Vísir - 12.02.1973, Blaðsíða 3
Vlsir. Mánudagur 12. febrúar 1973.
3
„Ottast að i nú sígi
ó verri hl iðina"
— segir Einar skipstjóri á Lóðsinum,
sem varð að „flýja"
úr Vestmannaeyjahöfn í nótt
„Ég óttast, að þetta sé að siga á
verri hliðina”, sagði Einar Sv.
Jóhannesson skipstjóri á Lóðs-
inum í morgun. „Hraunið hrann-
ast upp á þeim slóðum, þar sem
þurrkhúsið var, og liklega er bara
timaspursmál, hvenær það brýzt
fram yfir varnargarðana, sem
gerðir hafa verið til að hamla
gegn þvi”.
Lóðsinn var „rekinn út” úr
Vestmannaeyjahöfn um klukkan
þrjú I nótt, eins og Einar orðar
það. Með honum fóru úr höfninni
Þórunn Sveinsdóttir, Árni frá
Görðum, Leó og Sæunn. Skipin
voru látin fara úr höfninni, vegna
þess að hraunið hafði þá enn tekið
aðskriða fram og takmarkað inn-
siglinguna frekar.
„Dýpið var svipað og áður, þar
sem við sigldum út úr höfninni”,
sagði Einar, þótt hraunið hefði
nálgast Yztaklett frekar, „Við
vorum ekki við mælingar vegna
óveðurs. Sjómæíingamenn koma
hingað væntanlega i dag, og við
erum nú að fara að skoða
ástandið i innsiglingunni. Ef
ekkert er að, munum við sigla inn
i höfnina aftur nú á eftir.”
—HH
„Timaspursmál, hvenær
hraunið brýzt fram yfir
garðana”, segir Einar.
ÁTTA MANNS
SLÖSUÐUST
Mjög harður árekstur varð á
föstudagskvöid á Hringbraut rétt
við Smáragötu. Átta manns
slösuöust meira eða minna i
árekstrinum. .
Areksturinn varð með þeim
hætti, að sendiferðabill stöðvaði
til að hleypa út farþega. Var
farþeginn að fara út úr bílnum,
þegar fólksbill sem kom eftir
Hringbrautinni, skall aftan á hin-
um, sem hafði stöðvað. Arekstur-
inn varð mjög harður, og átta
manns hlutu meiðsli, en flest voru
þau smávægileg. Stúlka sem var
farþegi i fólksbilnum og sat fram
i, skarst töluvert i andliti.
Kastaðist hún fram við árekstur-
inn og rak höfuðið i framrúðuna,
sem brotnaði.
Harður árekstur varð i Ártúns-
brekkunni um kl. 5 i gær. Tveir
menn slösuðust i árekstrinum.
Ökumaður fólksbifreiðar, sem
var á leið niður brekkuna, ætlaði
að hægja ferðina á bilnum og
skipti niður i lægri gir. Við það
missti ökumaðurinn stjórn á
bilnum vegna hálku, og rann
bifreiðin yfir á syðri vegarhelm-
inginn. Skall billinn á öðrum sem
koin á móti upp brekkuna. Rakst
sá inn i hlið hins, sem var á niður-
Icið. ökumennirnir, sem voru
einir i bilunum, slösuðust báðir
töluvert. Bilarnir cru mikið
skemmdir. —ÞM
Hundruð húsa í hœttu
vegna vatnssprungna
Tvœr Herkúlesflugvélar
koma til landsins í kvöld
— hefja flutninga frá Eyjum strax í dögun —
— bandarískt vatnskerfi og sprengjufrœðingar til Eyja
Tvær stórar Herkúles-
flutninga vélar eru
væntanlegar til Kefía-
vikurflugvallar um átta-
leytið i kvöld, og eiga
þær að hefja flutninga
frá Eyjum i dögun i
fyrramálið.
Vélarnar geta flutt tuttugu tonn
hvor. Þær áttu að hefja för frá
Langelyflugvelli i Virginiufylki i
morgun. t áhöfnum eru alls 11
liðsforingjar og 32 óbreyttir her-
menn.
Þá átti að flytja til Eyja öflugt
„vatnskerfi”, úðunartæki, sem
varnarliðið leggur til. Meö þvi
verður unnt að úða miklu meira
vatni á hraunið en veriö hefur.
