Vísir - 07.05.1973, Side 5
5
Visir. Mánudagur 7. mai 1973
AP/IMTB ÚTLÖNDÍ MORGUN UTLÖND I MORGUN ÚTLÖND Umsjón Guðmundur Pétursson
frá stofnun Israel
25 ár
Skriðdrekar og bryn-
vagnar fóru fylktu liði
um götur Jerúsalem-
borgar i morgun, meðan
orustuþotur flugu þvert
og endilangt yfir landinu
helga, sem nú heldur
hátiðlegt 25 ára afmæli
ísraels sem sjálfstæðs
rikis.
Hátiðahöldin hófust með dansi i
gærkvöldi, sem stóð fram á rauða
nótt, en I dag var hver sála á ferli,
sem gat sig með nokkru móti
hrært. — Þannig voru um 350
þúsund áhorfendur á ferli I hinni
helgu borg i morgun og virtu fyrir
sér hersýninguna, þar sem gengu
fram 2.000 úrvalshermenn, auk
skriðdrekanna og brynvagnanna.
En lögregla og her var mjög á
varðbergi gegn hugsanlegum
hermdarverkum arabiskra
skæruliða, og var fjöldi grun-
samlegra Araba tekinn úr umferð
og hafður i geymslu i öryggis-
skyni.
Bænagjörð fyrir varanlegum
friði lauk i mörgun, með þvi að
hersýningin hófst og hinir 2000
hermenn gengu fyrir Goldu Meir,
forsætisráðherra, og David Ben-
Gurion, sem var einn af stofn-
endum rikisins. Herflugvélar
mynduðu Daviðsstjörnuna á
himnum.
Margir Israelsmenn höfðu
verið andvigir hersýningunni,
sem þeim þótti bæði storkandi, og
þó öllu fremur óþarfa eyðsla,
Voru símahleranirnar i
Watergatebyggingunni, aðal-
skrifstofum demókrataflokks-
ins, aðeins einn þáttur af miklu
víðtækari hlerunum?
Timaritið „Time” heldur þvi
fram i nýútkomnu blaði sinu um
helgina, að FBI hafi byrjað aö
hlera sima nokkurra blaða-
manna árið 1969 að skipun Nix-
ons forseta, en hlustunarskýrsl-
unum og hinum skriflegu fyrir-
mælum hefði verið stolið frá J.
Edgar Hoover, þáverandi yfir-
manni FBI.
Timaritið segisthafa komizt á
snoðir um, að áhugi stjórnar
Nixons fyrir simahlerunum eigi
sér sögu allt aftur til ársins 1969,
þegar ráðamenn i Hvita húsinu
fýsti að vita, hvernig frétta-
menn kæmust yfir hernaðar-
upplýsingar, sem áttu að heita
leyndarmál.
Blaðið heldur þvi fram, að
Nixon hafi beðið Hoover að láta
hlera simana hjá tveim frétta-
mönnum New York Times og
fjórum starfsmönnum Hvita
hússins. En Hoover neitaði að
verða við þessu, nema hann
fengi skriflegt umboð til slikra
aðgerða frá æðsta yfirmanni
FBI, dómsmálaráðherranum
sjálfum, sem þá var John Mit-
chell.
„Time” heldur þvi fram að
simahlerununum hafi verið
haldið áfram árin 1970 og 1971,
en litið hafi hafzt upp úr þvi
krafsinu. — En á árinu 1971 ætl-
aði stjórnin að þrengja að Hoov-
er, sem þeim þótti litt leiði-
tamur, og fá hann til að segja af
sér. Kleindienst, sem þá var
fulltrúi Mitchells dómsmála-
ráðherra, ætlaði að krefjast
opinberlega, að þingnefnd yrði
látin rannsaka FBI.
I gremju sinni hringdi Hoover
i Kleindienst og hótaði að kunn-
gera hleranirnar og varð þá
ekkert úr þvi, að krafizt yrði
rannsóknarinnar. „En siðar um
vorið 1971 komst Hoover að þvi,
að skýrslurnar um simahleran-
irnar voru horfnar, og fyrirskip-
aði hann rannsókn,” segir
Time.
Time segir, að þegar Mark
Felt, sem nú er næstæðsti
þvi að hún er áætluð munu kosta
íim 350 milljónir króna.
Hvar sem þvi varð við komið,
Slepptu
Fulltrúi hins opinbera á Kúbu
kom fram i sjónvarpi i gærkvöldi
og tilkynnti að þangað væru
komnir þeir þrjátiu pólitisku
fangar, sem Mexikó-stjórn hafði
látið iausa að kröfum vinstrisinn-
aðra skæruliða.
Skæruliðarnir, sem höfðu hótað
að myrða annars bandariska
aðalræðismanninn i Guadalajara
i Mexikó, en honum höföu þeir
rænt á föstudag, svikust um að
láta hann lausan, en komu i
staðinn með nýjar kröfur.
hafði verið hengt upp skraut, og
fánar voru á hverri stöng til þess
að minnast aímælisins. Fjöldi er-
Ekki var látið uppi i morgun,
hverjar þessar nýju kröfur væru.
