Vísir - 07.08.1973, Síða 5
Vísir. Þriðjudagur 7. ágúst 1973.
5
AP/NTB ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND Umsjón Guðmundur Pétursson
o
Vörpuðu handsprengjum
inn í afgreiðslusalinn
Grísku lögreglunni hefur
ekki tekizt aö toga orö upp
úr arabísku skæruliðunum
tveim, sem létu byssu-
kúlunum rigna yfir af-
greiöslusal flugstöðvarinn-
ar í Aþenu á sunnudag.
Þúsund manns voru í af-
greiðslusaInum, en þrír
biðu bana og 55 særðust,
þegar Arabarnir vörpuðu
tveim handsprengjum inn í
salinn og skutu úr byssum
sínum á farþegahópana.
Lögreglan hefur visað á bug
fyrri fréttum um, að skæruliðarn-
ir hafi sagzt vera úr „Svarta
september”-félagsskapnum. En
haft er þó eftir öðrum skæruliðan-
um: „Okkur tókst ætlunarverk
okkar.”
Margt þykir benda til þess, að
Arabarnir hafi haldið, að far-
þegarnir, sem ætluðu með flugvél
TWA-félagsins til New York,
væru á leið til Tel Aviv. En tiu
minútum áður hafði nefnilega
TWA-flugvél lagt af stað til Tel
Aviv.
Að minnsta kosti létu skæru-
liðarnir sér þessar aðgerðir
nægja, en tóku siðan 35 gisla á
barnum i flughöfninni og héldu
þeim i tvær stundir meðan þeir
reyndu að knýja fram samninga
um að þeim yrði gefin grið til að
komast til Arabalandanna. Þeir
Unnið er dag og nótt við að gera björgunargeimfar tilbúið til geim-
skots til aðsækja geimfarana þrjá upp I Skylab, ef nauðsyn krefði.
Leki í geimstöðinni
Geimfararnir urðu varir við
mjög alvarlegan leka á kæli-
kerfinu um borð i geimstöðinni
Skyiab, og óttast sérfræðingar,
að geimstöðin muni ekki endast
eins lengi og gert hafði verið ráð
fyrir.
Áður hafði komið fram ieki að
eidsneytiskerfi geimfars þeirra
félaga, sem hefur komið mönn-
um niðri á Kennedyhöfða til
þess að hraða undirbúningi þess
að skjóta á loft geimfari til að
sækja geimfarana þrjá upp i
Skylab. Þó telja sérfræðingar,
að lekinn muni ekki varna þvi,
að þeir geti komizt til jarðar af
eigin rammleik.
SPRENGDU FÉLAGANA
Bandarisk B-52
sprengjuflugvél varpaði
sprengjufarmi sínum að
flotastöð Kambodiu-
stjórnar við Mekong-
fljótið i dag samkvæmt
fréttum frá stjórnar-
hernum.
Fyrstu fréttir hermdu, að 100
manns hefðu beðið bana og annar
eins fjöldi særzt. Hinir særðu voru
fluttir til Phnom Penh (50 km i
burtu) með bátum frá flotastöð
inni Neak Luong.
AP-fréttastofan skýrði svo frá,
að flotastöðin og markaður
þorpsins Neak Luong hefðu orðið
fyrir 20 sprengjum. En sérhver
risaþotanna B-52 ber um 30 smá-
lestir af sprengjum.
En talsmaður bandariska
sendiráðsins i Phnom Penh vildi
hvorki staðfesta þessa frétt fyrir
fréttamanni AP né heldur visa
henni á bug.
gáfust þó loks upp fyrir lögregl-
unni.
Þeir þrir, sem biðu bana, voru
tveir Bandarikjamenn og austur-
riskur lögmaður á fimmtugs-
aldri, sem var þarna á ferðalagi
með konu sinni og eina barni
þeirra.
Siðar fann lögreglan tima-
sprengju i póstkássa i afgreiðslu-
salnum. Sjónarvottar höfðu gert
henni viðvart um, að þeir hefðu
séð mann setja einhvern óvenju-
stóran hlut i póstkassann. Fannst
sprengjan fjórum stundum eftir
árásina, og höfðu blaðamenn,
lögregla og starfsmenn flug-
hafnarinnar þá marggengið hjá
póstkassanum, án þess að hafa
hugmynd um sprengjuna, en
timastillir hennar hafði heldur
ekki verið settur i gang.
LEKUR OLÍAN
í SJÓINN?
11.500 smálesta oliuskip frá
Liberiu strandaði og byrjaði þeg-
ar að brotna i brimgarðinum
skammt frá Milford Havén i
Wales seint i gær sunnudag.
Heill floti af smærri bátum
reyndi árangurslaust að komast
til að bjarga 38 manna áhöfn
skipsins frá borði, en varð frá að
hverfa fyrir hafrótinu.
Skipið er með 5.000 smálestir af
hráoliu, og óttast menn, að skipið
brotni i tvennt og olian leki i sjó-
inn og mengi fjörur Bretlands-
eyja.
GEIMFAR TIL MARS
Itússar skutu á loft i gær enn
einu ómönnuðu geimfari, sem
stefnt er til Mars, og er það þriðja
Mars-eidflaugin, sem skotið er á
loft núna á stuttum tima.
