Vísir - 31.07.1973, Page 9

Vísir - 31.07.1973, Page 9
8 Visir. Þriöjudagur 31. júli 1973. visir Þr,ftjudagur 31. júli 1973. Það var ekki beint þægilegt aö vera áhorfandi á stórleiknum i Keflavik á laugardaginn milli tBK og Vals. Ausandi rigning allan leikinn — og þeir voru ófáir, sem máttu klæöa sig úr hverri spjör, þegar heim kom. En keflvisku áhorfendurnir létu rigninguna ekki á sig fá —undu glaöir viö sitt,-enda unnu hetjur þeirra stórsigur gegn Valsmönnum, hættulegustu keppinautum sinum um tslandsmeistaratitil- inn. Bjarnleifur tók þessa mynd af smáhóp á áhorfendapöllunum og má þar sjá, aö margir voru for- sjálir og tóku með sér regnhlifar aö heiman — meöal annars litli drengurinn fremst á myndinni, sem er með regnhlífina hennar mömmu sinnar. En ekki allir — og þvi blotnuöu þeir inn aöskinni. Víkingar hefndu fyrir tapið með stórsigri! - Sigruðu Hauka 6-0 6 Melavelli í gœrkvöldi og nálgast nú stöðugt 1. deildina á ný Vikingar hefndu ræki- lega fyrir eina tap sitt í 2. deildinni, þegar þeir mættu Haukum á Mela- vellinum i gærkvöldi. Sigruðu með yfirburðum — sex mörkum gegn engu — og sýndu þar ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ • • Gunnar Orn í leikbann? 1 leik Vikings og Hauka I gærkvöldi vísaði dómari leiksins, Sævar Sigurðsson, einum ieikmanni Vikings af leikvelli — Gunnari Erni Kristjánssyni, sem er fyrir- liði Islenzka unglingalands- liðsins. Atvikiö átti sér á þann hátt, aö einn leikmaöur Hauka, sem Gunnar örn haföi átt I brösum við, sló mótherja sinn i magann. Gunnar Örn missti augna- blik stjórn á skapi sinu og sparkaði i Hauka-leikmann- inn, óafsakanieg fljótfærni — en svipað atvik og átti sér stað, þegar Hermanni Gunn- arssyni var visað af velli á dögunum. Aganefnd KSt mun taka þessi mál fyrir og ef aö likum lætur verða þeir Hermann og Gunnar örn dæmdir i leik- bann, þegar nefndin kemur saman annaö kvöld. Hermann getur ekki leikiö gegn KR 13. ágúst, Gunnar örn gegn Þrótti I bikar- keppninni á föstudag og veröa þvi bæöi liðin af þess- um lykilmönnum i þýöingar- miklum leikjum. með fram á, að tapleik- ur þeirra i fyrri um- ferðinni fyrir Haukum á Hvaleyrarholtsvellinum i Hafnarfirði er eitt af þessu, sem alltaf getur komið fyrir i knatt- spyrnu að betra lið tapi fyrir lakara. Vikingar byrjuðu með miklum krafti og má segja, að úrslit hafi verið ráðin eftir stundarfjórðung. Vikingur hafði þá skorað þrjú mörk — tvö fyrstu mörkin á fyrstu sex minútum leiksins. Eftir að Hörður Sigmarsson, hinn efnilegi markvörður Hauka, sem nú er einnig genginn i það félag i handboltanum hafði varið af hreinni snilld skot frá Eiriki Þorsteinssyni, náði Stefán Hall- dórsson knettinum úti á kanti í næsta upphlaupi Vikings. Einlék inn i markteig og spyrnti fast á markið. Hörður varði, en hélt ekki knettinum, sem skoppaði i markið. Haukar byrjuðu á miðju — Vikingar náðu knettinum og brunuðu upp. Hauka-vörnin var eins og flóðgátt — Stefán og Eirikur komust báðir fríir að markinu og Stefán skoraði. Góð byrjun hjá þessum miðherja unglingalandsliðsins, sem hefur sýnt stórkostlega framför I sumar. A 15 