Vísir - 31.07.1973, Blaðsíða 1
63. árg.Þriðjudagur 31. jdli 1973 —173. tbl.
Nú er það ákveðið
Austurstrœtið
verður göngugata
,,Við köllum þetta ekki lokun, sem er nýkomin heim eftir að
heldur opnun” segir Leó Jóns- hafa kynnt sér göngugötur i
son, hagræðingarráðunautur, miðborgum erlendis. Fór
hann ásamt Gesti Ólafssyni
skipulagsfræðingi i þessa ferð,
þar scm fyrirhugað var að
gera Austurstræti að göngu-
götu. Er nú ákveðið að gatan
verði opnuð eingöngu fyrir
gangandi fólki til tilraunar i
sumar. „Þetta er liður i
óhjákvæmilcgri þróun og
Laugavegurinn mun siöar
fylgja á eftir”, sagði Lcó
ennfremur. Sjá baksiðu.
Slasað-
ist til
ólífis í
knatt-
spyrnu
á Ármannsvelli
Haukur Birgir Hauksson, 26
ára bilamálari, kvæntur og
tveggja barna faðir, lézt I gær
i Landspitalanum af völdum
meiðsla, sem hann hlaut I
knattspyrnuleik 26. júni. Það
var á Armannsvelli i leik i 1.
fiokki milli Armanns og Vals.
Haukur heitinn fékk spark i
magann — skeifugörnin
sprakk. Hann var fluttur i
Landspitalann og var þar
þungt haldinn þar til hann lézt.
Hann var þrivegis skorinn upp
— siðast nú um helgina.
Þetta er I annað sinn hér á
landi, sem knattspyrnumaður
deyr af völdum meiðsla iopin-
berum kappleik. Arið 1933
slasaðist Jón Kristbjörnsson,
markvöröur Vals, i leik I
meistaraflokki gegn KR og
lézt tveimur dögum siðar.
Sjá nánar á bls. 8.
Fórnardýr
thalidomide
fengu 5000
milljónir
50000 milljón krónur var sú
upphæð, sem brezka fyrir-
tækið Distillers Co. sættist á
að greiða foreldrasamtökum
Thalidomide-barna i bætur
fyrir örkuml barna þeirra.
Lokið er loks tólf ára mála-
þrasi brezkra foreldra barna,
sem fæddust með örkuml, eft-
ir að mæður þeirra höfðu tekið
inn thalidomide á meðgöngu-
timanum.
Sjá bls. 5
Hvernig eru
hlaðrúmin
bezt?
Hlaðrúm eru vinsæl i barna-
herbergjum og einnig I
sumarbústöðum. Þau taka
litið pláss og geta verið mjög
hentug. En sum þeirra geta þó
jafnvel verið hættuleg. Er
frágangur slæmur? Fylgir
stigi með rúminu? Er rúmið
stöðugt? Getur barn dottið úr
efra rúminu? Við segjum
nánar frá hlaðrúmunum og
könnun, sem fram fór I
Sviþjóð. á Innsiðu I dag.
Sjá bls. 7
Rétt fyrir kvöldmat i gær var
umræddur maöur handtekinn, og
viðurkenndi hann allt strax.
Sagði hann að hann og félagar
sinir hefðu neytt allra taflanna
sjálfir, og væri ekkert eftir. Ekki
er vitað nákvæmlega hverjir
þessir félagar mannsins eru, en
það er a.m.k. húsráðandinn i
Skipholtinu. Afgangurinn aí lyf-
seðlunum fannst heima hjá
manninum
Henni var ekkert sérlega um myndatökur gefið þessari 0g var búin að stinga sér aftur til sunds, áður en
Ijósmyndaranum okkar tókst aö óska eftir þátttöku hennar I Sumarstúlkukeppni Visis — hvað þá að
hann næði að taka fleiri myndir. En hvað um þaö, þessi ágæta mynd Astþórs Magnússonar minnir okkur
á það, að I dag og á morgun tökum viðá mótisfðustu ábendingum varðandi stúlkur I keppnina. Að lokum
munum viö svo birta myndir af öllum stúlkunum saman i einu blaöi og lesendur velja Sumarstúlku
Visis, sem fær siðan aö launum ferð meðSunnu til Mallorca.
Þessir menn v.oru fyrir stuttu
kærðir fyrir að leika sama leik.
Þá höfðu þeir svæft mann með
lyfi, stolið af honum lyklunum og
farið heim til hans. Þar stálu þeir
áfengisflöskum.
