Vísir - 26.04.1973, Blaðsíða 16

Vísir - 26.04.1973, Blaðsíða 16
Varðskip fara þó hraðar en Lloydsman Könnun á auknum skipakosti — byssur taldar nógu góðar Nýja eftirlitsskipið, sem Bretar senda á vettvang i landhelginni innan skamms, Lloydsman, er meira skip og hraðskreiðara en eftirlitsskipin hafa verið. Þó eru beztu varðskipin okkar hrað- skreiðari en Lloyds- man. Landhelgisgæzlan mun eftir föngum fylgjast með þeim brezku vigvélum, sem varð vart rétt utan markanna i gær. Þar sást brezkt herskip, þyrla og kjölfar, sem helzt virtist vera eftir kafbát. Gaumgæfileg athugun stendur nú yfir á að auka skipakost gæzlunnar, enda við ramman reip að draga, einkum þegar enn eitt eftirlits- skipiö kemur i lið Breta. Hafsteinn Hafsteinsson blaða- fulltrúi gæzlunnar sagði i morgun, að varðskipin væru talin hæfilega búin fallbyssum til sinna þarfa. Hann taldi tilhæfulausa gagnrýni, sem hefur beinzt að gæzlunni, þess efnis, að fallbyssurnar væru úreltar. Ekki vel búnir myndum. Hafsteinn sagði, að nú yrði at- hugað i samráði við islenzka sjönvarpið, hvað við ættum af kvikmyndum, sem sýndu ásiglingartilraunir Bretanna. Hann sagði, að eitthvað væri til af slikum myndum hjá Land- helgisgæzlunni, en þær hefðu oft ekki heppnazt sem skyldi. Varð- skipsmenn hefðu um nög að hugsa við slikar aðstæður, og hefðu þeir ekki getað tekið mikið af kvikmyndum. Ljós- myndir væru hins vegar til. í átökunum miklu i fyrradag var kvikmyndun til dæmis ógerleg sakir myrkurs. Á það hefur verið bent, hve nauðsynlegt Landhelgisgæzl- unni og málstað Islands það væri, að góðar kvikmyndir væru teknar, er sýndu athæfi Breta. Varðskipiö Týr skar I gærkvöldi á báða togvira brezka togarans Lord Jellice á Selvogsbanka. —HH STYÐUR EFNAHAGSRAÐIÐ VIÐ BAKIÐ Á ÍSLENDINGUM? Yrði mikilvœgt innlegg við myndun þjóðarréttar í landhelgismálum tslendingar vænta þess að fá stuðning við málstað sinn i iand- helgismálinu i einni mikilvægustu stofnun Sameinuðu þjóðanna, efnahags- og félagsmálaráðinu. Þar flytur ísland ásamt tólf rikjum öðrum tillögu um yfirráð rikja yfir náttúruauðlindum sinum, meðal annars fiskstofnum i hafinu yfir landgrunni þeirra. Á fundi auðlindanefndar S.þ., sem var haldinn i Nýju Delhi i febrúar, var samþykkt að skora á efnahags- og félagsmálaráðið að lýsa yfir rétti allra rikja til auð- linda sinna, hvort sem þær væri að finna á landi eða i landgrunns- hafinu. Gunnar G. Schram, fulltrúi íslands i ráðinu, sagði i ræðu i fyrradag, að spurningin væri sú, hvort heimila skyldi erlendum öflum að fara með pólitiskt vald yfir auðlindum, sem væru að réttu eign þróunarlandanna og þeirra rikja annarra, sem tiltölu- lega nýlega hefðu hlotið sjálf- stæði. íslendingar teldu, aö ráðið ætti að taka skýra og einarða af- stöðu i þessu máli, þar sem væri um að ræöa eitt meginvanda- málið á efnahagssviðinu. Með þvi gæti ráðið veitt fulltingi þróunar- löndunum og öllum öðrum þjóðum, sem nú berjist fyrir viðurkenningu réttar sins. Efna- hags- og félagsmálaráðið hefði að visu ekki vald til að breyta þjóð- arrétti eða skrá formlega á bók nýjar þjóðarréttarreglur. En ráðiðhefur mikið pólitiskt vald og aðgerðir þess I þessu efni hljóta óhjákvæmilega að hafa áhrif á þá mótun þjóðarréttar, sem nú á sér stað innan annarra stofnana Sameinuðu þjóðanna. Gunnar rifjaði upp yfirlýsingu allsherjarþings S.þ. i fyrra um yfirráð rikja yfir fiskimiðum i hafinu yfir hafsbotninum. Þar lýstu S.þ. þvi yfir i fyrsta sinn, að strandriki hefðu óskoraðan rétt til fiskistofnanna á viðtækum svæðum undan ströndum þeirra. — HH Ólöghlýðin hross ó vakki í Breiðholti og Árbœ Þó hestar séu liklega með vinsælli dýrum hjá mannskepn- unni, eru þeir ekki tiltakanlega eftirsóttir I skrúðgaröa. 