Vísir - 12.02.1973, Qupperneq 9
Vlsir. Mánudagur 12. febrúar 1973.
9
Þrjú mörk í lokin
tryggðu FH sigur!
— Stemning í Hafnarfirði í gœr og sovézka landsliðið hafði
yfir 20-19 þegar rúm mínúta var til leiksloka
FH-ingar tóku á honum
stóra sínum lokamínútuna í
viðureigninni við sovézka
landsliðið í íþróttahöllinni í
Hafnarfirði í gær. Þeir
sneru þá taflinu alveg við
— skoruðu síðustu þrjú
mörk leiksins og breyttu
stöðunni í 20-19 fyrir Sovét-
menn í 22-20 sigur FH- —
allt á síðustu 70-80
sekúndunum. Að visu nutu
þeir velvilja Magnúsar
dómara Péturssonar, þegar
þeir jöfnuðu í 20-20, en
Magnús dæmdi þá vítakast
á þá sovézku, sem var
vægast sagt mjög strangur
dómur. Grúsíumennirnir
hristu höfuðin vantrúaðir
á dóm Magnúsar og Geir
skoraði örugglega úr víti
Nokkrum sekúndum siöar
stökk Geir hátt uppfyrir sovézku
vörnina og hörkuskot hans hafn-
aöi i markinu — siöan náðu FH-
ingar knettinum á ný, Þórarinn
brunaði upp og illa var brotið á
honum. Hann skoraði úr vitinu og
sanngjarn sigur FH var i höfn.
Stemningin var gifurleg og þeir
kunna sannarlega að fagna,
Hafnfirðingar, þegar FH-ingar
sigra. Leikurinn var tvisýnn nær
allan timann — FH-ingar höfðu
betur framan af og allt fram að
leikhléinu, en siðan föru Grúsiu-
mennirnir að sýna klærnar og
komust fljótt yfir i siöari hálfleik
— höfðu oft eitt til tvö mörk yfir.
Þetta kom mörgum á óvart, þvi
aðalmaður liðsins frá lands-
leikjunum, Dzhemal Tsetsvadze,
lék aðeins fyrsta stundarfjórð-
unginn og kom ekkert inn á siðari
hálfleikinn. 1 landsleikjunum
snerist allt i kringum hann — en
nú sýndu Grúsiumenn oft á tiðum
góðan leik án hans.
FH-liðið lék oft bráðskemmti-
lega i þessum leik, en afar slök
markvarzla Hjalta Einarssonar
kom i veg fyrir , að þeir koll-
sigldu þá sovézku — og Birgir
Finnbogason var ekki mikið
skárri þá loks hann leysti Hjalta
af i siðari hálfleiknum.
Fyrir Gunnar Einarsson, hinn
17 ára FH-ing, var leikurinn
mikill persónulegur sigur. Þessi
ungi piltur lék hreint snilldarlega
og á hiklaust heima i landsliðinu,
þó það verði ekki i bráð vegna
unglingalandsliðsins. Gunnar
jafnvel skyggði á „konung
islenzks handknattleiks”, Geir
Hallsteinsson i þessum leik og lék
Geir þó mjög vel. Einnig er sam-
vinna þeirra á velli frábær oftast
— enginn leikmaður virðist
„skilja” Geir jafnvel og Gunnar
og falla inn i snilldarleik hans.
Já, þessir tveir eiga eftir að
vinna stórvirki fyrir FH og
islenzka landsliðið. Kannski
byggist leikur FH þó of mikið á
þeim — en varð þó að gera það,
þvi Viðar Simonarson var i miklu
„óstuði” og skoraði ekki nema
eitt heppnismark — alltof mörg
skref — úr fjölmörgum skotum.
Þetta kom á óvart, þvi Viðar
hefur sýnt stórgóða leiki að
undanförnu. Auðunn var að
vanda mjög drjúgur og sama er
að segja um Birgi, þó hann lenti á
villigötum um tima. Birgi var
visað af leikvelli þegar 4 min,
voru eftir og hefði það getað orðið
afdrifarikt, kom að sök eins
og ieikurinn þróaðist.
Mörk FH i leiknum skoruðu
Geir 7 ( 3 viti ), Gunnar 6, Ólafur
Einarsson 3 Auðunn 2, Birgir 2
Viðar logÞórarinn 1 (viti). Fyrir
Sovétrikin lék litli Bunadze
snilldarlega og skoraði 6 mörk.
Chkonija var Hjalta afar erfiður
og skoraði 5 mörk. Aðrir voru
með færri mörk. Dómararnir
Magnús og Valur Benediktsson
komust sæmilega frá leiknum —
þó ekki meira. — hsim.
