Vísir - 14.04.1973, Page 6
6
Vlsir. Laugardagur 14. aprll 1973.
VÍSIR
Útgefandi: Reykjaprent hf.
Framkvæmdastjóri: Sveinn R. Eyjólfsson
Ritstjóri: Jónas Kristjánsson
Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson
Ritstjórnarfulltrúi: Valdimar H. Jóhannesson
Auglýsingastjóri: Skúli G. Jóhannesson
Auglýsingar: Hverfisgötu 32. Símar 11660 86611
Afgreiösla: Hverfisgötu 32. Slmi 86611
Ritstjórn: Síöumúla 14. Simi 86611 (7 lfnur)
Askriftargjald kr 300 á mánuöi innanlands
I lausasölu kr. 18.00 eintakiö.
Blaöaprent hf.
Verðbólgustjórn
Þegar viðreisnarstjórnin missti meirihluta
sinn á alþingi i siðustu kosningum, var tæplega
hægt að segja, að það þyrfti að koma á óvart.
Stjórnin hafði þá verið við völd i tólf ár. Er það
fátitt, að lýðræðisstjórnir haldi völdum svo lengi.
Og einsdæmi er það hér á landi.
Venjulega sitja stjórnir ekki nema eitt eða tvö
kjörtimabil, t.d. i Englandi. Þá fara margir kjós-
endur, sem studdu stjórnina, að hugsa sem svo,
að nú sé rétt að breyta til og lofa stjórnarandstöð-
unni að spreyta sig á viðfangsefnunum.
Enginn vafi leikur á þvi, að rikisstjórn, sem
heldur velli i tólf ár, hlýtur að hafa margt vel
gert. Að öðrum kosti hefði hún ekki haft traust
meirihluta þjóðarinnar svo lengi.
Það er lika sannast mála, að þessi tólf ár voru
mesta framfara- og velmegunartimabil i allri
sögu þjóðarinnar, þótt núverandi rikisstjórn seg-
ist hafa tekið við öllu i kaldakoli. Má raunar
kallast merkilegt að halda sliku fram, þegar
staðreyndirnar, sem blöstu við allra augum,
vitnuðu um hið gagnstæða.
Engin rikisstjórn á Islandi hefur tekið við eins
blómlegu þjóðarbúi og sú, sem nú situr. En það
gengur kraftaverki næst, hve stjórnin þurfti
skamman tima til þess að sigla öllu i strand. Hún
byrjaði strax að ausa út fé á báða bóga, eins og
henni væri það kappsmál að tæma hvern sjóð,
sem tiltækur var.
Óhætt er að spá þvi, að núverandi rikisstjórn
verður ekki við völd i tólf ár, enda væri það
óbærileg tilhugsun fyrir almenning. Það er meira
að segja ekki öruggt, að hún muni sitja út kjör-
timabilið, svo sjálfri sér sundurþykk sem hún er.
Það hefur verið sagt, að engin rikisstjórn geri
alla hluti vel og engin heldur alla hluti illa. En
eftir þeirri reynslu, sem þegar er fengin af þess-
ari stjórn, er ekki auðvelt að koma auga á margt,
sem hún hefur gert vel.
Meðan ráðherrarnir voru i stjórnarandstöðu
lágu þeir þáverandi rikisstjórn stöðugt á hálsi
fyrir að stöðva ekki verðbólguna, en reyndu jafn-
framt með öllum tiltækum ráðum að koma i veg
fyrir, að tilraunir stjórnarinnar i þá átt tækjust.
Nú þegar þeir hafa sjálfir fengið völdin, hefði
mátt ætla, að þeir sneru við blaðinu og reyndu að
sanna i verki, að þetta væri hægt. Ekki hefur nú-
verandi stjórnarandstaða brugðið fæti fyrir það.
Hins vegar eru sumir stjórnarþingmenn stundum
að bregða fæti fyrir stjórnina. Og reyndin er sú,
að þetta er mesta verðbólgustjórn, sem hér hefur
komizt til valda, og eru þó ekki öll kurl enn komin
til grafar. Eldgos i Vestmannaeyjum afsakar
ekki óstjórn.