min. unnu unglingalands- liðsmennirnir saman að 3ja marki Vikings. Stefán tók hornspyrnu mjög vel — knöttur- inn barst til Gunnars Arnar Kristjánssonar, sem rétt utan vitateigs skaut fallegu skoti efst I markhorn Haukamarksins yfir alla vörn. Gullfallegt mark. Þessi kafli var einstefna á Haukamarkið, en Hafn- firðingar voru ei á þvi að gefast upp þótt á móti blési. Þeir fóru að Lézt eftir meiðsli í knatt- spyrnuleik á Ármannsvelli tt i i Ármann? vnr cfnfnnA Haukur Birgir Hauksson, 26 óra Ármenningur, lézt í gœr eftir að hafa slasazt til ólífis í 1. flokks leik Ármanns og Vals 26. júní sl. í annað skipti, sem slíkt á sér stað í kappleik hér á landi Haukur Birgir Hauks- son, 26 ára gamall Ár- menningur, lézt í gær í Landspíta lanum af völdum innvortis meiösla, sem hann hlaut í knattspyrnuleik. 26. júní síðastliðinn. Hann fékk slæmt spark í magann í leiknum og var fluttur á Landspítalann, þar sem hann hefur legið þungt haldinn síðan. Skeifu- görnin sprakk og þrátt fyrir itrekáðar tilraunir lækna greri hún ekki aftur. Haukur Birgir var þrívegis skorinn upp — síðast nú um helgina — en án árangurs. Hann var kvæntur og lætur eftir sig eiginkonu og tvö ung börn, fjögurra og tveggja ára. Haukur heitinn hlaut meiðslin i leik Armanns og Vals i Mið- sumarsmóti 1. flokks Reykja- vikurfélaganna. Leikurinn var háður á Ármannsvellinum 26. júni og mun þvi miður ekki hafa verið ítrustu varkárni gætt, þegar hann meiddist. Hann var greinilega mjög kvalinn eftir meiöslin, en samt var gerð til- raun til að koma honum af leik- vellinum áður en sjúkrabill kom. Verður þvi aldrei nógsam- lega brýnt fyrir knattspyrnu- mönnum að hreyfa ekki slasaðan leikmann fyrr en náðst hefur i menn, sem þekkingu hafa á þvi sviði. Haukur Birgir Hauksson var bilamálari að atvinnu og rak sjálfstæðan atvinnurekstur, en var ekki i lifeyrissjóði. Félagar hans i Armanni munu gangast fyrir fjársöfnun til fjölskyldu hans vegna þessa sviplega frá- falls hans. Haukur Birgir var nýbúinn að koma sér upp ibúð að Blöndubakka 13 i Breiðholt- inu ásamt eiginkonu sinni, Brynju. Þegar knattspyrnudeild Armanns var stofnuð 1968 gerðist Haukur Birgir einn af stofnfélögum deildarinnar. Hann var ávallt mjög virkur i starfi deildarinnar — lék bæði i meistara- og 1. flokki, sat i stjórn deildarinnar og þjálfaði yngri knattspy rnumenn Armanns um tima. Ármenn- ingar hafa misst einn sinn bezta félaga, starfsaman dugnaðar- mann. Þegar Armann leikur sinn næsta leik — á miðvikudag l.ágústi 2. deild á Melavellinum verður Hauks Birgis minnzt i leikbyrjun og Armenningar munu leika með svartan borða um handlegginn. Þetta mun vera i 'annað sinn hér á landi, sem knattspyrnu- maður deyr af völdum meiðsla I opinberum knattspyrnuleik. 