Vísir - 31.03.1973, Page 20
Laugardagur 31. marz 1973.
Nýtt líf
í morð-
bréfa-
málið
„Morðbréfamálið” hefur lifnað
viö, með þvi að Guðlaugur
Einarsson lögfræöingur hefur rit-
að Gizuri Bergsteinssyni fyrrum
hæstaréttardömara bréf og beöið
um skýringar á þvf, hvers vegna
Guðlaugur var um hrlð sviptur
leyfi til að flytja mál fyrir hæsta-
rétti.
Guðlaugi var þá visað frá rétt-
inum, en hann fékk siðar réttindin
aftur.
„Ég hef enga heimild til að
svara þessum tilmælum”, segir
Gizur Bergsteinsson. Gizur vitnar
i 115. grein hegningarlaga, þar
sem fram er tekið, að menn sæti
sektum eða fangelsi, ef þeir skýri
frá slikum hlutum eins og þvi,
sem gerist á lokuðum fundum
dómara. Gizur segir, að Guðlaug-
ur geti ekki vænzt þess, að hann
gerisem einstaklingur grein fyrir
þeim rökum, sem flutt hafi veriö
á fundum dómara fyrir þvi, aö
Guðlaugur yrði sviptur réttind-
um. Þyrfti Guðlaugur þvi aö
beina slikum tilmælum til hæsta-
réttar sjálfs, en ekki einstakra
manna.
Guölaugur Einarsson telur hins
vegar, aö ekki hafi komið fram
viðunandi skýringar á sinum
tima, þegar hann var lögfræðing-
ur sakbornings i svonefndu morð-
bréfamáli og var visaö frá dómi.
Mál þetta reis vegna skrifa hót-
unarbréfa til lögregluyfirvalda.
Dómurum hæstaréttar mun hafa
þótt framkoma Guðlaugs sem
lögfræðings sakbornings i
ósamræmi við „viröingu”
réttarins. Guölaugur telur hins
vegar, þótt mörg ár hafi liöið
siðan, aö réttur sinn hafi verið
fyrir borð borinn, og hyggst hann
nú sækja málið fast. —HH
Fimmtíu millj-
ónir í Hafnar-
fjarðarveg
nœstu tvö árin
„Það eru til frum-
áætlanir um gerð
Hafnarfjarðarvegarins,
en það er undir alþingi
og fjárveitinganefnd
þess komið, hvenær þær
vera gerðar að raun-
veruleika”, sagði Jón
Rögnvaldsson, verk-
fræðingur hjá Vega-
gerðinni, i spjalli við
Visi i gær.
Þessi mynd sýnir það ljóslega, hvernig hraunið hrannast ógnvekjandi upp. Það er engu Hkara en húsið Blátindur sé þarna að fullnægja þeim
dauöadómi, sem náttúruöflin hafa kveðið upp. Myndina tók Guömundur Sigfússon I Eyjum I gærdag.
Hraun hrannast upp ó ný!
Hraun er nú aftur farið að
hrannast upp í Vestmanna-
eyjum, og búizt er við að
það geti farið aftur á tals-
vert skrið, eins og það gerði
síðast þegar það hlóðst upp
og kaffærði síðan 30 hús á
einni nóttu.
Rólegt var þó i Eyjum i gær-
kvöldi, þegar blaðið hafði sam-
band þangað. Gosið var litið, en
gasið talsvert. Sérstaklega virtist
gas mikið i nýja sjúkrahúsinu, en
þar unnu menn við að koma burt
verðmætum. Þvi var þó ekki lokið
i gærkvöldi, og er búizt við, að það
verði nokkurra daga verk.
Þess má geta, að 6 ofnar
sprungu i nýja sjúkrahúsinu,
þegar vatn var tekið af þar.
Hraun hefur nú sprengt suður-
vegg Eiskiöjunnar og er farið að
renna þar inn, en i gærkvöldi
var mjög litil hreyfing á þvi.
Sums staðar þar sem sprautað
hafði verið á hraunið, voru jafn-
vel farnir aö myndast klaka-
drönglar, þótt ótrúlegt megi
virðast.
I gærkvöldi var von á Suðra til
Vestmannaeyja með dælur þær
og leiðslur, sem beðiö hefur verið
eftir i þrjá sólarhringa i Eyjum.
Atti þá strax að hefjast handa við
að leggja leiðslur inn á hraunið og
hefja kælingu á þvi.
Tveir vegir voru lagðir upp á
hraunið, þar sem leiðslurnar áttu
að liggja, en annar vegurinn er nú
horfinn. Lá sá upp á hrauniö frá
Vestmannabraut, en sá sem enn
stendur er upp á hrauniö frá
Heimagötu.
1 gærkvöldi kom Herjólfur til
Eyja með 500 kw rafstöð og nú er
vonazt eftir að Fiskimjölsverk-
smiðjan geti fljótlega hafizt
handa við bræðslu á þeim 4000
tonnum af loðnu, sem eftir eru i
þrónum. - -EA.
