Vísir - 09.08.1973, Qupperneq 8
Akureyrí braut hefðina og sigraði
á Skaganum eftir sex ára hlé
ómar Friðriksson,
markaskorari þeirra Akur-
eyringa komst einn inn fyr-
ir vörn Skagamanna, eftir
að Þröstur hafði misst
knöttinn yfir sig. Er ómar
nálgaðist markið, kom
Hörður Helgason, mark-
vörður út á móti honum og
lokaði markinu vel. ómar
lyfti knettinum yfir Hörð
og ekkert virðist geta kom-
ið í veg fyrir mark. En þá
kom Guðjón Þórðarson
aðvífandi og skallaði yfir
markið og aftur fyrir á síð-
asta andartaki.
Akureyringar fengu
hornspyrnu frá vinstri, sem
Sigurbjörn tók. Hann sendi
lága sendingu við markteig
og Akranesvörnin var illa á
verði og Jóhann Jakobsson
náði að spyrna knettinum í
markið, án þess að Hörður
hefði nokkurtök á að verja.
Þar meö höfðu noröanmenn
innsiglað sigur sinn i leiknum, þó
15 minútur væru til leiksloka.
Botninn datt alveg úr sóknar-
krafti Akurnesinga og voru Akur-
eyringar nær þvi að skora þriöja
markið en hinir að rétta hlut sinn.
Sigur Akureyringa 'var sann-
Arni Stefánsson, þegar hann varði skot Björns Lárussonar glæsilega.
GUÐJÓN OKKAR HELZTA
VON í SUNDINU
Barátta um knöttinn við mark
Akureyringa.
„Ég vil nú engu spá, en
vona aðeins það bezta,"
sagði Torfi Tómasson,
formaður Sundsambands
Islands, sem er með ís-
lenzka sundfólkinu, sem
tekur þátt í Meistaramóti
Norðurlanda í Oslo. Mótið
hefst annað kvöld.
„Okkar helzta von er
Guðjón Guðmundsson, í
200 metra bringusundi,
hann átti Norðurlanda-
metið til skamms tíma en
nýlega bætti Norðmaður
— Ove Wisloss — það og
synti á 2.30.5 Guðjón á
bezt 2.32,4.
Annars eru það helzt tiðindi
héðan frá Oslo, að Sviarnir, sem
eru langsterkastir virðast senda
nánast B-liö. Þrátt fyrir þaö tel
eg að þeir séu beztir en þetta
ætti til dæmis að auka mögu-
leika Norðmanna á þvi að kom-
ast á verðlaunapaliinn.
Við komun hingað i gærmorg-
un, allt hefur gengiö vel og öil-
um liöur vei. Laugin, sem synt
veröur I er köld, en það á ekkert
að koma að sök, ef veðriö helzt
jafngott og er i dag.
Sú sem byrjar keppnina af
okkur islendingunum er Lisa
Ronson, sem keppir i 100 metra
flugsundi. Sænsk stúlka á þar
beztan tima 1.09,2. Lisa náði
timanum 1.10,4 i vor og hérna
eru margar, sem synt hafa á
svipuðum tima. Keppnin veröur
þvi mjög hörö, og ef Lisu gengur
vel, eru góðar iikur á verð-
launasæti.
„Annars er ég á þeirri skoðun,
að við megum vel við una að fá
einn eða tvo verölaunapen-
inga,” sagði Torfi Tómasson að
lokum. Á fyrri mótum höfum
við náð bezt tveim peningum,
nema hér heima 1970, þegar við
fengum tvö bronz og eitt silfur.”
Aðrir, tslendingar, sem keppa
á morgun.m eru: Guðmundur
Gislason I 200 m fjórsundi, Frið-
rik Guömundsson i 1500 m skrið-
sundi og þær Vilborg Júliusdótt-
ir og Bára ólafsdóttir i 800 m
skriösundi.
m--------►
Guðjón Guðmundsson, þcgar
hann hlaut titiiinn iþróttamaður
ársins.
gjarn eftir gangi leiksins. Akur-
nesingar voru óvenju daufir og
áhorfendur sem I siöasta heima-
leik sáu sina menn gjörsigra
Breiðablik meö 10 mörkum gegn
engu, urðu sannarlega fyrir von-
brigðum.
