Vísir - 13.12.1973, Page 3

Vísir - 13.12.1973, Page 3
Visir. Fimmtudagur 13. desember 1973. 3 FANNST ÞEIM „SKAUPIÐ" SVONA SKEMMTILEGT? Elieser Jónsson hefur hér fundió „Skaupió” f vörugeymsiu norska flug- félagsins. En þaöan átti hann ekki aö fá aö ná þvi dt. Þaö kostaöi hring- ingar til tslands, þjark á flugfélagsskrifstofum, flugvellinum, bönkum og á skrifstofum pressunarfyrirtækisins aö koma því svo fyrir, aö hann fengi aöleysa plöturnar útog fljúga meöþær heim. —Ljósm : ÞJM Við báðum um raunverulega skattalœkkun segir varaform. verzlunarmanna algjör endurskoðun á launaflokkum verzlunarmanna „Hugmyndir Alþýöusam- bandsins um úrbætur i skatta- málum gengu út á þaö, aö heildarskattar á launþega lækk- uðu, en ekki aö þaö væri tekið aftur meö öörum hætti,” sagöi Magnús L. Sveinsson varafor- maöur Verzlunarmannafélags Reykjavikur þegar Visir ræddi viö hann um samningana um kaup og kjör. „Þær hugmyndir um skatta- breytingar, sem hingað til hafa komið frá rikisstjórninni ganga ekki i þá átt nema siður sé, það sem lækka á tekjuskattinn yrði tekið aftur með söluskatti, sem auðvitað launþegar greiða.” Magnús sagði okkur, að litið væri farið að ræða sérkröfur verzlunarmanna ennþá, hann bjóst þó við að skriður færi að komast á það mál. „Við munum leggja á það áherzlu aðsemja fyrir alla okk- ar félagsmenn núna, en ekki hefur hingað til verið samið við þá sem eru i efstu flokkunum 10. og 11.,” sagði Magnús L. Sveinsson. Atvinnurekendur hafa haldið þvi fram, að ef samið væri um laun þessa fólks, sem er yfir- menn af ýmsu tagi, mundi það halda þeim niðri i launum. Reynslan hefur þó orðið allt önnur. Þegar almennar hækkanir hafa orðið á kaupi hafa þessir starfsmenn oft á tið- um setið eftir og ekki fengið hlutfallslegar hækkanir eins og aðrir. 1 þessum samningum nú munum við óska eftir nokkrum breytingum á flokkum, en vilj- um siðan koma á fót samstarfs- nefnd með atvinnurekendum til að endurskoða alla launaflokka- skiptingu hjá verzlunarmönn- um. Við teljum það svo viða- mikið verk, að það verði að vinnast milli samningsgerða. Á þetta hafa atvinnurekendur fallizt og er þessi nefnd um það bil að taka til starfa. —OG Maður skyldi ætla, aö hljóm- platan „Skaup ’73” sé virkilega góö plata. Norömennirnir, sem pressuöu hana, ætluöu aö minnsta kosti ekki aö geta séö af henni og létu hana ekki af hendi fyrr en eftir mikið japl og jaml og fuður. Visir sendi einn af blaðamönn- um sinum með til Noregs, þegar Elieser Jónsson flugmaður flaug þangað til að ná plötunni úr höndum Norömannanna. Pressun plötunnar hafði tekið þrefalt lengri tima en umsamiö var og farið að styttast iskyggi- lega til jóla. Var þvi ekki nema eðlilegt.að útgefendurnir fórnuðu höndum til himins, jólasalan mátti ekki renna þeim úr greip- um. A mánudag siðastliðinn hringdi Hrafn Pálsson, anhar útgefend- anna, til forstjóra pressufyrir- tækisins i Osló og fékk þá þær upplýsingar, að liðlega helming- urinn af upplaginu væri kominn úr pressunni. „Hvers vegna það hafi ekki verið sent af stað til landsins?” Jú, það var vegna þess, að upphæðin, sem greidd hafði verið til bankans i Osló hljóðaði upp á greiðslu fyrir allt upplagið. Þegar svo Norðmönnum hafði tekizt að koma þvi þannig fyrir, að plötusendingin kæmist ekki með Flugfélagsvélinni sem fór þaðan i fyrradag, og fyrirsjáan- legt var, að önnur vél færi ekki þaðan til Islands i bráð, ef flugfreyjuverkfallið skylli á, var sú ákvörðun tekin að senda einkaflugvél til Osló. „Ég skal ekki koma aftur fyrr en ég hef plöturnar ykkar, strák- ar minir,” hét Elieser útgefend- unum, Karli Einarssyni og Hrafni, þegar hann kvaddi þá á • flugvellinum snerhma á þriðju- dagsmorgun. 