Vísir - 14.01.1974, Blaðsíða 5

Vísir - 14.01.1974, Blaðsíða 5
Visir. Mánudagur 14. janúar 1974 5 AP/NTB ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND Umsjón Guðmundur Pétursson Þessir tveir I.undúnabúar búa sig á bekknum undir langa biö eftir lestinni, sem þeir ætla meö. Þetta var fyrir helgi, þegar lcstirnar stöðvuðust nær alveg, þegar fjöldi lestarstjóra lagöi niöur vinnu i samúðarskyni við félaga sína, sem lestarfélagiö haföi rekiö heim eftir hægagangsaðgerðir. LONG BIÐ EFTIR LESTUNUM SUNNUDAGAAKSTUR BANNAÐUR Konan til hægri á myndinni hér viö hliðina fær sektarmiða hjá Kaupmannahafnarlögreglu- þjóninum fyrir að aka á sunnu- degi, sem er stranglega bannað og varðar allt að 16.500 króna sekt. Lögregluþjónninn gefur auga þrem konum, sem þramma þarna hjá á leið i kirkju. Þær þarf hann þó ekki að sekta, þvi að þær komu gangandi aö heiman, enda liafa þær ekki leyfi fremur en aðrir til að aka á sunnudögum. Talið frá vinstri eru þær Benedikta prinsessa, drottningarmóðirin Ingiriður og Margrét drottning. > > Cgyptar taka til- lögu ísraels vel Kissinger á fundum með Sadat eftir viðrœður við Dayan ísrael fól Henry Kissinger utanrikisráð- herra að leggja fyrir Egypta tillögu þeirra um, hvernig haga megi afturköllun herjanna frá bökkum Súezskurð- ar. „Þetta verður i beggja þágu, þvi ég held, aö þetta sé sanngjörn tillaga", sagði Yigal Allon, að- stoðarforsætisráðherra, sem leyst hefur Goldu Meir af i veik- ingum hennar. ,,Ég mun gera mitt bezta til þess að kynna tillögu tsraels, þegar ég hitti Sadat forseta”, sagði Kissinger, þegar hann kom frá fundum við israelska ráða- menn i gær — þá Allon, Dayan varnarmálaráðherra og Eban utanrikisráðherra. Kissinger átti svo i morgun fund með Anwar Sadat Egypta- landsforseta i Aswan, en það er búizt við þvi, að hann fljúgi siðan i kvöld aftur til tsraels til þess að greina frá viðbrögðum Egypta. Er það fyrr en vænzt hafði verið. Samkvæmt upplýsingum frá Kairó , ku Egyptar liafa fátt út á tillögu tsraela að setja. t megin- dráttum er hún sögð eanga út á það, að tsrael bjóðst til að hörfa með lið sitt af vesturbakkanum Egyptalandsmegin og siðan með allt liðið 18 til 30 milur austur frá skurðinum ( til fjallaskarðanna i Sinaievðimörkinni). I staðinn munu tsraelar vilja, að Egyptar kalli skriðdreka sína, eldflaugar og stórskotalið frá austurbakk- anum til þess að sanna friðarvilja sinn. Eldflaugar ó Phompenh Uppreisnarmenn skutu i nótt þrem eld- flaugum að hernaðar- mannvirkjum i höfuð- b o r g K a m b o d i u, Phnompenh, en ein eld- flaugin kom niður i nær- liggjandi íbúðarhverfi. Ellefu óbreyttir borg- arar létu lífið, og þar á meðal eiginkona fransks hernaðarráðgjafa, sem staddur er i Kambodiu. 