Vísir - 26.04.1973, Blaðsíða 13

Vísir - 26.04.1973, Blaðsíða 13
Fimmtudagur 26. aprll. 1973. n □AG | 0 KVÖLD | □ □AG | 13 Útvarp klukkan 22.45 í kvöld Manstu eftir þessu? TÓNUST HELGUÐ VORI OG HÆKKANDI SÓL Umsjón Guðmundur Jónsson, píanóleikari — Þetta eru lög af ýmsu tagi, sem minna okkur á vorið og náttúruna og mörg þeirra eru með stefjum úr gömlum evrópsk- um þorps- og sveitadönsum eða I svipuðum anda —, sagði Guð- mundur Jónsson, þegar viö spurðum hann hvað á boðstólum yrði. Þátturinn hefst á kafla úr 6. simfóniunni eftir Beethoven — Pastoral simfóniunni — en siðan kemur forleikurinn úr óperett- unni Rússland og Ludmilla, sem er mjög kröftugt lag i rússnesk- um þjóðlagastil. Leikið verður lag úr ballettin- um Rómeó og Júlia og þar á eftir tvö sönglög eftir pólska tónskáld- ið Chopin, sem segja má að séu með mazúrka tempói og einnig mazúrka eftir hann, sem leikinn er á pianó. 1 lokin eru svo tvö norræn ætt- jarðarlög, sem helguð eru vorinu og vaknandi gróðri. Það er óneitanlega vor i lofti og tón- listardeildin hjá Útvarpinu vill gera sitt til að minna okkur á þaö. - ÓG UTVARP 13.00 A frivaktinni. Margrét Guðmundsdóttir kynnir óskalög sjómanna. 14.30 Siödegissagan: „Lifs- orrustan” eftir óskar Aöal- stein.Gunnar Stefánsson les (17). 15.00 Miðdegistónleikar: Tónlist eftir Purcell. Flytjendur: Neville Marrin- er, Peter Gibbs, Granville Jones, George Malcolm, April Cantelo, Alfred Deller o.fl. 16.00 Fréttir 16.15. Veðurfregnir. Til- kynningar. 16.25 Popphornið. 17.10 Barnatimi: Eirikur Stefánsson stjórnar. 18.00 Eyjapistill. Bænarorð. Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Tilkynningar. 19.20 Daglegt mái. Helgi J. Halldórsson cand. mag. talar. 19.25 A tali við tónskáld. Jónas Jónasson ræðir við Eyþór Stefánsson á Sauðárkróki. 20.00 Einsöngur i útvarpssal: Friðbjörn G. Jónsson syngurlög eftir Arna Thor- steinson, Sigurð Þórðarson, Loft Guðmundsson, Mariu Brynjólfsdóttur og Magnús Blöndal Jóhannsson. Ólafur Vignir Albertsson leikur undir á pianó. 20.20 Leikrit: „Glæpur” eftir Sigfrid Siwertz. Þýöandi: Asthildur Egilson. Leik- stjóri: Ævar R.Kvaran. Per- Guömundur Jónsson, pianó- leikari Útvarpið klukkan 20.20 í kvöld Glœpur Vor i lofti og hækkandi sól verða á dagskrá I þættinum „Manstu eftir þessu” i útvarpinu i kvöld. Yngsta fólkið hefur ekki látið á sér standa að notfæra sér góða veðriö, eins og þessi sem Ijósmyndarinn hitti niðri við Tjörn I gærdag. Voru þar á ferö bæði ungir og gamlir, sem voru að njóta sólarinnar sem brauzt I gegnum skýin, og ekki var annað að sjá en fuglarnir á Tjörninni nytu góðs af og hefðu nóg af brauði til aö fylla sig með. m Mt ^■*ifnmir## Sakamálalekrit eftir sœnska höfundinn Sigfrid Siwerts ,,— Við teljum, að við bjóðum þarna upp á sakamálaleikrit, sem hefur það fram yfir svo mörg önnur af þvi taginu, að jafnframt þvi að vera skemmtilegt og spennandi, er þetta gott leikverk, þar sem við sjáum persónurnar sem raunverulegar manneskjur —“ Þetta sagði Þorsteinn ö. Step- hensen, þegar við spurðum hann um leikritið, sem flutt verður i kvöld klukkan 20.20. Það gerist að mestu innan fjöl- skyldu roskins yfirdómara, er ekki má vamm sitt vita i neinu og hefur strangar og siðavandar lifs- skoðanir. Börn hans og tengdadóttir hafa kannski ekki alveg sömu afstöðu til málanna og gamli maðurinn og eru lika misjöfn að upplagi. Svo er framinn glæpur i fjöl- skyldunni og það neyðir gamla manninn til að taka lifsskoðun sina til endurskoðunar, og vekur einnig þá spurningu, hvort siða- vendni ha'ns og strangt uppeldi eigi ekki einhverja sök á þvi hvernig málum er komið. Höfundur leiksins er þekkt sænskt skáld, sem samdi bæði skáldsögur, leikrit og ljóð en þetta mun vera eina sakamála- verk hans. Hann er látinn fyrir nokkrum árum en meöal þekktra verka hans má nefna skáldsög- urnar: Til baka til Babylon og Jónas og drekinn. Þýðandi er Ásthildur Egilsson og leikstjóri Ævar Kvaran.