Vísir


Vísir - 14.01.1974, Qupperneq 2

Vísir - 14.01.1974, Qupperneq 2
2 Visir. Mánudagur 14. janúar 1974 visntsm: Gætuð þér hugsað yður aö fara i vetrarfri? Ottó Ólafsson, teiknari: — Já, og þá myndi ég vilja til Italiu. Reyndar vildi ég helzt vera þar allan veturinn ef ég mætti ráða. En eins og er tek ég mér ekkert vetrarfri. Vilborg Sigurðardóttir, skrif- stofustúlka: — Já, þaö vildi ég. Jafnvel allt sumarfriið. Ég fór til Möltu i sumar og gæti vel hugsaö mér að fara þangaö aftur i vetr- arfri. Þá væri ekkert vitlaust að fara seint aö hausti. Guömundur Arnason, kennari I MT: — Það er nú erfitt fyrir mig vegna starfsins. Að visu er jóla- fri, en á jólunum vil ég helzt vera heima. Ég held að sumarfriiö dugi alveg fyrir mig. Þórður Kjartansson, skrifstofu- stjóri: — Já, ég gæti hugsað mér það. En ég hef engar áætlanir gert um slikt fri. Þó kæmi til greina að skipta sumarfriinu milli vetrar og sumars að jöfnu. Sigurgeir Jónasson, flugaf- greiðslumaður: — Ég var nú að koma úr ferð til Hong Kong, sem mætti aö sönnu kalla vetrarfriið mitt. Ég er alltaf á ferð og flugi þannig aö ég þarf ekkert á neinu sérstöku vetrarfrii að halda. Þetta er kannski spurning um að vera á réttum stað i jaröarkringl- unni eftir árstiöum. Margrét Runólfsdóttir, skrif- stofustúlka: — Ja, alveg örugg- lega. En þvi miður hef ég ekki kost á þvi. Ég væri alveg til i aö skipta sumarfriinu minu i tvennt, og taka annan helminginn út að vetrinum. Hótel Vestmannaeyjar" í gang um miðjan nœsta mánuð — Nýir eigendur að Hótel HB „Það er alltaf gaman aö byggja eitthvaö upp, og svo væntum við alls hins bezta”, sagöi Konráð Viðar Halldórsson, ungur fram- reiðslumaður, sem ásamt bróður sinum Birgi Viöari Halldórssyni, framreiöslu- og matreiöslu- manni, hefur nú keypt Hótel HB I Vestmannaeyjum, en þeir bræöur hyggjast skira hótelið upp á nýtt, og kalla það Hótel Vestmanna- eyjar. vinna fram að miönætti á hverri nóttu við að mála, pússa, og þar fram eftir götunum, enda er um að gerá að hafa sem mest tilbúið fyrir sumarið, þarsem þeir bræð- ur eiga von á miklum túrista- flaumi til Eyja þá. 30 herbergi eru i hótelinu með 60 rúmum. Allt hótelið á að teppa- leggja og siðar meir verður kom- ið fyrir baði i öllum stærstu herbergjunum. Þeir bræður eru ættaðir frá Eyjum og bvi heimavanir,- EA. Þetta er eina hótelið i Vest- mannaeyjum, en Hótel Hamar fór undir hraun, og Konráð kvaðst ekki vita til þess að annað hótel væri i uppsiglingu. Húsið keyptu þeir bræður á 21 milljón, en þeir reikna með 5-6 milljónum i byrjunarkostnað við að endurnýja það að nokkru og breyta þvi.Húsið fór nokkuð illa i eldgosinu, t.d. komu sprungur i veggi og loft. Þeir bræður hyggjast fyrst opna diskótek á neðstu hæð hótelsins, og þar verður væntan- lega siöar meir komiö fyrir bar. Kaffiteriu hyggjast þeir opna á neöstu hæðinni um mánaðamótin og fyrsta herbergishæðin, en þær eru þrjár, verður liklega opnuö um miðjan febrúar. TJnnið er stöðugt-að endurnýjun hússins. 