Vísir - 31.03.1973, Blaðsíða 8

Vísir - 31.03.1973, Blaðsíða 8
8 Visir. Laugardagur 31. marz 1973. Hausttízkan þegar komin! Fyrst er það þó vorið, og þar býður tízkan upp ó margt ódýrt Þessar töskur væru ekki amalegar I sumarferöaiögin. Þannig má fá úr leöri og plasti, en plast er f mörgum þeim hlutum, sem boöaöir eru f vor og sumar. lands, og viöurkenndir af öllum sem tizka. Belti, og þá plastbelti, eru mikiö borin viö klæönaöinn, og þá sérstaklega viö peysur. Arm- bandshringir eru bornir utan á peysunum, og þá oft margir mjórri saman. Eyrnalokkar I sama lit eru þá oft bornir viö, yfirleitt plastkúlur eöa hringir. Og ekki má svo gleyma perlu- festunum. Þær eru bornar viö hvaö sem er. Bæöi fyrirfinnast stórar kúlur og svo litlar og fin- legar i festunum. Fingurnir eru svo loks skreyttir meö hringjum. I staö-' inn fyrir rándýran stein, er komiö fyrir litlum hjörtum, og stundum detta manni i hug hringirnir, sem fylgdu meö lakkrisrörum i verzlunum hér áöur fyrr. Sumir hringjanna eru þó útbúnir sem úr. Þess má geta aö úrin eru borin utan yfir peysustroffinu. Skórnir eru enn meö háum hælum, en þó ekki þeim gifulega háu, sem hafa veriö rikjandi aö undanförnu. Skórnir eru öllu finlegri i vor og sumar. Litirnir eru ljósir, enda höfum viö vist fengiö okkur fullsödd af dökkum og drungalegum litum vetrar konungs. —EA ur. Allt beinar linur, svo sem v- hálsmál á peysum og skyrtum o.s.frv. Litirnir eru aöallega grænt, brúnt, bleikt, mosagrænt og ýmsir rauöir litir. Tweedefni verða lika hátt á lista. Pils verða nokkuö vinsæl, og þau eru þá flest öll höfö þröng. Siddin á pilsunum og kjólum er nokkuö misjöfn, og þar virðist engin ein regla gilda. Sum hver ná niöur á kálfa, önnur aöeins niöur á miö hné. Siddin verður þó aldrei styttri. Hattar viröast veröa vinsælir. Og þá er farið aftur að árunum um 1920. Hattarnir eru eins og hjálmar i laginu, sumir prjón- i aöir eöa heklaöir, en aörir saumaöir. Margir eru úr tvilitu efni, og þá oft röndóttir, eöa meö tveimur finlegum röndum á börðunum. Rúllukragapeysur veröa einnig vinsælar, og þá i fyrr- greindum tizkulitum. Mikið virðist einnig ætla aö veröa um regnfrakka, jakka eöa kápur. Kemur þaö sér harla vel fyrir okkur Islendingana, þegar fer aö hausta. Heimaprjónaðir sokkar, sem ná alveg upp að hnjám, þykkir og hlýir, virðast ætla að njóta vinsælda. Og þá er hætt viö, aö mamma eða amma fái nóg aö gera meö prjónana sina. Viö klæönaöinn eru svo bornir klossalegir skór meö þykkum sólum og hælum. „Klumpa- skór”, eins og þeir kallast. En víkjum að vorinu. Viö höfum þegar sagt nokkuö frá vortizkunni, en stööugt kem- ur eitthvaö nýtt og nýtt fram á sjónarsviðiö. Þaö nýjasta núna eru skartgripirnir. Ekki skart- gripir úr gulli og verömætum efnum, heldur skartgripir úr plasti og ýmsum ódýrum efnum. Þá skartgripi ætti aö vera hægt aö fá i ýmsum litlum og skemmtilegum ,,skran”-verzl- unum, eins og viö köllum þær, á lágu verði. Verzlunum sem láta litiö yfir sér, þvi aö hætt er viö, aö hinir einföldustu skartgripir, perlufestar og eyrnalokkar, kosti drjúgan skilding, þegar þeir loks eru komnir hingaö til RITSUllN SÍMI 86611 VÍSIR IIMIM SÍÐAIM Þó að vorið hafi ekki ennþá náð til okkar hér uppi á íslandi, og vetur ekki kvatt, að minnsta kosti ekki eftir öllum almanökum að dæma, þá eru erlendir tízkuf römuðir þegar farnir að hugsa fyrir haustinu og vetrin- um varðandi klæðnað mannfólksins þá. Enn berast þó ekki margar fréttiraf tizkufatnaöinum næsta haust og enn hafa fáar myndir borizt af klæönaðinum. Fréttir eru