Standa vonir til, að unnt verði að
kæla hraunstrauminn og tálma
framrennsli.
Einnig eru I Eyjum bandariskir
sprengjumenn. Hafa þeir beðið
komu sprengjufræðings, sem
hefur tafizt I landi sakir illviðris.
Möguleikar á sprengingum til að
stöðva framrás hraunsins eru enn
i athugun.
1 Eyjum eru um 120 varnarliðs-
menn, sem vinna þar að hvers
konar hjálparstarfi, viögerðum,
hreinsun, mokstri, sorphreinsun
og svo framvegis.
-HH
LAXNESS DRO UR UMFERÐINNI!
Trúlegt má telja, að kvik-
myndahúsin hafi ekki orðið eins
áþreifanlega vör við tilveru
sjónvarpsins frá fyrstu dögum
útsendinga og I gærkveldi,
þegar Brekkukotsannáll var á
skerminum. Svo iskyggilega
léleg var aðsóknin að þeim
kvikmyndahúsum, sem blaöiö
Þeir, sem gengust fyrir námskeiði fýrir þá, er hætta vilja sigarettureykingum, höfðu ekki undan neinu aö kvarta — aðsóknin að fund-
inum i Norræna húsinu var með ágætum. Hvort sem það nú kemur til af þvi að fundargestir hafa ekki átt sjónvarp eða þá einbeittum
vilja þeirra til þess að hætta reykingum. Fremst á myndinni sjást þeir Jens D. Henriksen og túlkur hans, Siguröur Bjarnason.
„Hér eru mörg
hundruð húsa i hættu
vegna vatnssprungu-
skaða”, sagði Sveinn
Eiriksson slökkviliðs-
stjóri i Eyjum i morgun.
„Hér er 8-9 stiga frost.
Við vinnum sleitulaust
að þvi að setja hita á
húsin. Þau eru mörg
ekki vatnsheld. þótt við
höfum neglt fyrir
glugga, þá lekur viða.
Hætt er við, að veggir springi,
þegar vatnið frýs , ef ekki er hiti
á húsum. „Það væri hörmulegt”,
segir Sveinn ,,ef húsin skemmd-
ust nú á þennan hátt, þegar svo
mikið hefur verið lagt til að
vernda þau i öðrum efnum”.
Um 40 iðnaðarmenn frá Eyjum
hafa unnið sleitulaust siðustu þrjá
sólarhringa að þvi að koma hita á
húsin. Sveinn segir, að fleiri
þurfi, smiði og rafvirkja, og
komi þeir vonandi um hæl._HH
- og óvíða fundarfœrt
nema hjó þeim sem
œtluðu að hœtta
að reykja
spurðist fyrir um, að eigendur
þeirra töldu það engu lagi likt.
Kotinu væri þar ótvirætt um að
kenna.
Umferð um bæinn lagðist lika
að miklu leyti niður á þeim
klukkutima, sem kvikmyndin
var i sjónvarpinu. Um það vitna
lögreglumenn, sem áttu vakt.
Og samkvæmt upplýsingum
fjarskiptastöðvar lögreglunnar
var ekki um nein umferðar-
óhöpp að ræða á þeim klukku-
tima.
Aðeins annað leikhúsa
borgarinnar var með leik-
sýningu i gær og var uppselt á
þá sýningu, en miðasala hafði
lika farið fram nokkru áður en
sýning Brekkukotsannáls var
auglýst.
Þá kvarta margir þeir, sem
stóðu að fundum og mannfögn-
uðum undan dræmri aðsókn
fram að þvi, að sýningu Brekku-
kotsins var lokið.
Vænta má þess, að fyrr-
nefndir hafi allan varann á,
þegar siðari hluti annálsins
verður á dagskrá sjónvarpsins
næsta sunnudag....
Aðeins vitum við um eina
samkomu, sem ekki lét
Brekkukotið hafa áhrif á sinn
gang, — það var fundurinn með
þeim, sem nú ætla sér að hætta
að reykja, með tilsögn danska
læknisins Jens D. Hendriksen.
1 Norræna húsinu var húsfyllir
strax á fyrsta kvöldi, en sá
fundur hófst einmitt á sama
tima og sjónvarpsleikritið.
—ÞJM—