1 það minnsta finnst ibúum Árbæjar og Breiðholtshverfis það. t morgun var lögreglan köliuð út fjórum sinnum á stuttum tima vegna hesta, sem voru lausir I ibúðar- hverfunum. Að sögn lögreglunnar er þetta töluvert vandamál og er það skiljanlegt, að fólki sé sárt um garðana, þegar frost er farið úr jörðu og allur gróöur er að lifna. Ekki er ljóst hvort þessir hestar koma sérstaklega frá einum vissum stað en helzt telur lögreglan að ástæðan sé sú að of margir hestaeigendur gæti gripa sinna ekki nógu vel. —ÓG Að störfum í beljandi umferðar- stórf Ijótinu Þetta er örugglega ekki rólegasti vinnustaður i heimi — . úti I miðri umferðinni i Austur- stræti. En það verður að hafa það! Jafn hörðum höndum og veturinn hefur farið um göturnar veitir ekki af við- gerðum, og ekki væri þjált aö loka fyrir alian akstur um Austurstrætið, eins og umferðin er orðin i dag. Þessir tveir létu sig þvi hafa það að pæla I malbikinu i gær, án þess aðhafa annað sér til hiifðar en þetta litla skilti á götunni til viðvörunar ökumönnum. — En reynslan sýnir lika, að gatna- viðgerðarmönnum virðist ekki svo hætt I umferðinni. l'i < ;n Fimmtudagur 26. april. 1973. FJORIR INN FYRIR ÖLVUN VIÐ AKSTUR Lögreglan handtók fjóra menn I bifreið I nótt vegna gruns um ölv- un við akstur. Tveir leigubifreið- arstjórar höfðu veitt bifreiðinni athygli og þótti þeim ýmisiegt at- hugavert við akstur hennar og gerðu þeir iögreglunni viðvart. Hún fann bifreiðina fljótlega með aðstoð leigubifreiðarstjóranna en þá var búið að stöðva bifreiðina og vél hennar var ekki iengur I gangi. Fjórir menn voru i bifreiðinni og þar af einn, sem sat undir stýri. Við yfirheyrslu kannaðist hann ekki viö aö hafa ekið bifreið- inni en eitthvað var framburður hans á við og dreif, er hann var spurður um hver hefði ekið. Ekki þótti fært að yfirheyra fleiri um nóttina og voru allir mennirnir I vörzlu lögreglunnar I nótt. — ÓG „Nœstu 2-3 árin verða örlaga- 9 • ## arin — sagði Gunnar J. Friðriksson á ársþingi iðnrekenda í morgun „Næstu 2-3 árin munu að minum dómi verða örlagaárin I islenzkum iðnaði. Þá verður úr þvi skorið, hvort tekst að gera ísland að þróuðu iðnaðarlandi, þar sem haldast I hendur hagnýting auðlinda og tækni og umhyggja fyrir manninum og umhverfi hans”, sagöi Gunnar J. Friðriksson form. Félags Isl. iðn- rekenda á ársþingi félagsins laust fyrir hádegið. Ekki hefur verið staðið við fyrirheit, sem stjórnvöld gáfu iðnrekendum við inngöngu i EFTA, taldi Gunnar. A fjórum árum, mikilvægasta timanum fyrir aðlögun iðnaðarins að aukinni samkeppni, sem liðinn er frá inngöngu i EFTA, hefur iðnaðurinn aðeins notið frelsis til verðlagningar i 8 mánuði. A meðan hafa verið almennar hækkanir á innfluttum hráefnum og öðrum rekstarvörum auk vinnutimastyttingar og kaup- gjaldshækkana. Iðnaðurinn býr við harðari skattlagningu en keppinautar hans erlendis. Skattalögin.sem sett voru 1971 og iðnrekendur töldu að mundu stuðla að traustari uppbyggingu fyrirtækja, voru upphafin með nýjum lögum, sem verkuðu aftur fyrir sig, svo að iðnaðurinn naut aldrei hagstæðari laga. Þá greiða iönrekendur sölu- skatt af vélum, en það tiðkast ekki hjá erlendum keppinautum. Iðnaðurinn greiðir einnig 2 1/2% launaskatt, sem landbúnaður og sjávarútvegur greiða ekki lengur. Gunnar minnti á, að siðustu eitt til tvö ár hefði orðið gifurleg breyting á orkumálum og komið i ljós, að raforkuvinnsla með kjarnorku hefði ekki reynzt eins hagkvæm og búizt var við. Þetta hefði i för með sér, að sam- keppnisaðstaða tslendinga um orkuverð hefði mjög batnað og álitið væri, að hún mundi enn batna til muna. —HH

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.