Akureyringar áttu fyrsta hættu-
lega tækifærið i leiknum, sem
kom á 16. minútu þegar Davið
Kristjánsson kastaði knettinum
frá marki til Kára Arnasonar.
Hann var ekki seinn að notfæra
sér þetta kostaboö og skaut, en
yfir markiö.
Skömmu siðar komst Haraldur
Stulaugsson, upp að endamörkum
vinstra megin og gaf fyrir, en
Arni Stefánsson greip vel inn i, og
hættan var liðin hjá.
Akurnesingar höfðu fremur yfir
höndina fyrst i fyrri hálfleik, þó
þeim gengi illa að komast i gegn-
um vörn Akureyringa, þar sem
Jóhannes og Gunnar Austfjörð
voru sterkustu menn að venju.
Það var síðan á 26. minútu, sem
Ómar Friöriksson náði knettinum
rétt fyrir utan vitateig Akurnes-
inga, komst inn fyrir vörnina,
skaut og skoraöi framhjá út-
hlaupandi markveröinum, sem
var nálægt þvi að verja.
Grunnurinn var lagður að
fyrsta sigri Akureyringa yfir
Skagamönnum I sex ár.
Akurnesingar hófu leikinn aftur
af miklum krafti og minútu siðar
náði Gunnar Austfjörð að hiröa
knöttinn af tánum á Haraldi Stur-
laugssyni, sem kominn var inn i
markteig, eftir góöa fyrirgjöf frá
hægri.
Þaö var siðan á 44. minútu fyrri
hálfleiksins, sem Akurensingar
fengu sitt fallegasta og bezta
marktækifæri.
Haraldur Sturlaugsson brauzt
upp að endamörkum vinstra
megin, gaf fyrir markið og
stefndi knötturinn til Andrésar
ólafssonar, sem var við mark-
teig. 1 staö þess aö skjóta lét
Andrés knöttinn fara áfram til
Björns Lárussonar, sem var i
betra færi. Björn skaut föstu skoti
i vinstra markhornið niðri en Arni
Stefánsson var vel á verði og
varöi glæsilega.
Sóknarþungi Akurnesinga hélt
áfram i byrjun siðari hálfleiks.
Haraldur gaf strax á þriðju min-
útu knöttinn fyrir til Harðar, sem
sendi áfram tilTeits. Teitur skaut
góðu skoti en Árni varði vel.
Akureyringar bjarga á linu eft-
ir mikla sóknarlotu og þvögu I
vitateignum á 6. minútu og
skömmu siðar fengu Skagamenn
tvær hornspyrnur, sem runnu út i
sandinn.
Arni greip vel inn i á 20. minútu,
þegar Karl Þóröarson gaf fallega
fyrir.
Eftir þetta voru Akureyringar
leiðandi aðilinn i leiknum. Þeir
náðu góðri sókn á 22. minútu, Sig-
urbjörn var kominn upp að enda-
mörkum en hikaöi og búið var að
valda ómar og Þormóð, þegar
hann loks sendi knöttinn fyrir
markið.
Ómar fékk sendingu fram miðj-
an völlinn tveim minútum siðar,
komst inn fyrir en Hörður Helga-
son bjargaði með fallegu úthlaupi
á réttum tima.
Norðanmenn áttu siðan nokkr-
ar sóknarlotur, en fá opin tæki-
færi, það sem eftir var leiksins.
Siðan kom mark Jóhanns
Jakobssonar, sem sagt var frá i
byrjun. Akureyringar áttu siðan
nokkrar sóknarlotur en engin op-
in tækifæri, það sem eftir var
leiksins.
Þó Akureyringar ættu sigurinn
skilið var það ekki vegna neins
stjörnuleiks. Skagamenn voru
óvenjudaufir eins og áður sagði
og hreint enginn kraftur i leik
liðsins.
n: Olafur Geirsson
Vfsir. Fimmtudagur 9. ágúst 1973.
r
Úr leik Þróttar og Vikings í gærkvöldi. Vikingar i sókn.
Dagur markvarðanna
Þróttur heldur enn í hálmstráið
Meistaraskrekkur einkenndi
leik Þróttar og Víkings. Enda
kannski eðliiegt. Tap í þessum
leik hefði kostað Þrótt síðasta
hálmstráið um veru í fyrstu
deild næsta sumar.
Greinilega ætluðu þeir að selja
sig eins dýrt og kostur var á,
þegar liðið kom inn á leikvang-
inn.
