Vísir - 26.04.1973, Blaðsíða 9
Enn er Leeds
í úrslitum!
— Leikur við AC Milanó í Evrópukeppni
Leikmenn Leeds eru
orðnir miklir meistarar
i bikarkeppni. í gær
tryggðu þeir sér rétt i
úrslit Evrópukeppni
meistaraliða með þvi að
gera jafntefli við Hadjuk
Split, Júgóslaviu, 0-0, en
það nægði þvi Leeds
vann fyrri leik liðanna
með 1-0.
Úrslitaleikurinn veröur i
Saloniki i Grikklandi 16. mai og
leikur Leeds þar viö italska liðiö
fræga, AC Milanó. Þaö verður
áreiöanlega mikill leikur liöa,
sem mikla reynslu hafa i Evrópu-
keppni
AC Milanó sigraöi Sparta,
Prag, aftur i gær 1-0, en leikiö var
i Prag. Milanó vann einnig 1-0 i
heimaleik sinum.
Júgóslavneska liöiö sótti mjög
gegn Leeds i gær, sem lék mikinn
varnarleik — en allt kom fyrir
ekki, Split tókst ekki aö rjúfa
varnarvegginn — utan einu sinni,
en markið var dæmt af vegna
rangstöðu. Alan Clarke lék ekki
með Leeds i gær og má heldur
ekki leika úrslitaleikinn, þar sem
hann var rekinn af velli i fyrri leik
liöanna.
Mark ó útivelli kom
Liverpool í úrslit
Tottenham, sem sigraði í
UEFA-keppninni í fyrra,
var slegið út í undanúrslit-
um i gær, þrátt fyrir sigur
gegn Liverpool 2-1 á White
Hart Lane. Liðin voru jöfn
2-2 eftir báða leikina, en
markið á útivelli kom
Liverpool í úrslit gegn
Borussia Mönchenglad-
bach.
Leikurinn var afar spennandi,
en Tottenham tókst ekki að ná
nema eins marks sigri. Ekkert
mark var skorað i fyrri hálfleik,
en á 4.mín. siðari hálfleik skoraði
Martin Peters fyrsta mark
leiksins fyrir Tottenham. Gleði
áhorfenda á White Hart Lane,
sem voru um 50 þúsund, var
skammvinn, þvi Steve Highway
jafnaði fljótt fyrir Liverpool. En
aftur skoraöi Peters á 71. min. og
leikurinn var á suöupunkti til
loka. Liverpool sigraöi i fyrri leik
liðanna 1-0 á heimaveili
1 hinum leiknum i undan-
úrslitum milli Twente, Hollandi,
og Borussia — þar sem Albert
Guðmundsson var eftirlitsmaður
UEFA — sigraði þýzka liðið 2-1.
Það vann fyrri leikinn einnig, 3-0
heima. Oll von Hollendinga að
komast i úrslit fór strax á 13.min.
þegar bakvörðurinn Drost
skoraði sjálfsmark. Rupp kom
Borussia i 2-0 á 27. min., en
Pahlplatz skoraði eina mark
Twente á lO.min. i siðari hálfleik
Þarna eru tveir kunnir kappar, sem stjórnuðu liðum sfnum á tslands-
mótinu i innanhússknattspyrnunni um páskana. Ellert Schram, til
vinstri, var auðvitað með KR-ingana, sem hlutu silfurverðlaun, en
Rikhaður Jónsson með Skagamenn, en þeir urðu I fjóröa sæti á mótinu.
Þessir gömlu mótherjar — og samherjar í landsliöinu — þurftu þó ekki
að eigast við innbyrðis, KR og Akranes léku ekki saman á mótinu.
tslandsmeistarar Vals í 1. deild kvenna ásamt þjálfara slnum Stefáni Sandholt
Ljósmynd Bjarnleifur
íslandsmeistaratitlarnir
hlaðast upp í Hlíðarenda
— Valsstúlkurnar urðu íslandsmeistarar í handknattleik — Sigruðu Fram með 12-10
Árið 1973 ætlar greinilega að
verða mikið Valsár— islands-
meistaratitlarnir og bikararnir
beinlínis hlaðast upp i Hlíðar-
enda. í gærkvöldi urðu Vals-
stúlkurnar Islandsmeistarar í
1. deild kvenna — tíundi sigur
þeirra í islandsmótinu í hand-
knattleiká ellefu árum eða síð-
an 1962 — þegar þær sigruðu
Fram í aukaúrslitaleik um
meistaratitilinn 12-10 í Laugar-
dalshöllinni i gær.
