Vísir - 12.02.1973, Qupperneq 17
Visir. Mánudagur 12. febrúar 1973. 17
í DAG | í KVÖLD | 1 DAG 11kvöld| í DAG |
Hljóðvarp í kvöld kl. 19.25:
FÁMENNI FJÖLMENNI
Vilhelm G. Kristins-
son, fréttamaður,sér um
þáttinn Str jálbýli— Þétt-
býli i kvöld. Þar koma
fram Jón Ben Ásmunds-
son, skólastjóri gagn-
fræðaskólans á ísafirði
og Magnús Ólafsson á
Sveinsstöðum i Húna-
vatnssýslu eystri.
Margir eru þeirrar skoðunar,
að félagslif i strjálbýli sé bæði
litið og fábreytt, og kannski er
það svo sums staðar, en Magnús á
Sveinsstöðum er ekki þeirrar
skoðunar varðandi sýslu þá sem
hann er búsettur i. Hann ætlar að
segja frá ýmsu þvi, sem hefur
verið að gerast og er að gerast um
þessar mundir i félaglifi þeirra
Húnvetninga.
Frekar verður nú Isafjörður að
teljast til þéttbýlis en strjálbýlis.
Þar hefur oftast verið mikil
grózka i atvinnulifi, og þar er
mikið um stórhuga fram-
kvæmdamenn, en eins og
kunnugt er, byggist afkoma ts-
firðinga aðallega á sjávarútvegi.
Jón Ben, skólastjóri, mun ræða
um atvinnulif staðarins, sérstak-
lega með tilliti til vetrarvertiðar
Næst á þessari isafjarðar-
niynd, hérna megin við Sundin,
en svo er innsiglingin nefnd, er
flugvöilur isfirðinga, en hann var
á sinuin tiina staðsettur á svo-
kallaðri Skipcyri. Til vinstri sést
Suðurtanginn, þar sem Skipa-
smiðastöð Marselliusar er, en
hægra incgin er Norðurtanginn.
Beint þar út frá sér i Snæfjalla-
ströndina. Fjallið fyrir ofan
kaupstaðinn lieitir Eyrarfjall.
Fjörðurinn, sein isafjarðarkaup-
staður stendur við, heitir Sktrtuls-
fjörður.
þar að þessu sinni. Þá mun Jón
einnig segja frá félagslifi
tsfirðinga, en þar er fólk félags-
lynt og frjálshuga. Og þó annir
séu oft miklar hjá Isfirðingum,
gleyma þeir ekki að gera sér
glaðan dag stöku sinnum. LTH
Sjónvarp í kvöld kl. 21,20
Ljóðið um lífið og dauðann
i kvöld er sjötti og síðasti
þáttur framhaldsmynda-
flokksins „Sólsetursljóð".
Hann nefnist Ljóðið.
Kristín og Ewan eignuð-
ust son í fimmta þætti, en
það var á árinu 1914. Þá
tóku að berast fréttir af
styrjöld á meginlandinu og
gerðust nokkrir íbúar Kin-
raddiehéraðs þá sjálfboða-
iiðar í hernum, enda kom
líka brátt til almennrar
herkvaðningar.
Ewan sleppur við að vera
kvaddur i herinn af þeirri ástæðu,
að hann yrkir sitt eigið land, en
fljótlega stenzt hann ekki mátið
og lætur skrá sig i herinn.
Þessi siðasti þáttur, Ljóðið, má
segja að gerist i skugga striðsins,
eða með öðrum orðum 1916-18.
Ewan og margir félagar hans
frá Kinraddie voru sendir til
Frakklands, og þar féllu þeir
flestir, þar á meðal Ewan.
Mikil sorg rikir i Kinraddie,
þegar fréttist af dauða þeirra
manna úr héraðinu, sem fóru að
heiman til að striða.
Kristin og sonurinn, sem reynd-
ar heitir Ewan, eru nú ein á
búgarðinum, og auðvitað haldin
djúpri sorg. En Kristin Guthrie
hefur áður kynnzt sorginni og
sársaukanum sem henni fylgir.
Hún hvorki bognar né brotnar,
þvi lifið heldur áfram göngu sinni
þrátt fyrir allt. Og i syni sinum,
Ewan, á hún dýrmæta minningu
geymda, minningu um manninn
sem hún elskaði. LTH
IÍTYARP •
Mánudagur
12. febrúar
13.00 Búnaðarþáttur. Frá
setningu búnaðarþings.
14.15 Þáttur um heilbrigðis-
mál (endurtekinn) Karl
Sigurbergsson læknir talar
um liðagigt eða giktsýki.
14.30 Siðdegissagan: ,,Jón
Gerreksson” eftir Jón
Björnsson. Sigriður Schiöth
les (18)
15.00 Miðdegistónleikar: Frá
tónlistarhátiðum I Frakk-
landi s.l. sumar.
16.00 Fréttir.
16.15 Veðurfregnir. Til-
kynningar.
16.25. Popphornið.
17.10 Framburöarkennsla i
dönsku, ensku og frönsku.
17.40 Börnin skrifa. Skeggi
Asbjarnarson les bréf frá
börnum.
18.00 Létt lög. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.20 Daglegt mál. Indriði
Kristin Guthri hefur hlotiö dýrmætar gjafir, en sorgin hefur ekki
farið framhjá hennar dyrum frekar en margra annarra.
‘.V.V
r*'
m
m
Nl
«»"" r ''t
Tw
U
Spáin gildir fyrir þriðjudaginn 13. febrúar
Hrúturinn,21. marz-20. april. Heldur þunglama-
legur dagur, hætt við að þvermóðska einhvers
náins i fjölskyldunni valdi þér leiðindum eða
jafnvel tjóni, beint eða óbeint.