samt teknar aö berast og úti i hinum stóra heimi koma tizku- frömuöir saman ööru hvoru og halda sýningar á haustfatnaöin-• Þannig veröa skartgripirnir i vor. Aliir af ódýrustu gerö, en ekkert ber á gull- og silfur- hringjum eöa ööru sliku. Þaö er vist óhætt aö bjóöa vorið velkomiö áöur en viö för- um aftur aö hugsa um dimman og drungalegan veturinn, sem er nú rétt um þaö bil aö losa okkur úr greipum sinum. Enn er nógur timinn fram til súldar haustsins, en ekki sakar þó að lita á þaö sem boðað er. Italir boöa þröngan fatnaö og fatnaö meö beinum llnum. Eng- , in u-hálsmál og engar bogalln- Simplicity smóin eru fyrir alla í öllum stæróum Það er oft erfitt að fá fatnað úr þeim efnum sem þér helzt óskið eftir. En vandinn er leystur með Simplicity sniðunum, sem gera yður kleift að hagnýta yður hið fjölbreytta úrval efna, sem við höfum á boðstólum. Nú plokka karlmenn augnabrúnir sínar, lita augnhúrin og púðra ó sér nefið! „Doppótt augnalok" og fölir litir hjú kvenfólkinu Það er kannski ótrúlegt, en samt sem áður satt, að karlmenn eru nú farnir að púðra á sér nefið. Þeir eru farnir að nota ýmiss kon- ar skyggingará andlit sin, og sennilega iíður ekki á löngu, áður en þeir fara að arka um göturnar eins og vel tilhöfð kona. Kannski er þaö ekkert ótrú- legt, þvi aö karlmenn þurfa ef til vill ekkert slöur á snyrtingu aö halda en kvenfólkið. Þeir eiga sjálfsagt viö sömu erfiðleika aö etja viövlkjandi húöinni og kon- urnar. En hvað um það. Karlmenn eru farnir aö plokka augnabrún- ir slnar, þeir eru farnir að lita augnhárin, annaðhvort með ekta lit eða „mascara”, þeir nota dagkrem jafnvel litaö, og þeir nota ýmiss konar krem til þess aö skyggja andlitiö meö, — til dæmis til þess að fela og hylja bauga og aðra galla. Þetta upplýstu þær okkur meðal annars um, snyrtisér- fræðingarnir Gréta Gunnarsdótt ir, Sigurdis Sigurbergsdóttir og Katrin Friðriksdóttir i Gresiku snyrtistofu, sem nýkomnar eru af alþjóöasnyrtiþingi i London á vegum International Health and Beauty Council. A þinginu kom meöal annars fram andlitssnyrting sú, sem boöuð er nú. Breytist hún talsvert frá þvi, sem hún hefur verið i vetur, og verða litirnir öllu fölari og mildari en veriö hefur. Ein helzta nýjungin eru kannski augnskuggarnir sem notaöir veröa hjá kvenfólkinu. Þar er ótrúlegustu litum raöaö saman. Til dæmis er grænum lit komið fyrir á augnalokum og siöan er bleikur litur settur fyrir ofan, á milli augnaloks og augnabrúnar. Stundum er lika bleikum deplum komiö fyrir á augnalokunum, ofan á grænan lit sem er þar þegar fyrir. Nú eru varalitir ekki lengur dökkrauöir og naglalökkin ekki heldur. Nú veröa varalitirnir og naglalökkin aftur i bleikum lit. Allur andlitsfaröi er þó heldur ljós, og fylgir hann þeim tizkulitum, sem sagðir eru veröa rikjandi þegar sólin fer loks aö skina glatt yfir okkur. Litirnir eru ljósbleikt, ljós- blátt, beige og fölgrænt. „Eyeliner” er nú kominn fram á sjónarsviðiö aftur, en i mjög finlegum litum og gjarnan i svipuöum lit og augnskugginn. Kvenfólkiö verður liklega ekki lengi aö tileinka sér þá tizku, sem rikjandi veröur i sumar, en þaö veröur forvitni- legt að sjá, hvort islenzkir karl- menn munu koma til meö aö láta plokka augnabrúnir slnar og lita augnhárin. Eitt er þó ólikt með andlits- snyrtingu karlmannsins og kon- unnar. Karlmaöurinn vill held- ur hylja snyrtinguna. Hún á vissulega aö vera til þess að fegra hann, en það má þó ekki sjást of greinilega. — EA Umsjón: Edda Andrésdóttir

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.