10 iðnaðarmenn vakna þar eldsnemma á morgnana og Það er unniö aö endurnýjun Hótelsins t Eyjum frá þvf snemma á morgnana fram að miðnætti. Til vinstri er annar eigandinn Konráð Viöar Halldórsson. (Ljósm.:B.G.) LESENDUR HAFA ORÐIÐ •• KONUR EKKI JAFNAR KORLUM í VÍXILMÁLUM Þorbjörg hringdi: „Mér varö það tilefni til aö hringja, þegar ég las bréf konunnar, sem skrifaði um, aö bankarnir vildu siður vixla meö konur sem ábekinga. Ég er sannfærður um, að banka- stjórarnir gera mikinn mun á konum og körlum, þegar um er að ræöa áritanir á vixilskuld- bindingar. T.d. spyrja þeir mig, þegar ég fer á þeirra fund að biðja þá um að kaupa af mér vixil, hvort mað- urinn minn skuldi vixil i bankan um. En þeir spyrja ekki manninn minn, hvort konan háns skuldi einhverja vixla. Við heimavinnukonur stöndum BILFLOKIN TIL VARNAÐAR Óskar skrifar: „Umferðaryfirvöld ættu að taka þessi bilhræ úr árekstrunum og stilla þeim upp utan vegar, eins og á Reykjanesbrautinni eða öðrum slikum stöðum, þar sem umferðaróhöpp verða flest hver. Með þvi að setja siðan við hræin skilti með áletrunum á borö við „Akiö varlega”, þá ættu þau að verða þörf áminning. Ég veit vel, að það var eitt sinn gert að setja upp svona bilflök til sýnis hér og hvar um miðja borg- ina. En slysin verða ekki i miðbænum nema fá. Og bilflökin þurfa að vera nærri slysstööun- um. Mig rekur minni til þess, að ein- hverjir tóku til þess, að bilhræin væru óviðurkvæmileg. En það eru bara slys lika, nema þó i enn meiri mæli”. FLEIRI SPILAVÍTI P.G. hringdi: „Mér likar afar vel að sjá það i blöðum, að búið skuli vera að loka þessum Hábæ, sem svo var nefndur. Svo ætti þessi lög- gæzla að athúga, að það eru fleiri spilaviti til en Laugavegur 178. En til hvers er verið að segja: „Meö lögum skal land byggja” — — ef ekki er svo farið eftir þvi. Er ekki fjárhættuspil bannað á Is- landi. Samt þróastklúbbar og það við hjartarætur þessarar fallegu nýbyggingar, lögreglustöðvar- innar. Þeir eru þá blindir,ef þeir ekki sjá það, þarna beint á móti. Ég er ein af þeim mörgu kon- um, sem hef við þetta vandamál að striða. Svo að lögreglan ætti að gefa þessum klúbbum gaum, þótt viðlifum ivelmegun, hvarer hún hjá verkamanninum, ef hann get- ur gengið inn i þessa klúbba og eytt sinu fé við spilamennsku og eyðilagt með þvi heimilisfrið fyr- ir konu og börnum”. heldur ekki jafnfætis mönnum okkar i þessum málum. Þvi að launaumslagið er stilað á þeirra Ágœtis P.G. skrifar: „Ég hafði gaman að sjá þáttinn I sjónvarpinu „Krunkað á skjáinn” að þessu sinni. Þessi elskulegi kokkur sem tók upp hanzkann upp fyrir konuna, ef hún skyldi þurfa aö fara i bæinn þvi alltaf er skuldinni skellt á nafn, en ekki húsmóðurinnar, og húsið er á þeirra nafni — ekki satt?” kokkur hana, ef hún er ekki við eldavél- ina, þegar komið er heim. En þetta er sá . eini, sem hefur sýnt konunni virðingu, af öllum þessum kokkum, sem i sjónvarp- ið hafa komið. Og hefði ég gaman að vita heiti mannsins, og hvar hann er kokkur.”

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.