Vísir - 12.02.1973, Síða 12

Vísir - 12.02.1973, Síða 12
12 Vísir. Mánudagur 12. febrúar 1973. ARSENAL SKAUT UV- ERPOOL AF TOPPNUM! — Fyrsti tapleikur Liverpool á heimavelli í þrettán mánuði eða frá 2. janúar 1972. i fyrsta skipti i rúma 13 mánuði — eða frá því 2. janúar 1972 — tapaði Liverpool leik á heima- velli, fyrsta tapið í 33 leikjum. Og það var auð- vitað helzti keppinautur Liverpool um enska meistaratitilinn, Arsenal, sem vann frægan sigur á Anfield á laugardaginn — verðskuldaðan sigur 2-0, þar sem Arsenal lék frá- bærlega vel við hinar erf- iðustu aðstæður. Við sig- urinn komst Arsenal í efsta sætið í deildinni og það verður erf itt — ef það reynist þá möguiegt — að koma Lundúnaliðinu af toppnum. I fyrsta skipti í fimm mánuði er Liver- pool nú ekki í efsta sæti 1. deildar, en liðið hefur þó tapað fæstum stigum, ásamt Leeds, liðanna í deildinni. Pressan hefur veriö mikil á leikmönnum Liverpool þessa slöustu mánuöi og greinilegt, aö taugar þeirra eru nú i hinu mesta ólagi eins og töpin fyrir Úlfunum, Manch. City og nú Arsenal bera meö sér. Liverpool hefur ekki unniö leik i deildinni siöan 6. janúar og fram- kvæmdastjóri liösins veröur að grlpa til róttækra aögeröa ef ekki illa á að fara. Arsenal lék vel á laugardag- inn — mun betur en Liverpool og þrir menn i liöinu báru af. Alan Ball þeyttist óþreytandi um allan völlinn eins og I heims- meistarakeppninni 1966, fyrir- liöinn Bob McNab var afar traustur I vörninni og stjórnaöi 'iöi sinu mynduglega, og John Radford lék vörn Liverpool oft grátt. Ekkert mark var skorað i fyrri hálfleiknum, en I þeim sið- ari fór pressa Arsenal aö segja til sin. Fyrsta markiö skoraöi Alan Ball úr vitaspyrnu á 63. min. George Armstrong haföi leikiö með knöttinn inn I vita- teig, þegar Lindsey brá honum — algjörlega óþarft atvik, þvi engin hætta var yfirvofandi. Og á 70. min. innsiglaöi Radford sigurinn. Hann einlék á fjóra varnarmenn, siöan á Clemence markvörö og renndi knettinum i mark. A meöan á þessu stóö var Leeds aö tapa i Leicester — og glataöi þar meö dýrmætum stigum og möguleika aö draga á efstu liðin. Leeds-liðiö var slakt i leiknum og sigur Leicester aldrei i hættu. Kappinn frægi, Alan Birchenall, skoraöi bæöi mörk Leicester — hiö fyrra á 22. min. eftir fallega sóknarlotu, en hiö siöara á 56. min. Við sigur- inn færöist Leicester af mesta hættusvæöinu i 1. deild og bjarg- ar sér örugglega frá falli. Leeds varö einnig fyrir ööru áfalli I leiknum — Norman Hunter var bókaöur af dómara i sjöunda sinn á keppnistimabilinu. En nú er vist kominn timi til aö llta á úrslitin á getraunaseðl- inum. 1 Birmingham-Derby 2-0 1 Chelsea-Sheff.Utd. 4-2 1 Leicester-Leeds 2-0 2 Liverpool-Arsenal 0-2 1 Manch.City-Wolfes 2-1 X Newcastle-Coventry 1-1 Það er ýmislegt i þessari mynd. Alec Lindsey, bakvöröur Liverpool, sem fékk á sig óþarfa vltaspyrnu gegn Arsenal á laugardaginn, viröistþarna vera aö sparka i sitjandann á Tommy Baldwin, Chelsea, og annar leikmaöur Chelsea hefur skipt á höföinu og knettinum. 2 Norwich-West Ham 0-1 X Southampton-Everton 0-0 — Stoke-Ipswich frestað 2Tottenham-Manch.City 2-3 2 WBA-C.Palace 0-4 X Nottm.For.