Vísir - 01.10.1973, Blaðsíða 17
Visir: Má'nudagur -lr október 1973 •
1/
missir aðalhlutverkið
— og manninn
Twiggy
Twiggy cr aftur i fréttunum.
Hún varð’ 24ra ára fyrir
skömmu, sem er kannski ekki
stórfrétt, en auk þess er hún
staðráðin i að skilja við eigin-
mann sinn eftir átta ára
samvistir. Þetta lesum við i er-
iendum blöðum, og er sagt, að
eiginmaðurinn, Justin. de
Villeneuve, sé iöngum sinum út
af þessu.
Það var einmitt ljósmyndar-
inn de Villeneuve, sem átti hvað
mestan þátt i frægð hennar.
Honum, finnst þetta vist illa
gert. Fréttamenn náðu til hans
á flugvellinum iLondon og sagði
hann þá, að ákvörðunin um
skilnað væri þeirra beggja og
enginn ágreiningur um það.
Hann sagðist líka vita, að það
,,væri enginn annar maður I lifi
hennar”. Hins vegar kvaðst
hann ekkert vita, hvar hún væri.
,,Við höfum staðið saman i
átta ár", sagði hann, ,,og aldrei
rifizt, ekki i eitt einasta skipti.
Þið vitið ekki, hvað þetta fær á
mig”.
Þetta sagði eiginmaður
Twiggy, og hann veit vist ekki
um rikjandi kenningar sálfræð-
inga nú til dags, sem einmitt
ganga út á, að hjónaband án
rifrildis sé glatað, svo segja
þeir. Þetta eru nýjustu
kenningarnar, og hver veit,
hvað til er i þeim? ,,Rifrildi á
dag kemur heilsunni i lag,”
heyrðist einhver segja, en fáir
vildu vist búa við það.
De Villeneuve er orðinn 35
ára. Þau trúlofuðust árið 1971,
ári eftir að hún hafði leikið sitt
„stjörnuhlutverk" i kvik-
myndinni ..Boyfriend”. Twiggy
fékk ekki góðar gjafir á
afmaglisdaginn sinn. Þvert á
móti var henni þá sagt, að hún
fengi ekki aðalhlutverkið i kvik-
myndinni um snáðann Peter
Pan. Það hafði þó áður verið
sagt, og þetta urðu henni ekki
litil vonbrigði.
Smjörlíki h/f hefur ákveðið að efna til samkeppni um
beztu smáréttina. Verðlaun nema samtals 80 þúsund
krónum. Samkeppnin ber heitið: Ljóma smáréttasam-
keppnin.
Þátttakendur í samkeppninni þurfa aðeins að senda
inn uppskrift af bragðgóðum, skemmtilegum smárétti,
sem búa má til á fljótlegan og einfaldan hátt.
Fyrstu verðlaun samkeppninnar verða 40 þúsund
krónur, önnur verðlaun 20 þúsund krónur, þriðju verð-
laun 10 þúsund krónur, fjórðu og fimmtu verðlaun 5
þúsund krónur hvor.
Þátttaka í Ljóma-smáréttasamkeppninni er öllum
heimil, konum og körlum, nema þeim, sem hafa matar-
gerð að atvinnu, starfandi húsmæðrakennurum, lærðum
bökurum og brytum.
Kjörorð samkeppninnar er: „Alveg ljqmandi“.
Samkeppnisreglur:
IÞátttakendur mega senda
svo margar uppskriftir, sem
þeir óska.
2Vélritið, eða skrifið prent-
störfum, allt í uppskriftinni.
Gleymið ekki að gefa upp
nákvæmt mál eða vigt, bök-
unartíma/suðutíma og hita-
stig. Nafn á smáréttinum
ef þér hafið það.
5Veljið yður dulnefni og
skrifið það á uppskriftar-
blaðið. Látið síðan nafn yð-
ar, heimilisfang og síma á
annað blað og setjið það í
umslag merkt dulnefninu.
Hvort tveggja er síðan látið
í umslag merkt: „Alveg
ljómandi“, pósthólf 5133,
Reykjavík. Umslagið verður
að hafa borizt okkur í síð-
asta lagi 16. október, 1973.
Skilyrði fyrir þátttöku er:
a) að Ljóma-smjörlíki sé
notað á einhvern hátt í
uppskriftinni og
b) önnur efni, sem fáan-
leg eru í verzlunum hér-
lendis,
c) að smárétturinn sé fljót-
gerður.
Smjörlíki h/f áskilur sér
rétt til að nota allar upp-
skriftir, sem berast í aug-
lýsingar, í uppskriftabæk-
ur, eða með öðrum hætti og
án þóknunar til sendanda
eða höfundar. Uppskriftirn-
ar verða ekki endursendar
eða verður unnt að gera til-
kall til þeirra á annan hátt,
enda hafi enginn einkarétt
á þeim.
6Fimm réttjr komast í úr-
slit. Sendendum þeirra verð-
. ur boðið að vera viðstaddir,
þegar úrslit verða tilkynnt
af dómnefnd 15. nóvember
1973. Fargjöld og uppihald
verður greitt fyrir þátttak-
endur utan af landi.
7Sérstök dómnefnd mun
fjalla um uppskriftirnar, en
hana skipa:
Agla Marta Marteinsdóttir,
húsmóðir.
Dröfn Farestveit,
húsmæðrakennari.
Elsa Stefánsdóttir,
húsmóðir.
Jón Ásgeirsson,
fréttamaður.
Skúli Þorvaldsson,
veitingamaður.
Haukur Hjaltason,
matreiðslumaður,
og er hann jafnframt for-
maður dómnefndar.
Ath.: Nánari upplýsingar, ef
óskað er, veitir Smjörlíki
h/f, Þverholti 19,
Reykjavík. Simi: 26300.
Sendið okkur eftirlætisupp-
skrift yðar strax í dag. Hver
veit nema einmitt yðar upp-
skrift verði metin fjörutíu þús-
und króna virði?
smjörlíki hf.
ÞVERHOLTÍ 19, SlMI 26300
REYKjAVÍK,
velkomm?
ATVÍNNUREKANDI
VERKTAKI
Vertu reiðubúinn að mæta
ófyrirsjáanlegum óhöppum með
vel tryggðu hjá Almennum.
Hikið ekki — Hringið strax
ALMENNAR
TRYGGINGARf
• Pósthússtræti 9, sími 17700