Tíminn - 08.01.1966, Side 2
TÍiyilNN
LAUGARDAGUR 8. janiíar 1966
50 VEIKA SENDINEFND-
IN KOMIN TIL HANOI
NTB-Peking og Moskvu, föstudag.
Sovézka sendinefndin til NorS-
ur-Víetnam, meS Aleksander Sjel-
jepin í fararbroddi, kom í dag til
Hanoi. Nefndin miillenti í Peking
og fékk þar mjög kaldar viStök-
ur. Sjeljepin og samferSamenn
menn hans dvöldu á Pekingflug-
vellinum í 45 míniitur, en hélt
síSan til Hanoi.
Flugvöllurinn í Peking virtist al-
gjörlega yfirgefinn þegar sovézka
flugvélin lenti. Engir fánar voru
við hún, né heldur var flugvöllur-
inn skreyttur blómum, eins og
venja er, þegar tekið er á móti
erlendum sendimönnum, og eng-
ar ræður voru haldnar. Þegar flug
vélin hafði stöðvazt fyrir framan
flugvallarbygginguna, kom kín-
verska móttökunefndin út á völl-
inn með Li Hsien-Nien, aðstoðar-
forsætisráðherra í fararbroddi, og
voru móttökumar enn kuldarlegri
en menn höfðu ímyndað sér fyrir-
fram.
Bros kom aldrei fram á varir
ÞYRLUR FLYTJA FARÞEGA MILLI
FLUGVALLAR OG MANHATTAN
Hinn 22. desember s.l. hófust
áætlunarferðir meS þyrlum milli
Pan Am byggingarinnar í miðri
New York borg og J.F. Kennedy
flugvallarins. Ferðin tekur aSeins
7 mínútur en þessi ferð í bíl get-
ur tekiS 1—2 tíma og stundum
lengur ef umferSin er mikil.
Það er flugfélagið „New York
Airways" sem annast þetta flug
á vegum Pan American. Farnar
eru 17 ferðir á dag — í sam-
bandi við ferðir Pan American
frá J.F. Kennedy flugvelli.
Þessi flugferð kostar kr. 300.00
fyrir aðra leiðina — en kr. 430.00
báðar leiðir, en það er minna en
kostar að aka í leigubí! þessa
sömu leið.
Farþegar sem fara frá New York
aka að sérstakri afgreiðslu í Pan
Am byggingunni. Hrafðfara lyftur
flytja farþegana upp á 58 hæð
byggingarinnar, en þaðan eru nokk
ur skref út á þak byggingarinn-
ar, þar sem þyrlan stendur til-
búin til flugs. Þegar þyrlan lend-
ir við byggingu Pan Am á flug-
vellinum ganga farþegar beint um
borð í þotuna sem flytur þá frá
New York.
Þegar farþegar Pan Am koma
til New York og hafa lokið toll
skoðun er þeim ekið beint að
þyrlunni sem flytur þá á 7 mín-
útum til miðborgarinnar og lend-
ir með þá á þaki Pan Am bygg-
ingarinnar á miðri Manhattan.
Þessi þyrlu-flugvöllur — þakir
á Pan Am byggingunni — er rúm-
lega 23 þúsund ferfet á stærð og
er í 800 feta hæð frá götu.
Þess má að lokum geta að ís-
ienzkir farþegar Pan Am geta að
sjálfsögðu keypt sína þyrlu-far-
miða um leið og þeir kaupa far-
seðla sína hjá Aðalumboði Pan
American, Hafnarstræti 19, eða
hjá ferðaskrifstofunum.
Ferðir Pan Am um ísland eru
á hverjum fimmtudegi. Þoturnar
koma hingað að morgni og fara
ti! Glasgow og Kaupmannahafnar.
Flugtíminn til „Hafnar“ er aðeins
Ódæði framið
í þýzkum fogara
HZ—Reykjavík, föstudag.
Um hálf átta leytið í morgun
lögðu þrír unglingar leið sína
um borff í þýzka togarann Fehr-
marn, sem staddur er í Rvíkur-
höfn vegna viðgerða. Pilturinn
þuirfti aff skreppa frá borði
nokkru síðar. og voru stúlkurnar
þá einar síns liðs í félagsskap
þýzku sjómannanna. Önnur þeirri
brá sér á salernið, og þegar því
var lokið, kemur hún fram aftur
og þá býðst einn skipverjanna
að sýna henni eitthvað í káetu
sinni. Skipti það engum togum,
aff þegar inn í herbergið var kom
ið. læsti sjómaðurinn dyrunum.