Heimsmet
Puttemans
Belginn Emile Puttemans setti
nýtt heimsmet i 3000 metra hlaupi
innanhúss móti i Leiden i Holl-
andi á laugard. Hann hljóp vega
lengdina á hinum frábæra tima
7:45.2 min., en eldra heimsmetið
átti Englendingurinn Ricky Wilde
7:47.0 min. Puttemans átti um
tima heimsmetið utanhúss I 3000
metrum og er nú heimsmethafi i
5000 metra hlaupi.
Auðunn hindrar Shiereli að skora — Gunnar Einarsson er til hægri.
Ljósmynd Bjarnieifur.
Skíðamótum frestoð
en fótbolti leikinn!
— og landsliðið og Breiðablik sýndu oft stórkostleg tilþrif
Meðan skiðamótum
var frestað suðvestan-
lands i gærdag vegna
veðurs, létu Breiða-
bliksmenn og lands-
liðsmenn þetta ekkert
aftra sér, og léku á
Kópavogsvelli. Og ekki
aðeins það, — leikur
liðanna var alveg furðu
góður, boltinn gekk á
milli, samspil náðist oft
með ágætum, og
sóknarloturnar voru af
meiri tilþrifum en oft
sést við beztu skilyrði á
sumrin. Ágætur leikur,
og svo spennandi að
áhorfendur timdu
tæpast að yfirgefa
hann, enda þótt veðrið
væri stundum slikt, að
varla sæist út á völlinn.
Ekki gekk vel að skora fyrstu
mörkin. En loks þegar um
stundarfjórðungur var eftir af
hálfleik skoraði Þorvaldur
Baldursson, skaut beint eftir
hornspyrnu. Þá hafði Breiðablik
sótt stiftog áttfrábær skot, sem
voru varin af mikilli leikni. Þá
hafði landsliðið lika átt sin stór-
kostlegu tækifæri á að skora, en
segja má að markverðirnir hafi
staðið sig vel. Eiginlega strax á
eftir skorar svo Hreiðar Breið-
fjörð 2:0 fyrir heimaliðið með
ágætu skoti, sem hann sneiddi
boltann með i netið.
1 seinni hálfleik var Matthias
ekki lengi að jafna fyrir lands-
liðið. Tvivegis á eitthvað 3-4
minútum var hann kominn i
gegnum vörnina og afgreiddi
laglega i netið, — og staðan var
nú 2:2.
Það var svo ekki fyrr en
skömmu eftir miðjan seinni
hálfleik að Breiðablik nær aftur
forystunni, Ólafur Friðriksson
skorar upp úr horni, svipað
mark og fyrsta mark liðsins.
Þetta jafnaði Matthias Hall-
grimsson svo fljótlega.
Reyndar átti Kópavogsliðið
mun meira i leiknum i seinni
hálfleik og var nær sigri að
minu viti. En i knattspyrnu er
ekki spurt um hver eigi i
leiknum, — heldur hverjir
skora. Þegar aðeins 2 minútur
voru eftir, skorar Ásgeir Sigur-
vinsson laglega 4:3 fyrir lands-
liðið, — og svo aftur minútu
siðar er Gisli Torfason með
langt skot og markvörður
Breiðabliks er klaufalegur og
slær boltann upp i netið. Þar
með var leiknum lokið með 5:3
sigri landsliðsins.
Leikur liðanna lofar sannar-
lega góðu um áframhaldið, og
satt að segja hef ég ekki fyrr séð
Breiðabliksliðið i svo góðu
formi, og ekki fyrr séð það sýna
svo jákvæð tilþrif i samleik
sinum.
—JBP—
Langminnsti maðurinn á vellinum í gær, Zaur Bunadze, sýndi mjög
góðan leik og skoraði sex mörk. Hér var Gils Stefánsson of seinn til
varnar. Ljósmynd Bjarnleifur.
GJAFA-
VÖRUR
Við hðfum aidrei getað boðið
jafn mikið vðruúrval og nú
handunnar og mótaðar.
Mikið úrval.
á fæti, 3 tegundir.
óbreytt verð.
skreyttir með 22ja karata
gullhúð og postulínsblóm-
um. Þessir vasar hafa
ekki fengizt hér i mörg ár.
frá Tékkóslóvakiu, á
postlllínsstyttur m.iög góðu verði.
Mokkabollar t mimrtur, verð frá kr.
olo.-
Keramikvasar margar gerðir.
w
TREVÖRUR handunnar
Þetta er lítið sýnishorn af
fjðlbreyttu gjafaúrvali.
Krisfalsvörur
Ávaxtaskúlar
Kristalsvasar
Hvítar
Vörur fyrir alla - verð fyrir alla
4 TÉKK - KRISTAIL
Skólavörðustig 16 simi 13111