Flestir þessara 26 manna og 4
kvenna, sem skæruliðarnir
kröfðust að fá lausa úr fang-
elsum, hafa verið teknir siðustu
tvö árin eftir bankarán eða til-
raunir til sliks. Þekktastur þeirra
er Jose Brocho Campos, sem var
einn nánasti samstarfsmaður
skæruliðaforingjans Genero
Vasques Rojas, sem fórst i bil-
slysi fyrir rúmu ári.
Skæruliðarnir höfðu auk þess
lendra Gyðinga er kominn til
Israels til þess að vera viðstaddur
hátiðahöldin.
krafizt þess, að blöð og útvarp
birtu pólitiska yfirlýsingu fra
þeim i gær. í henni var þvi haldiö
fram, að yfirvöld hefðu reynt að
leyna almenning raunverulegum
tilgangi bankaránanna.
Yfirvöldin hafa reynt að fá fólk
til þess að trúa þvi, að þeir séu
venjulegir afbrotamenn, leigu-
morðingjar og fjandmenn fólks-
ins. Sagan hefur þó sýnt, að fél-
arslegt óréttlæti hefur ýtt undir
byltingaraðgerðir”, var sagt i
yfirlýsingunni.
Hvirfil-
bylur
Fjórtán ára drengur fórst og
aö minnsta kosti hundrað
manns slösuðust, þegar
hvirfilvindur fór yfir bæinn
Kiel i furstadæminu, Schles-
wig-Holstein, á laugardags-
kvöld.
Fjöldi húsþaka rifnaði af og
fauk burt, tré fuku um koll og
hundruð bifreiða eyðilögðust.
Tjónið er talið nema fleiri
milljónum vestur-þýzkra
marka.
Nærri aðaljárnbrautarstöð-
inni i Kiel urðu fjórir drengir
fyrir húsþaki, sem vindurinn
hafði rifið með sér. Einn
drengjanna grófst i þak-
brakinu, og var hann látinn,
þegar björgunarmenn komu
að. Hinir voru alvarlega
meiddir.
Jafnhliða stormsveipnum
fylgdi haglél og rigning. Sögðu
menn, að haglið hefði verið á
borð við dúfuegg.
Fleiri
Mirage
Frakkar munu láta Libýu i
té fleiri orustuþotur af gerð-
inni Mirage, herma áreiðan-
legar heimildir i Paris. Þar er
komizt svo að orði, að afhend-
ingu i það heila 114
Mirageflugvéla, sem Frakkar
hafa lofað Libýu, skuli vera
lokið fyrir haustið 1974. —
Franska stjórnin segist ekki
hafa getað fundið sannanir
fyrir fullyrðingum Israels-
manna, sem segja, að
Libýumenn láti flugvélarnar
fara beint til Egypta, sem
kunni hugsanlega að beita
þeim einhvern tima gegn
ísrael.
Olíu-
verðið
Samtök oliuframleiðsiu-
landanna gerðu á sunnudag-
inn grein fyrir kröfum sinum
um verðhækkanir á oliu og
kváðu ósanngjarnt að sakast
við þau um oliuhækkanir.
Blaðafulitrúi þeirra sagði,
aðsamtökin hefðu aðeins einu
sinni frá þvi að þau voru
stofnuð 1960, beitt sér fyrir
oliuhækkun. Það var 1971,
þegar Teheransamkomulagið
var gert.
Kröfurnar um hækkun verðs
á oliu, sagði hann byggðar á
gengislækkun dollarsins og
ætti einungis að vera til þess
að vega upp tapið, sem löndin
höfðu beðið við gengisbreyt-
inguna. Oll olia er greidd i
dollurum.
Blaðafulltrúinn hélt þvi
fram, að oliuframleiðslu-
löndin fái nú minna fyrir hvert
fat af hráoliu en þau fengu
árin áður en samtök þeirra
voru stofnuð.
Samtökin hafa krafizt 11.1
prósent hækkunar, en oliu-
félögin hafa boðið 7,2%
hækkun. 1 dag halda aðilarnir
með sér fund i Tripoli i Libýu
til þess að ræða nýtt tilboð,
sem oliufélögin hafa lagt
fram.
Ekki hefur verið upplýst hve
hátt er farið i þessu tilboði, en
kunnugir telja, að það láti
nærri 9%. Oliufélögin gera sér
vonir um að tilboðið geti leitt
til þess að samningar hefjist
aftur, en upp úr þeim slitnaði
24. april
Hleruðu síma frá 1969
maður FBI, spurði Robert C. ráðherra að þvi, hver tekið hefði svarað: „Spurðu forsetann eða
Mardian aðstoðardómsmála- skýrslurnar, hafi sá siðarnefndi Mitchell.”
Þessir sex öldungadeildarþingmenn skipa þingnefndina, sem vinnur að rannsókn Watergatemálsins:
(Sitjandi) Howard Baker og Sam Erwin, formaöur nefndarinnar. (Standandi) Lowell Weicker, Daniel
Inouye, Herman Talman og Edward Gurney.
Skœruliðarnir fengu fangana, en ...
ekki konsúlnum