Nautið,21. april-21. mai. Þú ættir að gefa þvi ná-
inn gaum að hlutur þinn i einhverjum ágóða
verði ekki gerður minni en þér ber. Yfirleitt
munu peningamálin þarfnast aðgæzlu.
Tviburarnir, 22. mai-21. júni. Það litur út fyrir
að þú hafir heppnina með þér, að minnsta kosti
fram eftir deginum, til dæmis að þér takizt að
koma ár þinni vel fyrir borð.
Krabbinn,22. júni-23. júli. Þér verður boðin þátt-
taka i einhverju, fyrirtæki eða öðru, sem þér lizt
ekki nema i meðallagi á, en mundir þó sjá eftir
seinna ef þú prófaðir það ekki.
Ljónið,24. júli-23 ágúst Þú hefur áhuga á ýmsu
þessa dagana, sem litur út fyrir að standa i sam-
bandi við breytt eða nýtt viðhorf þitt gagnvart
framferði vissra aðila.
Meyjan,24. ágúst-23. sept. Svo virðist sem mjög
fast sé lagt að þér að skipta um skoðun á ein-
hverjum málsatriðum. Láttu ekki telja þig á
þess háttar gegn sannfæringu þinni.
Vogin, 24. sept.-23. okt. 1 dag ættirðu að gera þig
ánægðan með það sem þú hefur, en ekki hætta á
neitt i þeim tilgangi að auka það, þar eð það mun
enn ekki timabært.
Drckinn, 24. okt.-22. nóv. Þetta verður allgóður
dagur fram eftir, en þó er ekki útilokað að þú
verðir i eitt skipti fyrir öll að taka afstöðu til
hvimleiðrar hnýsni vissra aðila.
Bogmaðurinn, 23. nóv.-21. des. Dagurinn getur
orðið dálitið þreytandi áður en lýkur. Þú ættir
þvi ekki að leggja of hart að þér fyrst i stað, svo
þú getir aukið átakið.
Stcingeitin,22. des.-20. jan. Þú skalt ekki leggja
of mikla áherzlu á hið ytra útlit hlutanna i dag,
en gefa þvi meiri gaum að þvi hvort þeir séu
vandaðir að allri gerð.
Vatnsberinn, 21. jan.-19. febr. Morguninn getur
orðið nokkuð erfiður, en svo ætti allt að ganga
betur, og ættirðu að haga starfsáætlun þinni allri
nokkuð samkvæmt þvi.
Fiskarnir,20. febrúar-20. marz. Allgóður dagur,
en peningamálin þó enn að einhverju leyti i
óvissu. Beittu rólegri ihugun i þvi sambandi, en
treystu ekki á sérstaka heppni.
i
Gislason lektor flytur
þáttinn.
19.25 Stjálbýli-þéttbýli. Þáttur
i umsjá Vilhelms G.
Kristinssonar fréttamanns.
19.40 Um daginn og vcginn.
Sverrir Kristinsson fram-
kvæmdarstjóri talar.
20.00 islenzk tónlist.
20.30 Jón Trausti — aldar-
minning. a. Vilhjálmur Þ.
Gislason fyrrum utvarps-
stjóri flytur erindi. b. Lesið
verður úr ritverkum Jóns
Trausta og sungin lög við
ljóð eftir hann.
21.40 íslenzkt mál. Endur-
tekinn þáttur Asgeirs
Blöndals Magnúss.onar
cand. mag.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir.
Eyjapistill. Bænarorð.
22.30 Útvarpssagan:
„Ofvitinn” eftir Þórberg
Þórðarson. Þorsteinn
Hannesson les (4)
23.05 Hljómplötusafnið. i um-
sjá Gunnars Guðmunds-
sonar.
23.55. Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.
SJÓNVARP •
Mánudagur
12.febrúar1973
20.00 Fréttir
20.25 Veður og auglýsingar
20.30 „Mainly Magnús” Þátt-
ur, sem Magnús Magnús-
son, sjónvarpsmaður i Skot-
landi, gerði hér á landi fyrir
skömmu. Farið er um land-
ið og brugðið upp myndum
frá ýmsum stöðum. Fjallað
er um gosiö i Vestmanna-
eyjum og rætt við Is-
lendinga og Skota, búsetta
hér. Einnig syngja Fóst-
bræður og Kristinn Hallsson
og félagar úr Þjóðdansa-
félagi Reykjavikur sýna
þjóðdansa. (Islenzka sjón-
varpið og BBC i Skotlandi)
Þýðandi Jón O. Edwald.
21.20 Sólsctursljóð Fram-
haldsmyndaflokkur frá
BBC. I.jóðið, 6. þáttur,
sögulok. Þýðandi Silja Aðal-
steinsdóttir. Efni 5. þáttar:
Kristin og Ewan eignast son
haustið 1914. Fréttir berast
um styrjöld suður á megin-
landinu. Nokkrir Kinraddie-
búar gerast sjálfboðaliðar i
hernum og brátt kemur al-
menn herkvaðning. Langi
Rob þverskallast við boðum
yfirvaldanna og er settur i
fangelsi. Ewan sleppur við
herkvaðningu, þar eð hann
yrkir sitt eigið land, en brátt
stenzt hann ekki mátið og
lætur skrá sig.
22.05 Daglegt lif i Sovétrikjun-
um II. Hér greinir enn frá
lifskjörum og venjum
Sovétborgara og er i þess-
um þætti einkum lýst að-
búnaði og uppeldi yngstu
kynslóðarinnar. Þýðendur
Katrin Jónsdóttir og Jó-
hanna Jóhannsdóttir. Þulur
Karl Guðmundsson. (Nord-
vision — Sænska sjónvarp-
ið)
22.55 Dagskrárlok