Vísir - 31.07.1973, Síða 3
Vísir. Þriöjudagur 31. júli 1973.
3
Óeirðir á Akranesi:
Lokuðu lögregluþjóna
inni í fangelsinu
Meðan lögreglan á
Akranesi var að setja
inn nokkra óróaseggi i
fangelsi staðarins
aðfaranótt laugardags,
flykktist hópur að fang-
elsinu og hafði með sér
þungan uppskipunar-
hlera og setti fyrir
hurð fangelsins.
A föstudagskvöldiö var haldinn
dansleikur á hótelinu á Akra-
nesi. Aö dansleiknum loknum
safnaöist fólk saman og var meö
ærsl og ólæti. Var þetta fólk flest
á aldrinum 17-20 ára.
M.a. var bifreiö, sem þarna
var, velt upp á gangstétt.
Lögreglumenn tóku þá mennina
fasta sem valdir voru að
verknaðinum, en hópurinn elti
þá lögreglubflinn að fangelsinu.
Engin girðing er i kringum
fangelsið, svo að mjög auðvelt
er að komast að þvi.
Stóð nú i nokkru stappi fyrir
lögregluna að komast út og voru
rúður brotnar og hleypt var lofti
úr dekkjum lögreglubilsins og
mold og sandur sett i
bensingeyminn.
Þegar lögreglan komst út
handtók hún 2 menn, sem aðal-
lega höfðu staöið fyrir
ólátunum, og voru þeir settir
inn.
Aðeins þrir lögreglumenn
voru á vakt þetta kvöld, en tveir
voru kallaðir út til viðbótar.
—EVI
10 ÁRA MEÐ
10 PUNDA LAX
„Mér brá nú frekar, þegar
hann beit á”, sagði Sigurður
Ómar ólafsson, 10 ára, sem var
svo heppinn að fá 10 punda lax i
Meðalfeilsvatni á sunnudaginn.
Sigurður ómar sagði okkur,
að hann heföi farið i veiðitúr
með pabba sinum um helgina og
auk laxins hefði hann fengið 3
silunga i vatninu.
Laxinn hefði verið miklu
erfiðari en silungarnir, og
þrisvar sinnum sagðist Sigurður
ómar hafa verið kominn með
hann að bakkanum, en alltaf
hefði hann rokið út aftur. Hon-
um hefði þó tekizt að landa hí
um eftir 10-15 minútur.
Annars er Siguröur ómar
nýlega kominn frá Noregi, en
þar dvaldist hann ásamt 27
öðrum Vestmannaeyjabörnum i
bænum Hovringen.
Hann sagðist hafa kunnað
prýðilega við sig þar, enda var
nóg að gera við fjallgöngur og
ýmsa leiki og þrautir.
Sigurður Ómar, sem er sonur
hjónanna ólafs Tryggvasonar
og Kristinar Sigurðardóttur,
sem bjuggu i Vestmannaeyjum,
sagði að kannski mundu þau
flytja aftur til Eyja næsta
cnmar. Cí(
Sigurður ómar ólafsson, með 10 punda laxinn, sem hann klófesti f
Meöalfellsvatni.
Hurð skall
nœrri
hœlum
Ekki mátti miklu muna, að f -___W
inikið tjón og jafnvel slys á fólki ~|N. iflS
yrði i árekstri, sem varð á gatna- 'PKif ^
mótuin Nóatúns og Sigtúns rétt hfkjx- ’ jfl
fyrir kl ikkan 3 i gær. Bi'ip-- «»
Fólks ifreiðin var að koma úl I
af stæði 'i, hjá Lvottastöðinni \’ið |
Sigtún, a þegar hún var komin P
út á göt ía rétt við gatnamótin aö HhHS
Nóatúi þá kom stór dráttarbif-
reið ir i vagn aftan i upp Nóa- >§&
túnið o bevgði inn Sigtún.