Úrslitin komu talsvert á óvart, þó
svo liðin séu nokkuð svipuð að stvrk-
iR-ingar urðu sigur-
vegarar i 1. flokki karla i
íslandsmótinu i hand-
knattleik — Valur i 1.
flokki kvenna.
Leikið var til úrslita i þessum
flokkum i Laugardalshöllinni i
gærkvöldi. 1R lék til úrslita við
Viking og náði fljótt yfirburða-
stöðu. 9-4 stóð i hálfleik og tveir
leikmenn IR voru bakvið hinn góða
leik liðsins — landsliðsmaðurinn
kunni i knattspyrnunni, Asgeir
leika, virðist Fram-liðið liklegt til
meiri stórræða. Og nú bættist á, að
Valur lék án sinnar beztu handknatt-
leikskonu, Bjargar Guðmundsdóttur,
sem er erlendis. Fyrirfram virtist þvi
flest mæla með sigri Fram sem leikið
hafði betur i siðasta leik mótsins gegn
Val.
En það varð ekki og mikið geta
Fram-stúlkurnar nagað sig i handar-
bökin eftir á — þær misnotuðu þrjú
vitaköst af fjórum, sem þær fengu i
leiknum, meðan Svala Sigtryggsdóttir
skoraði úr öllum fjórum vitunum, sem
Val voru dæmd i leiknum.
Já, Svala kom mjög við sögu 1 þess-
um leik og var stöðugur ógnvaldur
fyrir vörn Fram. Hún skoraði sjö af
Eliassoh, og markvörðurinn
Gúðmundur Gunnarsson sem varði
hreipt snilldariega.
1 siðari hálfleiknum settu
Vikingar mann til höfuðs Ásgeiri og
fóru að saxa á forskotið —
munurinn minnkaði i 10-9. En IR--
ingar sigu svo framúr aftur, þó
svolitill spenna væri i lokin. Úrslit
16-14 fyrir IR, og á lokaminútinni
misnotaði Vikingur, sem varð
Reykjavikurmeistari i þessum
flokki i vetur, vitakast.
I úrslitum 1. flokks kvenna hafði
Valur yfirburði gegn Fram —
Sigraði með 8-4.
niu fyrstu mörkum Vals i leiknum. Þá
átti önnur stúlka i Valsliðinu einnig
stjörnuieik — Sigurbjörg Pétursdóttir,
sem varði mark Vals með miklum
ágætum. En samt sem áður geta
Fram-stúlkurnar nagað sig i handar-
bökin — þetta var leikur hinna glötuðu
tækifæra fyrir þær.
Það var mikil taugaspenna i byrjun
leiks og illa gekk að koma knettinum i
mark. Fram fékk fyrsta tækifærið —
vitakast — en boltanum var kastað
langt framhjá markinu! Og svo skor-
aði Hildur Sigurðardóttir fyrsta mark
Vals á 6.min. Arnþrúður Karlsdóttir
jafnaði strax fyrir Fram eftir send-
ingu Kristinar Orradóttur, sem einnig
hafði „fiskað” vitið. Þá fengu Vals-
stúlkurnar tvö viti — Svala skoraði
örugglega úr báðum 3-1. Fram tókstað
jafna á 17.min. með mörkum Oddnýjar
Sigsteinsdóttur og Arnþrúðar 3-3. En
það var skammgóður vermir fyrir
áhangendur Fram — Svala og Jóna
Dóra Karlsdóttir skoruðu tvö siðustu
mörkin fyrir Val i hálfleiknum 5-3.
Framan af siðari hálfleiknum léku
Valsstúlkurnar vel — Svala skoraði
enn tvivegis, annað úr viti, og Valur
komst i 7-3. Sigurinn virtist i höfn,
fjögurra til fimm marka munur hélzt
langt fram i hálfleikinn. En þá fóru
Fram-stúlkurnar loksins að vakna til
lifsins. Þær skoruðu fjögur mörk i röð
— Guðrún Sverrisdóttir tvö og
Arnþrúður tvö. Munurinn varð aðeins
tvö mörk, 11-9, fyrir Val og sex min. til
leiksloka. En þá var eins og Fram
hefði eytt öllu sinu púðri — liðinu tókst
ekki að minnka muninn meir — og enn
var þá vitakast misnotað.