—ÓH
Fimmtíu
tapaðar
- 200
unnar
„Eftir ellefu mánaða strið
og kif er 50 milna landhelgin
ekki enn komin til fram-
kvæmda. Ekkert bendir til
þess, að við getum komið
henni I framkvæmd fyrir haf-
réttarráðstefnuna, sem hefst
að rúmlcga hálfu ári liðnu. Við
getum þvi alveg eins einbeitt
okkur að 200 milna landhelgi
eins og að halda uppi mála-
stappi við Breta og Þjóð-
vcrja”.
Sjá nánar i leiöara á bls 6.
Stal eyðublaðablokk af lækni sem „sofnaði" í „partíi"
FALSAÐI LYFSEÐLA Á
FÍKNIL YF
Maður var handtekinn
í gær fyrir að hafa falsað
lyfseðla frá lækni einum
hér í borg. Hafði hann
útfyllt lyfseðla og haft út
á þá 155 töflur, af Dexa-
fetamin, sem er örvandi
lyf. Lyfseðlunum hafði
hann stolið á skrifstofu
læknisins.
Maðurinn sem handtekinn var,
hitti lækninn á Röðli á laugar-
dagskvöldið. Var læknirinn að
skemmta sér, og var ölvaður.
Einhvern tima um kvöldið
bauð maöurinn lækninum i
„parti” i Skipholtinu. Þáði
læknirinn það. Er þeir höfðu veriö
nokkra stund i partiinu, sofnaði
læknirinn. Leikur grunur á að
honum hafi verið gefið inn lyf til
að hann sofnaði. Hinn maðurinn
sofnaði einnig, en vaknaði
klukkan 7 um morguninn. Þá var
læknirinn ennþá sofandi. Tók
já maðurinn lyklakippu læknisins
ai iionum. Fór hann siðan á lækn-
ingastofnun, opnaði hana, og tók
þaðan eina blokk af lyfseðlum.
Einnig tók hann með sér út-
fylltan lyfseðil, sem þar var, til
að geta likt eftir rithönd læknis-
ins.
Siðan var hafizt handa um út-
gáfu lyfseðla á fyrrnefnt lyf.
Fyrst gaf maðurinn út einn lyf-
seöil á 30 pillur. Gaf hann seðilinn
út á sitt eigiö nafn, og fékk
pillurnar i Borgarapóteki.
Seinna um daginn gaf hann út
tvo lyfseðla i viðbót, sem gáfu af
sér 55 pillur. 1 gærdag gaf hann.
siðan út 3lyfseðla, á Garðs, Holts,
og Laugavegs apótek og hafði 90
pillur upp úr krafsinu. Fékk hann
þá alla útleysta. A öllum lyf
seðlunum var beðið um
Dexafetamin.
Rétt eftir hádegi i gær hringdi
apótekarinn i Laugarnes apóteki i
lögregluna, og sagðist halda að
falsaður lyfseðill væri hjá
honum. Þegar lögreglan kom á
staðinn, handtók hún mann, sem
hafði komið með lyfseðilinn. Sá
maður sagði að hann hefði verið
beðinn um að fara með seðilinn i
apótekið. Sagði hann að maður á
gráum Volkswagen hefði beöið
sig um það.
HÆTT VIÐ RAFMAGNS-
SKORTI NÆSTA VETUR
„Ef ekki tekst, að Ijúka
þessum framkvæmdum
timanlega, þá má ekkert út af
bregða, til að ekki verði raf-
magnsskortur á dreifikerfi I
Rafmagnsveitu
Reykjavikur” segir Aðal-
steinn Guðjohnsen, rafmagns-
stjóri i samtali við VIsi I gær.
„Það er nú svo komið, að
alvarlegar bilanir á jarð-
strengskerfinu geta haft mjög
alvarlegar afleiðingar og á
mesta álagstimanum, þegar
rafmagnsnotkunin er mest,
frá desember — febrúar,
getur orðið slæmt ástand,
jafnvel rafmagnsskömmtun”,
segir rafmagnsstjóri.
Verið er að leggja nýjan
jarðstreng sem auka á flutn-
íngsgetu á rafmagni t'il
borgarinnar og auka rekstrar-
öryggi.
Framkvæmdirnar eru nú
þegar orönar á eftir áætlun og
hefur fjárskortur Rafmagns-
veitunnar einkum háð fram-
kvæmdum.
Rafmagnsveitan hefur ekki
fengið heimild til aö hækka
gjaldskrár sinar i samræmi
við hækkeöan rekstrarkostnað
og núna veltist 17.1%
hækkunarbeiöni hennar um i
rikisbákninu og illa gengur að
fá hana afgreidda. Fram-
kvæmdastofnun rikisins mun
hafa hana núna til umsagnar.
Sjá blaðsiðu 2.