1 vörugeymslu á flugvellinum I Osló hafðist loks upp á „Skaup- inu” og þar stóð þá allt uppiagið eins og það lagði sig. En þaö var sýnd veiði en ekki gefin: plöturn- ar voru á einhvern óskiljanlegan hátt komnar i vörzlu norsksfiugfé lags, sem er einvörðungu 1 innan- landsflugi. Flugfélag tslands hafði þvi litil tök á að veita aðstoð að gagni, en hafði þó reynt til hins itrasta. Flugfélagið norska var ákveðið I þvi að láta plöturnar ekki af hendi fyrr en sendandinn, press- unin, hefði veitt leyfi til þess. Eli- eser hóf þvi mikla leit að forstjóra þess fyrirtækis, en hann fyrir- fannst ekki i borginni og enginn gat upplýst hvar hann væri. Aðrir i fyrirtækinu þorðu ekki að taka neinar ákvarðanir. „Hingað er ég kominn til að sækja þessar plötur og héðan fer ég ekki með tóma vél,” sagði Eli- eser og steytti hnefann. Nokkur skriður komst þá á málið, en það var ekki fyrr en að Elíeser hafði fundið leiðir út úr hverjum ógöng- unum á fætur öðrum, sem farm- urinn var loks kominn út i vél hans. Norsku aðilarnir vildu helzt, að sendingin biði eftir föstudagsvél Flugfélagsins, en sem fyrr segir eru allar horfur á að þá verði verkfallið skollið á. En hingaö kom „Skaupið” svo loksins i gærkvöldi og Karl og .Hrafn geta þvi brosað út undir eyru: Jólasölunni er borgið. —ÞJM „Hér er platan ykkar, eins og ég lofaði ykkur”. Og Elieser veifar plötu- umslaginu til útgefendanna, sem biðu hans á flugvellinum. Með honum á myndinni er blaðamaður Visis, sem fýlgdist með för hans. —Liósni: Bj.Bj. Engin steinull — fokdýrt plast Einangrunarplast að verða torfengið - enginn framleiðir steinull - „ástandið óbjörgulegt", segir Axel í Rafha, framkvœmdastjóri Steinullar h.f. „Plast til einangrunar fer að verða illfáanlegt, og þar að auki hækkar það mjög i verði á næst- unni”, sagði Axel Kristjánsson i Rafha, en Axel er framkvæmda- stjóri Steinullar h.f. i Hafnarfirði, sem um margra ára skeið fram- leiddi steinull úr islenzku grjóti, en hefur nú um alllanga hrið að- eins framleitt einangrunarplast. „Ég veit ekki, hvort við getum snúið okkur að steinullarfram- leiðslu aftur”, sagði Axel. „Þessi iðja er ákaflega orkufrek, og hingað til höfum við ekki fengið raforku til framleiðslunnar, nema yfir blásumarið. Við hætt- um steinullarframleiðslunni i fyrrasumar. Hins vegar er það ekki fráleitt, að steinullin komi i staðinn fyrir plastið, ef það verð- ur mjög dýrt og torfengið — við hljótum að geta fengið rafmagn eins og Álverksmiðjan og fleiri stóriðjur, einkum vegna þess að við borgum fimm sinnum eða tiu sinnum meira fyrir rafmagnið”. — Miklar hækkanir á plasti — Hjá Vibró i Kópavogi var Visi tjáð, að plast hefði núna hækkað um 13% i verði, og fyrirsjáanleg væri 30% hækkun til viðbótar al- veg á næstunni. Gottfreð Árnason hjá Vibró sagði Visi, að mjög hefði dregið úr magni þeirra sendinga, sem fyrirtækið hefði pantað erlendis frá, óg bærust nú tilkynningar frá þeim evrópsku fyrirtækjum, sem Vibró skiptir við, þar sem til- kynnt væri um rýrnun sending- anna. „Menn kaupa af okkur plastið hér”, sagði Gottfreð, „nokkuð langt fram i timann. Næsta hálfa mánuðinn höfum við nóg að gera við að framleiða upp i pantanir. Við höfum selt föslum viðskipta- vinum plast á gamla verðinu, en nú, þegar pantanir hækka mjög i verði, þá verðum við væntanlega að hætta þvi”. — Sviknir um 20 tonn — Sagði Gottfreð, að siöast i nóvember hefði Vibró átt von á 20 tonna sendingu erlendis frá, en skömmu áður en sendingin átti að afgreiðast var tilkynnt, að ekkert yrði úr þvi, að sú sending færi til fslands. „Það standast engar áætlanir”, sagði Gottfreð, „þvi við fáum ekki tilkynningar um þetta fyrr en þann daginn, sem við eigum að taka við þessu — eða svo gott sem”. „Þetta litur ekki björgulega út”, sagði Axel Kristjánsson hja Steinull, „hörgull á plasti og erfitt með framleiðslu á steinull. Ann- ars nota þeir miklu meira steinull tíl einangrunar erlendis heldur en plast. Plastið er bara svo þakklátt efni — það er létt, hand- hægt og gott til einangrunar”. Nokkuð margir aðilar munu framleiða einangrunarplast hér á landi, en ýmsir eru ekki ýkja um- svifamiklir. Siðan Steinull h.f. i Hafnarfirði hætti að bræða is- lenzkt grjót i steinull, framleiðir enginn islenzkur aðili þetta einangrunarefni, sem hugsanlega gæti bjargað mörgum hús- byggjandanum. —GG.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.