Tass-fréttastofan skýrir frá
þvi, að þetta geimfar sé búið
frönskum visindatækjum. „Þessi
tæki skuli hrinda i framkvæmd
sameinuðu átaki sovézkra og
franskra tilrauna til rannsóknar á
sólargeislunum”, segir Tass-
fréttastofan.
Mars VI á að komast i
aðdráttarsvið Mars snemma i
marzmánuði 1974. Mars VI og
Mars V voru sendir á loft 21. júli
og 25. júli siðastliðinn.
OFSÆKJA KÍNVERJA
Hundruð Indónesiumanna, full-
ir heiftar vegna barsmiðar Kin-
verja á einum landsmanna
þeirra, tróðu einn Kinverja til
bana og meiddu alvarlega 23 aðra
i óeirðum, sem brutust út i
Bandung á vesturhluta Java.
Trylltur múgurinn gerði húsleit
I 915 verzlunum að Kinverjum,
kveiktu i nær 200 bifhjólum og Í30
bifreiðum og spilltu hverju þvi,
sem þeir fengu fest hendur á. 32
Kinverjar hlutu minniháttar
áverka i þessum átökum.
Eftir að lögreglan hafði stillt til
friðar, sátu 150 Indónesiumenn
inni i geymslum lögreglunnar.
Atökin hófust, þegar Kinverji
einn barði handvagnaekil, sem
rekið hafði kerru sina utan i bil
Kinverjans. Ekillinn var Indó-
nesiumaður, og sáu landar hans
atganginn. Réðust þeir að Kin-
verjanum, sem slapp inn á næstu
lögreglustöð, en þá lét trylltur
múgurinn heift sina bitna á hverj-
um þeim Kinverja, sem á vegi
þeirra varð.
1963 voru þúsundir kinverskra
verzlana I Bandung brenndar til
grunna og rændar vegna slikra
ofsókna.
Summerland-byggingin i ljósum logum. Um 2000 manns voru staddir
inni, þegar eldurinn kom upp.
Kveiktu í
sumarhúsi
Springers
Sumarbústaður þýzka blaða-
kóngsins, Axeis Springer, stór-
skemmdist i eidi núna um helg-
ina, þegar kveikt var i honum.
Fundust eldsprengjur, sem
komið hafði verið fyrir I sumar-
húsinu, og nokkrar þeirra
sprungu, meðan slökkviiiðið vann
að þvi að ráða niðurlögum eids-
ins.
Meðal gesta blaðakóngsins var
I bústaðnum fyrrverandi fjár-
málaráðherra Bonn-stjórnarinn-
ar, og komst hann með naumind-
um út úr brennandi húsinu.
Axel Springer er aðaleigandi
nokkurra stórblaða (t.d. Stern)
I Þýzkal. og hefur verið þyrnir i
augum róttækra vinstrisinna,
sem segja hann einoka fjölmiðla.
Porticsh jafn
fyrsta manni
Lajos Porticsh frá Ungverja-
landi tókst með þvi að vinna Isra-
elsmanninn, Kargan, að ná for-
ystu i svæðamótinu i Petropolis i
Brasiliu. Hann naut þó til þess að-
stoðar Reshevskys, sem nokkuð
óvænt tók heilan vinning af efsta
manni mótsins, Júgóslavanum
Liuboievic. Sá siðastnefndi hef-
ur haldið forystu i mótinu alveg
til þessa. En nú eru þeir jafnir,
Porticsh og Liuboievic með 6 1/2
vinning hvor, eftir niu umferðir.
BATISTA
LÁTINN
Kulgeneio Batista fyrrverandi
einræðisherra á Kúbu lézt af
hjartaslagi snemma i morgun,
þar sem hann dvaldi i útiegð i
Marbella á Spáni. Iiann var 72
ára að aldri.
Sonur hans Reuben sagði, að
Batista hefði orðið veikur stuttu
eftir kvöldverð i gærkvöldi og
dáið I nótt. Hann verður jarðsett-
ur I Madrid, sagði sonurinn.
Batista hefur dvalið i útlegð i
Portúgal frá þvi að Fidel
Castro hrakti hann frá völdum
1959. En hann kom til Marbella
ásamt fjölskyldu sinni á sunnu-
dag til þess að verja sumarleyfi
þar.
Kveiktu
strókar í
Summer-
land?
Lögreglan i Bretiandi ieitar
þriggja pilta, sem eru eftirlýstir
vegna brunans I Douglas á eyj-
unni Man, þegar tómstundahöllin
þar brann og 46 manns fórust.
Það er hald lögreglunnar, að
drengirnir séu skozkir.
Slökkviliðsstjórinn i Douglas er
sannfærður um, að kveikt hafi
verið I tómstundahöllinni af
mannavöldum, og hefur athygli
lögreglunnar beinzt að þessum
þrem piltum vegna þess að þeir
fóru frá eyjunni i mikilli
skyndingu nokkrum timum eftir
að eldsvoðinn varð. Höfðu þeir þó
ráðgert að vera lengur.
Summerland-tómstundahöllin
var sjö hæða bygging (sem kost-
aði á sinum tima 200 milljónir
króna) og voru fleiri þúsundir
ferðamanna staddir i bygging-
unni, þegar eldurinn kom upp.