Ofan á allt sukkið i efnahagsmálunum bætist
svo, að stjórnin hefur að ýmsu leyti ekki haldið
viturlega á landhelgismálinu. Út á við talar hún
um þjóðareiningu. En i reyndinni hefur hún verið
treg til samstarfs á breiðum grundvelli og hefur
t.d. ekki látið halda fund i landhelgisnefnd allra
flokka i langan tima. Hún tekur ekki mark á
góðum ráðum manna úr andstöðuflokkum sinum
á alþingi. Og svo er nú komið, að hún er sjálf
orðin klofin i þessu mikilvæga máli.
Lúxusskipinu var breytt I fljótandi virki fyrir sólarferðina til tsraels.
LLU GAMNIFYLGIR
NOKKUR ALVARA -
LÍKA SKEMMTIFERÐASKIPUM
Margar hendur hófust handa
viö þaö I gær aö breyta lúxusfar-
þegaskipinu „Qucen Elizabeth
II” I fljótandi virki, mannaö heil-
um her vopnaöra varða, áöur en
hún leggur upp í ferö sina til
lsraels i næstu viku.
Tuttugu vandlega valdir menn
úr vikingasveitunum brezku,
fiokkur sprengjusérfræöinga,
tvær tylftir bandarlskra ieynilög-
reglumanna og svo ótai ieyni-
þjónustumenn stigu um borö i
skipiö fyrir þessa sólarferö, þar
sem menn óttast, aö hitna muni
meir I kolunum en gott þykir.
En um leiö og þessi vigreifi
fiokkur sté um borð, gengu einir
300 af 900 manna áhöfn skipsins i
land meö pokana sina vegna
kviöa fyrir þvi að arabiskir
skemmdarverkamenn og skæru-
liðar kynnu að stöðva þessa ferö
til Israels.
„Ég er ekkert feiminn viö aö
viðurkenna, aö ég er meö hjartað
i buxunum,” sagði káetuþjónn-
inn, Ray Digweed, viö frétta-
mann Associated Press. „Ég lét
afmunstra mig vegna
áhættunnar.”
Þessar uppsagnir urðu þrátt
fyrir gylliboö Cunard skipa-
félagsins, sem á „Queen
Elizabeth II”. Félagið býður
hverjum skipverja 50 sterlings-
punda — eða 15 þúsund króna —
áhættuþóknun til viöbótar við
fastalaunin. Auk þess heitir
félagiö þvi að greiöa fjölskyldu
hvers þess af áhöfninni, sem léti
lifið i árás skæruliða, full árslaun
i fjögur ár. — 600 menn á skipinu
hafa tekiö þessu boöi, og segjast
hvergi smeykir.
Skipiö kom frá New York til
Southampton núna á fimmtudag,
og þar eru þessar öflugu öryggis-
ráöstafanir gerðar. Meöan þaö
liggur i höfn i Southampton er
haföur um þaö stööugur vörður.
Tólf froskmenn úr flota Breta
finkemba skipsskrokkinn neöan-
sjávar og gæta þess, aö enginn fái
komiö fyrir sprengjum þar, sem
grandaö gætu skipinu.
Þetta eru öflugustu öryggisráö-
stafanir, sem nokkurn tima hafa
verið viðhaföar viö brezk skip á
friðartimum.
Enginn fær um borð að fara
ööruvisi en aö gangast undir tvö-
falda rannsókn öryggisvarða við
landgangana. Sérhver matarbiti,
sem um borð fer er gegnumlýst-
ur, Sérhver farþegi og hver ein-
asti pinkill hans verður grand-
skoðaöur, áður en þeir fara um
borð til þess að sigla meö skipinu
á morgun.
Sautján hundruö farþegar
verða með skipinu, þegar það fer
til Israels. Flestir þeirra eru
auðugir Gyðingar af Vesturlönd
um á leið til þess að vera við há-
tiðarhöldin vegna tuttugu og
fimm ára afmælis tsraelsrikis i
næsta mánuði. — Ekkert væri
Aröbum kærkomnara en að geta
klekkt á þessum hópi manna.