Það varekki mikill handknattleikur,
er liðin sýndu. Valsliðið tók af og til
góða spretti, en einkum var það þó
varnarleikurinn, sem var góður hjá
liðinu allan timann. Stórskyttur Fram
komust sjaldan i færi og liðið i heild lék
talsvert undir getu — spenna augna-
bliksins varð liðinu að falli, en þar
hafa Valsstúlkurnar mun meiri
reynslu til að bera gegnum sigurgöngu
siðasta áratugsins.
Dómarar voru Björn Kristjánsson
og Karl Jóhannsson og dæmdu skin-
andi vel — eins og alltaf, þegar þeir
dæma saman.
Stórsigur From
Þá kom að þvi, að tslandsmeistarar
Fram komust á skotskóna á ný — þeir
unnu Ármann í sjötta leik Reykja-
vikurmótsins með 8-1 I gærkvöldi á
Melavellinum. Staðan i hálflcik var
4-1.
Það var ungur piltur I Fram-liðinu,
Simon Kristjánsson, sem kom Fram á
bragðið með þvl að skora næstum
strax eftir að leikurinn hófst. Hann
varð einnig markhæstur ieikmanna
Fram I leiknum — skoraði þrjú mörk.
— ekta þrennu. Marteinn Geirsson
skoraði tvö af mörkum Fram, Sigur-
bergur Sigsteinsson, Erlendur
Magnússon og Eggert Steingrlmsson
eitt hver.
Fram og Valur eru nú efst i mótinu
með þrjú stig hvort félag eftir tvo leiki.
KR og Þróttur hafa tvö stig einnig
eftir tvo leiki, Vikingur og IBV eitt stig
eftireinn leik, og Armann ekkert eftir
tvo leiki.
Ajax í úrslit Evrópu-
bikars 3ja úrið í röð!
Yann Real Madrid aftur — og leikur til úrslita við Juventus, sem sló Derby út
Hollenzku Evrópumeist-
ararnir í knattspyrnu síð-
ustu tvö árin, Ajax frá
Amsterdam, sem jafn-
framt er heimsmeistari
félagsliða, eru óstöðvandi í
knattspyrnunni. I gærgerði
liðið sér lítið fyrir og vann
Real Madrid í síðari leik
liðanna í undanúrslitum
meistarakeppninnar —
Þeir yngri
leika til
úrslita
Úrslitaleikirnir i yngri flokk-
unum á tslandsmótinu I hand-
knattleik halda áfram i Laugar-
dalshöllinni i kvöld. Keppnin
hefst kl. 19.30. Þessi lið eigast þá
við.
4. flokkur karla
Þróttur-Völsungur
Völsungur-KR
3. flokkur kvenna
Fylkir-ÍBK
2. flokkur karla
FH-Fram
Víkingur-KA
Annað kvöld verður leikið i
Hafnarfirði og verða þá sex
leikir. A laugardag verða fimm
leikir i Hafnarfirði og fjórir leikir
i Laugardalshöliinni. Mótinu
lýkur á sunnudag og verða þá
háðir 9 leikir i Laugardals-
höllinni. t gær léku Fram og
Völsungur i 3. flokki karla i
Laugardalshöllinni. Fram sigraði
með 13-5.
Jafntefli í
Kópavogi
Einn leikur var háður i Kópa-
vogi I Litlu bikarkeppninni I gær.
Þá léku Kópavogur og Keflavik.
Jafntefli varð 2-2. Steinar
Jóhannsson skoraði bæði mörk
Keflvikinga á f.yrstu 10 min.
leiksins, en rétt undir lokin tókst
þeim Þór Hreiðarssyni og Ólafi
Friðrikssyni aö jafna fyrir Kópa-
vog, sem þar með hefur tekið þrjú
stig af Keflvikingum I keppninni.
Björg Jónsdóttir, fyrirliði Vals,
með hinn fagra verðlaunabikar.
Ljósmynd Bjarnleifur.
vann verðskuldaðan sigur í
Madrid 1-0, og sló því hina
sexföldu Evrópumeistara
Real úr keppninni.
Real Madrid lék þó vel, en það
bara dugði ekki tii — það virðist
nær útilokað að sigra Ajax ef eitt-
hvað liggur við. Þó voru Keizer,
fyrirliði liðsins, og Muhren ekki
með, og Johan Cruyff mjög
reifaðurá öðrum fætinum. Muller
skoraði eina mark leiksins og
sóknarleikurinn gekk milli-marka
lengi framan af. Skemmtilegur
leikur og i siðari hálfleiknum
komu yfirburðir Ajax vel i ljós —
Spánverjarnir höfðu aldrei mögu-
leika að vinna upp muninn, hvað
þá að skora þrjú mörk til að
komast i úrslit. Fyrri leikinn
vann Ajax 2-1 i Amsterdam.
