Vísir - 13.12.1973, Síða 8

Vísir - 13.12.1973, Síða 8
Fimmtudagur 13. desember 1973. cyflenningarmál Olafur Jónsson skrifar um bókmenntir: ALLIR ÞEKKJA HANA Guörún A. Simonar: EINS OG ÉG ER KLÆDD Gunnar M. Magnúss skráöi Bókaforlag Odds Björnssonar 1973 205 bls. Ekki þarf að spyrja að vinsældum Guðrúnar Á. Simonar, allir þekkja hana, eins og segír siðast orða hér i bókinni. Þar nýtur hún ekki einasta sönglistar sinnar heldur einnig hressilegrar framkomu og hispurslausra skoðana, ótrauð i hverju verki sem hún gengur að. I þessari bók er rakinn æviferill Guörúnar A. Simonar frá æsku- árum og allt fram á þennan dag, sumpart i beinni frásögn en sum- part samtölum þeirra Gunnars M. Magnúss sem færir frásagnir hennar i letur, og sumpart eftir öörum tiltækum heimildum, einkum blaðagreinum, um- sögnum, frásögnum og viðtölum, og einnig er hér höfðað til einka- bréfa og dagbóka hennar. En fyrst og fremst er þetta réttnefnd samtalsbók sem áreiðanlega ætlar sér ekki siður að inna af hendi ljóslifandi mannlýsingu en skipulega ævisögu. Söngkona verður til Það sem einkum skiptir máli i bókinni er aftur á móti frásögn hennar af þvi hvernig söngkona verður til og hversu henni reiðir af i okkar þröngu kringum- stæðum. Guðrún er af Reyk- vikingum komin og stóð söngfólk að henni beggja vegna, missti föður sinn ung og ólst upp við knöpp kjör, varð ung að fara að vinna fyrir sér, fær ekki söng- rödd, segir hún, fyrr en á ung- lingsárum. Þá er nærtækt að fara að raula með danshljómsveit jafnframt vinnu sinni á skrif- stofunni. Það er fyrst og fremst fyrir atfylgi eins manns, fóstra hennar, Ludvigs C. Magnús- sonar, að hæfileikar Guðrúnar fá að njóta sin og hún kemst til mennta. Skyldi hún án hans hafa staðnæmst á skrifstofunni? Og Guðrún minnist fóstra sins með viröingu og þakklæti og mikilli hlýju, og segir sjálf að honum eigi hún flest að þakka. Guðrún A. Simonar heldur sina fyrstu söngskemmtun ung að aldri eftir skammt nám og vinnur þá þegar frækilegan sigur. Eftir það nýtur hún ágætrar mennt- unar i list sinni, kemur heim og syngur og sigrar til fulls hug og hjörtu áheyrenda sinna. Hún syngur við góðan orðstfr tvö óperuhlutverk i Þjóðleikhúsinu, Santuzza i Cavalleria Rusticana og Tosca, syngur á vegum Fálkans á hljómplötur sem látnar eru á „alheimsmarkaö”, hvorki meira né minna, heldur fleiri söngskemmtanir. Þaö er að sjá að hátindurinn á ferli hennar sé talin söngför til Sovét- rikjanna snemma árs 1957. Eftir það tekur við önnur söngför, til Kanada, söngskemmtun i New York, og þar vestra festir Guðrún ráö sitt um skeið, gerist móðir og húsfreyja þótt hjúskapurinn endist stutt. Ekki veit ég gerla hvernig Islensku söngfólki er skipað niður I sveitir og fylkingar eftir verð- leikum sinum af söngfræðingum og öðrum sem tiðka slikt mat. En áreiðanlega á Guðrún Á. Simonar sér stað þar i fylkingarbrjósti. Viö þessa upprifjun ævi hennar fer ekki hjá að lesandinn spyrji sem svo: heföi hún ekki að réttu lagi átt að starfa að list sinni á islensku óperusviði, hvar nema þar hefðu gáfur og list hennar komisttilsinsfyllsta þroska? Það fylgir þungi orðum Guðrúnar um unga og efnilega söngkonu: ,,Ég vona, að hún taki ekki upp á þvi að setjast að hérna og verða að engu.” An þess að verið sé með þessu að gefa i skyn að Guðrún hafi sjálf „orðið að engu”, það er nú vist öðru nær! En saga hennar er ekki sist fróðleg um viðgang og þroska hæfileika, listar sem enn i dag býr við knöpp kjör og skorinn skammt hér hjá okkur Með gullskó og sjal En þessi saga, efni og erindi bókarinnar, er ekki nema litill hluti af lesmáli hennar. Þvi er ekki að neita að löngum stundum verður frásögnin skelfing lang- dregin og smámunasöm úr hófi, einkum þar sem rakið er orðrétt efni blaðagreina og umsagna um Guðrúnu eða bréf hennar, eins og I hinni ýtarlegu frásögn af Rússlandsferðinni: „Ég var i fallega ballerine kjólnum og með gullskó, svo hafði ég einnig sjal”. Allt of mikið i bókinni eru fréttir af þessu og þvil. tagi. En þetta er vitanlega ekki sök Guðrúnar, hitt má ætla að leiknari og metn- aðargjarnari höfundi en Gunnari M. Magnúss hefði getað orðið meira úr litrikri mannlýsingu hennar en tekst hér i bókinni. En hennar mesti galli, eins og i pottinn er búið, er að hún verður mikils til of löng. Ætli bókin hefði ekki orðið betri, miklu betri ef Guðrún hefði bara skrifað hana sjálf? Þar fyrir er heiti bókarinnar sjálfsagt réttnefni. Guðrún