Stúlkan fór þegar ag hrópa á
hjálp og heyrði hin stúlkan til
hennar og vildi koma henni til að
stoðar, en gat ekkert affhafzt og
hringdi því ti! lögreglunnar, sem
komin var á staðinn hálftíma eft
ir að stúlkan lenti inn í herberg
inu. Var stýrimaðurinn fenginn
til þess að opna með lykli og
blasti þá við ljót sjón, maðurinn
og stúlkan ber fyrir neðan mitti,
og stúlkan grá'tandi og miður sín.
Kvenlögreglan tók hana i sína
umsjá en ódæðismaðurinn sett
ur í tugthús og vai hann síðan vf
irheyrður í dag Annar maður
var í sömu káefu og óverknaður-
inn fói fram. og lá i sinni koju
óhagganlegur Verður hann einn-
ig sóttur a? íslenzkum lögum
Framhald á bls. 14.
þrír og hálfur tími og er komið
til Hafnar um hádegíð á dönskum
tíma. Þessar Kaupmannahafnar-
Framhald á bls. 14.
Einn staður opnað-
ur opnaður klukkan
6 á morgnanna
HZ-Reykjavík, föstudag.
Sigríður Magnúsdóttir á Vita-
barnum á Bergþórugötu 21 hér
í borg skýrði Tímanum frá því,
að hún opnaði kl. 6 á morgnana
og byði þá upp á fjóra heita mat-
arrétti og auk þess kaffi, brauð
og gosdrykki. Sagði hún að fjöldi
manns kæmi þegar opnað væri og
þeir væru þakklátir fyrir að geta
fengið eitthvað í svanginn svo
snemma dags. Opið er hjá henni
til klukkan hálf tólf á kvöldin.
Sigríður taldi nauðsynlegt, að ein-
hver veitingastaður hefði nætur-
sölu.
Li meðan Sjeljepin staðnæmdist í
Peking. Hann gekk til móts við
Sjeljepin og tók létt í hönd hans.
Fréttamenn komust ekki hjá því
að taka eftir hversu andstæðir
mennirnir tveir voru. |Li, sem er
60 ára, fyrrverandi smiður, stóð
að því er virtist áhyggjufullur og
næstum því reiður fyrir framan
Sjeljepin, með grátt stuttklippt
hár og í slitnum, brúnum frakka.
Sjeljepin var aftur á móti glæsi-
lega klæddur með persneska skinn
kraga um hálsinn og hatt i sama
stíl, og virtist öruggur með sjálf-
an sig og veldi og mátt þjóðar
sinnar.
BANASLYS A
AKUREYRI
KJ-Reykjavík, föstudag.
Banaslys varð á Akureyri í
gærkvöldi um klukkan sjö, er
planki lenti í höfuðið á Karli
Njálssyni Þverholti 18 Akureyri,
og var hann látinn er komið var
með hann á sjúkrahúsið.
Karl var að vinna við nýbygg-
ingu Byggingavörudeildar KEA á
Gleráreyrum, og var komið að
honum liggjandi við nýbygging-
una, en hann var látinn er kom-
ið var með hann á sjúkrahúsið.
GÝSÍTVEIM
STÖÐUM VIÐ
SURTSEY
FB-Reykjavík, föstudag.
f dag, eftirmiðdag, flaug
gæzluflugvélin Sif yfir nýju gos-
stöðvarnar við Surtsey. Voru gos-
in tvö, en lítil og stutt milli
þeirra. Hæð sprengigosa var um
10 til 15 metrar og mynduðust
smágufubólstrar, sem eyddust áð-
ur en þeir náðu að berast inn
yfir Surtsey. Engin eyja var sjá-
anleg, en sjór brotnaði mikið við
gosin.
Einnig sáust öðru hverju eld-
bjarmar niðri í sjónum. Veður
var suðvestan stinningskaldi mik
ill sjór.
Sjeljepin talaði með hárri röddu
eins og hann vildi að blaðamenn-
irnir heyrðu allt, sem hann sagði. '
Inni í flugstöðinni bættust so- ;
vézkir og kínverskir diplómatar
og opinberir embættismenn í
hópinn, en umræðurnar snerust
einungis um veðrið. Sjeljepin upp
lýsti, að 15 gráðu frost væri í
Moskvu, og Li sagði honum frá
veðrinu í Kína.
