Vísir - 12.02.1973, Síða 6

Vísir - 12.02.1973, Síða 6
6 Vísir. Mánudagur 12. febrúar 1973. VÍSIR Otgéfandi: Reykjaprent hf. Framkvæmdastjóri: Sveinn R. Eyjólfsson Ritstjóri: Jónas Kristjánsson Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson Ritstjórnarfulltrúh Valdimar H. Jóhannesson ■S Auglýsingastjóri: Skúli G. Jóhannesson Auglýsingar: Hverfisgötu 32. Simar 11660 86611 Afgreiösla: Hverfisgötu 32. Simi 86611 Ritstjórn: Siöumúla 14. Simi ^6611 (7 linur) Askriftargjald kr. 225 á mánuöi innanlands i lausasölu kr. 15.00 eintakið. Blaðaprent hf. Gott en ekki fullkomið Samkomulagi þingflokkanna um myndun Við- lagasjóðs Vestmannaeyja hefur verið fagnað i öllum dagblöðunum, svo sem við var að búast. Samkomulagið náðist með góðum vilja allra aðila. Þingflokkarnir skildu nauðsynina á að slá af sjónarmiðum sinum til að alger samstaða næð- ist. En þar með er ekki sagt, að allir aðilarnir, sem stóðu að samkomulaginu, séu fyllilega ánægðir með það i einstökum atriðum. Höfuðkostur samkomulagsins er sá, að með þvi er tryggt, að útvegaðir verði tveir milljarðar króna, fyrir utan gjafir og lán, til að greiða tjón, kostnað og uppbyggingu i sambandi við eldgosið i Heimaey. Með þessu mikla fjármagni hefur þjóð- félagið i reynd tekið á sig endurtryggingu á tjóni Eyjamanna. Þetta eina atriði er svo mikilvægt, að öll önnur ágreiningsefni falla i skuggann. Annar mikill kostur samkomulagsins er sá, að það f jallar eingöngu um þau vandamál, sem eld- gosið hefur i för með sér, en ekki um þau almennu efnahagsvandamál, sem riktu hér fyrir gosið. Þetta er mikilvægt fyrir Vestmannaeyinga. Það er minni hætta á, að þeim verði kennt um atriði, sem eru þeim óviðkomandi. Ef farið hefði verið eftir þvi ráði rikisstjórnarinnar að lauma alls konar óvinsælum ráðstöfunum undir hatt Við- lagasjóðs, hefði hið jákvæða viðhorf almennings til sjóðsins snúizt við. Stjórnarandstöðunni tókst sem betur fer að hindra þetta. Helzti ókostur frumvarpsins, sem samkomulag varð um, er hins vegar sá, hvað það gerir ráð fyr- ir litlum sparnaði hjá hinu opinbera. Þegar hinn sameiginlegi sjóður þjóðarinnar verður skyndi- lega fyrir miklum, óvæntum útgjöldum, er eðli- legast, að hann dragi úr útgjöldum á öðrum svið- um. Með þeim hætti eru byrðarnar sársauka- minnstar fyrir þjóðina. Af milljörðunum tveimur eru það aðeins 320 milljónir, sem felast i niðurskurði hjá riki og op- inberum sjóðum. En 1680 milljónir fást með nýrri skattlagningu á fólkið i landinu. Rikisstjórnin vildi engan niðurskurð, aðeins skattlagningu, en samningamönnum Sjálfstæðisflokksins tókst að knýja fram dálitinn sparnað. Nutu þeir þar stuðnings i upprunalegum tillögum sérfræðinga rikisstjórnarinnar um 500 milljóna króna niður- skurð og i upplýsingum fróðra manna um, að 1000 milljón króna niðurskurður væri mögulegur. Eftir 1000 milljón króna niðurskurðinn hefði það átt að vera næsta verkefni rikisins að útvega sér 1000 milljón króna lán erlendis til langs tima, svo að þjóðin gæti dreift byrðum sinum af völdum eldgossins á sem lengstan tima. Þannig hefði verið unnt að ná tveimur milljörðum fyrir utan gjafafé og nýja skatta. Þá hefði verið hægt að hafa skattaálögurnar sem þrautavara i bakhönd- inni, ef útgjaldaþörf Viðlagasjóðs