—óG sónur og leikendur: Andreas von Degerfelt hæstaréttar dómari, Valur Gislason. Rugter von Deg- erfelt forstjóri, Arnar Jóns- son. Maud von Degerfelt kona hans, Kristbjörg Kjeld. Hans von Degerfelt málari, Erlingur Gislason. Maria von Degerfelt hjúkrunarkona, Helga Bachmann. Bernhard Gilj- ams læknir, Baldvin Hall- dórsson. Harry Lilja lög- regluforingi, Jón Sigur- björnsson. Dr. Forenius réttarlæknir, Gunnar V..C 'A ''■Jí m u Spáin gildir fyrir föstudaginn 27. apríl. Hrúturinn,21. marz—20. april. Dagurinn verður sennilega mjög góður og þægilegur, ekki neinir stórir atburðir að visu, en flest ákaflega jákvætt og lofar góðu. Nautið, 21. aprfl—21. maí. Þægilegur dagur á margan hátt, yngri kynslóðin virðist eiga von a einhverjum ævintýrum þegar á liður, og henni vissara að fara gætilega. Tviburarnir, 22. mai—21. júni. Það litur út fyrir að þú eigir góðum vinum að þakka að minnsta kosti góðar hugsanir, og að sumar hverjar birt- ist einnig i verki. Krabbinn, 22. júni—23. júli. Það er ekki aö vita nema að eitthvað, sem þú hefur álitið að falið væri i leynum, komist upp og að þú verðir að taka róttækar ákvarðanir þess vegna. Ljónið, 24. júli—23. ágúst. Þú kemst sennilega langleiðina að einhverju takmarki, sem þú hefur sett þér að ná, og liklegt að þú njótir þar aðstoð- ar á bak við tjöldin. Meyjan, 24. ágúst—23. sept. Farðu gætilega i peningamálum i dag, annast litur út fyrir að þú verir þar fyrir happi, ef ekki i dag þá einhvern næstu daga. Vogin,24. sept,—23. okt. Þú færð gott tækifæri til að jafna málin við einhvern, sem gert hefur þér einhvern grikk, ef til vill fyrir nokkuð löngu sið- an. Drekinn, 24. okt.—22. nóv. Felldu ekki harða dóma yfir þeim, sem þér finnst að breytt hafi öðruvisi en þú mundir hafa gert. Þar getur margt ráðið, sem þú veizt ekki. Bogmaöurinn, 23. nóv.—21. des. Góður dagur flestum, en ef til vill eitthvað varasamur i pen- ingamálum, og vissara aðganga þar vel frá öllu, einkum greiðslum. Steingeitin, 22. des,—20. jan. Þaö er eins vist að þú lendir i einhverri senu i dag, kannski i peningamálum og vissara að ganga þar vel frá öllu, einkum greiðslum. Vatnsberinn,21. jan.—19. febr. Dagurinn verður þér á margan hátt góður, en þó skaltu gæta þess að vekja ekki afbrýðisemi hjá þeim, sem þú um- gengst daglega. Fiskarnir, 20. febr.—20. marz Gerðu þér grein fyrir hlutunum eins og þeir eru, það getur verið skemmtilegt að sjá þá i hillingum, en hitt verður affarasælla. LAUSSTAÐA Staða fræðslustjóra i Kópavogi er laus til umsóknar. Umsóknarfrestur er til 5. mai, og skal senda umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf til undirritaðs, sem ásamt formanni fræðsluráðs Andrési Kristjánssyni, ritstjóra, veitir allar nán- ari upplýsingar. Kópavogi 13. april, 1973 Bæjarstjórinn i Kópavogi. Húsnœði óskast strax undir þjónustufyrirtæki. Þarf að vera á 1. hæð með aðkeyrslu og 100-150 ferm. Tilboð óskast sent blaðinu merkt „þrifalegt — 4834”. Eyjólfsson. Bros Risberg blaðamaður, Flosi Ólafsson. Rosenschiöld hæstarréttar- dómari, Jón Aðils. Lisa Waldemars ritari, Jóna Rúna Kvaran. Berggren, yfirlögregluþjónn, Guöjón Ingi Sigurðsson. Frú Jóns- son húsvörður, Nina Sveins- dóttir. Fangavörður, Heimir Ingimarsson. 22.00 Fréttir. 22.15 Veðurfregnir. Reykja- vikurpistill. Páll Heiðar Jónsson stjórnar þætti um bilaviðskipti. 22.45 Manstu eftir þessu? Tónlistarþáttur i umsjá Guðmundar Jónssonar pianóleikara. 23.30 Fréttir i stuttu máli. Dagskrárlok. ★☆★☆★☆★☆★☆★☆★☆★☆★☆★☆★☆★☆★☆★☆★☆★☆★☆★☆★☆★☆★☆★★^★^★^^^★☆★☆★☆★☆★☆★☆^★☆★☆★☆★☆★☆★☆★☆★☆★☆★☆★☆★☆★☆★☆★☆★☆★☆★☆*

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.