Vísir - 14.04.1973, Page 4
4
Visir. Laugardagur 14. april 1973.
TIL SÖLU:
Óp í dós!
y
Síðasta ópið— í bókstaflegri merkingu — sem
kemurfrá kvenmanni, er komið á markaðinn í
London. Þetta er óneitanlega nýstárlegt óp, því
það er á dós, sem kvenfólk getur haft með sér í
vasanum og notað í neyð. Þetta tæki, sem er
nýjasta vopn kvenna í þessum ótuktarlega
heimi, heitir ,,Sound 911". Nánar tiltekið er
þetta hylki, sem hefur að geyma segulbands-
upptöku með neyðarópi, sem innbyggður hátal-
ari magnar upp margfaldlega. Þegar stúlku-
kindin verður fyrir árás, þarf hún ekki annað en
að þrýsta ofan á tækið, og þá kveður ópið við.
Samkvæmt upplýsingum framleiðendanna á
það að vera svo hávaðasamt, að það gæti kvatt á
staðinn alla lögreglumenn úr nærliggjandi sjö
prestaköllum. ,,Öp-dósin" var nýlega reynd á
mestu verzlunargötum Lundúna. En árangurinn
var víst ekki eins og bezt hefði verið á kosið. Ef
til vill eru Bretar svona vanir kvenmannsópum.
En hvernig mundi svona tæki reynast hér í
Reykjavík?
„Fröken, voruð það þér, sem æptuð? Svona
lagað skuluð þér ekki grinast með. Maður
kynni að halda, að þér væruð móðursjúk”,
sagði gamli maðurinn með hattinn i um-
vöndunartón.
4
Lögregluþjónarnir sýndu
ópum stúlkunnar harla llt-
inn áhuga, „Viö héldum, aö
það væri einhver aö hleypa
loftinu samtimis af báöum
afturhjólum vöruflutninga-
bíls,” útskýrðu þeir siöar.
Vcgfarendur kunnu greini-
lega ckki að meta óp-dós
stúikunnar. Og þaö gat
hann heldur ekki, bola-
biturinn, sem viö sjáum
neðst til vinstri á myndinni.
„Heyndu bara að nálgast
mig, dóninn þinn! Ef þú
gerir þig liklegan til þess,
æpi ég! Meö hylkinu, sem
sé.”
Stöðugt
lakara
að búa í
London!
Það verður verra að
búa i London með hverj-
um deginum sem liður.
Skoðanakannanir hafa
leitt það ótvirætt i ljós.
Einni slikri lauk núna
nýlega, og var niður-
staðan gerð opinber
skömmu síðar.
Samtals voru spurðir 925 ibúar
höfuðborgarinnar brezku, en
aðeins 12 prósent hinna spurðu
töldu það fara batnandi að bua i
borginni. 73 prósent stundu
þungan og bölvuðu hátt og i
hljóði, þegar þeir heyrðu
spurninguna. 15 prósent hinna
spurðu fundu enga breytingu á
borginni eða gátu ekki gert svarið
upp við sig.
Það, sem þjáir stórborgarfólk
þetta mest, er umferðaröng-
þveitið, troðfullir strætisvagnar
mengun og hávaði. Enginn
hafði þó hugmynd um það, hver
bæri mesta ábyrgð á hvert
stefndi, og enginn hafði hug-
myndir um úrbætur á reiðum
höndum.
Skoðanakönnun af sama toga
fór fram árið ’70. Þá voru þeir
mun færri, sem töldu það verða æ
lakara að búa í borginni. Þeir
voru þó i meirihluta hinna
spurðu, eða 56 prósent.
GEÐ-
SJÚKI
007...
Slagsmálahetjan James Bond
hefur til að bera öll einkenni
geðsjúklings, sem veit sig
dauðvona af ólæknandi sjúK-
dómi. Sú er að minnsta kosti
sjúkdómsgreining sálfræðingsins
Martin Roth frá Bretlandi.
James Bond drepur, elskar og
ekur bifreiðum á ofsahraða með
meitlaðan hörkusvip og sjálfs,-
öryggi. Hann drekkur öllum
stunaum og reykir ekki minna en
60 sigarettur á dag. Nokkuð, sem
auðveldlega sviptir hann lif-
tórunni á skammri stundu, þó
ekki væri annað, segir Martin,
sem er prófessor við háskólann i
Newcastle.
Omurleg tiðindi fyrir alla þá,
er láta sig dreyma um að lifa þvi
æðisgengna liferni, sem þessi
hetja njósnarabókmenntanna lif-
ir i sögum sinum. ..
Umsjón: Þ.JM.