1933 lézt markvörður Vals — Jón Kristbjörnsson — tveimur dögum eftir að hann slasaðist i meistaraflokksleik Vals og KR á Melavellinum. Leikurinn var háður 15. júni og fékk Jón heitinn slæm meiðsli i leiknum og lézt 17. júni. sækja meira og voru oft hættu- legir. Reyndar óheppnir að skora ekki — en Diðrik Ólafsson var afar erfiður fyrir þá i marki Vik- ings. Og svo rétt fyrir hlé — auð- vitað á markaminútunni — skoraði Vikingur sitt fjóröa mark. Stefán náði knettinum úti á kanti vegna hraða sins — gaf vel fyrir makið og þar var Hörður ekki nógu vakandi. Ætlaði að gripa knöttinn, en uggði ekki að sér, og Eirikur skauzt framfyrir hann og skallaöi nettilega i mark. Talsverð harka var i siðari hálfleiknum og þá komu fyrir ljót brot - maður var jafnvel hissa að ekki skyldu verða stórslys. Haukar byrjuðu á hörkunni — nokkrir Vikingar fylgdu fordæmi þeirra. Vikingar juku enn við á 21. min. Eirikur gaf þá fyrir mark Hauka — Gunnar Gunnarsson, fyrirliði Vikings.náði knettinum og gaf aftur til Gunnars Arnar, sem skoraði með föstu skoti. Rétt á eftir var Gunnari Erni visað af leikvelli og léku Vikingar þvi 10, sem eftir var leiks, Þó bættu þeir enn við marki — Eirikur skoraði rétt fyrir leikslok. Vikingur var áberandi betra liðið i þessum leik — en marka- munurinn var þó meiri, en ástæða var til, þvi það er ýmislegt i þessu Haukaliði. Stefán Halldórsson átti mjög góðan leik — skoraði tvö mörk og átti þátt i þremur öðrum — og þá sýndi Magnús Þorvalds- son enn hver afbragðsbakvörður hann er orðinn. Landsliðsnefnd- armenn ættu að fara að gefa þess- um ungu leikmönnum tækifæri — þeir hafa ekki tapað á þvi hingað til að velja unglingalandsliðs- menn i lið sin, en bæði Magnús og Stefán hafa leikiö sem slikir. En margir aðrir voru góðir i Vikings- liðinu i þessum leik — Eirikur, er virðist alveg kominn i sama form, og þegar hann var valinn til landsliðsæfinga i fyrravor — Gunnar Orn og Gunnar Gunnars- son. Þeir Jóhannes Bárðarsson og Bjarni Gunnarsson skiptu við yngri leikmenn I síðari hálfleiknum. 2. deild Eftir leik Vikings og Hauka i gærkvöldi á Melavellinum, þar sem Vikingur sigraði 6-0, er staðan þannig I 2. deild. Vikingur 10 9 0 1 34-6 18 Þróttur R 9 5 2 2 25-14 12 Völsungur 9 5 1 3 18-20 11 FH 8 4 2 3 21-12 10 Ármann 9 4 2 3 11-15 10 Haukar 10 3 3 5 14-21 9 Selfoss 8 2 0 6 7-26 4 Þróttur N 9 0 2 7 6-22 2 Markahæstu leikmenn eru nú: Aðalst. örnólfsson, ÞrR,.....12 Hreinn Elliðason, Völs.........12 Stefán Halldórsson, Vik......10 Gunnar örn Kristjánsson, VÍk ..7 Jóhannes Bárðarson, Vik.........7 Sverrir Brynjólfsson, ÞrR.....7 Helgi Ragnarsson, FH............6 Loftur Eyjólfsson, Haukum.....6 Eirikur Þorsteinsson, Vik.....5 Leifur HelgasonFH...............5 Knötturinn hafnar i marki Hauka ■ gærkvöldi. Ljósmynd Bjarnleifur. sjötta mark Vikings i leiknum i Þaö er oft hætta viö Haukamarkið — en þarna tókst Vikingum ekki að skora. Hörður Sigmarsson horfir á eftir knettinum framhjá marki. Ljósmynd Bjarnleifur. Fjðrutíu Hafnfirð- ingar til Skotlands Þaö verður f jölmennur hópur ungra knattspyrnumanna úr Hafnarfirði/ sem heldur til Skotlands á morgun, miðviku- dag# í keppnis- og æfingaför. Samtals fjörutíu piltar — ásamt fararstjórum — verða með í förinni og tekur ferða- lagið allt um hálfan mánuð. Öðru vísi mér áður brá! Norsk blöð hafa rætt mikiö um væntanlegan landsleik islands og Noregs I riðlakeppni heimsmeistara- keppninnar, sem verður á Laugar- dalsvelli á fimmtudag. Kemur