I hinum leiknum i undan-
úrslitum Evrópukeppni meist-
araliða gerðu Derby og Juventus,
ítaliu, jafntefli og komst italska
liðið þvi i úrslit — vann fyrri
leikinn i Torinó 3-1.
Það var flest á móti Derby i
leikjunum við Juventus. Tveir af
beztu mönnum liðsins, Roy
McFarland, miðvörður
Englands, og Archie Gemmell,
skozki landsliðsmaðurinn, máttu
ekki leika i gær vegna þess, að
þeir voru bókaðir i fyrri leik
liðanna — og til að kóróna allt i
gærkvöldi i Derby misnotaði Alan
Hinton vitaspyrnu, og Roger
Davies var rekinn af leikvelli af
dómaranum 66. minútu. Með tiu
mönnum hafði Derby enga mögu-
leika i sinni fyrstu Evrópukeppni.
Vitaspyrnan var dæmd á 12
min. I siðari hálfleik. Kevin
Hector var þá felldur innan vita-
teigs, þegar hann var kominn i
gott færi. Hinton, sem yfirleitt er
mjög öruggur á vitaspyrnum,
spyrnti knettinum framhjá
marki. Það var erfitt augnablik
fyrir 38.845 áhorfendur, sem troð-
fylltu völlinn. Þarna fór gott tæki-
færi til að setja spennu i leikinn,
þvi Derby þurfti að vinna 2-0 til að
komast i úrslit. Juventus lék
mjög sterkan varnarieik allan
timann — leikmenn liðsins voru
greinilega á þvi að halda tveggja
marka forskotinu, sem þeir náðu
á heimavelli. Liðiö er mjög sterkt
með Anastasia og Altafini sem
beztu menn. Juventus leikur i
fyrsta skipti til úrslita i Evrópu-
keppni meistaraliða, en Ajax
þriðja árið i röð vann Inter,
Milanó, I i úrslitum i fyrra —
Celtic, Skotlandi, árið áður.
WBA féll eftir 24
ár í 1. deildinni!
West Bromwich Albion féll i
gærkvöldi niður i 2. deild i ensku
deildakeppninni — tapaði
heimaleik sinum gegn Manch.
City 1-2 — og getur þvi ekki náð
Norwich að stigum i 1. deild.
West Bromwich hefur átt sam-
fellda veru i 1. deild i 24 ár og oft
náð góðum árangri undanfarin
ár — einkum i bikarkeppninni.
WBA, sem er lið frá smáborg I
útjarðri Birmingham, annarrar
stærstu borgar Englands, sótti
miklu meira I leiknum i gær-
kvöldi — en allt lán hfur yfir-
gefið liðið. Á 11. min. skoraði
Francis Lee fyrsta mark leiks-
ins fyrir Manc. City með skalla.
Jeff Astle tókst að jafna
snemma i siðari hálfleik eftir að
hafa áður misnotað illa gott
tækifæri. WBA sótti mjög eftir
markið — Wile, miðvörður, og
Wilson fengu tækifæri til að
skora, en ekkert gekk og
tveimur min, fyrir leikslok
skoraði Tony Towers svo sigur-
mark City. WBA varð að vinna
þennan leik til að hafa einhverja
möguleika.
Úrslit i öðrum leikjum i gær
urðu þau, að Newcastle
Everton gcrðu jafntefli i 1.
deild, en I 3. deild vann
Plymouth Walsall 3-1. Leikið
var I Walsall, sem einnig er
smáborg rétt hjá Birmingham.
/ / I
ADALVINNINGUR ÁRSINS:
Mjög fallegt einbýllshús að Espilundi 3, að verðmæti
fnú þegar) kr. 6 milljónir.
%
100 bilaviimingar, þ.á.m. Mercedes Benz 280 S að
verömxti 1.774.000.00
*
Opel Manta sportbifreið að verðmæti kr. 782.000.00
%
Wagoneer ferðabifreið að verðmæti kr. 825.000.00
íbúðarvinningur mánaðariega.
#
Sala á lausum miðum stendur yfir.
Endumýjun ársmiða og flokksmiða er hafin.
Verð óbreytl
MercedesBenz
Opel Manta sport
m
1973
1974
Wagoneer jeppi