Upphaflega var áætlað að Sjelje
pin og samferðamenn hans myndu
dvelja í Peking í eina og hálfa
klukkustund, en í því blaðamenn-
irnir höfðu setzt og ætluðu að
grípa til matar síns, var þeim sagt,
að sovézku fulltrúarnir væru að
fara. Hafði viðdvölin í Peking þá
aðeins staðið í 45 mínútur.
f Hanoi var Sjeljepin aftur á
móti tekið mjög vel. í för með
Sjeljepin er m.a. sovézkur eld-
flaugasérfræðingur, en ekki er
enn vitað, hver er hinn eiginlegi
tilgangur fararinnar.
ÞÓR NÁÐ-
ISTÚT
KJ—Reykjavík, föstudag-
Varðskipið Þór náðist á
flot snemma í morgun, og
tókst verkið vel.
Var björgunaraðgerðum
hagað Þannig að tveim stór
um bílum með spilum var
komið fyrir á Grandagarði,
og vírarnir úr þeim lagðir í
gegn um nýju vöruskemm
una á Grandabryggjunni, og
í dráttarsltðann í Slippnum.
Þá var heljarmikil ýtuskófla
látin ýta á vagninn í Slíppn
um, og dráttarsleðinn dreg
inn niður þangað til Þór
var kominn á flot. Var unn
ið að þessum björgunartil
raunum í nótt, og klukkan
um fimm í morgun var varð
skipið komið aftur á flot.
Það var vinnuflokkur úr
Slippnum sem vann að
þessu.
Varðskipið var síðan
bundið við bryggju, en ekki
verður hægt að ganga end
anlega úr skugga um
skemmdir á því fyrr en það
verður tekið í slipp.
Flugumferðin á íslenzku
flugstjórnarsvæði eykst
GE-Reykjavík, föstudag.
Á árinu sem leið varð 10% aukn
ing á umferð um íslenzka flug-
stjórnarsvæðið frá því sem var ár-
ið áður. Á fundi með fréttamönn-
um i dag sýndi flugmálastjóri
Agnar Kofoed Hansen heiðurs-
skjal, sem íslenzku flugumferða-
stjóminni hefði borizt frá sam-
bandinu Flight Safety Foundati-
on,.
Flight Safety Foundaaon er sam
band með aðsetri í Handaríkjun-
um og markmið þess er að stuðla
að öruggum flugsamgöngum um
víða veröld. Heiðursskjalið, sem
hér um ræðir er veitt fyrir fram-
úrskarandi öryggi i flugþjónustu
yfir Norður-Atlantshaf, en á
Reykjavíkurflugvelli er sem kunn-
ugt er höfð með höndum aðalum-
sjón með flugi á þessu svæði. sem
auk Reykjavíkurflugvallar, flugvell
ina í Prestvík, Gander og Shann-
on. Sagði flugumferðastjóri að
með þessu væri íslenzku flugum-
ferðastjórninni sýndur mikill heið-
ur.
í fréttatilkynningu frá Flugmála
stjóra er gerð grein fyrir flugum
ferð hér á landi á síðastliðnu ári.
Samkvæmt henni hefur umferð um
íslenzka flugstjórnarsvæðið aukizt
um 10% frá 1964. Innanlandsflug
hefur færzt mjög í aukana, bæði
hvað snertir áætlunarflug og einn
ig kennsluflug æfingaflug, einka-
flug og sjúkraflug. Hins vegar hef
ur utanlandsflug um Reykjavíkur
flugvöll minnkað og veldur því, að
þetta var fyrsta heila árið, sem
Loftleiðir flugu aðeins frá Kefla-
víkurflugvelli. Talsverð umferð
var þó um Reykjavíkurflugvöll á
árinu sem leið eins og sjá má
af því, að dag einn í sumar voru
þar 178 flugtök og lendingar á
einum klukkutíma. Millilandafar-
þegaflug um Keflavíkurflugvöll var
talsvert meira í ár heldur en í
fyrra. Aukning á umferð um
Reykjavíkurflugvöll og Keflavík-
urflugvöll samanlagt nam 12%. At-
hyglisvert er það, að einkaflug hér
á landi er sífellt að aukast. Sam-
kvæmt upolýsingum frá Bárði Dan-
Framhald á 14. siðo.
i • I
i • i i 11; i j