er núna okkar heitasta og innilegasta von,)) að til þess komi ekki. Lifæð Vestmannaeyja er höfn-) in sjálf, en ekki innsiglingin, þvi að hana má færa ( til. Höfnin i Eyjum er lifhöfn alls Suðurlands og for- / senda mannlifs i Eyjum. Hana mega náttúruöflin) ekki taka frá okkur. ) Samfara hinum slæmu tiðindum úr Eyjum eru ( góðar fréttir frá alþingi. Stjórnmálaflokkarnir) náðu i gær samkomulagi um stofnun Viðlagasjóðs ( Vestmannaeyja. Þeir höfðu áður orðið sammála um / að útvega sjóðnum tveggja milljarða stofnfé, og nú) eru þeir orðnir sammála um, hvernig fjár verði afl-) að i sjóðinn. Það er mjög ánægjulegt, ekki sizt i ljósi ( hinna alvarlegu atburða siðasta sólarhrings i Eyj-) um, að full samstaða skuli nást á þingi um meðferð) málsins. ( Niðurstaðan á þingi varð sú, að verulegs hluta í hinna tveggja milljarða verður aflað með nýjum álögum á þjóðina og nokkurs hluta með niðurskurði á fjárlögum rikisins. Ofan á tvo milljarðana bætist siðan gjafafé, innlent og erlent, svo og lán til langs / tima, sem stjórnvöld hljóta að afla hjá erlendum) sjóðum. ( Áður en hraunið fór að renna til norðurs, voru ( menn vongóðir um, að kostnaður þjóðfélagsins af /, völdum gossins yrði ekki þungbær, sérstaklega ef) honum væri dreift á mörg ár. Nú eru hins vegar) horfur á, að kostnaðurinn geti hlaupið verulega( fram, þannig að óhjákvæmilegt virðist, að þjóðin / taki nú þegar á sig verulegar byrðar. ) FRANSKA BOMBAN llllllllllll Umsjón: Guðmundur Pétursson Andstaða Kyrrahafslandanna magnast gegn tilraunum Frakka með kjarnorkusprengjuna ó Kyrrahafssvœðinu stjórnmálasambandi við Frakk- land. Á hinn bóginn hefur hinn nýi forsætisráðherra verkalýðs- flokksins á Nýja Sjálandi, Nor- man Kirk, verið mun haröorðari i mótmælum sinum. Hann hefur hótað þvi að senda heilan flota af bátum og skipum, mönnuðum nýsjálenzkum sjómönnum, inn á tilraunasvæðið, þannig aö Frakkar geti ekki sprengt kjarn- orkusprengjuna ööruvisi en manntjón hljótist af. — Þannig er sem sagt tónninn i mönnum þar. í Chile hafa opinberir aðilar ekki látiö frá sér fara nein mót- mæli ennþá, en það er allra álit, að marxistinn Salvador Allende forseti muni áreiðanlega slást i hóp með leiðtogum hinna Kyrra- hafslandanna i andstöðu við sprengjutilraunir Frakka. Til þessa hafa einu mótmælin borizt frá hópum og einkaaðilum. Andstaiða Perúmanna mýktist ögn siðast, þegar Frakkar gerðu þessar tilraunir, með þvi að þá fengu þeir efnahagsaðstoð frá Frakklandi. En nú hefur and- staðan harðnað aftur, og virðist ekki liklegt, að menn láti að þessu sinni deigan siga. Jafnvel Fiji litla mótmælir. í þeim hluta Pólynesíu, sem Frakkar hafa sjálfir ráð yfir, sendi landstjórinn, Francis San- ford, heillaóskaskeyti til Michel Rocard, leiðtoga stjórnarand- stöðunnar i Frakklandi, þegar hinn siðarnefndi bar fram fyrir- spurnir á þingi um tilraunirnar fyrir varnarmálaráðherrann, Michel Debre. Og geta menn séð / afstöðuna þar á þvi. A Tahiti eins og annars staðar er undir niðri mikil andstaða gegn tilraununum, en þar telja þeir, sem bezt þekkja til mál- anna, að Frakkar verði ekki skeknir af þessum fyrirætlunum sinum, fyrr en i fyrsta lagi árið 1975, ef þá kæmist vinstrisinnuð stjórn til valda. Tahitibúar telja að þangað til muni Frakkar halda áfram tilraununum. Þar ganga ljósum logum sögur um, að á næstu árum ætli Frakkar að gera neðanjarðartil- raunir með kjarnorkusprengjur á eyjunni Eiao, sem er um það bil 1.600 km norðaustur af Tahiti. Frakkar hafa opinberlega visað þessum sögusögnum á bug, en menn gera sér ákveðnar hug- myndir um tilgang þess flug- vallar, sem þar er i byggingu. Eða öllu heldur stækkun hans, þvi að þar er unnið að gerð þriðju flugbrautarinnar, sem gerir þotum kleift að lenda þar. §iðast- liðið haust hafði þyrlumóðurskip- ið Ouragan