-QPR 0-0 Manch. Utd. vann sinn fyrsta sigur undir stjórn nýja fram- kvæmdastjórans, Tommy Docherty. Það var kempan Bobby Charlton, 35 ára, sem lagöi grunninn aö þeim sigri — skoraöi bæöi mörk Manch.Utd. við mikinn fögnuö rúmlega 50 þúsund áhorfenda á Old Traf- ford. En liöiö varð að biöa lengi eftir þessum fyrsta sigri með Docherty. Á 57. min. var dæmd vitaspyrna á miövörö Úlfanna, Munro, sem leikmenn liösins mótmæltu ákaft. En allt kom fyrir ekki og Charlton skoraði örugglega úr vitaspyrnunni. Fjórum min. siöar var hann svo aftur á feröinni með eitt af sin- um frægu þrumumörkum. En leikurinn varö strax aftur spennandi. A 65 min. hlupu þeir saman miöverðirnir hjá United, Holton og Buchan, misstu af knettinum, sem rann til Danny Hegan og hann lyfti honum örugglega yfir Stepney i mark- ið. Spenna var mikil lokakafl- ann en fleiri mörk tókst liöunum ekki aö skora og Manch.Utd. vann verðskuldaðan sigur, —1 fyrsta sigurinn i átta leikjum. Úrslitin, sem vekja mesta at- hygli, eru hiklaust stórsigur C.Palace i West Bromwich — fyrsti útisigur Lundúnaliðsins og hvilikur sigur! Mikil tauga- spenna var I fyrri hálfleik i þessum fallbaráttuleik og þá var þaö aðeins góö markvarzla John Jackson, sem kom i veg fyrir mörk WBA. 1 siöari hálf- leik snerist leikurinn Palace i vil og eftir aö Alan Whittle hafði skorað fyrsta markiö á 55. min. var aöeins eitt liö á vellinum. Drifiö áfram af Charlie Cooke sótti Palace ákaft og vörn WBA gaf eftir. Derek Possee skoraði. annað mark liösins á 66. min. siöan var Whittle aftur á ferð- inni og tveimur minútum fyrir leikslok skoraöi Possee fjórða markið — auðvelt mark, þar sem vörn WBA hreyföi sig ekki. Derby-liöiö var i molum eftir sigurinn glæsilega gegn Totten- ham i miöri viku I bikarkeppn- inni. Fimm af aðalmönnum léku ekki gegn Birmingham vegna meiðsla — og Birmingham vann auðveldan sigur. Deildameist- ararnir náöu ekki saman meö þessu mikla varamannaliöi og á 29. min. náöi Bob Latchford for- ustu fyrir Birmingham. Þremur min. eftir leikhlé skoraöi Trevor Francis, sem lék nú sinn fyrsta leik i aöalliöinu á þessu ári, ann- að mark Birmingham og eftir það var ekki vafi á hvort liðiö færi meö sigur af hólmi — fyrsti sigur Birmingham siöan I nóvember. Útlitiö dökknar stööugt hjá Norwich — liöið hefur ekki unn- ið leik siöan 18. nóvember, þeg- ar það vann WBA 2-0 á heima- velli. Norwich hefur aðeins hlot- ið tvö stig I siöustu 11 leikjunum — tvö jafntefli heima gegta Úlfunum og Manch.City — og með sama. áframhaldi getur ekkert nema fall niöur i 2. deild aftur beöiö liösins. Þaö tapaöi enn á laugardag — fjóröi tap- leikurinn I röö — og þaö var Brian Robson, marklræsti leik- maöurinn i 1. deild, sem skoraði eina mark leiksins á 32. min. Þaö var 21. mark hans i deilda- keppninni i vetur og færði West Ham tvö góð stig. Chelsea, sem aöeins haföi unniö einn leik i 1. deild af 13 siöustu, hlaut góöan sigur gegn Sheff.Utd. á Stamford Bridge og það voru þeir Bill Garner og Chris Garland, sem skoruöu mörk Chelsea. Garland lék nú með aö nýju eftir nokkra fjar- veru vegna meiðsla. Hann skor- aöi strax á 