Á. Slmonar kemur hér til dyranna, eftir þvi sem skrásetjaranum auðnast, einsog hún erklædd,hress i máli og hispurslaus. Vina sinna minnist hún meðalúðog hlýju, en gleymir ekki þeim sem henni þykir hafa gert sér rangt til. Hér er á meðal annars kostuleg saga úr kalda striðinu. Það er rækilega rakið hvað blöðin skrifa um Rúss- landsferð Guðrúnar, öll nema Morgunblaðið. Þvi þótti ekki tækilegt, af pólitiskum ástæðum, að geta svo skaðvænlegra sam- skipta við erkióvininn: „En svo var það seinna, það eru liklega fjögur ár siðan að ég las i Morgunblaðinu frásagnir um allt ferðalagið hans Sigurðar Bjarna- sonar til Sovétrikjanna. Hann var þar að hrósa öllu — og það var mikil ferðasaga. Ég get ekki skilið, hvað hún var betri þessi ferðasaga Sigurðar heldur en ferðasaga min 1957 — Ég meina: Rússarnir eru enn með yfirráð hingað og þangað”. í þjóðlegum stíl í siðasta hluta bókarinnar, eftir heimkomu Guðrúnar frá Ameriku, segir frá ýmsum væringum á seinni árum, þar á meðal orðlögðum viðskiptum þeirra þjóðleikhússtjóra út af Brúðkaupi Figarós i Þjóðleik- húsinu, sem frægt varð. Og hér er dæmalaust góð dæmisaga Islenzkrar ritdeilu. Þannig var að Guðrún hafði fundið að þvi i út- varpi að i kirkjukórum syngi hver með sinu nefi. Þetta likaði ekki einum prestmanni hér i bænum og hóf hann varnir i málinu: kirkjukórar syngja alls ekki i gegnum nefið, sagði hann. Um þetta var svo deilt og dispúterað eins og tiðkast i skammdeginu, bæði hér og norðanlands. — þótt reyndar væri komið fram á vor þegar þessi deila fór fram. Eins og ég er klædd er myndar- lega gerð bók að öllum hinum yrti frágangi, margar myndir i bókinni af Guðrúnu A. Simonar á sviði og i einkalifi, með vensla- fólki, vinum og fél. og öllum köttunum sinum. Aldrei sliku vant er nafnaskrá i bókinni. Hún er samin i þjóðlegum stil að þvi leyti að öllum nöfnum, erlendum sem innlendum, er raðað þar I stafrófsröð eftir skirnarheitum manna. AF LÍFI OG SAL Andrcs Kristjánsson ræðir við Asgeir Bjarnþórsson Kvöldvökuútgáfan 1973. 204. bls. Ásgeir Bjarnþórsson er mikill sögumaður upp á gamlan og góðan þjóð- legan móð. Minningar hans eru fullar af frásögnum um náunga Ásgeirs um dagana, alltaf gamansam- legum, stundum dálítið meinlegum, en sjaldan eða aldrei neitt grályndis- legum. Það er þessi sjóður mannlýsinga sem einkum gerir bókina svo læsilega sem hún er. Af lifi og sál er að stofni til endurminningar Ásgeirs Bjarn- þórssonar sem hann segir Andrési Kristjánssyni fyrir. Það er ekki að þvl að spyrja um Andrés, að orðfæri og frásagnar- háttur er með einkar viðfelldnum brag , látlausum og læsilegum, svo að frásagnarefnin njóta sin jafnan hið besta i meðförunum. Að góðum og gildum sið byrjar frásögnin á þvi að sögð eru deili á sögumanninum sjálfum, ætt hans og uppruna, æsku og uppvexti. En þaðan i frá vikja þeir Andrés brátt á Hafnarslóð i hóp glaðra félaga á námsárum Ásgeirs þar. Og eftir það er hinum rauða þráði æviatriðanna engan veginn skilvislega fylgt heldur er frá- sögnin i frjálsu formi upprifjunar hugstæðra manna og kynna frá langri ævi. Þar sem sög- urnar leiðir eina af annarri. Þótt skrásetjari hafi i bókinni er það hann sem leiðir frásögnina, skipar frásagnarefn- um saman eins og henta þykir, gerir sér mætavel ljóst, að það eru hinir glaðbeittu frásagnir sögumannsins sem liklegastar eru til að vekja áhuga og laða lesendur að bók þeirra. Og af þvi tagi er ógrynni að hafa i bókinni, smátt og stórt. Ég nefni bara meistaralegan þátt, Véfrétt úr simastaurum, um mann sem orðlagður var á sinni tið, Þorstein úr Bæ, en mun nú gleymdur öðrum en gömlum kunningjum — þótt minning hans viðhaldist i Alþingishátiðar- kantötu Kiljans. Hitt er að visu algengara að sagt sé frá alkunnu og þjóðkunnu fólki, bæði á fyrri tið og enn i dag. Það er til dæmis að nefna þætti um „kliku” Ásgeirs og félaga hans á æsku- dögum, það eru menn eins og Magnús Ásgeirsson, Tómas Guðmundsson, Jón Thoroddsen, Sigurður Einarsson úr Unuhúsi með Halldóri Laxness, Guðmundi Hagalin, Stefáni frá Hvitadal, og frá námsárum hans i Höfn, fiÉii ffj™ ffi^M (jðCgðit) UvC§9il9 UWgðvt? ENN EIN JÓLABÓK FRÁ HILMI Bókín, ■ sem hrekur fóík kjallarafylgsnum sálarlífsins HILMISBÓK ER VÖNDUD BÓK HILMISBÓK ER VÖNDUD BÓK eiturlyfjasmyglarana ENN EIN JÓLABÓK FRÁ HILMI HILMISBÓK ER VÖNDUÐ BÓK HILMISBÓK ER VÖNDUÐ BÓK (W9P) PSffMpri Ci^n Wjp*

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.