viðkomu þar á eyj- unni, og sáu menn þá risastórum kössum skipað i land. Skýring hins opinbera á þessari flugvallargerð er sú, að Frakkar vonast til þess að geta laðað ameriska ferðamenn til eyjanna. En þeirri skýringu trúa menn ekki of vel, þvi að á eyjaklasanum búa aðeins um 5.000 ibúar, og þar er ekkert að finna, sem dregið getur að ferðamenn, aðeins sól og sandur og enginn staður til þess að hýsa neinn verulegan fjölda ferðafólks, ef einhver vildi dvelja þar. Við þvi er að búast, að þennan tima fram i júni, muni Kyrra- hafsrikin nota sér vel til þess að ráða ráðum sinum um samvinnu i baráttunni gegn kjarnorku- sprengjutilraununum. Það er gengið út frá þvi sem visu, að hinir herskárri i Nýja Sjálandi og Astraliu muni setja franskar vörur á svartan lista og reka áróður fyrir þvi, að menn hætti að skipta við frönsk fyrirtæki. Frakkland verður þvi að horfast i augu við harðari and- stöðu við tilraunirnar en hingað til — andstöðu sem teygir sig frá Santiagó til Canberra. Eindreginn ásetningur Frakka að halda áfram kjarnorku- sprengjutilraunum sinum i Pólynesiuhluta Kyrrahafsins vckur ugg og gremju um allt Kyrrahafssvæðið. i júní cða júlí má búast við að sjá þessa sveppalöguðu skýja- hólstra sem orðnir eru tákn fyrir BOMBUNA, bera viö bláan him- ininn yfir Kyrrahafseyjunni Mururoa, en þar gera Frakkar tilraunir sínar. En á meöan beðið er, magnast æ meira andúðin meðal ibúa beggja megin syðri hluta Kyrra- hafsins. Fréttamaður AP-frétta- stofunnar, sem verið hefur á feröalagi um Astraliu, Nýja Sjá- land, Chile, Perú og Tahiti á siðustu fimm mánuðum, varð þar var við megna óánægju bæði hjá opinberum og einkaaöilum með tilraunir Frakka. Þaö var altitt að heyra hótanir um að rjúfa stjórnmálasamband við Frakk- land. Og það berast æ fleiri fréttir af þvi, að stjórnir þessara rikja séu farnar að bera saman bækur sinar um, hvernig þau geti samræmt aðgerðir sinar til að koma i veg fyrir frekari tilraunir af sliku tagi, svona alveg við bæjardyrnar. En i Paris og Papeete, sem er stjórnaraðsetur frönsku Pólynesiu, hefur þessum mót- mælum verið tekið með kulda- legri þögn og tómlæti. Frakkar eru öruggir með sjálfa sig, i þeirri -trú, að sá stóri markaður, sem þeir óneitanlega eru fyrir ástralskar og nýsjálenzkar út- flutningsvörur, ásamt franskri efnahagsaðstoð við Perú, muni bægja frá þeim öllum alvarlegri hefndaraðgerðum. Perúmenn eiga ekki svo gott með að múðra, meöan þeir þiggja efnahagsað- stoð af Frökkum, og hinir eiga út- flutning sinn mikið undir Frökkum. — Enda hafa þeir til þessa fengiö að vinna að til- raunum sinum á þessum slóðum nokkurn veginn óáreittir. En metaskálar stjórnmálanna á Kyrrahafssvæðinu hafa tals- vert sveiflazt til, siðan Frakkar gerðu sinar tilraunir með kjarn- orkuvopn þar siöast. Þær hafa sveiflazt mikið til vinstri. Hin nýja verkalýðsstjórn Astraliu hefur lýst yfir opinskátt, að hún sé á móti þessum til- raunum. Gough Whitlam, for- sætisráðherra hennar, hefur sagt, að hann muni snúa sér til al- þjóðadómstólsins i Haag i við- leitni sinni til þess að stöðva þessar tilraunir. 1 Canberra, höfuðborg Astraliu, eru þó flestir þeirrar trúar, að það væri til litils að leita á náðir Haagdómstólsins — að minnsta kosti i praksis. Né heldur eru þeir trúaöirá, að Astralia mundi rjúfa stjórnmálasambandiö við Frakk- land. Ástralir selja Frökkum tvisvar sinnum meiri vöru en þeir kaupa af þeim aftur. Og flugfloti Astraliu er háður þvi að geta fengið Mirage-þotur frá Frakk- landi. En hætti Frakkland ekki við til- raunirnar, þykir langliklegast, að Astralia muni kalla heim am- bassadorsinn i Paris, en halda þó Þessi mynd var tekin af kjarnorkusprengjutilraunum Frakka á Kyrra hafseyjaklasanum Mururoa I júli 1970.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.