Vísir - 12.02.1973, Side 20
VÍSIR
Nýi hraunstraumurinn
„geigar" hjá Yztakletti
— en aðrar totur eru 160 m frá klettinum og 80 m frá hafnargarðinum
Hrauniö skreiö fram i átt aö
Yztakietti i nótt og einnig i átt til
syösta hafnargarösins. Hins
vegar var-skriöiö mest á hraun-
totu, sem „geigar” fram hjá
Yztakletti aö austan og er þvi
ekki talið, að sá straumurinn ógni
innsiglingunni.
Hrauntanginn, sem stefnir á
Yztaklett, hafði mjakazt fram um
eina 20 metra. Voru- um 160
metrar milli hans og klettsins. Þá
hafði totan, sem stefnir i norð-
vestur að hafnargarðinum, færzt
fram um tuttugu metra siðan i
fyrradag, og voru 80 metrar til
garðsins i morgun.
Hraunrennslið var I morgun
hægt i átt til garðsins, og rennslið
i átt til Yztakletts hafði stöðvazt.
Hins vegar hélt rennslið áfram i
norðaustur, þar sem það stefnir i
vinkil út og handan Yztakletts á
sjó út. —HH
Sýningamenn sjónvarpsins viö myndsegulbandið i gærkvöldi. Liklega hafa þeir ekki fyrr rennt I gegn bandi meö efni, sem meira var
(Ljósm. Vísis BG)
beöiö eftir.
„HORFÐI A ÞAÐ MEÐ
ÖÐRU AUGANU
## Rœtt við afann og
ömmuna í Brekkukoti
Mánudagur 12. febrúar 1973.
Þjófar höfðust
ekki að um
helgina í
veðurofsanum
Óvenju litið var um innbrot I
borginni um helgina, hvort sem
þaö var hinu slæma veðri eöa
einhverju ööru að þakka.
A nokkrum stöðum höfðu verið
brotnar rúður og stolið eitt til tvö
hundruð krónum. Þá var brotizt
inn i Billjardstofuna að Einholti 1
og stolið þaðan nokkrum
kartonum af sigarettum og öðru
tóbaki. Brotin hafði verið rúða og
farið þannig inn, en ekkert hafði
verið skemmt.
Þrátt fyrir slæmt veður og færð
um helgina varð ótrulega litið um
slys og árekstra að sögn lögregl-
unnar. Að sögn hennar er yfir-
leitt minna um árekstra og slys,
þegar hálka er og færð slæm þar
sem ökumenn gæta sin yfirleitt
betur og fara varlegar undir
slikum kringumstæðum. —ÞM
Rak út úr
höfninni og
upp í f jöru
Það óhapp varð sl. nótt, að 47
tonna bátur, Skjöldur HE 80, losn-
aöi, þar sem hann lá i höfninni I
Njarðvik og rak upp í fjöru.
Ekki er að fullu vitað, hvernig
báturinn hefur losnað, en mjög
slæmt veður var, er atburðurinn
átti sér stað. Bátinn rak út úr
höfninni og upp i fjöru, en ekki er
enn vitað um skemmdir á honum.
Enginn maður mun hafa verið um
borö, þegar þetta gerðist.
Eigendur bátsins hafa áður orðið
fyrir svipuðu óhappi með skip,
sem þeir áttu.
—ÞM
Veitingamenn
í Eyjum
fó aðstoð
Danskir veitingamenn hafa
sent kollegum i Vestmannaeyjum
20 þús. danskar krónur, eða rétt
um 300 þús. íslenzkar og óskar
félag þeirra Centralforeningen af
Hotelværter og Restauratörer i
Danmark að fjárhæöinni verði
varið þeim til aðstoöar vegna hins
mikla tjóns sem þeir biða.
Guðlast
eður ei?
... ii« i.i'.t .... i
„Hafið þið ekki heyrt
um Jesúbyltinguna á
Patreksfirði?” sagði
maður einn, sem hringdi
i blaðið i morgun. Ekki
vildi sá gefa upp nafn
sitt, en við báðum hann
samt að segja okkur allt
af létta.
„Það er i kennslunni hér i
barnaskólanum, sem byltingin
er”, sagði maðurinn. „Og þetta
hefur gengið svo langt, að
sóknarpresturinn tók það fyrir i
stólræðu”.
Þegar við spurðuin, i hverju
þetta mál lægji, voru nefndar
spurningar, sem verið hefðu á
Þaö er ný reynsla fyrir flesta
Islenzka leikara aö leika i kvik-
mynd, en sumir þeirra hafa
fengiö aö spreyta sig i nokkuö
rikum mæli viö gert myndar-
innar Brekkukotsannáls.
Þar sem rætt eru urrt fyrri
hluta myndarinnar á vinnu-
stöðum og heimilum nú eftir
sýningu fyrri hlutans, er
kannski fróðlegt að heyra, hvað
leikararnir, sem tóku þátt i
þessu og voru nú fyrst i gær að
sjá árangur erfiðis sins, hafa
um myndina að segja.
Visir hafði samband við Þor-
stein ö. Stephensen og Reginu
Þórðardóttur, sem léku afann
og ömmuna.