Arabar hata ekkert meir en
Gyðing, sem kominn er vel i álnir.
Og núna i ljósi árása tsraels-
manna á Beirut og hafnarborgina
Sidon i Libanon óttast menn, að
skæruliðar, sem sviður mjög fall
leiðtoga sinna þriggja, hyggi á
hefndir. „Queen Elizabeth II” er
áreiðanlega i þeirra augum kjörið
skotmark.
Sprengjusérfræðingum var varp-
að niðurtil „Queen Elizabeth II” I
mal I fyrra vegna ótta um
sprengju um borð.
Lifverðirnir eiga að dyljast meðal
farþeganna um borð I „Queen
Elizabeth II”.
Illlllllllll
Umsjón:
Guðmundur Pétursson
Þessu hefur Cunardskipa-
félagið reiknað með, og það er til
þess að fyrirbyggja slíka hefnd,
sem það hefur gripið til þessara
róttæku ráðstafana. Skipafélagið
leitaði til varnarmálaráðuneytis-
ins eftir aðstoð. Auk sprengjusér-
fræðinga og vopnaðra varða, sem
flotinn hefur látið skipafélaginu I
té i þessu skyni, er einnig gert ráð
fyrir að tundurspillar muni fylgja
skipinu á ferð þess um Miðjarðar-
hafið. Ekki nóg með það. Jafn-
framt munu nokkrar af hinum
langfleygu Nimrod könnunar-
flugvélum úr konunglega flug-
hernum sveima yfir skipinu.
Fyrir tveim eða þrem árum
hefði slikur viðbúnaður þótt
fáránlegur. óttinn um ódæðis-
verk arabiskra skæruliða hefði
vafalaust verið álitinn stafa af of
miklum lestri James Bond reyf-
ara. En I dag þykir þetta ekki eins
reyfarakennt. Skattborgarar
hafa ekki hreyft mótmælum við
þvi, að flotinn aðstoði skipa-
félagiö við aö tryggja öryggi
skipsins. Brezku blöðin hafa I
góölátlegri kimni skirt öryggis-
verðina „Martini vikingana” I
tilefni þess, að þeir verða innan
um farþegana, klæddir hvitum
smókingum og óþekkjanlegir á
börunum frá öðrum farþegum.
Hver þeirra verður þó með 9 mm
sjálfvirka Browningskamm-
byssu einhvers staðar innan-
klæða. Sömu söguna er að segja
um þá leyniþjónustumenn og
leynilögregluþjóna, sem verða
dulbúnir innan um háseta, kokka
og vélamannalið skipsins.
Cunardskipafélagið hefur lika
lýst þvi yfir, að það hafi ekki
hugsað sér að verða byrði á skatt-
borgurunum. Verðirnir um borð
munu kosta útgerðina 10.000
sterlingspund eða 2,5 milljónir
króna.
En það er lika mikiö I húfi. Llf
og limir 1700 farþega og 900
manna áhafnar fyrir það fyrsta.
Að ekki sé minnzt á, að þetta
65.800 tonna skip kostaði á sínum
tima 60 milljónir sterlingspunda,
svo Cunardfélaginu mundi þykja
nokkurs misst, ef það hyrfi af höf-
unum.
Cunardfélaginu mun áreiðan-
lega ekki úr minni fallinn sá
skelkur, sem mönnum var skot
inn I bringu i fyrra. Það var nánar
til tekið i mai, að Cunardskrif-
stofunum var tilkynnt, að
sprengju hefði verið komið fyrir
um borð i „Queen Elizabeth II”
sem þá var stödd úti á rúmsjó,
miðju Atlanzhafi.
Það varð uppi fótu.- og fit, og
flugvélar voru sendar af stað með
sprengjusérfræðinga innanborðs.
Mönnum var varpað i fallhlifum
niður til skipsins og var leitað að
sprengjunni stafnanna á milli.
Það fannst þó engin sprengja i
það sinnið, og var þarna greini-
lega um gabb að ræða.
En hugmyndin var svo skelfi-
leg, að fyrirtækið vill ekkert eiga
á hættu að þessu sinni.