KAUPMENN SEGJAST
II I A U ft M MID Fyrirsjáanlegur skortur
I L LM l\%/Ivl w% I Imá kornvöru og fleira
Verulegur skortur er fyrirsjá-
anlegur á kornvörum og skyld-
um vörum f verzlunum innan
fárra vikna, að sögn Verzlunar-
ráðs tslands.
Þetta kemur til af þvf, að
stjórnvöld hafa ekki fallizt á
kröfur um hækkun heildsölu-
álagningar á þessar vörur,
„þannig að hún geti borið kostn-
að þeirra.”
Félag islenzkra stórkaup-
manna og Samband islenzkra
samvinnufélaga hafa lagt til, að
álagningin á þessar vöru-
tegundir verði 10,7%, en hún er
7,5% eftir þá lækkun, sem á
henni var gerð við gengis-
lækkunina fyrir jólin.
Er sagt, aö þessar óskir mið-
ist við lágmarksdreifingar-
kostnað, og myndi það valda
2,5% hækkun á vöruverði.
„Verði þessar kröfur ekki
teknar til greina, er fyrirsjáan-
legt, að verulegur skortur verði
á þessum vörum i verzlunum
innan fárra vikna.” Þetta segir
Verzlunarráð íslands.
Atvinnurekendur hafa óskað
eftir þvi, að hækkanir vinnu-
launa og stöðug hækkun á er-
lendum gjaldeyri verði teknar
til greina við verðlagsákvarðan
ir, sem nú eru til afgreiðslu hjá
verðlagsyfirvöldum. Þeir krefj-
ast þess að fá að hækka fram-
leiðsluvörur sinar eins og nem-
ur hækkun hráefniskostnaðar og
vinnulauna.
Verzlunarálagning var skert
við gengislækkunina 21. desem-
ber. Atvinnurekendur krefjast
þess, að hún hækki að nýju i það,
sem hún var áður.
Þeir segja, að forsendur þess-
arar skerðingar á álagningunni
séu „öllum óskiljanlegar á
sama tima og stórfelldar kaup-
gjalds- og kostnaðarhækkanir
eiga sér stað.”
Kaupmenn segja, að innflutn-
ingur á kornvöru borgi sig ekki
við núgildandi kjör.
" Nú þegar hefur borið á skorti
á nokkrum vörutegundum i
verzlunum, eins og hrisgrjón-
um, sem ekki voru fáanleg um
skeið.
Tvö af stærstu innflutnings-
fyrirtækjunum hættu i fyrra að
fíytja inn kornvöru.
—HH
vísm
Arekstur varð fyrir sunnan
Kópavog i gærmorgun á brú, sem
þar er. Brúin tekur við umferð til
suöurs úr öllum Kópavogi og
gjánni, auk allrar umferðarinnar
aö sunnan til Kópavogs og
Reykjavfkur. Arekstur þessi
gerði það þvi aö verkum, að nokk-
ur hundruð manns komust ekki á
réttum tima i vinnuna. Bílarnir,
sem rákust á, lokuðu brúnni.
Jón sagði, að 50 milljónir yrðu
veittar á tveim næstu árum til
vegarins, en ekki væri vitað, hvað
mikið væri hægt að gera fyrir
þessa peninga, eða á hverju yrði
byrjað.
Vfsir spurði Jón, hver tæki
ákvörðun um, á hverju yrði byrj-
að, og sagði hann, að um það yrði
fjallað þegar þar að kæmi. —Ló
Vantar 2000 á vinnu-
markaðinn
„Neyðaróp sjávarút-
vegsins" um mikinn skort
á vinnuafli — rúmlega
1000 manns, — sem fram
kom i fréttatilkynningu
sjávarútvegsráðuneytisins
fyrir nokkrum dögum,
vakti mikla athygli. En
við athugun á ástandinu i
öðrum atvinnugreinum er
greinilegt, að mikil vönt-
un er á starfsfólki al-
mennt.
Mörg hundruð starfsmenn
vantar i járniðnaðinn og fleiri
iðngreinar. Verkamenn vantar i
byggingariðnaðinn, og ekki er
nálægt þvi byggt jafnmikið og
eftirspurn er eftir. Ekki fást
nægilega margir verkamenn til
viðhaldsvinnu hjá borginni og
nokkuð mun vanta af verzlunar-
og skrifstofufólki.
Niðurstaða athugunar á
vinnumarkaðinum er, að ekki sé
ofmælt að á þvf svæði, sem
vantar rúmlega 1000 manns i
sjávarútveginn — það er frá
Stokkseyri að Snæfellsnesi —
vanti ekki færra starfsfólk i aðr-
ar greinar. Heildarvinnuafls-
skorturinn er þá samkvæmt
þessuekki minni en 2000 manns.
Fróðlegt væri að athuga,
hvort nokkurt annað þjóðfélag
gæti státað af gifurlegum vinnu-
aflsskorti 2 mánuðum eftir að
ein blómlegasta og afkasta-
mesta byggð landsins — sem
framleitt hefur 15% af útflutn-
ingsverðmæti þjóðarinnar —
hefur farið í eyði. —ÓG