—Þú hafðir haft það á orði, að
þú myndir ekki ætla að horfa á
myndina, Regina, hvað var um
framkvæmdir, þegar til
kastanna kom?
—Ég hafði nú haldið, að ég
mundi sleppa við það, vegna
þess að ég vissi, að ég yrði er-
lendis, þegar myndin yrði sýnd,
en svo var sýningum frestað og
ég komin heim, þegar myndin
komstá dagskrá. Já, ég horfði á
myndina með öðru auganu. Ég
hafði verið hvött svo mikið til
þess, að ég sé svo sem ekkert
eftir þvi.
— Hvernig fannst • þér
árangurinn?
— Ég held, að ég sé bara
ánægð með þetta, og ég vona, að
fólki liki það. Að minum dómi
hefur Hadrich tekizt vel upp.
Litli drengurinn hefur lika svo
fallegt andlit.
Þorsteinn ö. Stephensen sagði
meðal annars: „Ég veit nú
varla, hvað ég á að segja um
þetta svona strax, það er nú
ekki búið að sýna nema einn
þriðja af allri myndinni.
Manni finnst, eins og gengur,
ævinlega að eitthvað hefði mátt
betur fara. Þetta er lika svo ný
aðferð fyrir mann, fæstir
islenzkir leikarar hafa mikið
komið nálægt svona löguðu og
ég aldrei.
Öhætt er að segja, að mér
fannst myndatakan góö. Um
eigin frammistöðu vil ég ekki
fjölyrða, en eins og ég sagði
áðan, þá finnst manni alltaf, að
eitthvað hefði mátt gera betur.
En sem sagt, ég er ekki
óánægður með það, sem ég hef
séð. Dóm get ég ekki kveðið upp
á þessu stigi.
Þar sem lögð var áherzla á,
að þetta verk yrði Islenzkt i húð
og hár, þá finnst mér ástæða til
þess að geta þess, að það sem ég
hef þegar séð, bendir til að
minum dómi, að það hafi tekizt
Hvað sem öllu öðru liður, þá
verður ævinlega talið mikils
virðiaðeiga þetta fallega skáld-
verk Halldórs á kvikmynd. Hitt
veit ég, að þetta verk hefur eins
og mörg önnur meira andrúms-
loft heldur en orð og kemur þess
vegna ekki til skila nema sem
lesefni i einrúmi og góðu tómi.
—LÖ
KRISINDOMSFRÆÐSLA A
PATREKSFIRÐIGAGNRÝND
prófi einu þarna. Ein spurningin
hljóðaði svo: Af hverju var
Kristur krossfestur? Gefnir voru
þrir möguleikar á svari, sá rétti
og tveir aðrir. Þeir röngu voru:
Vegna þess að hann stal kjöt-
skrokkum i Matvælamiðstöðinni.
og: Vegna þess að hann tók þátt i
smygli i Brúarfossi. Fleiri dæmi
voru nefnd.
Visir hafði samband við skóla-
stjórann á Patreksfiröi, Daða
Ingimundarson, og spurði hann,
hverju þessi orðrómur sætti.
Þetta er allt tilkomið vegna at-
viks, sem kom tyrir a tunai nér t
skólanum. Það var verið að ræða
grunnskólafrumvarpið, og þá ber
einn kennarinn fram þá spurn-
ingu, af hverju réttmætt sé að
leggja svo mikla áherzlu á
kristnifræðikennslu, þar sem trú-
frelsi væri hér á landi. Kennari
þessi fylgdi spurningunni ekkert
eftir og lét sér nægja svarið, sem
fékkst.
Það næsta, sem gerist, er það
að presturinn segir i ræðu i
kirkjunni eitthvað á þá leið, að
viða séu óvinir kristninnar og
hér sé þeirra ekki langt að leita.
Komst fólk ekki hjá að skilja,
hvert þessu skeyti prestsins var
stefnt. Skólastjórinn sagði, að
hann teldi, eins og málið væri nú
komið, vera grundvöll fyrir að
fara i meiðyrðamál við prestinn.
Visir spurði, hvort rétt væri, að
spurningar, sem ónefndi
maðurinn i simanum bar fram,
hefðu komið fyrir á prófum.
Skólastjórinn kvað það rétt vera,
og væri kannski ekki undarlegt,
þótt einhverjum þætti þær kjána-
legar, en svo væri mál með vexti,
að sumar spurningarnar þyrftu
að vera þannig, vegna þess að
getuminnstu nemendurnir þyrftu
' að geta svarað einhverju réttu og
þá væri um að gera að hafa
spurningarnar þannig, þessar
fáu, að allir ættu að geta svarað
þeim.
„Annars vissi sóknarpresturinn
vel um þetta próf, þvi að hánn
hefði verið prófdómari i þvi og
hafði fengið sent afrit af þvi og
þvi getað gert sinar athuga-
semdir, áður en þetta kom fyrir
börnin.
Ég hef fylgzt með kennslu
þessa kennara, og ég tel hana sizt
verri en gengur og gerist um
kristnifræðikennslu yfirleitt.
Visi tókst ekki að hafa upp á
sóknarprestinum. Þórarni Þór,
til að fá að heyra hans sjónarmið
á þessu máli.
—LÓ