1 morgun fréttist enn af hörðum bardögum fyrir utan borgina Phnompenh, en um helgina höfðu flugsveitir stjórnarinnar gert árásir með napalmsprengjum á óvinastöðvar á þessu svæði. Uppreisnarmenn hafa einnig þrengt að bæ einum nokkru sunn- an við Phnompenh. F'jórar manneskjur létu lifið i árás þeirra um helgina á þorp eitt i nágrenni við borgina Takeo. Lon Nol, forseti Kambodiu, vis- aði i gær á bug tillögu um, að hann s'égði af sér til þess að opna leið til friðarsamninga við upp- reisnarmennina. Var það fyrr- verandi forsætisráðherra, Son Sann, sem lagði þetta til i bréfi til Lon Nol. Sérfrœðingar búnir að skoða spólurnar Sérfræðingar eiga núna i vikunni að leggja fram skýrslu um segul- böndin, sem Nixon for- seti hefur látið af hendi við John Sirica dómara. Á segulspólum þessum er m.a. að Flóðin í Ástralíu Verstu flóð, sem komið hafa í Ástraliu, á sföusu 19 árum, voru I New South Wales þar i siðustu viku. Þessi mynd var tekin I Coonable, sem er um 300 milur frá Sidney, en þar lagði vatnið allan bæinn undir. 1 Queensland i New South Wales misstu rúmlega 500 manns heimili sin, og tjónið er metiö á 400 milljónir króna. FJOLDAMORÐIN FYRIR RÉTT í HOUSTON Réttarhöld hefjast i dag i máli 17 ára ung- lings, en þau risa út af e i n h v e r j u m þe i m hræðilegustu morðum, sem Texasbúar minnast. — Lögreglan fann i fyrra lik 27 fórnarlamba morð- íngjanna grafin i jörðu Þessi 17 ára gamli Elmer Henley, sem visaöi lögreglunni á fjöldagrafirnar, er ákærður fyrir hlutdeild i nokkrum þessara morða. En hann játaði fyrir lög- reglunni að hafa ginnt með sér á fund hins 33 ára gamla Allan Corll unglinga, sem hinn siðar- nefndi myrti, eftir að þeir höföu neytt þá til þátttöku i kynvillings- svalli. Morð þessi komu fram i dags- ljósið i ágúst i fyrrahaust, þegar Henley gaf sig fram við lög- regluna og tilkynnti henni, að hann hefði skotið Corll i sjálfs- vörn. Sagði hann, að Corll hefði haft i hótunum við hann, æfur vegna þess að annar unglingur- inn, sem Henley hafði komið með til hans daginn áður, hafði verið stúlka 15‘ára. Henley er sóttur sérstaklega til saka fyrir morð á 17 ára gömlum ungling frá Houston, þar sem Henley og Corll áttu sjálfir heima, en þar voru öll morðin framin. Meðal likanna, sem lögreglan gróf upp, fundust fjöldamargir, sem foreldrar höfðu saknað lengi og lýst týnda. Lögreglan hafði aldrei fundið tangur né tetur af þeim. finna upptökur af sam- tölum, sem Nixon forseti hefur átt við ráðgjafa sina um Watergate- málið. En sumir þessir ráðgjafar hafa siðar reynzt vera gjör- kunnugir Watergate njósnunum frá upphafi. Stórir hlutar af upptökum þessum hafa spillzt vegna hávaða, sem komið hefur inn á spólurnar. Sérfræðingarnir áttu að ganga úr skugga um, hvort nokkuð hefði verið reynt að má út hluta af samtölunum. Crosby missti lunga Söngvarinn Bing Crosby gekkst undir skurðaðgerð I gær á sjúkrahúsi I Kaliforniu, þar sem hann hefur verið rúmfastur siðar á nýársdag vegna bóigu 1 lungum. Rannsóknir höfðu bent til þess, að hann hefði lungna- krabba, en viö uppskurðinn i gær var einn fimmti af vinstra lunga söngvarans numinn burt. Fyrstu athuganir á þessum hluta lungans sýna, að söngvar- inn er með illkynjaða bólgu i lunganu. Læknir Crosbys sagði, að að- gerðin hefði tekizt vel og Crosby liði ágætlega eftir atvikum.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.