Vísir - 07.05.1973, Blaðsíða 1

Vísir - 07.05.1973, Blaðsíða 1
vlsm 63. árg. — Mánudagur 7. maí 1973 — 103. tbl. MEÐ FINGURGÓMANA Á BIK- ARNUM - EN TÖPUÐU „Hvernig hann varði, verður alltaf óskiljanlegt”, sagði þulur BBC, sem lýsti úrslitaleik enska bikarsins á laugardag. Hann átti við markvörö Sunderland, og þcssi setning segir kannski meira en flest, þegar einhver óvæntustu úrslitin í langri sögu bikarkeppninnar áttu sér staö. Sunderland — liðið I 2. deild — sigraði 1-Oiafar skemmtilegum leik, og það eru 42 ár sfðan liö úr 2. deild hefur sigrað I bikarnum. Enn voru leikmenn Leeds með fingurgóma á bikar — en töpuðu. Sjá íþróttir f opnu. „Uthlutun húsa í Eyja- byggð orðin aðkallandi" RÁÐSTEFNUFLÓÐ í SUMAR — 300 flugumferðarstjórar þinga og síðan kemur flóð af lœknaróðstefnum Það eru ekki bara farfuglarn- ir, sem koma hingað norður undir heimskautsbaug með betra veðri og hækkandi sól, ferðamönnunum fer nú að fjölga mikið næstu vikur og ráðstefnu- timabilið er að byrja. Fyrsta stóra ráðstefnan þetta vorið er alþjóðlegt þing flugum- ferðarstjóra, sem sett var i Þjóðleikhúsinu klukkan 10.00 i morgun. Þingfulltrúar eru rúmlega 300, hvaðanæva úr heiminum, en þeir dveljast flestir á Hótel Loftleiðum, og þar munu þing- störf fara fram. Eftir þeim upplýsingum, sem við höfum aflað okkur, verða haldnar í það minnsta 40 ráð- stefnur hér i borginni i sumar og ekki mun sá dagur liða frá þvi i lok mai og fram undir miðjan september, að ekki sé einhver ráðstefnan i gangi. Skjaldborg um Brjesnev Sovézkir fjölmiðlar hafa reist skjaldborg um ieiðtoga landsins, Leonid Brezhnev. Geysimikil herferð hefur verið farin I blöðum, greinar og viðtöl við leiðtogann birt- ast i metratali, og i sjónvarpi brá honum fyrir alls 30 sinn- um i 30 minútna sjónvarps- þætti. Leikdómur um Lausnargjald Agnars — sjá bls. 7 Vilja minnka ríkisbáknið „Þvi minna sem rlkið gerir, þeim mun betra”, segja les- endur VIsis i skoðana- könnun, sem blaðiö lét gera um ríkisreksturinn. Niður- stoður könnunarinnar eru þvi nokkuð aðrar en gerðir núverandi valdhafar —Sjá nánar á bls. 2 Bretar tapa mest sjólfir á löndunarbanni sjá baksíðu Ódýrara að malbika stofuna en teppaleggja — sjá baksíðu Ráðstefnurnar eru flestar haldnar á Hótel Loftleiðum og Hótel Esju, en minna er af þeim á Hótel Sögu. Ráðstefnugestirn- ir eru frá öllum heimshornum, en mest ber þó á norrænum þingum ýmissa starfshópa, og eru þær oft haldnar til skiptis á Norðurlöndunum. Aiþjóðaþing flugumferöarstjóra var sett I Þjóðleikhúsinu klukkan 10.00 I morgun. A myndinni sjáum viö, hvar Geirlaug Þorvaldsdóttir leikkona býður gestina velkomna Að sjálfsögðu eru þessar ráð- stefnur mjög misjafnlega stór- ar, þær stærstu sækja rúmlega 300 fulltrúar og ekki er óvenju- legt, að þátttakendur séu um 200 manns. —ÓG — segir Jóhann Einvarðsson, bœjarstjóri í Keflavík. — Nlargir leggja leið sína suðureftir til að skoða norsku húsin Mikill f jöldi fólks lagði leið sina i hina svo- nefndu Eyjabyggð i Garðahverfi Keflavikur, en þar er nú unnið að þvi, að koma niður norsku bráðabirgða- húsunum fyrir Vest- mannaeyinga. Þrjú til fjögur hús hafa nú þegar verið skrúfuð saman, en alls verða húsin fjörutiu talsins. „Mér finnst það vera orðið að- kallandi”, sagði Jóhann Ein- varðsson, bæjarstjóri, I viðtali við Visi, ,,að þessum húsum verði út- hlutað hið allra fyrsta. Það er með öllu ónauðsynlegt, aö láta hinnmiklafjöldaiumsækjendabiða lengi i óvissu. En þvl höfum við fengið að kynnast á bæjarskrif- stofunni hversu mörgum Vest- manneyingum er nauðsynlegt að fá skjót svör varðandi úthlut- unina”. Óliklegt er talið, að húsin verði afhent fyrr en öll í einu, en það verður ekki fyrr en i lok næsta mánaðar. „Astæðurnar eru tvær,, út- skýrði Jóhann. „önnur er sú, að vatns-og skólplagnir komast ekki að fullu í gagnið fyrr en allar i einu. Hin ástæðan er sú, að þeir sem vinna við að reisa húsin telja óráðlegt, að miklum fjölda barnafjölskyldna verði opnað svæðið á meðan enn er verið að vinna þar að húsbyggingum”. I gær var nokkrum húsum til viðbótar skipað á land i Keflavik, en húsin koma til með að mynda myndarlegt hverfi með um fjórum til fimm götum. Eru það ekkifærrien 70 til 80 manns, sem vinna að því að setja saman húsin —ÞJM Eitt af norsku Vestmannaeyjahúsunum, sem sett hefur veriö niður I Eyjabyggð Keflavikur. Það er samansett úr nokkrum einingum af því taginu, sem sjást til vinstri á myndinni — „óupptekin”. Ekki er ráögert að afhenda húsin fyrr en öll I einu og þá aö tveim mánuðum liðnum. Athygli vekur, hve læknar virðast vera ráðstefnuglaðir, og er það að sjálfsögðu mjög ánægjulegt, að þeir fylgist með i sinum greinum. t sumar verða hér ráðstefnur barnalækna, geðlækna og svæfingalækna og næsta.sumar halda dýralæknar ráðstefnu.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.