Leikið var á fullu alveg frá
byrjun með tilheyrandi lang-
spyrnum fram völlinn. Þó var
leikurinn aldrei leiðinlegur á að
horfa og baráttan mikil.
Liðin skiptust á upphlaupum
og marktækifærum, en ekki
tókst að skora að þessu sinni.
Leikur Víkinganna dró dám af
baráttugleði Þróttara og varð úr
þessu töiuvert þóf og barátta.
Menn dagsins voru markverð-
irnir, sem vörðu mjög vel, enda
fengu þeir nóg tækifæri til að
sína getu sína.
Gunnar Gunnarsson dæmdi
leikinn, og hefði hann mátt vera
til muna ákveðnari.
Minnis-
peningur
Evrópu-
bikor-
keppn-
innar í
Reykjavík
Þar smaug knötturinn yfir þverslá hjá Þrótturum.
RICKY BRUCH
ENN í STUÐI
Steve Smith náði bezta
árangri þessá árs í stangar-
stökki á alþjóðlegu móti í
Svíþjóð í gær. Stökk hann
hvorki meira né minna en
5,45. Fór hann yf ir í annarri
tilraun og þá með miklum
glæsibrag.
Þrír aðrir stukku yfir
fimm metra, þar af tveir
Svíar.
Ricky Bruch er við sama
heygarðshornið þessa dag-
ana og kastaði 65.60 og er
það í annað skiptið, sem
hann kastar lengra en 65
metra á þrem dögum.
Olympíumeistarinn frá
Tékkóslóvakiu Ludvik
Danek, var langt á eftir
með „aðeins" 61,90 og náði
öðru sæti.
Fer hann inn? má lesa úr svip
llalldórs Bragasonar.
Andrésar
Andar
leikarnir
í dag
Undankeppni Andrésar
Andar leikanna hefst í
dag á Melavellinum
klukkan 5.
Þátttakendur eru hvorki
meira né minna en 80
talsins á aldrinum 11-12
ára.
Keppninni lýkur á
morgun.
Úrslitakeppnin fer fram
i Kóngsberg í haust.
islenzku drengirnir og
stúlkurnar, sem tekið
hafa þátt í þessum leik-
um áður hefur gengið
mjög vel. i fyrra fengu
þau f jölmörg verðlaun, en
þá fóru þrjú héðan. En
það voru Ásta B. Gunn-
laugsdóttir, Guðmundur
Geirdal og Unnar Vil-
hjálmsson.
Dwight Stonesstökk 2,22 í
hástökkinu og sigraði með
sínum sérkennilega „flop"
stíl.
FÓLK HORFIR OG
SVO HViSLAST ÞAÐ
Á
„Það er oft, aö fólk horfir,
svo hvislast það á. Ég veit,
að það er verið að tala um
mig. En ég læt það bara lönd
og leið. Svo er mér stundum
heilsað af fólki, sem ég þekki
ekki neitt. En það er um að
gera að taka hlutunum eins
og þeir eru.” Þetta er brot úr
viðtali við Hrönn Hafliða-
dóttur, sjónvarpsþul. Vikan
leit inn til hennar á dögun-
um, og það segir frá heim-
sókninni i máli og myndum i
blaðinu, sem kemur út i dag.
ÉG ER BARA
HEPPINN
SVEITASTRÁKUR
„Ég/ar orðinn allt að þvi
tiu árum of gamall, þegar ég
byrjaöi aö æfa af alvöru. Ég
kem þvi aldrei til með að
veröa arftaki Helga Tómas-
sonar eins og sagt var i einu
dagblaðanna. Ég er eigin-
lega bara heppinn sveita-
strákur.” Þetta segir Guð-
laugur Einarsson meðal
annars I viðtali við Vikuna,
en hann hefur veriö ráðinn
fastur dansari við leik- og
óperuhúsiö i Lubeck.
BORGIN MILLI
STRÍÐS OG FRIÐAR
Hvernig er daglegt lif einnar
fjölskyldu i Saigon, borginni
milli striðs og friðar, þar
sem fólk getur átt á hættu að
vakna við fallbyssuskothrið
hvenær sem er? Svarið við
þvi fæst i greinaflokki, sem
hefst i nýjustu Viku. Þar seg-
ir frá Nguyenfjölskyldunni,
sem verður að klifra yfir
gaddavirsgirðingar til þess