reyndist fara verulega langt fram úr upprunalegri áætiun. Ofangreind fjáröflun hefði verið þjóðinni og þá ekki sizt Eyjamönnum mun aðgengilegri en sú, sem farin var. En rikisstjórnin hélt fast við skatt- lagningarstefnuna i samningum þingflokkanna um frumvarpið. Henni þótti greinilega nóg að láta knýja sig til að losa almennar efnahagsað- gerðir úr tengslum við Viðiagasjóð, þótt hún væri ekki krafin um opinberan sparnað þar á ofan. t þessum hópi hermanna Otlendingaherdeildarinnar, sem gafst upp viö Dien Bien Phu, voru margir lið- hlaupar, — en þeir höföu strokiö frá rólegri varöstöðum til þess aö komast i bardagana. Liðhlaup Útlendinga herdeildar- mnar Það er sagt, að aðeins eitt sé erfiðara en að vera i útlendingaher- deildinni frönsku.... og það er að komast úr henni aftur, áður en fimm ára herskyldutim- inn er útrunninn. Tvær ævintýralegar flóttatil- raunir núna nýlega hafa aftur beint augum manna að útlend- ingaherdeildinni, sem meira og minna hafði fallið i gleymskunnar dá, eftir aö Frakkar stórfækkuðu i henni um leið og þeir urðu á burtu úr Algfr. Einkum er þaö liöhlaupavanda- mál herdeildarinnar, sem mest ber á góma, en þaö hefur jafnan vaxiö stórlega á þeim timum, sem „of” mikill friður hefur verið i heiminum. Of mikill — ef litið er á málið augum þeirra, sem þurfa að hafa aga á þúsundum svaka- fenginna dátai. Tveir þýzkættaðir „legionerar” hlupust á brott í siðasta mánuði frá herdeild sinni á Korsfku. Þeir stungu sér fram af áttatiu metra háum kletti og ætluðu að synda þrettán kilómetra breiða sund sem skilur að Korsiku og Sardinu — og frelsið! Svoldiö frelsi það! Annar þeirra beið samstundis bana, þegar hann snerti hafflöt- inn eftir þetta feikilega fall, með- an hinn rotaðist einungis, og varð bjargað meðvitundarlausum um borð i fiskibát. Fáeinum dögum siðar var einn af dátum Útlendingaherdeildar- innar, griskættaður ungur maður, skotinn til bana á flugvellinum við Calvi á Krosiku, þegar hann gerði tilraun til þess að ræna flug- vél. Staddur á heræfingu hafði hann gripið tösku fulla af hand- sprengjum, stokkið upp i jeppa, sem bar að æfingavellinum, og neytt bilstjórann og félaga hans til þess aö fylgja sér á flugvöllinn, þar sem biðu hans ævilokin. Eftir aö herdeildin flutti aöal- bækistöövar sinar Sidi-Bel-Abbas i Norður-Afriku til Korsiku hafa verið geröar þúsundir tilrauna til liöhlaups, eftir þeim upplýsingum að dæma, sem siast hafa frá her- stjórninni. Flestir, sem reyna aö strjúka, leitast einfaldlega við að fela sig um borð i einhverri ferj- unni, sem ganga á milli Frakk- lands og Korsiku yfir sumar- mánuðina. Með þessum ferjum fara oft stórir hópar þýzkra ferðamanna, sem eru á leið heim úr orlofsferð á Korsiku, og „legi- onerarnir” sem af einhverjum ástæðum eru æði margir þýzkir, blanda sér oft i hóp landa sinna. Illlllllllll m mm Umsjón: Guðmundur Petursson En nokkrir hafa drukknað i til- raunum sinum til þess að synda til Sardiniu, eða eftir að hafa lagt af stað i siglingu á vindsængum. Fjórir menn, sem aðeins höfðu veikan grun um, hvernig stjórna átti flugvél, stálu einni einkavél og settu stefnuna á Sardiniu, þar sem þeir stórslösuðust i við- vaningslegri lendingu. Það þarf ekki að vera fákænn maður, sem léti sér detta