ökur ðurinn varð ekki fólks-
bifreið innar var fyrr en of vagninn svo innarlega á götuna. staf fólksbifreiðarinnar. Þá nam
;int e /egna stærðarinnar fór að hliö hans fór i bretti og dyra-' dráttarbifreiðin loks staðar. —óG
Dðilt
um vín-
veit-
ingar
„Stjórn Bindindisfélags öku-
manna telur, að með þvi að
heimila sölu vfnveitinga á þeim
eina degi vikunnar, miðvikudegi,
sem vera átti „þurr dagur”, sé
enn eitt óheillaspor stigið i undan-
látssemi við áfengisneytendur,
sem ails staðar vilja óhindraða
áfengissöiu með öllum þeim
hörmungum sem henni eru sam-
fara”.
Þannig segir i fréttatilkynningu
frá fyrrnefndu félagi, en þar
mótmælir það og telur stórfuröu-
legt að Iþróttasamband Islands
skuli vera beinn eða óbeinn aöili
að aukinni áfengisneyzlu. Þeir
taka það ennfremur fram, að
kjörorð l.S.t. eigi aö vera:
„Heilbrigð sál i hraustum
likama”.
En vegna „villandi og annar-
legra skrifa” i einu dagblaðanna
hefur t.S.t. sent frá sér yfir-
lýsingu og leiöréttingu á mis-
skilningi, þar sem meðal annars
segir: „I.S.l. hefur alls ekki sótt
um neitt vinveitingaleyfi og þvi
ekki verið veitt leyfi til sölu vins.
011 skrif þar að lútandi eru þvi
málatilbúningur og uppspuni frá
rótum. Stjórn I.S.t. þykir það
miður farið, að ekki skuli gæta
meiri nákvæmni og réttsýni i
blaðaskrifum en raun ber vitni i
þessum efnum”.
Hins vegar er þaö Félag fsl.
hljóðfæraleikara sem hefur
vinveitingaleyfið, en samstarf
hefur verið á milli l.S.t. og F.t. H.
með stofnun hinnar stóru hljóm-
sveitar, sem nú annast kynningu
„trimmlaganna” á Hótel Sögu.
—EA
AUGLYSING
um kjörskró til
kosningar í safnróð
Listasafns íslands
Samkvæmt lögum nr. 15/1969, um Lista-
safn íslands, skulu islenzkir myndlistar-
menn „kjósa úr sinum hópi þrjá menn i
safnráð til fjögurra ára i senn, tvo listmál-
ara og einn myndhöggvara. Varamenn
skulu þeir vera, sem flest hljóta atkvæði
næst hinum kjörnu safnráðsmönnum,
tveir listmálarar og einn myndhöggvari.”
Á kjörskrá „skulu vera þeir myndlistar-
menn, sem voru á kjörskrá við kosningu i
Félagi islenzkra myndlistarmanna og
Myndlistarfélaginu 1. janúar 1965, en eigi
voru á kjörskrá 1961. Enn fremur skal
jafnan bæta á kjörskrána þeim islenzkum
myndlistarmönnum, sem tvö af eftir-
töldum atriðum eiga við um:
1. að hafa átt verk á opinberri listsýningu,
innanlands eða utan, sem islenzka rikið
beitir sér fyrir eða styður,
2. að hafa a.m.k. einu sinni hlotið lista-
mannalaun af fé þvi, sem Alþingi veitir
árlega til listamanna og úthlutað er af sér-
stakri nefnd, er Alþingi kýs, og
3. að verk hafi verið keypt eftir hann til
Listasafns íslands, eftir að lög nr. 53/1961.
um Listasafnið tóku gildi.”
Skrá um það, er kjörgengi og kosningarétt
hafa til safnráðs, liggur frami i Listasafni
íslands, við Suðurgötu, dagl. kl. 13.30-16,1.
ágúst til 31. ágúst 1973.
Kærur út af kjörskránni skulu komnar til
forstöðumanns Listasafns íslands fyrir
ágústlok 1973.
Kjörstjórn.