Vísir - 14.04.1973, Blaðsíða 2
2
Vlsir. Laugardagur 14. aprfl 1973.
vimsm:
Hlustuðuð þér á eldhús-
dagsumræður alþingis-
manna í útvarpinu í fyrra-
kvöld?
Sigrún Björgvinsdóttir, af-
greiöslustúlka: Nei, það geröi ég
ekki og geri ekki yfirleitt, en
stundum les ég þingfréttir i blöö-
unum.
Sveina G uöm u nd sd ótt ir,
húsmóöir: Nei, ég mátti nú bara
alls ekki vera að þvi, ég var á kafi
i fermingarundirbúningi. Annars
hlusta ég sjaldan á þetta.
Sæunn Ragnarsdóttir, starfsst.
Elliheimilinu Grund: Nei, ég
gerði þaö ekki og yfirleitt hlusta
ég litið á útvarp. Aftur á móti
horfi ég meira á sjónvarpið.
buriöur Billich, húsmóöir. Nei,
ekki i þetta skiptiö, og ég var i
saumaklúbb, en yfirleitt hlusta ég
á umræðurnar.
Ómar Kristjánsson verzlunar-
maöur: Ég gerði það nú ekki, en
það kemur fyrir, að ég hlusta á
þetta. Ég les um svona meiri-
háttarmál i blöðunum.
Rúnar Nordquist, blikksmiöur:
Já, ég hlustaöi á nokkrar ræður,
og það er bara gaman að heyra
þetta einstaka sinnum.
„ÍRFITT HLUTVERK
EN SPENNANDI
OG SKEMMTILEGT"
segir Edda
Þórarinsdóttir
leikkona um
hlutverk sitt
sem Sally í
Cabarett
Þjóðleikhússins
,,Jú, þetta er lang-
stærsta hlutverkið, sem
ég hef fengið til þessa.
Mér finnst þetta óneit-
anlega ægilega spenn-
andi, og þetta er
skemmtilegt hlutverk.
Sally er mikið náttúru-
barn, kannski barnaleg,
en hefur samt mikla lifs-
reynslu”.
Þetta sagði Edda Þórarinsdótt-
ir leikkona, þegar við höfðum
samband við hana, en Edda hefur
nú fengið i hendur stærsta hlut-
verkið i söngleiknum Cabarett,
sem Þjóðleikhúsið mun nú taka til
syningar.
„Þetta er erfitt hlutverk og
kannski ennþá erfiðara eftir að ég
hef séð Lizu Minelli fara með
hlutverkið. Hún var gifurlega
skemmtileg og kröftug.
Ég hef aðeins séð kvikmyndina
Cabarett, en ekki söngleik. En
kvikmyndin er allt öðruvisi en
Liza Minelli söng söngvana á
amerisku i kvikmyndinni.
Samæfing á Cabarett. — Frá
vinstri: Baldvin Halldórsson,
Sigriður Þorvaldsdóttir, Ilerdls
Þorvaldsdóttir, Edda Þórarins-
dóttir, Gisli Alfreösson, leik-
stjóri og Sigmundur örn Arn-
grimsson.
söngleikurinn. Sally er reyndar I
báðum stykkjunum, en það eru
ekki allt sömu persónurnar i
þeim. Sögumaöur er bæði i leik-
ritinu og söngleiknum, en sögu-
maðurinn heitir Cliff. Hann
kemur Sigmundur Orn Arngrims-
son til með að leika hér heima.”
— Æfingar eru byrjaðar af full-
um krafti?
„Viö byrjuðum fyrst á að sam-
æfa ifyrradag. Það eraðsegja að
lesa saman. Fyrir 10 dögum byrj-
uðum við að æfa söngva og
nokkra texta, en það er fyrirhug-
að að frumsýna verkið siðari
hlutann i mai.
Leikritið gerist i Berlin á árun-
um um 1930, og það er þessi
stemning, eins og hún bezt gerðist
þá á þessum árum, sem er i
söngvunum, svona eins og maður
heyrir Marlene Dietrich eða aðr-
ar slikar syngja.
Ég veit ekki ennþá, hvernig það
verður að syngja eins og þaö
gerðist á árunum 1930, það er enn
ekki komið svo langt, að ég sé far-
in að túlka söngvana.”
Með önnur stór hlutverk i þessu
verki, Cabarett, fer til dæmis
Bessi Bjarnason, sem Edda sagði
okkur að færi með mjög
skemmtilegt hlutverk. Hann fer
meö hlutverk siðameistara og
verður væntanlega málaður hvit-
ur i framan, en verður i kjólfötum
og með tilheyrandi hatt. Hann
dansar og syngur mikið sjálfur,
en stjórnar samt i Cabarett.
Herdis Þorvaldsdóttir fer einn-
ig með stórt hlutverk. Hún leikur
„fina frú”, sem leigir Sally. Bald-
vin Halldórsson leikur Gyðing,
sem selur ávexti og kemur mikiö
við sögu i leiknum, og Sigriður \
Þorvaldsdóttir fer einnig með
nokkuð stórt hlutverk.
— En hvert er stærsta hlutverk
Eddu til þessa?
„Ég held að það sé hlutverk
Polly i Túskildingsóperunni”.
— Og nú verður að sjálfsögöu
æft af kappi, þar til frumsýning
verður?
„Já, við æfum alveg stanzlaust
alla daga, og meira að segja jafnt
á sunnudögum sem aðra daga.”
— EA
„Sá kvikmyndina Cabarett
meö Lizu Minelli i aöalhlut-
verki, en hef ekki séö söng-
leikinn. Söngleikurinn er allt
öðruvisi en kvikmyndin”.
Edda Þórarinsdóttir leikkona.
*
A AÐ REISA KJARVAL
NÍÐSTÖNG?
LESENDUR
Jk HAFA
/Am ORÐIÐ
Nú er búið að opna Kjarvals-
húsið, hina fegurstu byggingu,
listasafn á heimsmælikvarða.
Byrjunaraðsóknin bendir til þess,
að almenningur muni kunna að
meta þetta hús og sýningar þess.
Margt barnið mun eiga þar
minningu um fyrstu göngu við
hlið foreldra sinna um musteri
listarinnar.
Þvi listasafn er musteri, þar
sem menn ganga um hljóðlega,
eins og i kirkju væri. Eöa svo
hefur það reynzt á hinum fjöl-
mörgu listasöfnum erlendis. t
hæsta lagi hefur verið opnuð
kaffiteria afsiðis, sem svo smekk-
lega hefur einnig verið komið fyr-
ir I Kjarvalshúsi.
En nú hafa þau undur skeð, að
óskað hefur verið eftir þvi, að
kaffiterian fái vinveitingaleyfi.
Þvilik firra! Ekki þarf að lýsa
sjálfsögðum afleiðingum sliks á
helgum stað.
Meistari Kjarval, alþýðuvin-
urinn, hefur um áratuga skeið
veriö einn af dáðustu sonum Is-
lands. Bæjarstjórn Reykjavikur!,
komið i veg fyrir þá þjóðarógæfu,
að Kjarval verði reist nlöstöng i
sjálfu musterinu.
Jón Helgason.
Bréfiö hefur veriö skrifaö áöur
en borgarráö Reykjavlkur ákvað
aö mæla ekki meö þvi, að vin-
veitingaleyfi yröi veitt. — Þú
getur, Jón.andaö alveg rólegur.