ihug, að þessi liðhlaup stöfuðu af rag- mennsku hermannanna, en þvi er reyndar allt öðru visi varið. Það er meira að segja talið öllu rétt- ara, að margir liðhlaupar séu hinir kjörkuðustu menn, þvi að þeir leggja sig oft i hinn mesta házka á flótta sinum, og siðan blasir við þeim þindarlaus felu- leikur, þvi að yfir þeim vofa ströng viðurlög. Og þessir dátar, sem eru að reyna að strjúka frá Útlendinga- herdeildinni á Korsiku, eru i engu frábrugðnir þeim „legionerum”, sem 1954 struku frá herflokkum sinum af öruggri varðstöðu I Indó-KIna til þess að geta sam- einast fallhlifasveitum Otlend- ingaherdeildarinnar, er voru innikróaðar af óvinum I umsátr- inu um Dien Bien Phu. — Þessi liðhlaup eru nefnilega ekki alltaf aftur fyrir viglinuna og i skjól, heldur jafnoft og öllu frekar fram I fremstu viglinu, þar sem orustan dynur. í frönsku Otlendingaherdeild- inni bjóða sig fram menn sem vilja berjast, og þrifast ekki sér- lega vel á friðartimum. Þessi herdeild hefur i skáldsögum verið rómuð svo, að um hana leikur ævintýrablær, en I reyndinni eru æðimargir hermannanna vand- ræðamenn og hrottafengnir rudd- ar, sem ýmsir friðsamlegir borg- arar teldu öruggast að geyma á bak við lás og slá. Enda ekki fritt við, að margir þeirra hafi skráðst i Útlendingaherdeildina til þess að komast undan armi laganna. Þjálfun þeirra er geipi ströng, og enn strangari á þeim timum, þegar hermennirnir geta ekki eytt orkunni i bardögum. Af skiljanlegum ástæðum hefur herdeildin ævinlega átt i erfiö- leikum með aö hafa hemil á mönnum sinum á friðartimum. Það hefur alla tiö fylgt henni frá þvi aö hún var sett á stofn 1831. Hermennirnir, sem sneru heim frá Indó-Kina 1954 og ’55, voru látnir halda sig neðan þilja, þegar liðsflutningaskipin sigldu með þá I gegnum Súezskuröinn, eftir að nokkrir þeirra höfðu við fyrri tækifæri stokkið þar fyrir borö. Stuttu siðar brauzt hinsvegar uppreisnin út I Algir, og Otlend- ingaherdeildin var stækkuð unz hún náði þeim hámarksfjölda, sem hún hefur nokkurn tima haft — 40.000 manna her. Margir þeirra, sem strokið höfðu eftir lok Indó-KInastyrjaldarinnar, sneru þá aftur til herdeildarinnar til þess að vera með i bardögunum I Algir. I dag eru það um það bil 10.000 hermenn, sem staðsettir hafa verið i Otlendingaherdeildinni á svo afskekktum stöðum sem Madagaskar, Tahiti og frönskum yfirráðasvæðum meðfram strönd Austur-Afriku. Nýlega var þeim att fram i Chad, þar sem þeir að- stoðuðu Francois Tombalbaye forseta við að bæla niður uppreisn hirðingjaættflokka. Dátar Útlendingaherdeildar- innar þykja harðskeyttir á vig- vellinum, og þeir eru jafn harð- hentir i tómstundum sinum. I þeim hléum, sem urðu á Indó- Kina-stríöinu, styttu þeir sér stundir við leik, sem þeir kölluðu „La Chandelle” (kertaljósið), en hann endaði oft með ósköpum. „La Chandelle” sem dátarnir gripu helzt til I fyllerii, lá i þvi að slökkva á kerti, sem komið hafði verið fyrir uppi á höfði eins þátt- takendanna — en slökkvitækið var skammbyssa. Menn sem bera svo litla virð- ingu fyrir eigin lifi, meta ekki lif fjandmannanna mikils, enda eru til margar sögur af grimmd þess- ara dáta, meðan á dvöl þeirra stóð I Indó-Kina og Algir.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.