þar yfirleitt fram að norska landsliðið eigi erfiðan leik fyrir höndum — norskir óttast nú greinilega islenzka landsliöiö i knattspyrnu, og er það I fyrsta skipti, sem slikur tónn kemur fram i norskum blöðum. Avallt áður hafa Norðmenn talið landsleiki við tslendinga nánast formsatriði — jafnvel þó þeir hafi tapaö eins og hefur komið fyrir þrivegis. Bikarleikur á Laugar- dalsvelli! — Víkingur og Þróttur reyna að nýju á föstudag Mótanefnd Knattspyrnusambands tslands hefur nú ákveðið aö Vikingur og Þróttur leiki öðru sinni í Bikar- keppni KSt næstkomandi föstudag. Liðin gerðu jafntefli i fyrri leik sinum 2-2. Þá var jafnframt ákveðið, að leik- urinn fari fram á Laugardalsvellinum og hefjist kl. sjö. Piltarnireru úrbáðum Hafnar- fjarðarliðunum, FH og Hauk- um. För þessi hefur verið nokkuð lengi i undirbúningi og er um gagnkvæma heimsókn aö ræða. bvi bæði Hafnar- fjarðarliöin hafa fengið skozk knatt- spyrnuliö i heimsókn, og er þar skemmst að minnast hins ágæta flokks Drumchapels, sem lék hér á vegum Hauka fyrir skömmu. Piltarnir úr FH og Haukum, sem halda til Skotlands, eru flestir úr 3. flokki — en þó nokkrir á fyrsta ári i öðrum aldursflokki félaganna. Þeir munu leika nokkra leiki við jafnaldra sina á Skotlandi og einnig vera í æfinga- búðum. Jafnvel kemur til greina að úrvalsliö Hafnarfjarðar taki þátt i for- leik fyrir stórleik ytra — þá væntan- lega við skozka jafnaldra sina. Fararstjórar verða Orri Sigurðsson, formaður Knattspyrnudeildar Hauka, og Arni Agústsson, einn af forustu- mönnum FH og formaður unglinga- nefndar KSl. Sem slikur hefur Arni Finnska stúlkan Mona Lisa Parsiainen setti nýtt finnskt met í 200 m hlaupi á Júlí-leik- unum í Helsinki í gær— hljóp vegalengdina á hinum frábæra tíma 22.7 sek. —tíma, sem fáir íslenzkir karlmenn geta hlaupið á. Mikil keppni var i ýmsum greinum og margir af fremstu mönnum heims meðal keppenda. Nýsjálendingurinn Dixon sló „stórköllunum” við i 1500 m hlaupi — sigraði á 3:37.5 min. en Ben Jipcho varð rétt á undan Olympiu- haft mikil samskipti við Skota, með afar farsælum árangri. Forskotið eykst I gærkvöldi var háð hcil umfcrð i norsku 1. deildinni og urðu úrslit þessi. Raufoss—Frigg 1-4 Skeid—Start 2-0 Lyn—Ilamkam. 0-2 Rosenborg—Brann 5-0 Viking—Fredrikstad 1-0 Staða efstu og neðstu liöa er nú þannig: Viking 12 9 3 0 19-5 21 Rosenborg 12 6 5 1 17-6 17 Hamkam. 12 5 5 2 15-10 15 Lyn 12 3 3 6 10-15 9 Raufoss 12 3 3 6 9-17 9 Brann 12 3 1 8 13-20 7 Fredrikstad 12 1 4 7 8-20 6 meistaranum Dave Wottle. í 5000 m hlaupinu sigraði annarNýsjálendingur á 13:27.3 min. Olympiumeistarinn Viren varð annar, en nýi heimsmet- hafinn I 10 km, Dave Bedford aðeins fimmti og náði lakari tima, en milli- timi hans var eftir 5 km þegar hann setti heimsmetið. Pentti Kahma, Finnlandi, sigraði i kringlukasti með 64.20 m og vann John Powell, USA, 62.18 m,Chuch Smith, USA, vann 100 m á 10.3 sek. á undan Vilen, Finnlandi, 10.4 sek. Kantanen Finnlandi, sigraði I 3000 m hindrunar- hlaupi á 8:26.6 min. Finnsk stúlka á 22.7 sekúndum!

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.