4. min. leiksins, og siöan á lokaminútunni, en inn á milli skoraði Garner tvivegis. Þessi ungi piltur, sem var miö- herji hjá Southend I fyrra og lék þá i 4. deild, er nú aö veröa aöal- markskorari Chelsea. I sjón- varpsleiknum i gær gegn Ips- wich sáum viö tvö mörk hjá honum. Leikurinn var talsvert spennandi á „Brúnni” á laugar- daginn, þvi Sheff.Utd. skoraði tvivegis — fyrst bakvöröurinn Ted Hemsley á 43. min. og slöan Bill Dearden á 74. min. Garner skoraöi á 22. min. og 74. min. Mikill varnarleikur einkenndi leik Newcastle og Coventry á laugardag — aöeins I eina min- útu fengu áhorfendur eitthvaö skemmtilegt að sjá. Á 24. min. náði Colin Stein forustu fyrir Coventry, en aöeins 35 sek. siöar jafnaöi Stewart Barrowclough fyrir Newcastle og þar viö sat. Einn skemmtilegast leikurinn var á White Hart Lane og enn tapaði Tottenham. Ensku lands- liðsmennirnir hjá Manch.City, Rodney Marsh og Francis Lee, voru hreint frábærir. Marsh náði forustunni fyrir liö sitt á 18. min. þegar hann náöi langsend- ingu fram og renndi knettinum i markiö. Tottenham jafnaöi á 32. min. eftir varnarmistök og Chivers skoraði. 1 siöari hálf- leiknum var Lee óstöövandi — hann skoraði tvivegis, fyrst á 53. min. og siöan á 74. og átti auk þess hörkulegt stangarskot. Leikmenn Tottenham mót- mæltu mjög síðara marki Lee — sögöu hann hafa lagaö knöttinn fyrir sér meö höndunum, og Martin Peters var svo ákafur I mótmælum sinum, aö dómarinn bókaöi hann. Martin Chivers skoraði annað mark sitt i leikn- um á 80. min. og Tottenham lék það vel i leiknum, og sótti svo miklu meir, aö liðiö var óheppiö aö tapa. Leikurinn i Southampton var betri en markatalan gefur til kynna. Þó ekkert mark væri skorað var leikurinn hin bezta skemmtun. Fyrirliði Dýrling- anna, Terry Paine, átti stangar- skot á 18. min. og á lokaminút- unni munaði sáralitlu, aö Joe Harper næöi báöum stigunum fyrir Everton. Burnley lék mjög vel gegn Hull og jók forustu sina i 2. deild. Liöið vann 4-1 og þaö verður áreiðanlega gott 1. deild- arliö næsta keppnistimabil. QPR var heppið aö ná stigi I Nottingham gegn Forest, en Aston Villa vann Swindon auð- veldlega meðmörkum Evans og Graydon (2). Moss skoraði eina mark Swindon, sem tapaöi þarna óvænt heima 1-3. Aston Villa nálgast nú QPR I 2. deildinni og kannski kemst þetta fræga liö aftur i 1. deild. A myndinni er John Dunne, markvöröur, aö verja skot frá Jimmy Neighbour, Tottenham. Staðan 11. deild er nú þannig: Arsenal 30 17 8 5 42-27 42 Liverp. 29 17 7 5 52-31 41 Leeds 28 16 7 5 50-29 39 Ipswich 28.13 10 5 39-28 36 Newcastle 29 12 8 9 47-38 32 Derby 29 13 6 10 36-40 32 West Ham 29 11 8 10 49-39 30 Manch.C. 28 11 7 10 40-40 29 Southampt. 29 8 13 8 29-30 29 Chelsea 28 9 10 9 39-37 28 Wolves 27 11 6 10 40-39 28 Coventry 28 10 8 10 30-31 28 Tottenham 28 10 7 11 36-34 27 Everton 28 9 8 11 28-26 26 Leicester 29 8 9 12 34-40 25 Sheff.Utd. 28 9 6 13 31-43 24 Norwich 29 8 7 14 26-43 23 Manch.Utd. 29 6 10 13 28-45 22 C.Palace 27 6 9 12 29-34 21 Birmingh. 28 6 9 13 33-44 21 Stoke 27 6 8 13 38-41 20 W.B.A. 27 6 7 14 24-41 19

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.